blaðið - 06.03.2007, Blaðsíða 11
blaðið
Þýskaland:
Takmarkanir
á Autobahn
Tæplega sextíu prósent Þjóð-
verja eru samþykkþví að settar
verði hraðatakmarkanir á þýsku
hraðbrautunum til þess að draga
megi úr losun gróðurhúsaloftteg-
unda, samkvæmt niðurstöðum
nýrrar skoðanakönnunar sem
birtust í dagblaðinu Leipziger
Volkszeitung í gær. Sigmar Gabri-
el, umhverfisráðherra Þýskalands,
segist styðja hugmyndir um slík-
ar hraðatakmarkanir, en að það
sé fýrst og fremst til að minnka
slysatíðni á hraðbrautunum.
Loftslagsmál verða til umræðu
á leiðtogafundi Evrópusambands-
ins í Brussel í vikunni og segir
Angela Merkel að leitast verði
við að samþykkja sérstaka að-
gerðaáætlun varðandi minnkun
losunar gróðurhúsalofttegunda
innan Evrópusambandsríkjanna.
Hraðakstur:
Ungt fólk
á hraðferð
Tveir piltar, sautján og átján
ára, voru teknir við Fisldslóð
í Reykjavík langt yfir hámarks-
hraða, sem er 50. Annar þeirra ók
á 112 og hinn 117 kílómetra hraða.
Sá eldri hefur nokkrum sinnum
áður verið tekinn fyrir hraðakst-
ur. Báðir piltarnir missa ökuleyfið.
Annar 17 ára piltur var tekinn
á Vesturlandsvegi í Mosfellsbæ á
123 kílómetra hraða, samkvæmt
lögreglu. Tvítugur karlmaður
var svo stöðvaður á Hafnar-
íjarðarvegi en hann ók á 130
og á sama stað tók lögreglan
konu á sama aldri á 1.20.
Fimmtíu ökumenn voru teknir
fyrir hraðakstur um helgina en
þeir voru stöðvaðir víðsvegar um
umdæmið. Önnur tvítug kona
var stöðvuð á Álfhólsvegi þar
sem leyfður hámarkshraði er 30
en hún ók á 66 kílómetra hraða.
Eldri borgarar:
Frítt í strætó,
sund og á söfn
Eldri borgarar í Hafnarfirði,
sextíu og sjö ára og eldri, fá
afhent á næstunni sérstakt
vildarkort frá bænum sem veitir
þeim vildarkjör hjá stofnunum
hans. Megináherslan er sú að
auðvelda eldri borgurum að
taka þátt í íþrótta- og félagsstarfi.
Korthafar fá frítt í sund, í strætó
og á söfn ásamt því að fá ókeypis
bókasafnskort. Hafnarfjarðarbær
mun niðurgreiða þátttökugjald
eldri borgara þegar kemur að
íþróttaiðkun og líkamsrækt.
ÞRIÐJUDAGUR 6. MARS 2007 11
Áfengisneysla eykst:
Nýtt afbrigði áfengissýki á íslandi
„Unglingum stafar ekki mest
hætta af bjórdrykkju núna heldur
eldra fólkinu sem er komið yfir fer-
tugt,“ segir Þórarinn Tyrfingsson,
yfirlæknir á Vogi. Áfengissýki sem
hefst eftir miðjan aldur er þekkt
víða erlendis en er tiltölulega nýtt
fyrirbæri hér á landi.
„Það sem nú er að koma í ljós
með vaxandi áfengisneyslu lands-
manna er að við erum að fá nýtt
afbrigði af áfengissýki en sú hefst
eftir miðjan aldur,“ segir Þórarinn.
Hjá fólkinu sem fer í meðferð eru
fyrstu dagarnir í afeitrun erfiðir
vegna aldurs, blóðþrýstingshækk-
ana og hjartasúkdóma. Þórarinn
segir að það sé ekki hægt að með-
höndla fólkið á göngudeild því það
er í dagdrykkju.
„Það drekkur bjór á hverjum
degi. Það er öðruvísi en þetta túra-
munstur þegar menn létu renna af
sér því þá var kannski hægt að hitta
á þá þegar þeir voru þurrir. En það
er ekki hægt með þetta fólk því það
er stöðugt drukkið.“
Þórarinn segir að það þurfi að
draga úr áfengisneyslu hér á landi.
„Það vita allir hvernig á að draga úr
henni en það er með því að hækka
verð og minnka aðgengi að vör-
unni. Nákvæmlega það sama og var
gert við tóbak og neysla á því hefur
minnkað. En það er enginn sem
vill horfast í augu við það því menn
Þórarinn Tyrfingsson, yfirlækn-
ir Unglingum stafarekki mest
hætta af bjórdrykkju núna heldur
eldra fólkinu.
vilja drekka oftar og meira en áður.
Við lifum í lýðræðislegu þjóðfélagi
þar sem vilji þjóðarinnar ræður og
endurspegla þingmenn það.“
BARNA VIT
Náttúruleg vitamlo og iteinefnt
fyrir böm til aö tyggja eöa sjúga
120 töflur
Bragögóöar vítamíntöflur
fyrir börn og unglinga
heilsa
•'■oav'Ö
mr
-haföu þaö gott
ÞEKKIR ÞU LANDIÐ?
ÞEKKIRÐU STAÐINN Á MYNDINNI?
Ef svo er þá fyllir þú út mida þegar þú kemur og reynsluekur L-2Q0.
Heppinn þátttakandi vinnur úttekt í Ellingsen ad verdmæti 100.000 kr.
Mitsubishi L-200 er ótrúlega fjölhæfur jeppi. Hann er kraftmikill, rúmgódur,
glæsilega hannadur og vel búinn. Super Select drifbúnadurinn tryggir frábæra
aksturseiginleika vid allar adstædur. Beygjuradíusinn (sá minnsti í bílum í
hans flokki) gerir hann lipran í öllum akstri, ekki sist innanbæjar. L-200 er
fjölnota fjölskyldubíll, kjörinn til ad komast á þá áfangastadi sem þig dreymir um.
2,5 1 Common-rail vél - hljódlátari og sparneytnari Stödugleikastýring
Enn aflmeiri - 163 hestöfl Spólvörn Krómpakki 17" felgur - 32" dekk
MITSUBISHl
MOTORS
Verd 3.475.000 kr.
Umbodsmann um land allt: Höldur hf., Akurayri, aimi 461 6020 • HEKLA, Borgarnaai. almi 437 2100 ■ HEKLA, íaafirdi. aimi 458 4666
HEKLA, Raydarfirdi, almi 470 5100 • HEKLA, Raykjanaabaa, aimi 420 5000 • HEKLA, Salfoaai. aimi 482 1416
HEKLA, Laugavagi 172-174, aimi 590 5000
mmJ«Ua.ii, haklaShakla.ia