blaðið


blaðið - 06.03.2007, Qupperneq 22

blaðið - 06.03.2007, Qupperneq 22
30 ÞRIÐJUDAGUR 6. MARS 2007 blaðið ferdir@bladid.net Eldri borgarar Flugfélag (slands býður upp á sérstaka upplyftingu fyrir eldri borgara en um er að ræða tilboösferðir fyrir hópa 10 manna eða fleiri. Með þeim gefst fólki tækifæri til þess að þreyta til og kynnast landinu sínu betur, eða jafnvel kíkja á frændur vora Færeyinga. Skíði í Dubai Þótt ótrúlega megi hljóma er hægt að fara á skíði allt árið í Dubai, höfuð- borg Sameinuðu arabísku furstadæmanna. Þar er nefnilega fyrsta flokks skíðahöll með innanhúss-skíðabrautum og manngerðum snjó. Þeir sem prófa að skíða þar eru jafnan á einu máli um aö upplifunin sé mögnuð. ca c> 0 O o ANTÍKIAUGARVEGI33 HÆTTIR Allt að 70% afsláttur Borð, stólar, skápar, skrifborð, píanó, klukkur, málverk, pelsar, leðurjakkar, matarstell, styttur, konunglegt póstulín og margtfleira. Antík / Laugarvegi 33 / S: 5618088 Opið 13-18 mán.- lau. O 0 d? Tvennutilboð Tilboðsverð: 69.900 Nardi Ofn & Gashelluborð RflFTfEKJflOERZLUN I5LÍINDS Ff - ANNO 1 929 - Skútuvogur 1 • Sími 568 8660 • ri@ri.is www.ri.is Valdís Anna Jónsdóttir er sjálfboðaliði á Indlandi: Kennir börnum á tölvur Eftir Hildi Eddu Einarsdóttur hilduredda@bladid.net Á ári hverju leggja fjölmargir ævin- týragjarnir íslendingar í langferð til framandi landa þar sem þeir gefa vinnu sína í þágu uppbyggingar og mannúðarmála. Valdís Anna Jóns- dóttir, ung Akureyrarmær, er einn þessara Islendinga þar sem hún er nú stödd á Indlandi þar sem hún starfar sem sjálfboðaliði. „Ég kom hingað til Indlands fyrir sex vikum á vegum Stúdentaferða og er grunnskólakennari í sjálfboðaliða- starfisegir Valdís Anna. „Ég bý í 10 þúsund manna bæ í norðvesturhluta Indlands og samfélagið er auðvitað mjög ólíkt því sem ég á að venjast heima á íslandi. Ég fékk því töluvert menningaráfall þegar ég kom og fyrst leið mér eins og ég væri komin nokkra áratugi aftur í tímann. En ég er farin að aðlagast núna og er til að mynda alveg hætt að kippa mér upp við það þeagar ég er í bíl sem þarf að nauðhemla út af beljuhjörð úti á miðri götu, en eins og margir vita eru kýr álitnar heilagar hér á Indlandi og af þeim sökum ganga þær óáreittar um borgir og bæi,“ seg- ir Valdís og viðurkennir að hún sé ekki alveg óttalaus. „Ein stelpa sem er líka sjálfboðaliði hér lenti í því að naut stangaði hana úti á götu þannig að ég passa mig alltaf að halda mig í hæfilegri fjarlægð frá kúahjörðun- um. Mér finnst samt dálítið leitt að sjá hvað þær eru illa haldnar, enda virðast þær lifa fyrst og fremst á rusli og pappír í stað þess að fá almenni- lega næringu," segir hún. Tölvur framandi fyrirbæri Á morgnana kennir Valdís ensku í fyrsta bekk grunnskóla og eftir hádegi kennir hún unglingsstúlk- um tölvufræði. „Það er rosalega skemmtilegt að kenna. Litlu krakk- arnir kunna auðvitað mjög lítið í ensku og ég tala ekki hindí, en samt sem áður ganga samskiptin ágætlega og þetta er mjög gaman. Fyrstu tveir tímarnir mínir í tölvufræði fóru síð- an í að kenna stúlkunum að kveikja og slökkva á tölvum og þjálfa þær í notkun músarinnar, enda höfðu þær aldrei áður unnið með tölvur. Ein úr hópnum kemur alltaf í tíma með mömmu sinni sem leyfir henni ekki að koma nálægt tölvunum af því að hún veit ekki almennilega hvernig þær virka og treystir þeim því ekki,“ segir hún. Glöddust yfir Vanish-þvottadufti Aðspurð segist Valdís Anna ekki vera komin með mikla heimþrá, enda sé hún ekki búin að vera mjög lengi i burtu. „Ég kom hingað fyrir sex vik- um og á eftir að vinna í tvær vikur í viðbót. 1 kjölfarið ætla ég að ferðast um landið í þrjár vikur og meðal ann- ars skoða Taj Mahal og Mumbai. Svo hef ég verið styrktarforeldri lítillar stúlku á vegum ABC-barnahjálpar i nokkur ár og vonast til þess að geta heimsótt hana á meðan ég er hérna. Þannig að það er í nógu að snúast hjá mér. En þótt ég sé ekki með heimþrá get ég ekki annað en viðurkennt að ég sakna almennilegrar sturtu. Hér er vatnið hálfgruggugt og mér finnst ég aldrei verða nógu hrein, og ofan á það þvoum við fötin okkar úr sama vatni. Um síðustu helgi fór ég ásamt annarri íslenskri stelpu sem er sjálf- boðaliði hérna á hótel eitt þar sem voru góðar sturtur. Það fannst mér alger himnasending og ég held að ég hafi staðið undir bununni í svona klukkutíma. Svo glöddumst við mik- ið fyrir nokkrum dögum þegar við vorum í stórverslun í nálægum bæ og fundum Vanish-þvottaduft, enda töldum við að nú gætu fötin okkar loksins orðið tandurhrein,“ segir Valdís og hlær. Hún bætir því við að hún sakni líka umferðaröryggisins á íslandi. „Hér er fullt af bílum og alger lögleysa. Ökumenn virðast ekki einu sinni þurfa að hafa bílpróf til að geta feng- ið að keyra á götum úti, heldur nægir að geta stigið á bensíngjöfina. Það skapar auðvitað mikið öryggisleysi." Háskólanám næsta haust Valdís Anna lauk stúdentsprófi frá Verkmenntaskólanum á Ákur- eyri um síðustu áramót og stefnir á frekara nám í haust. „Ég er staðráð- in í að fara í háskóla en er reyndar ekki búin að ákveða hvað ég ætla að læra,“ segir hún. Það er því ekki ljóst hvort hún stefnir á nám í fagi sem tengist hjálparstörfum eða ferðalög- um. „Hins vegar er nokkuð ljóst að þessi reynsla hefur víkkað sjóndeild- arhringinn minn og ég á alltaf eftir að búa að henni,“ segir Valdís Anna að lokum. Esther ír ljósmyndari á ferðalagi um Asiu: Margt óvænt kemur upp Skömmu eftir að við lentum í Taílandi fórum við að sækja um landvistarleyfi fyrir Kambódíu, Ví- etnam og Laos, en það tók tvo daga. Við leigðum okkur smárútu með bílstjóra í gegnum hótelið og vorum svo heppin að fá leiðsögumann líka. Um var að ræða konu sem kynnti sig sem Lucky, en algengt er að Ta- ílendingar í ferðamannabransanum taki upp ferðamannavæn gælunöfn. Hún talaði ágætis ensku þótt reynd- ar hafi verið dálítið erfitt að skilja hana á köflum. í Taílandi er alls ekki óalgengt að fólk kunni ekki stakt orð í ensku en það k e m u r sjaldnast að sök af því að yfirleitt er hægt að eiga samskipti með hálfgerðu tákn- máli. Lucky fræddi okkur um Bangkok og sögu Taílands sem var mjög fróðlegt og skemmtilegt krydd í bíltúrinn á milli sendi- ráða fram og til baka. Við komumst að því að kamb- ódíska sendiráðið hafði nýlega flutt og að víetnamska sendiráðið var harðlokað þegar við komum þangað í hádeginu og starfsmenn þar voru hálfmóðgaðir þeg- ar við létum sjá okkur þar Filippseyjar jj þejm tjma dagS. Eftir á þegar við fórum að lesa okkur til um Ví- etnam komumst ■ ' S| við að því að þar í • - Mfjttí >#*• Tvær litlar taíienskar stelpur að spóka sig úti á götu. Blaðið/Eslherlr landi er hádegismaturinn í miklum hávegum hafður og afar dónalegt þykir að trufla fólk á matartíma. Mislangan tíma tekur að fá vega- bréfsáritanir, eða allt frá einum klukkutíma, ef borgað er sérstakt express-gjald, og upp í hálfan dag auk þess sem sendiráðin eru opin á mismunandi tímum. Þannig að það er eins gott að vera búinn að kynna sér þetta sem allra best áður en hald- ið er af stað. Framhald í næstu viku...

x

blaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.