blaðið - 10.03.2007, Síða 2

blaðið - 10.03.2007, Síða 2
2 LAUGARDAGUR 10. MARS 2007 blaðið Donald Trump Bandaríski viðskiptajöfurinn erí 314. sæti yfir ríkustu menn. VEÐRIÐ I DAG Á MORGUN VÍÐA UM HEIM Á FÖRNUM VEGI Léttir til Lægir og léttir til víða um land en þykknar upp með ört vaxandi suð- austanátt sunnan- og vestanlands síðdegis. Vægt frost inn til landsins í nótt en á morgun hlýnar nokkuð. Algarve 18 Glasgow 5 New York -9 Amsterdam 8 Hamborg 7 Orlando 14 Barcelona 15 Helsinki 3 Osló 3 Berlin 12 Kaupmannahöfn 7 Palma 23 Chicago 8 London 12 París 9 Dublin 10 Madrid 17 Stokkhólmur 5 Frankfurt 12 Montreal -21 Þórshöfn 7 Skúrir Suðvestan 8-13 og skúrir eða slydduél suðvestan til og þá lægir heldur og styttir upp norðaustan til. Hiti 0 til 5 stig. HVAÐÁAÐGERAUM HELGINA? Björgólfsfeðgar á lista Forbes yfir ríkustu menn heims: Davíð og Halldór: Fengu boð um lista Bush „Þegar við fengum boð um að fá að vera í hópi hinna staðföstu bandalagsþjóða svikumst við að sjálfsögðu ekki undan merkjum.“ Þessi orð eru höfð eftir Davíð Odds- syni, fyrrver- andi forsætis- ráðherra, í DV 21. mars 2003, að því er Ögmundur Jónasson, þingmaður Vinstri grænna, bendir á í grein í Blaðinu í dag. Guðni Ágústsson landbúnað- arráðherra lýsti því yfir á þingi á dögunum að Bandaríkjamenn hefðu misnotað vilja íslendinga með því að lýsa því yfir að ís- lendingar væru í hópi viljugra og staðfastra þjóða. Jón Sigurðsson viðskiptaráðherra sagði einnig listann einhliða framsetningu Bandaríkjamanna. Ögmundur segir þetta ósvífinn hvítþvott. Reykjanesbraut: Valt eftir kappakstur „Við erum klárlega að rann- saka atburðinn sem kappakstur milli ökumannanna og þeir hafa báðir stöðu sakborninga í málinu. Fjöldi vitna hefur gefið sig m °g staðfesta þau afar háskalegan akstur,“ segir Jón Þ°r Karlsson, varðstjóri lögregl- unnar á Suðurnesjum. Á miðvikudagskvöld valt bifreið á Reykjanesbraut eftir að tveir tvítugir ökumenn höfðu verið í kappakstri eftir brautinni á bílum sínum. Mildi þykir að engin alvarlega slys urðu á öku- mönnumeða farþegum bílanna en einn einstaklin&ur li22ur enn á Landspítalanum í Fossvogi. ——— ^ Góður! Einar Sigurðsson Vinna í Bónus á morgun og í bíó á sunnudaginn. Dyravörður meiðist á framhaldsskólaballi: Fjórir hryggjarliðir brákaðir Fjórugt skólaball Fjölbrauta skohnn í Breiðholti hélt árshá tíð stna á Hótel Selfossi. „Þetta var villt og fólk náði ekki að hemja sig. Mikil ölvun var og gestir alveg vitlausir. Hlutirnir fóru úr böndunum og töluvert verkefni fyrir lögregluna að sinna þessu,“ segir Jón Lárusson, varðstjóri lög- reglunnar á Selfossi. Lögreglan á Selfossi sinnti ítrek- uðum útköllum vegna árshátíðar Fjölbrautaskólans í Breiðholti sem haldið var á Hótel Selfossi í fyrra- kvöld. Flestir samkomugestir héldu heim á leið að loknum dansleik með rútum en þrír voru færðir í fanga- klefa. Einn þeirra var sóttur en hinir tveir sváfu úr sér á lögreglustöðinni. Dyravörður brákaði fjóra hryggjar- liði eftir samskipti við annan þeirra og var fluttur í bæinn með sjúkrabíl. Sama aðila bíður hugsanlega kæra vegna skemmdarverka. I samtali við Blaðið staðfesti eig- inkona dyravarðarins að áverkar hans væru eftir árás frá viðkomandi nemenda. Hún sagði málið til rann- sóknar og að svo stöddu væri ekki hægt að gefa frekari upplýsingar. Stefán Benediktsson, aðstoðar- skólameistari Fjölbrautaskólans í Breiðholti, er miður sín vegna ólatanna. Hann ítrekar að, líkt oe áður, séu það fáir eiumklinga? sem skemma fyrir fjöldanum. „Því miðl.lr Jýðist þetta vera orðið vandamál hjá framhaldsskólunum og aðgengi að áfengi of auðvelt. Við r,”Ue”,Ia_k‘ m'58 ha" 4 !»*».• Eftir Atla ísleifsson og Magnús Eyjólfsson frettir@bladid.net Feðgarnir Björgólfur Guðmunds- son og Björgólfur Thor Björgólfs- son komast einir íslendinga inn á lista Forbes-tímaritsins yfir rík- ustu menn heims. Björgólfur Thor kemst í 249. sæti listans þetta árið og hoppar upp um hundrað sæti frá því í fyrra. Björgólfur eldri kemst í fyrsta sinn inn á listann. Bill Gates er ríkasti maður heims þrettánda árið í röð með eignir metnar upp á 56 milljarða Bandaríkjadala. Forbes metur eignir Björgólfs Thors upp á 3,5 milljarða dala, 235 milljarða íslenskra króna, í saman- burði við 2,2 milljarða dala í fyrra. Þó svo hann eigi nokkuð langt í land með að ná efstu mönnum skýtur hann nokkrum þekktum ein- staklingum ref fyrir rass, svo sem kvikmyndaleikstjóranum Steven Spielberg (287), viðskiptajöfrinum Donald Trump (314) og sjónvarps- konunni Opruh Winfrey (664). Eignir Björgólfs Guðmundssonar eru metnar á 1,2 milljarða dala, eða um 80 milljarða ís- lenskra króna. f umsögn For- bes um Björgólf Thor segir c, að hann hafi FJT- staðið í um- V*jj fangsmiklum / fjárfestingum í "h Austur-Evrópu \ og eigi auk þess eignir á Norðurlöndum, Tyrklandi og Spáni. Þá er hann sagður vera nálægt því að ganga frá kaupum á amerísku fjárfestingafyrirtæki. Á listanum má nú finna 946 manns samanborið við 793 í fyrra. Listinn sýnir að ríkustu menn heims verði sífellt yngri og ríkari. Þannig hefur meðalaldur milljarða- mæringanna lækkað um tvö ár milli ára, úr 62 í sextíu ár. Meðal nýliða á listanum eru Howard Schultz, stofn- andi kaffihúsakeðjunnar Starbucks, og Michael Eisner, forstjóri Walt Disney fyrirtækisins. Tíu nýliðar listans eru frá Spáni, en þeir hafa auðgast mikið á gríðarlegri uppbygg- ingu í fasteigna- og byggingariðnaði landsins á undanförnum árum. Mexíkóski fjarskiptaauðjöfurinn Carlos Slim Helú hagnaðist um nítján milljarða Bandaríkja- dala á síðasta ári, sem er stærsta stökk manns milli ára í rúman áratug. „Fá- tækasti“einstaklingurinn á listanum er úkraínski auðjöfurinn K o s t y - einungis einum milljarði dollara. Sérstaka eftirtekt vekur að rúss neskir og indverskir auðjöfrar eru meira áberandi á listanum en áður Flestir ríkustu manna heims koma sem fyrr frá Bandaríkjunum, eða 44 prósent þeirra á listanum. Millj arðamæringar frá Þýskalandi eru 55 en frá Rússlandi 53. Flestir millj arðamæringanna í Asíu koma nú frá Indlandi, eftir að Japanar hafi verið skipað þar toppsætið um rúm lega tuttugu ára skeið. Karlmenn eru í miklum meirihluta þeirra á lista Forbes, eða 91 prósent. Ríkustu menn heims á lista Forbes eru af 53 þjóðernum. Rikastir Björgólfsfeðgar kom- ast einir Islendinga inn á lista Forbes yfir ríkustu menn heims 1. Bill Gates, Bandaríkjunum 56 milljarðar 2. Warren Buffet, Bandaríkjunum 52 milljarðar 3. Carlos Slim Helu, Mexíkó 49 milljarðar 4. Ingvar Kamprad, Svíþjóð 33 milljarðar 5. Lakshmi Mittal, Indlandi, 32 milljarðar 249. Björgólfur Thor Björgólfsson 3,5 mílljarðar //9. Bjorgólfur Guðmundsson 1,2 milljarður Hannes Hjálmarsson Kíkja í parti og læra fyrir spænskupróf. Sólborg Ingadóttir Ég ætla að vinna um helgina. Hólmfríður Einarsdóttir Ég ætla í matarboð og slappa af. Margrét Scheving Ég verð i afslöppun á spítala. Björgólfur Thor ríkari en Trump ■ Ríkum Rússum og Indverjum fjölgar ■ Björgólfur Thor upp um 100 sæti

x

blaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.