blaðið - 10.03.2007, Blaðsíða 8
blaðiö
Lífrænt
Svart morgunverðarte
Minningarkort
Minningar- og styrktarsjóðs
hjartaskjúklinga
HjartaHeill
sími 552 5744
Gíró- og kreditkortþjónusta
Heldur liöunum
liðugum!
^"u%,
■"oamo
heilsa
-haföu það gott
8
LAUGARDAGUR 10. MARS 2007
UTAN ÚR HEIMI
Eftirlaunaaldur hækkaður
Neðri deild þýska þingsins samþykkti í gær að hækka
eftirlaunaaldur landsins úr 65 árum í 67. Eftirlaunaaldurinn
verður hækkaður í skrefum frá árinu 2012 fram til ársins
2029. Enn á eftir að greiða atkvæði um málið í efri deild
þingsins, en ekki er gert ráð fyrir mikilli andstöðu þar.
Valla segir af sér
Gerd-Liv Valla, formaður norska alþýðusambandsins LO,
hefur sagt af sér embætti í kjölfar ásakana um að hún hafi
lagt Ingunni Yssen, yfirmann alþjóðasamskipta sambandsins,
í einelti. Valla segist ekki hafa gert neitt af sér og afsögnin sé
vegna álagsins sem málið hafi á fjölskyldu hennar og LO.
Félagsmálaráöherra um gagnrýni vegna barnaverndar í landinu:
Brýnt að bæta úr
barnaverndarmálum
■ Ný fjölskyldustofnun ■Stefnumörkun framundan BLofar ekki auknu fjármagni
Eftir Albert Örn Eyþórsson
albert@bladid.net
Magnús Stefánsson, félagsmála-
ráðherra, telur rétt að endurskoða
starfsmannaþörf barnaverndar-
nefnda í landinu og lýsir yfir vilja til
að veita fé til eflingar meðferðarúr-
ræða barna með hegðunarerfiðleika
og í vímuefnavanda en vill að öðru
leyti ekki tjá sig um frekari fram-
lög til barnaverndar eins og kallað
hefur verið eftir.
Forstjóri Barnaverndarstofu gerði
það í viðtali við Blaðið í vikunni en
tilefnið var almenn starfsmanna-
ekla sem skýrist af fjárskorti enda
hafa framlög ríkisins lækkað að
raungildi til málaflokksins síðustu
tíu árin. Er ástandið verst hjá barna-
verndarnefnd Reykjavíkur þar sem
70 til 80 mál hvíla á herðum hvers
og eins starfsmanns. Magnús segir
brýnt að bæta þar úr. „Sú mikla
fjölgun á tilkynningum sem orðið
hefur er mikið áhyggjuefni. Við í
ráðuneytinu teljum ástæðu til að
beina því til sveitarfélaga að end-
urmeta starfsmannaþörf i barna-
vernd vegna þessa. Engir staðlar
eru hins vegar til um fjölda mála
á starfsmann enda er þyngd mál-
anna afar misjöfn og því segja
tölur um fjölda mála alls ekki alla
söguna.“
I máli Braga Guðbrandssonar,
forstjóra Barnaverndarstofu, kom
fram að engin stefnumörkum eða
barnaverndarmálum til næstu ára
í samræmi við þær áherslur sem
fylgt hefur verið.“
Aðspurður um gagnrýni vegna
þeirrar verslunar með börn sem
á sér stað meðal líklegra fósturfor-
eldra af hálfu sveitarfélaganna segir
Magnús fulla ástæðu til að endur-
skoða gildandi lagaákvæði um fyr-
irkomulag við fósturráðstafanir
barna. Hann er einnig sammála
þeim er telja að gera þurfi rikari
kröfu en nú er til árangurs meðferð-
arheimila. „Árangursmat er hins
vegar afar vandasamt og ekki liggja
fyrir viðurkenndar aðferðir til að
sýna fram á meðferðarárangur með
óyggjandi hætti.“
Mynd/JimSi
framkvæmdaáætlun hefur verið
gerð hjá ríkinu vegna barnaverndar
en Magnús segir það standa til bóta.
„Félagsmálaráðuneytið undirbýr
nú stofnun sérstakrar skrifstofu
í barna- og fjölskyldumálum og
mun það verða eitt fyrsta verkefni
skrifstofunnar að ganga frá stefnu-
mótun og framkvæmdaáætlun í
Félagsmálaráðherra
Magnús Stefánsson segir að
skoða þurfi fyrirkomulagið
við fósturráðstafanir barna.