blaðið - 10.03.2007, Síða 25

blaðið - 10.03.2007, Síða 25
blaðið LAUGARDAGUR 10. MARS 2007 25 Hrafnaþing Ingva Hrafns Jónssonar er aftur komið á dagskrá eftir nokkurt hlé og er fyrsti þáttur sem ÍNN, fyr- irtæki sem Ingvi Hrafn og sonur hans, Ingvi Örn, settu á stofn rétt fyrir áramót. „Þetta er myndver með sjónvarpsívafi og sent er út í beinni útsendinu fjóra daga í viku. INN þýðir íslands nýjasta nýtt. Ég bjó til nafnið sem er það næsta sem hægt er að komast CNN,“ segir Ingvi Hrafn. Það var reynt að láta draum- inn um íslenskt CNN rœtast með stofnun NFS en það mistókst. Af hverju mistókstþað? „NFS fór út í djúpu laugina án þess að vera með björgunarkút. Larry King er með 800.000 meðalhorf í Ameríku sem er 0.8 prósent. Bill O’Reilly er með 2 milljónir áhorf- enda sem er rétt um 2 prósent áhorf. NFS var að fá þessa prósentutölu í áhorf og það lá fyrir að ekki yrði mikið meira áhorf á NFS en það. Það var aldrei raunhæft að ráða inn allan þennan fólksfjölda og leggja í gríðarlegan kostnað meðan menn vissu að tekjurnar byggðust á þessari prósentutölu. Svo kom Ari Edwald þarna inn og sá hvers konar náttúruhamfarir Gunnar Smári Eg- ilsson hafði kallað yfir fyrirtækið og brást við því. Þó verður Gunnari Smára varla kennt um þetta einum því Jón Ásgeir setti hann í þessa stöðu. Gunnar Smári var gersam- lega vanhæfur til að reka þetta batt- erí og þegar menn sáu að verið var að sturta peningum niður salernið þá lokuðu þeir sjoppunni.“ Þú heldur áfram með Hrafna- þingsem er mjögpólitískurþáttur. Hversu pólitískur ertu í reynd? „Ég er í showbisness-pólitík. í fyrsta sinn sem ég kaus, kaus ég krata en síðan hef ég kosið Sjál- stæðisflokkinn einfaldlega vegna þess að mér hugnast best áherslur hans, bæði í sambandi við atvinnu- líf og velferðarsamfélagið. Það má segja að ég sé algjör Bangsímon þegar kemur að því að mega ekk- ert aumt sjá en harðlínumaður í því að við eigum að hætta ríkisaf- skiptum, nema þegar kemur að menntakerfinu, heilbrigðiskerfinu og félagslega kerfinu. Þar eigum við að tryggja að enginn þurfi að búa við skort. Okkur ber skylda til að hugsa um þá sem minna mega sín. Við eigum nóga peninga til að hjálpa þessu fólki.“ Konur ráða úrslitum Hvernig ríkisstjórn vilt þú sjá eftir kosningar? „Ég vil sjá sömu ríkisstjórn. Ósk- aríkisstjórnin mín hefði, undir eðlilegum kringumstæðum, verið Samfylking og Sjálfstæðisflokkur. Ég hef bara ekki trú á því eins og Samfylkingin er núna að slík stjórn gæti gengið. Ég er sannfærður um I [wölford] | Sigurboginn Laugarveg 80 Simi 5611330 www.sigurboginn.is að ef Össur Skarphéðinsson væri formaður Samfylkingar þá væri allt að því sjálfgefið að þeir Geir Haarde mynduðu stjórn saman. Ég held að Geir Haarde geti unnið með hverjum sem er. Ég er ekki viss um að Ingibjörg Sólrún geti það. Ég veit ekki hvað hefur komið fyrir hjá þessari stúlku. Þegar hún hætti sem borgarstjóri þá varð útkoman tómt klúður. Þegar hún fór gegn Össuri og felldi hann í blindum metnaði þá var það klúður. Svo er eins og hún hafi fengið á sig harð- neskjublæ. 1 minni bók er hún orðin dálítill lúser. I komandi kosningum munu atkvæði kvenna ráða úrslitum. Ég held að konurnar sem hafa yfir- gefið aðra flokka til að ganga til liðs við Vinstri græna séu að daðra. Ef karl sýnir konu sinni afskiptaleysi verður konan óánægð og þegar hún fer í næsta boð þá málar hún var- irnar aðeins rauðari, setur meiri farða á sig, lyftir pilsinu upp um tvo sentmetra og fer að daðra um leið og hún lítur um öxl til að at- huga hvort karlinn sé enn þá jafnsof- andi. Ég held að konum finnist að mörgu leyti að Sjálfstæðisflokkur, Framsóknarflokkur og Samfylk- ing hafi ekki sinnt málefnum kvenna nægilega vel. Staðreyndin er sú að karlmenn láta ekki frá sér völd. Þeir ljúga, svíkja og djöflast og gefa konum ekki völdin nema þeir séu barðir til þess. í þessum kosningum held ég að konur muni ráða því hvaða ríkisstjórn verður mynduð.“ Lúserar og lýðskrumari Hvernigfinnst þér Jón Sigurðs- „Það má segja að ég sé algjör Bangsímon þegar kemur að því að mega ekk- ert aumt sjá en harðlínu- maður í því að við eigum að hætta ríkisafskiptum, nema þegar kemur að menntakerfinu, heilbrigð- iskerfinu ogfélagslega kerfinu." son hafa staðið sig sem formaður Framsóknarflokksins? „Ég kalla hann skylduræknasta framsóknarmann í heimi. Við vorum saman í menntaskóla og hann hefur ekkert breyst. Hann er skemmtilegur en tekur sjálfan sig óskaplega hátíðlega. Honum var troðið ofan í kok á framsóknar- mönnum af Halldóri Ásgrímssyni og líður fyrir það. Þetta er vænsti maður sem á bara eitt takmark í lífinu og það er að gegna sínu for- mannstarfi með sóma og bíða ekki afhroð í kosningum. Hann hefur hins vegar ekkert gert, sýnt eða sannað í sinni stuttu formannstíð." Hvaðfinnstþér um Frjálslynda flokkinn? „Þeir eru lúserar en ekki rasistar. Þegar andstæðingar þeirra fóru að kalla þá rasista áttu þeir að segja: „Okkur er alveg sama hvað þið kallið þetta. Við ætlum að láta mál innflytjenda til okkar taka. Ætlum að tryggja hag þessa fólks en einnig Framhald á næstu síðu Láttu drauminn rœtast frábœr fermingartilboö á rúmum & svefnsófum Karolin tungusvefnsófi Karolin 3ja sæta svefnsófi Doris 1 20 x 200cm Verð. 39.900 - áóur 61.600 - Rafmagnsrúm verð áður 1 U i .C00 Suprima 90x200cm v/33.280,- áður 4 i G00,- 120x200cm V/ 42.400,- áður 53.000 1 40x200cm V/ 49.360,- áður b i .700 5 svæða pokagormadýna og botn Electai20x200 v/ 59.980 áður 6/.300 •i*-* Sí o O S: n Opiö virka daga 10 til 18 laugadaga 11 til 16 HÚSGAGNAVERSLUN TOSCANA SMIÐJUVEGI 2, KOP S:587 6090 HÚSGÖGNIN FASTEINNIG IHÚSGAGNAVAL. HÖFN S: 478 2535

x

blaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.