blaðið - 10.03.2007, Side 48
ft
Fermingartilbod 79.900 Ur.
Jenna Jameson
Hefur byggt upp
sitt eigið veidi í
kringum klámið
ekki alls fyrir löngu en bókin How
to Make Love Like a Porn Star: A
Cautionary Tale sat á metsölulista
New York Times í margar vikur. í
bókinni talar stjarnan opinskátt
um líf sitt og segir meðal annars
frá kynferðislegu ofbeldi en henni
var nauðgað þegar hún var mjög
ung af hópi manna og aðeins 16
ára gömul var henni nauðgað í ann-
að sinn af frænda kærasta síns.
Jameson fluttist snemma að
heiman til kærasta síns sem lagði
hart að henni að sækjast eftir
starfi sem fatafella og árið 1991
hóf hún að fækka fötum á stripp-
stað í Las Vegas þrátt fyrir að hafa
ekki aldur til. Eftir aðeins 6 mán-
uði var Jameson farin að vinna
sér inn 150.000 krónur á kvöldi
en þáverandi kærasti hennar naut
tekna hennar að henni forspurðri
þar sem hann stal ítrekað af henni
peningum á milli þess sem hann
neytti eiturlyfja og leitaði í faðm
annarra kvenna.
Jameson varð snemma háð eitur-
iyfjum og misnotaði helst kókaín,
LSD og metafemtamíns en efn-
anna neytti hún gjarnan með bróð-
ur sínum sem var heróínneytandi
og kærasta sinum.
Þrátt fyrir að Jameson hafi náð
svo miklum árángri á þessu sviði
segist hún ekki óska neinni konu
að þurfa að fara þessa leið og að-
spurð hvort að hún myndi hvetja
dætur sínar til þess að sækjast eft-
ir frama í þessum iðnaði þá segir
hún það vera þvert á móti.
Afkastamesta klámstjarnan
Klámmyndastjarnan Annabel
Chong hefur unnið sér það helst til
frægðar að hafa haft samfarir við
251 karlmann á 10 klukkustundum
en þessi gjörningur vakti mikla at-
hygli á sínum tíma.
Chong ólst upp í Singapore þar
sem hún gekk í góða skóla og fékk
styrk til þess að nema lögfræði í
London. Á meðan á dvöl hennar
stóð þar var henni nauðgað af hópi
manna í ruslageymslu í einum af
verri hverfum Lundúnaborgar og
fluttist hún stuttu síðar frá Bret-
landi til Kaliforníu. Þar fór hún að
nema listir og ljósmyndun ásamt
feminískum fræðum ogþótti fram-
úrskarandi nemandi.
Annabel hóf feril sinn í klámmynd-
um þegar hún svaraði auglýsingu í
L.A. Weekly og fékk í kjölfarið hlut-
verk í myndum eins og Sgt. Pecker’s
Lonely Hearts Club Gangbang, I
Can’t Believe I Did the Whole Team
Fermingargjafir
fyrir poppara, rappara og rokkara
Hljóðfœrahúsið Laugavegi 176 105 Reykjavík iuunu.hljodfaerahusid.is info@hljodfaerahusid.is Sími 591 5340
Eftir Hildu Cortez
hilda@bladid.net
Það er ekki tekið út með sældinni
einni saman að vera klámmynda-
stjarna. Þó að það séu eflaust ein-
hverjar konur sem kjósa það öðru
fremur að leika í klámmyndum er
staðreyndin oft sú að flestar þess-
ara kvenna hafa leiðst út í slíkt af
illri nauðsyn.
Margir virðast telja að hver sú
kona sem tekur að sér leik í klám-
mynd þyki þessi vettvangur afar
eftirsóknarverður þar sem klám-
myndaleikkonur græði velflestar
á tá og fingri. Þegar betur er að
gáð kemur hins vegar í ljós að það
er aðeins lítill hópur kvenna sem
aflar sér mikilla tekna á þessu lífs-
viðurværi og enn færri sem njóta
frægðar og frama á eigin forsend-
um í þessum iðnaði. Eru þær nokk
fleiri sem þurfa að sætta sig við lé-
leg kaup og kjör svo ekki sé minnst
á aðfarir af ýmsu tagi en stór hluti
þeirra sem ákveða að reyna fyrir
sér í þessum myndum hverfa fljót-
lega frá þar sem sársaukinn og nið-
urlægingin er slík að ekki verður
það öllum boðið.
Margir hafa gagnrýnt klámiðnað-
inn fyrir að ala á kvenfyrirlitningu
og ofbeldi þó svo að það eigi alls ekki
alltaf við, en rannsóknir birtar á net-
inu hafa engu síður sýnt fram á að
um 70 prósent kvenna í klámiðnaðin-
um séu fórnarlömb kynferðisofbeld-
is af einhverju tagi og margar hverjar
eiturlyfjaneytendur eða vændiskon-
ur sem leiðst hafa út í slíkt.
Einn sá stærsti í heimi
KJámiðnaðurinn er einn sá
stærsti í heiminum og er talið
að Bandaríkjamenn eyði um 10
milljörðum dollara á ári hverju í
klám af einhverju tagi. Á þarlend-
um markaði er að finna um 800
milljónir myndbanda og veltir iðn-
aðurinn meira en sjónvarpstöðv-
arnar ABC, CBS og NBC til sam-
ans. Ástæðan fyrir þessum mikla
gróða er meðal annars sú að gríðar-
leg eftirspurn er eftir klámi og eru
klámmyndir ódýrari í framleiðslu
en efni af öðru tagi. Kostnaðurinn
nemur oftast aðeins nokkrum
milljónum á meðan gróðinn af
slíkum myndum hleypur á hundr-
uðum milljóna.
Vinsælasta klámstjarnan
Jenna Jameson er sú kona sem
hefur haslað sér hvað stærstan
völl í klámiðnaðinum og er óhætt
að segja að hún hafi auðgast veru-
lega á sínu starfi.
Jameson gaf út ævisögu sína
Tama Sujingstar
trommusett med
statífum og diskum
og Anal Queen svo eitthvað sé nefnt
en helst var um að ræða harðkjarna-
klám og þótti svæsnustu klámhund-
um nóg um þegar Annabel hafði
samfarir við þrjá karlmenn með
þrefaldri innreið.
Framleiðslan sem kom Annabel
endalega á klámstjörnustallinn var
The World’s Biggest Gang Bang
en stjarnan auglýsti eftir 300 karl-
mönnum til þátttöku í gjörningn-
um sem vakti gríðarlega athygli
Linda Lovelace Var neydd af
eiginmanni sínum til þess að leika
í myndinni Deep Throat.
ekki aðeins fyrir sveitta og graða
karlmenn af öllum stærðum og gerð-
um sem stóðu æstir í röð og biðu eft-
ir að komast að klofi klámmynda-
leikkonunnar heldur vegna þess að
aldrei hafði ein kona haft samfarir
við jafn marga karlmenn í einu. Þó
með matar- og drykkjarpásum.
Mönnum voru lagðar línurnar
en einu reglurnar voru að missa
ekki móðinn og valda klámstjörn-
unni ekki sársauka en annars mátti
hver gera það sem honum lysti hvar
sem var á líkama stúlkunnar, sem
að lokum þurfti þó að gefast upp
vegna innvortis blæðinga.
Þrátt fyrir að myndin sé ein sú
tekjuhæsta sem nokkurn tímann
hefur verið framleidd í klámheim-
inum fékk Annabel ekki krónu af
þeirru tæpu milljón sem henni
hafði verið lofað.
Fyrsta klámstjarnan
Klámmyndin Deep Throat þótti
tímamótamynd á sínum tíma og
var hún sýnd í bíóhúsum víðs veg-
ar um heiminn. Deep Throat gerði
Lindu Lovelace að stjörnu og hlaut
hún gríðarlega athygli í kjölfarið
og engum datt í hug annað en að
Lovelace hefði notið sín til hins ítr-
asta við tökur á myndinni.
Lovelace greindi hins vegar
frá því nokkrum árum seinna
að það hefði verið eiginmaður
hennar sem ítrekað misnotaði
og beitti hana ofbeldi, sem hefði
neytt hana til þess að taka þátt í
kynlífsathöfnum, klámmyndum
og vændi en á meðan tökum á
Deep Throat stóð var eiginmað-
ur hennar sem var jafnframt
umboðsmaður hennar, ávallt á
tökustað þar sem hann beindi
byssu að henni svo hún myndi
ekki hætta við.
Þrátt fyrir að Lovelace hafi gefið
sig út fyrir að vera vergjörn kona
sem nyti kynlífs öðru fremur kom
annað á daginn og þrátt fyrir gríð-
arlegar tekjur af myndinni hefur
Lovelace aldrei fengið fengið eina
krónu í sinn hlut.
Þannig virðist líf kiámmynda-
leikkonunnar ekki vera ein
himnasæla og fæstar konur
myndu líklega kjósa sér klám-
myndaleik öðru fremur. Þó svo
að einhverjar græði á tá og fingri
hlýtur fórnin að vega þyngra
og því mega menn spyrja sig
að því hvort að hamingjusama
klámstjarnan hrópi húrra í hvert
skipti sem karlmaður nálgast
hana á tökustað.