blaðið - 17.03.2007, Blaðsíða 2
2 LAUGARDAGUR 17. MARS 2007
blaAið
VEÐRIÐ í DAG
Vægt frost
Hvessir á Vestfjörðum eftir
hádegi. Hiti 0 til 4 stig, en
víða vægt frost til landsins.
-
ÁMORGUN
Bjart
Norðanátt, víða 13 til 18 m/s
og él um landið norðanvert,
en bjartviðri syðra.
VÍÐA UM HEIM
Algarve 18
Amsterdam 11
Barcelona 17
Berlin 11
Chicago 6
Dublin 9
Frankfurt 14
Glasgow 8
Hamborg 10
Helsinki 8
Kaupmannahöfn 9
London 13
Madrid 18
Montreal -11
New Vork 1
Orlando 20
Osló 6
Palma 22
París 12
Stokkhólmur 10
Þórshöfn 4
Á FÖRNUM VEGI
HEFUR ÞÚ SÉÐ
FRÆGAN HOLLY-
WOOD-LEIKARA Á
LANDINU?
Einar Örn Gissurarson
Ég hitti einu sinni Juliu Stiles þeg-
ar hún var aö leika í myndinni A
Little Trip to Heaven hér á landi.
María Skúladóttir, nemi
Nei, aldrei.
Sigríður Tinna Einarsdóttir,
nemi
Nei, ekki ennþá.
Ómar Ingi Guðmundsson,
nemi
Nei, alveg pottþétt ekki.
Salmann Héðinn Árnason,
sölumaður
Nei, það hef ég ekki gert.
Sorglegt Það
er ætíð sorglegt
þegar mann-
eskja lætur lífið í
bilslysi. Myndin
' tengist ekki efni
'j
gremarmnar.
Aldrei fleiri látið lífið vegna ölvunaraksturs en á síóasta ári:
Þriðjungur bana-
slysa vegna ölvunar
Mikil fjölgun Átta síðasta ár 34 síðustu tíu árin
Eftir Albert Örn Eyþórsson
albert@bladid.net
Átta létu lífið í umferðinni á síð-
asta ári vegna slysa sem rekja má
beint til áfengis- eða vímuefna-
neyslu. Er það tæplega þriðjungur
allra banaslysa á síðasta ári.
Áfengi og eða fíkniefni komu við
sögu í 34 dauðsföllum í umferð-
inni síðasta áratuginn.
Sjaldan hafa fleiri látist í bana-
slysum en á síðasta ári en þá létust
31 einstaklingur. Aðeins þrisvar
áður hefur tala látinna í umferð-
arslysum verið hærri. Fjöldi bana-
slysa sem rekja má beint til neyslu
áfengis eða fíkniefna hefur hins
vegar aldrei verið meiri. Sex bana-
slys vegna vímu urðu árið 2005 og
þrjú árin 2004 og 2003. Árið 2002
lést einn undir áhrifum.
Tölurnar koma frá Umferðar-
stofu. í þeim er ekki gerður grein-
armunur á ökumönnum sem
látast í slysum undir áhrifum vím-
efna eða fórnarlömbum þessara
ökumanna. Rannsóknir benda
til að um tvö prósent þeirra er
láta lífið í umferðinni geri það af
ásettu ráði og þá gjarnan undir
áhrifum en ætíð er erfitt að meta
slíkt og slá föstu og miðað við
fjölda látinna árlega gerist slíkt
ekki árlega hér á landi.
Sævar Helgi Lárusson, sérfræð-
ingur hjá Rannsóknarnefnd um-
ferðarslysa, staðfestir að nokkur
dæmi séu um að rannsakendur
banaslysa hérlendis komist að
slíkri niðurstöðu.
Umrædd fjölgun banaslysa er í
takt við fjölgun mála hjá lögreglu
vegna ökumanna sem keyra
undir áhrifum. Meira hefur borið
á ölvunarakstri undanfarin ár en
nokkru sinni áður og vart líður
sólarhringur án þess að lögregla
einhvers staðar á landinu hafi
afskipti af ökumönnum í mis-
jöfnu ástandi. f verstu tilfellum
stöðvar lögreglan á höfuðborgar-
svæðinu för tuga einstaklinga á
sólarhring um helgar. Alls óvíst
er þó hvort slíkum tilfellum fer
fjölgandi eingöngu vegna vax-
andi eftirlits lögreglu eða hvort
beinlínis algengara sé en áður
að fólk setjist undir stýri undir
áhrifum áfengis og vímuefna.
BANASLYS VEGNA
ÖLVUNARAKSTURS
2006 fttttttt
2005 tttt+t
2004 ttt
2003 ttt
2002 t
2001 ttt
2000 ttttt
1999 t
1998 tttt
Fjármálaráðuneytið:
Vesturfarasetrið
fær 90 milljónir
Forsætisráðuneytið gerði
á síðasta ári samning við
Vesturfarasetrið á Hofsósi um
greiðslur til ársins 2010 upp á 90
milljónir króna. Er það töluvert
hærri upphæð en menntamála-
ráðuneytið, heilbrigðis- og
tryggingamálaráðuneytið,
félagsmálaráðuneytið og land-
búnaðarráðuneytið til samans
skuldbundu ríkissjóð á síðasta
ári að greiða til ársins 2010.
Þetta er meðal þess sem
kemur fram í nýútkominni
skýrslu Ríkisendurskoðunar,
um skuldbindandi samninga
ráðuneyta og styrkveitingar
ríkissjóðs á árinu 2006. Lang-
mestar voru skuldbindingar
iðnaðar- og viðskiptaráðuneytis
fyrir ríkissjóð á árinu, eða 337
milljónir króna. Var meirihluti
þeirrar upphæðar vegna samn-
inga við sveitarfélög.
Samræðisaldur:
Úr fjórtán
í fimmtán
Fyrir Alþingi liggur frumvarp
sem gerir ráð fyrir hækkun sam-
ræðisaldurs einstaklinga um eitt
ár, úr fjórtán árum í fimmtán.
„Einstaklingar á þessum aldri
eru að taka sín fyrstu skref á
þessu sviði. Rannsóknir sýna
að skynsamlegt sé að hækka
aldurinn og mörg nágrannaríki
okkar miða við sextán ár,“ segir
Bjarni Benediktsson, þingmaður
Sjálfstæðisflokksins og formaður
allsherjarnefndar. Bjarni segir
mikilvægt að vernda unglinga
á þessum aldri og bendir á að í
sumum tilvikum sé hægt að fella
niður saknæmi. „Það er heimilt
að fella niður refsingu ef ung-
lingar á svipuðu aldursskeiði eiga
samræði,“ segir Bjarni.
Styrmir Gunnarsson ritstjóri um tölvupóstana:
Grínið komst ekki til skila
Styrmir Gunnarsson, ritstjóri
Morgunblaðsins, sagði fyrir dómi í í
Baugsmálinu í gær að orðalag tölvu-
póstssamskipta sinna við Jónínu
Benediktsdótturhefðiverið grín sem
ekki hafi komist til skila. Kjartan
Gunnarsson, fyrrum framkvæmda-
stjóri Sjálfstæðisflokksins, átti að
bera vitni í gær en hann mætti ekki
fyrir dóm. Tók saksóknari sökina á
sig þar sem ekki hafi náðst að boða
Kjartan í vitnatöku.
f tölvupóstinum vísar Styrmir í
Jón Steinar Gunnlaugsson og segir
hann að tryggð hans við ónefndan
mann sé innmúruð og ófrávíkjan-
leg. Styrmir sagðist kannast við að
hafa sent tölvupóstinn en hélt því
fram að orðalag hans hafi verið
sett fram í gamansömum tóni.
Hins vegar eigi grín erfitt með að
komast til skila í tölvupósti. Að-
spurður út í aðkomu Kjartans Gunn-
arssonar í málinu sagði Styrmir
að hann hafi haft samband við
Kjartan vegna vináttu og náinna
fjölskyldutengsla. Hann hafi viljað
leita álits Kjartans á Jóni Steinari
sem lögfræðingi.
Vitnaleiðslur hafa staðið yfir í fjórar
vikur. Áætlað er að þeim ljúki á mánu-
dag. Þá kann að vera að sakborningar
verði kallaðir aftur fyrir dóm.