blaðið - 17.03.2007, Page 48
mt--
48 LAUGARDAGUR 17. MARC 2007
blaöiA
Metamfetamín
Metamfetamín var fyrst búið til af japönskum
efnafræðingi árið 1919 og notað af hermönnum í
heimsstyrjöldinni siðari í þeim tilgangi að halda sér
vakandi og í viðbragðsstöðu.
o
Y'".
Y'",
Y'",
wr i
ml __
Auðvelt í framleiðslu Mikil hætta
stafar af heimatiibúnum metafet-
aminverksmiðjum.
Metamfetamín eða meth er það
fíkniefni sem breiðist nú út með
hvað mestum hraða í Bandaríkjun-
um og eru menn hræddir um að far-
aldurinn verði verri heldur en krakk-
kókaínplága níunda áratugarins.
Mikið hefur verið rætt um farald-
urinn í fjölmiðlum ytra og hefur fjöl-
miðladrottningin Oprah Winfrey
verið dugleg við að vekja athygli á
vandamálinu.
í Bandaríkjunum hafa nú vaknað
» spurningar um það hvort stjórnvöld
heyi ranga baráttu en Bush-stjórnin
hefur lagt mesta áherslu á stríðið
gegn marijúana og hefur veitt meth-
vandanum litla sem enga athygli.
Gríðarlegur fjöldi meth-fíkla
Talið er að um 12 milljónir Banda-
ríkjamanna hafið prófað meth og að
ein og hálf milljón noti efnið að stað-
aldri. Metamfetamín veldur mikilli
og sterkri vímu, en þegar efnisins er
neytt eykst flæði dópamíns i heilan-
um sem veldur mikilli vellíðan. Þeg-
<
t
Undankvöld 19. 20. 21. 22. og 23. mars.
Húsið opnar kl. 18 og tónleikar hefjast kl. 19
Miðaverð á undankvöld 700 kr. • Loftkastalanum.
Aðgangspassar 2500 kr. - gildlr sem lorkaupsréttur
á miðum fyrir úrslitakvöld.
TONABÆR
ar þetta taugaboðefni losnar í svo
miklu magni upplifir fólk einhvers-
konar alsælu og er það sú tilfinning
sem neytendur meth reyna að upp-
lifa aftur og aftur.
Flett hefur verið ofan af meth-
verksmiðjum í öllum fylkjum
Bandaríkjanna og er Missouri þar
fremst í flokki með mestan fjölda
verksmiðja, en á árunum 2002 til
2004 flettu yfirvöld þar ofan af
8.000 verksmiðjum, stórum og smá-
um.
Fjöldi meth-fíkla í fangelsum
landsins hefur aukist griðarlega
og ný kynslóð svokallaðra meth-
barna er að gera út af við félagslega
kerfið í fjölda fylkja, þar sem efnið
hefur tekið sér bólfestu innan heim-
ilia hvort sem þau eru í sveitunum,
úthverfum borganna eða innan
borgarmarkanna.
Fámenn bæjarfélög eiga í mestu
erfiðleikum með að takast á við
vandamálið. Fjölgun fíkla hefur
gert það að verkum að mikið álag
er bæði á lögreglu og félagsmálayfir-
völdum sem geta ekki tekið á öllum
þeim vandamálum sem neyslunni
fylgja. Ekki aðeins er fjöldi barna
í umsjá barnaverndaryfirvalda
vegna þess að foreldrar þeirra eru
óhæf til að sinna þeim vegna fíknar
sinnar heldur fer tíðni ofbeldis og
glæpa vaxandi samhliða útbreiðslu
efnisins.
Auðvelt í framleiðslu
Fyrirtæki sem áður seldu ólyf-
seðilsskyld lyf eins og Wal-Mart
og Rite-Aid hafa brugðið á það ráð
að færa slík lyf úr hillum verslana
vegna þess að efni sem finnast í sak-
lausum flensupillum eru notuð við
framleiðslu á metamfetamíni. Efn-
ið sem helst er um að ræða kallast
pseudoephedrine og er skylt amfet-
amíni en því er blandað við önnur
efni eins og joð og ammóníak við
framleiðslu á meth, sem lítið mál
er að framleiða.
Við framleiðsluna þarf að nota
mikinn hita og eldfim efni og er
því ekki óalgengt að verksmiðjurn-
ar sem eru oftar en ekki staðsettar
í bakgörðum og öðrum skúmaskot-
um íbúðahverfa springi í loft upp
með tilheyrandi manntjóni.
„Það eru örugglega um 30 leiðir til
þess að framleiða metamfetamín,"
segir lögreglumaður í fíkniefnadeild
N YPD í viðtali við tímaritið Newswe-
ek. „Ýmis tæki og tól eru notuð en
svo erum við vanir að finna nánast
alltaf ákveðna hluti í húsnæði sem
notað er undir meth-framleiðslu.
Má til dæmis nefna fjölda flaskna
af Mountain Dew-drykknum en
meth-fíklar sækja í hann vegna mik-
ils sykurinnihalds. Eins er yfirleitt
að finna klámefni af einhverju tagi
og vopn en meth-fíklar eru haldnir
mikilli paranoju.“
Tenging á milli meth-
notkunar og HIV
Nýlegar rannsóknir hafa sýnt
fram á aukna tíðni HlV-smita sam-
hliða meth-neyslu. Vísindamenn
ytra hræðast faraldur.
í hópi samkynhneigðra karla í
stórborgum Bandaríkjanna hefur
notkun á efninu aukist mjög en efn-
ið hefur mikil áhrif á kynhvötina
sem og gerir þann sem það notar
óseðjandi kynferðislega en það skap-
ar mikla hættu á því að fólk stundi
óvarið kynlíf með ókunnugum.
Rannsóknir benda einnig til þess
að einn afhverjumþremur HI V-smit-
uðum samkynhneigðum mönnum,
sem nýlega hafa greinst, hafi notað
efnið. Hlutfallið hefur þrefaldast frá
árinu 2001, samkvæmt rannsókn
á 19.000 mönnum sem gerð var af
The Los Angeles Gay Lesbian Cent-
er. Ekki aðeins smitast þessi hópur í
auknum mæli af HIV heldur virðist
vera um sterkari stofn veirunnar að
ræða með meira lyfjaþol sem vekur
ugg hjá vísindamönnum.
Það eru þó ekki aðeins sam-
kynhneigðir karlmenn sem neyta
metamfetamíns og stunda óvarið
kynlíf heldur er aukinn fjöldi gagn-
kynhneigðra karla og kvenna farinn
að nota efnið. Tíðni notkunar með-
al háskólafólks hefur aukist svo um
munar og er ekki óalgengt að efnið sé
tekið inn á föstudegi í þeim tilgangi
að vera óþrjótandi kynferðislega og
geta stundað kynlíf með fjölda ein-
staklinga yfir helgina. Það sem þeir
sem nota efnið vita kannski ekki er
sú staðreynd að langtímanotkun
getur leitt til getuleysis.
Annar þáttur sem gerir meth
einnig mjög eftisóknarvert í aug-
um kvenna er sú staðreynd að það
veldur miklu þyngdartapi og kon-
ur grennast allverulega. Ástandið
er sums staðar orðið svo slæmt að
á meðferðarstofnunum er fjöldi
meth-háðra kvenna orðinn meiri en
þeirra sem leita sér aðstoðar vegna
áfengissýki.
Kókaín fátæka mannsins
Meth hefur verið kallað kókaín
fátæka mannsins þar sem það er
ódýrt miðað við önnur fíkniefni.
Efnið er mjög ávanabindandi og
fólk verður auðveldlega háð því
hvort sem um er að ræða banda-
rískar fótboltamömmur, háskóla-
fólk eða heimilislausa. Jafnvel í
mormónafylkinu Utah er neyslan
orðin að stóru vandamáli en um
helmingur kvenna í kvennafangels-
inu í Salt Lake City hefur komist í
kast við yfirvöld vegna notkunar á
efninu.
„Mun fleiri nota þetta eitur en
yfirvöld gera sér grein fyrir,“ segir
maður sem neytti efnisins í 10 ár og
seldi. „Helstu viðskiptavinir mínir
voru læknar, lögfræðingar, hönnuð-
ir og annað háskólamenntað fólk,
bæði fjölskyldufólk og einstæðingar.
Ég notaði efnið á hverjum degi í ára-
tug, meira að segja þegar ég starfaði
sem fjármálastjóri stórrar verslunar-
keðju en auðvitað kom að því að upp
um mig komst en einn af mínum
elstu og bestu viðskiptavinum sagði
til mín. Nú hef ég verið bak við lás
og slá í nokkurn tíma og það sem
stingur mig einna helst er að sjá
hversu margir samfanga minna eru
illa farnir af neyslunni, tannlausir,
merjandi þunglyndislyfin sín, tak-
andi þau í gegnum nefið til þess að
komast í örlitla vímu. Sjálfur er ég
örugglega mun verr farinn en ég
geri mér í hugarlund og kannski
bara heppinn að vera á lífi.“
hilda@bladid.net