blaðið - 17.03.2007, Qupperneq 37
blaðiö
LAUGARDAGUR 17. MARS 2007 37
asta þætti eiga allir að geta fundið
eitthvað fyrir sig. Ég er mjög hrif-
inn af því sem ég kalla smámyndir
en þær geta verið frá fimmtán
sekúndum upp í tveggja mínútna
langar. Smámyndir eru kannski
eitthvað sem ratar ekki venjulega
í fréttir, þær kornast ekki á forsíðu
blaðanna en sýna skemmtilega en
öðruvísi mynd af daglegu lífi. Ég
get tekið sem dæmi um smámynd
þar sem fólk er hvatt til að gefa blóð
með því að fara og gefa blóð sjálfur.
Þetta er það sem við myndum kalla
litlu málin en þau fá okkur annað
hvort til að hugsa okkur aðeins um,
brosa og líða betur eða standa upp
og gera eitthvað sem við höfum
lengi hugsað um. Mér finnst svona
efni lífsnauðsynlegt því þetta er
það sem við tölum um og það sem
okkur finnst gaman að. Ég vil
ekki gera ísland í dag að könnun-
arþætti. Það er vel þekkt að menn
taka efni, geyma það og þegar það
kemur áhorfskönnun þá gusa þeir
góða efninu út þannig að það koma
fimm æðislegir þættir en í næstu
fjóra mánuði er ekkert sérstakt í
þáttunum. Það er ekki minn stíll
því ég vil gera það besta á hverjum
einasta degi. Áhorfendur eiga alltaf
að geta gengið að því vísu að í ís-
landi í dag leggjum við okkur fram
á hverjum degi, ekki bara þegar það
er áhorfskönnun."
síst skoðuð af fólki í fjölmiðlaheim-
inum þar sem Steingrími tekst ansi
oft að „skúbba“.
„Ég byrjaði að blogga árið 2000 á
kerfi sem heitir Blogspot, færði mig
þaðan yfir á síðu sem hét Fréttir.
com og skemmti mér vel með hana.
Síðan fékk ég hálfpartinn leiða á
áreitinu sem fylgdi þessu enda var
þetta orðið það umfangsmikið. Ef
ég var einhvers staðar á manna-
mótum þá annað hvort þagnaði
fólk þegar ég kom, sagði að það
mætti ekki birta það sem þau voru
að tala um eða fólk heimtaði að eitt-
hvað kæmi á bloggið. Ég fékk bara
„Kastljósið hefur ákveðið
forskot og þeir eru að gera
margt gott. Ég vil bara
gera ennþá betur."
nóg. Síðan byrjaði ég að blogga
aftur í september í fyrra en bloggið
er form sem mér finnst mjög þægi-
legt. Vélritunarkennslan úr Verzl-
unarskólanum kemur að góðum
notum og ég er tiltölulega fljótur
að forma í huganum það sem ég
skrifa sem þýðir að ég er yfirleitt
ekki nema 4-6 mínútur að skella
inn færslu, frá því ég hugsa hana
þangað til ég skelli henni inn. Auk
þess sem ég fæ ofboðslega margar
ábendingar sem ég er mjög fljótur
að vinna úr.“
Ástfanginn upp fyrir haus
Þegar Steingrímur er inntur eftir
því hvað hann fái út úr því að blogga
segist hann ekki vera viss. „Ég
hugsa að þetta sé tilfinning blaða-
manns að vera fyrstur með eitthvað,
þessi skúbbtilfinning sem er svo eft-
irsóknarverð. Stundum set ég eitt-
hvað sem ég rekst á inn á bloggið
einfaldlega vegna þess að mig
langar til að segja frá því. Kannski
ef ég fæ einhverja fyndna mynd eða
lesendabréf þar sem kemur fram
skoðun sem mér finnst skemmtileg
eða eiga erindi við aðra. Mér finnst
mjög gaman að leyfa fólki að nota
þennan vettvang minn til að koma
einhverju á framfæri,“ segir Stein-
grímur sem er ástfanginn. „Ég er
trúlofaður, í sambúð og ástfanginn
upp fyrir haus. Ég á eina dóttur affc
fyrra hjónabandi og konan mín á
tvö börn þannig að við erum þessi
klassíska samsetta fjölskylda og
með hund að auki.“
Afar vönduð
borðstofuhúsgögn
Pólitík er ekki fyrir mig
Steingrímur starfaði sem upp-
lýsingafulltrúi forsætisráðuneyt-
isins i tíð Halldórs Ásgrímssonar
en hann segir að hann hafi viljað
kynnast stjórnsýslunni innan frá
og sjá hvað gerist í raun og veru.
„Ég er öðruvísi blaðamaður eftir
þessa reynslu en það á við um allt
sem fólk gengur í gegnum. Allir
atburðir og öll reynsla sem maður
gengur í gegnum hefur áhrif á
mann og breytir manni með einum
eða öðrum hætti, hvort sem það
er fæðing, dauði, hjónaband, skiln-
aður, erfiðleikar eða velgengni.
Þegar ég fór í ráðuneytið var mitt
markmið frá upphafi eitt, að auð-
velda boðleið á milli fréttamanna
og ráðuneytisins. Ég gerði allt sem
ég taldi mig geta gert til að opna
þessar leiðir á milli en svo verða
aðrir að meta hvernig til tókst. Ég
man í fljótu bragði ekki eftir því að
hafa þurft að hafna nema sex við-
tölum. Fyrir mig persónulega fékk
ég að upplifa athyglisverða tíma
og fara í mjög athyglisverðar ferðir
eins og útförina hjá páfanum og 60
ára striðslokaafmæli á Rauða torg-
inu i Kreml. Eins fékk ég að kynn-
ast fólki og stjórnmálamönnum
úr öllum flokkum og sjá hvernig
kerfið virkar. En ég myndi ekki
vilja gera þetta að ævistarfi og hafi
einhvern tímann verið möguleiki
á því að það blundaði jafnvel ein-
hver áhugi á þvi að fara út í pólitík
þá slokknaði hann við að kynnast
pólitíkinni svona náið. Ég bara
áttaði mig á því að pólitík er ekki
fyrir mig. Ég hef ekki karakterinn í
það því ég hef aldrei skilið hvernig
menn geta verið vinir en rifist
þegar kveikt er á myndavélum,“
segir Steingrímur sem viðurkennir
fúslega að hann sé stimplaður fram-
sóknarmaður. „Ég hugsa að ég ætti
í mjög miklum erfiðleikum með að
segja að ég væri eitthvað annað en
framsóknarmaður. Ég er ekki mjög
pólitískur í hugsun en er með mjög
sterka réttlætiskennd og hef sterkar
sannfæringar, ég hef sérstaklega
sterka sannfæringu um það sem
mér finnst að megi betur fara. Ég
er eiginlega þannig að ef ég ætti að
taka þau mál sem brenna heitt á
mér og ef ég ætla að setja pólitískan
stimpil á það allt þá held ég að ég
væri utan flokka. Mín pólitík er því
eiginlega réttlætiskennd."
Fékk leiða á áreitinu
Eitt áhugamála Steingríms er að
halda úti heimasíðunni Þegar stórt
er spurt sem er ansi vinsæl enda
allt upp í tíu þúsund manns sem
skoða hana daglega. Síðan er ekki
núna og gerðu frábær kaup
Ármúla 8 - 108 Reykjavík
Sími 581-2275 ■ 568-5375
Opið Virka daga kl.10-18 / Laugard. kl.11-16