blaðið - 17.03.2007, Blaðsíða 46

blaðið - 17.03.2007, Blaðsíða 46
46 LAUGARDAGUR 17. MARS 2007 blaðiö íþróttir Guðjón Þórðarson sáttur við menn, skepnur, líf og tilveru á Akranesi: Undarlega hljótt hefur verið um Guðjón Þórðarson undanfarin misseri eftir að hann flutti heim aftur eftir margra ára dvöl í Englandi. Guðjón hefur aldrei verið þekktur fyrir að fara með veggjum heldur segir skoðanir sínar umbúðalaust. Hann er mjög ánægður í sínum gamla heimabæ og er hvergi hættur að tjá skoð- anir sínar þó þær séu nú meira undir rós en fyrrum. Ekkert meyrnað Engin eftirsjá Vorkennir Eggerti Magnússyni Knattspyrna Aston Vilfa - Liverpool 14.00 RÚV Blak Úrslitakeppni kverina 15.30 RÚV 15.50 Sýn Knattspyrna Real Zaraqoi 15.50 SkjárSport Knattspyrna Wm Evcrton - Arsenal 'M r á 17.50 Sýn Knaltspyrna ■H Real Marlriti 19.25 SklárSport Knattspyrna Fiorentiria - Roma Eftir Albert Örn Eyþórsson albert@bladid.net Guðjón hefur þann eiginleika að kalla hlutina réttum nöfnum og er ekkert að fela að Skagalið það er hann nú þjálfar á litla sem enga möguleika að taka þátt í toppslag Landsbankadeildarinnar í sumar. „Hópurinn samanstendur af mjög ungum strákum sem enn eiga mikið eftir ólært. Þó ég fari í engar grafgötur með að ég mun koma liðinu í fremstu röð á tveimur til þremur árum þá gerist það ekki á einni nóttu og ég sé okkur ekki slást alvarlega á toppnum þetta sumarið. í mínum huga verður baráttan milli FH og KR um efsta sætið og Valsmenn taka mögulega þátt í þeim slag en við hér á Skag- anum þurfum meiri tíma.“ Draumurinn ekki úti enn Guðjón hefur um langa hríð verið viðriðinn fótboltann með ýmsum hætti og honum telst til að 42 ár séu liðin síðan hann [ 1 Krúttlegir • Litir: blátt, rautt, glært -Stærðir 24-37 ‘VémB Skóverslun Kringlunni 8-12 Sími 553 2888 Verð 750. hóf að sparka bolta sjálfur með yngri flokkum á Skaganum. Þó hann eigi merkan feril að baki hér heima reis stjarna hans einna íæst á árunum 1997 til 1999 legar íslenska landsliðið undir rans stjórn náði hæstu hæðum sem liðið hefur nokkru sinni náð. Traust til hans var slíkt að nokkrir athafnamenn tóku sig saman og keyptu undir hann fót- boltaliðið Stoke City. Eftir ósætti nokkru seinna hætti hann þar en reyndi síðar fyrir sér með Start, Notts County og Barnsley með misjöfnum árangri. Ýmsir hafa talað um uppgjöf varðandi heim- komu Guðjóns á ný en hann blæs á slíkar bollaleggingar. „Ég vildi koma heim og hefði hæg- lega getað fengið starf úti en þau sem í boði voru heilluðu mig ekki. Það var alltaf heimþrá og verður alltaf enda gott að vera heima. Meðan ég er ekki lengur á hött- unum eftir einu né neinu þá liggur líka fyrir að ef eitthvað spennandi berst mína leið þá skoða ég það vel. En eftirsjáin er engin." Landsliðið í lægð Mark er sannarlega tekið á Guð- jóni þegar talið berst að íslenska landsliðinu en engir hafa náð við- líka árangri með liðið og Guðjón á sínum tíma. Landsliðið er nú í 86. sæti styrkleikalista FIFA við hlið Eþíópíu og Haítí, einum 30 sætum neðar en þegar Guðjón réð ríkjum. „Við erum miklu betri en þetta sæti gefur til kynna og eigum að vera mun ofar að jafnaði. Nú veit ég ekki hvernig þjálfarar síðustu ára skipuleggja sína vinnu en ég man að ég fékk gagnrýni á sínum tíma fyrir að nota allar stundir sem gáfust til æfinga með liðinu. Það er full vinna að ná árangri í fótbolta eins og öllu öðru.“ Stál, hnífur og vorkunnsemi Guðjón hefur um skeið glímt við bakverki slæma og fór undir hnífinn í vetur þess vegna. Hann grínast með að ekki hafi hann meyrnað við það enda var lausn lækna að fylla kauða af stáli. „Ég hef sennilega aldrei verið harðari en nú með tvær stálplötur og sjö stálnagla í líkamanum." Hann meyrnar þó til muna aðspurður um ævintýri Eggerts Magnússonar með West Ham en þeir félagar háðu á stundum góðar rimmur sín á milli þegar Guðjón var landsliðsþjálfari. „Satt best að segja þá þykir mér afar leiðinlegt hvað gengur illa hjá þeim. Vorkenni Eggerti að hluta líka því þetta er hans draumur en gaman hefði verið að sjá þetta ganga betur. Hvað varðar rimmur okkar Eggerts í fortíðinni þá var það meira blásið út af fjölmiðlum. Við erum báðir skeleggir og förum okkar fram en Eggert má eiga það að á hann var alltaf hægt að treysta. Það sem hann sagði stóðst og ég ber virðingu fyrir slíku fólki.“ Hin mörgu andlit Guðjóns Top- paöi með landsliöinu, hrökklaöist frá Stoke og reyndi fyrir sér hjá Barnsley. Framtíðin Eftir 42 ár í fótboltaheimum er ekki fráleitt að spyrja Guðjón hvort leiði sæki nokkurn tíma að honum hvað boltann varðar. „Aldrei upplifað það. Þegar ég fæ leiða á fótbolta verð ég dauður.“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.