blaðið - 17.03.2007, Blaðsíða 38

blaðið - 17.03.2007, Blaðsíða 38
LAUGARDAGUR 17. MARS 2007 blaöiö Þýðing, endurritun, ritstuldur Á fimmtudaginn ætlar Jón Karl Helgason, aðjúnkt I íslensku fyrir erlenda stúdenta við Hl, að halda fyrirlestur um hugtakið ritstuld, samheiti þess á erlendum tungumálum og lög um höfundarrétt á Amtsbókasafninu á Akureyri. Fyrirlesturinn hefst klukkan 17.15 Málgagn UVG Vinstri, málgagn Ungra vinstri-grænna, er komið út, en forsíðu blaðsins prýðir teikning sem táknar draumkennda framtíðarsýn: Yfirgefið álver, fagran dal, sólarupprás og kapítalistasvín þrætt upp á grilltein. Blaðið má nálgast á slóðinni hi.is/~erlendj/vinstri.pdf. menning@bladid.net Afrísk list Afrísk menning verður í háveg- um höfð í Þjóðminjasafninu um helgina en í dag verður þar opnuð sýning sem ber yfirskriftina Hvi ekki Afríka? Á sýningunni getur að líta Ijósmyndir sem franski ljós- myndarinn Dominique Darbois tók í álfunni á árunum 1950-1980. Jafnframt verða til sýnis afrískir skúlptúrar og myndir af 30 afrísk- um munum svo sem grímum og styttum. í tengslum við sýninguna verður síðan blásið til málþings í fyrirlestrarsal safnsins á morgun klúkkan 14-16. Dominique Darbois ferðaðist til í öndvegi Afríku á tímabilinu 1950-1980 og tók myndir af afrískum konum við ýmis tækifæri. Myndirnar eru tekn- ar í meira en tíu löndum álfunnar sunnan Sahara-eyðimerkurinnar. Sýningunni í Þjóðminjasafninu er ætlað að kynna ólíka þætti afr- ískrar listsköpunar, allt frá Sahara og Malí til Angóla, með viðkomu á Filabeinsströndinni, Nígeríu, Ga- bon og Lýðveldinu Kongó. Samhliða opnun sýningarinnar Hví ekki Afríka? í Myndasal Þjóð- minjasafnsins verður opnuð sýn- ing á ljósmyndum Katrínar Elvars- dóttur á Veggnum. „þarna er rokk, diskó og pönk ásamt ýmsu öðru ' Þetta er í raun tónlist sem höfðar til allra aldurshópa og sameinar þannig áhorfendur með allskonar tónlistaráhuga og -þarfir... ...sex ára fylgdarmaður minn tilkynnti í hléinu að hann hefði hug á því að sjá þessa sýningu þúsund sinnum...” Þorgerður E Sigurðardóttir, Víðsjá með einkasýxtingu GaUen Myndlist sem sýnir fagurfræði ofbeldis Eftir Hildi Eddu Einarsdóttur hildur@bladid.net „Fyrsti hluti sýningarinnar er myndband frá síðasta ári sem heit- ir Material Dust en um er að ræða upptöku af því sem gerðist á bak við tjöldin við gerð kvikmyndar í Hong Kong. Þar blanda ég einn- ig inn minum eigin skáldskap. Á þann hátt sýni ég mörkin á milli þess sem er raunverulegt og þess sem er uppspunnið i samhengi við ástandið í borginni í sinni ýktustu mynd,“ segir Alejandros Vidal sem í dag klukkan 17 opnar sýningu í Gallerí Kling & Bang. Þetta er fyrsta einkasýning þessa spænska listamanns hér á landi. Sýningin stendur yfir til 15. apríl og saman- stendur af myndbandsverkum og ljósmyndum í afgirtu rými. „1 svona stórum borgum eins og Hong Kong geta verið miklar öfgar í ofbeldi, spillingu og ítökum mafí- unnar svo dæmi séu tekin,“ segir Alejandro. Hann bendir þó á að ekki sé þar með sagt að Hong Kong sé hættulegri borg en aðrar. „Það eru varla til margar borgir sem eru lausar við vandamál af þessu tagi, og ástandið í Hong Kong er sennilega ekki verra en í öðrum borgum af svipaðri stærðargráðu. Ég hafði fyrst og fremst áhuga á Hong Kong vegna sérstöðu hennar í kvikmyndagerð en á sjöunda og áttunda áratugnum var hún nokk- urs konar Hollywood austursins og mekka kvikmyndagerðar í Asíu. Nú er borgin hins vegar í hálfgerðri hnignun." Eftir myndbandið tekur við ljós- myndasería sem heitir Negotiating a New Economical Lethal Paradise og er sömuleiðis frá árinu 2006. í henni eru vaktar upp dýrslegar sög- ur sem fóstraðar eru á klassískum, asískum neðanjarðarkvikmyndum þar sem gangsterar eru stríðsmenn nútímans; ofbeldisfullur dauðdagi verður að helgiathöfn og gildismat er keypt dýru verði. „Þessi litla myndasaga er að mörgu leyti dæmi- gerð fyrir mitt helsta hugðarefni í listinni, sem er fagurfræði ofbeld- isins," segir Alejandro og bætir því við að það sé ekki þar með sagt að myndunum sé ætlað að hvetja til NÁMSKEIÐ ofbeldis eða vekja óhug. „Þær eru vissulega ekki ætlaðar mjög ung- um börnum. En þær eru þó ekki þannig að þær ættu að særa við- kvæma.“ Þriðji og síðasti hluti sýningar- innar er annað myndband sem heit- ir Tactical Disorder. „Það er mjög pólitískt verk og ádeila á samband- ið milli aukinna aðgerða ríkisvalds- ins til þess að auka öryggi borgar- anna annars vegar og minnkandi athafnafrelsi fólks hins vegar," út- skýrir Alejandro Vidal að lokum. Að skrifa samkeppnishæfa umsókn í 7. rannsóknaáætlun ESB Þriðjudaginn 3. apríl kl. 9:00-15:30 í Háskólanum í Reykjavík, Ofanleiti 2, stofu 101 Námskeið fyrir væntanlego þátttakendur í 7. rannsóknaáætlun Evrópusambandsins 2007-2013 SEVENTH FRAMEWORK PROGRAMME Dagskrá: • Yfirlityfir 7. rannsóknaáætlun ESB • Markmið áætlunarinnar og bakgrunnur • Undirsvið 7. rannsóknaáætlunar E5B • Tegundir verkefnastyrkja • Hlutverk evrópskra tæknivettvanga (Technology Platforms) • Grunnrannsóknirí 7. rannsóknaáætlun E5B • Samkeppnis- og nýsköpunaráætlun E5B • Þín stefnumörkun fyrir 7. rannsóknaáætlun E5B Leiðbeinandi á námskeiðinu verður Dr. Sean McCarthy frá Hyperion Ltd., eftirsóttur ráðgjafi sem unnið hefur fyrir marga af helstu háskólum Evrópu, rannsóknastofnanir og fyrirtæki á sviði rannsókna. Fjöldi þátttakenda ertakmarkaður. Þátttökugjald er kr. 25.000. Innifalin eru námskeiðsgögn og veitingar. Frestur til að skrá sig er 29. mars 2007. Skráning fer fram hjá rannis@rannis.is og f síma 515 5800. MAPO POUVtKMl 9 ❖ ÍPR^MPT impra nýsköpunarmiðstöð HÁSKÓLINN I REYKJAVlK ^ Iðntasknistofnun nmM»u ummmi RANIUIS Rannsóknamiöstöö íslands • Laugavegi 13 • 101 Reykjavík • Sími 515 5800 • Bréfsími 552 9814 • www.rannis.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.