blaðið - 17.03.2007, Blaðsíða 14

blaðið - 17.03.2007, Blaðsíða 14
14 LAUGARDAGUR 17. MARS 2007 blaðiA HVAÐ MANSTU? 1. Hver var formaður sérnefndarinnar um stjórnarskrármál sem hafði auðlindafrumvarpið til umfjöllunar? 2. Hvaða nafn ber sjötta breiðskífa Bjarkar Guðmundsdóttur sem út kemur í maí næstkomandi? 3. Hvaða starfi gegnir Ben Bernanke? 4. Hver leikstýrir íslensku kvikmyndinni Astrópíu sem verður frumsýnd í kvikmyndahúsum í sumar? 5. Hver er bæjarstjóri Fjarðabyggðar? GENGI GJALDMIÐLA Svör: o 'zz ‘O cn co <2 . o t O c m C/3 . O) »o cr ;= • 1= o Q3 -o o E m > co C0O: KAUP SALA Bandarikjadalur 66,95 67,27 gg Sterlingspund 130,43 131,07 ■ BBE' Dönsk króna 11,977 12,047 BlOBa Norsk króna 10,978 11,042 mmm mtm Sænsk króna 89,22 89,72 B9 Evra 89,22 89,72 Forsetabíllinn: Bjartsýni á lausn „Minn vilji hefur aldrei verið sá að setja bílinn á uppboð og því hef ég verið viljugur að gefa ítrekaðan fr est. Nú hef ég lagt fram mjög sanngjarnt tilboð og slegið verulega af. Vonandi verður þetta til að leysa máhð,“ segir Sævar Pétursson bifvélavirki. Réttingarverkstæði-bílamál- un Sævars stóð að viðgerð og endurbótum á fyrsta forsetabíl lýðveldisins. Þegar kom að upp- gjöri var heildarkostnaður verks- ins komin í tuttugu og sex millj- ónir sem var töluvert umfram þann ramma sem gefinn var í upphafi, í kringum tíu milljónir. Sævar hefur hingað til staðið fast á sínum reikningi en hefur nú gefið eftir til að þoka málinu nær sátt. „Þeir hafa óskað eftir fresti fram í næstu viku og ég er bjartsýnn á að vilji sé til að ljúka málinu núna. Út af standa fimm milljónir í mismun samkvæmt því tilboði sem ég hef lagt fram,“ segir Sævar. Olíumálið í Hæstarétti: Endanlega sýknaðir ■ Áfellisdómur yfir samkeppnislögum ■ Tveir skiluöu séráliti ■ Vonbrigði Eftir Magnús Geir Eyjólfsson og Hlyn Orra Stefánsson „Þetta er fyrst og fremst áfellis- dómur yfir samkeppnislögunum. Það var ekkert athugavert við rann- sókn Samkeppniseftirlitsins né rík- islögreglustjóra en lögin gera ekki nægilega grein fyrir því hvernig þetta á að koma saman,“ segir Helgi Magnús Gunnarsson, saksóknari efnahagsbrota. Hæstiréttur staðfesti í gær úr- skurð Héraðsdóms Reykjavíkur um að vísa ákæru gegn þremur fyrr- verandi og núverandi forstjórum olíufélaga frá. Fimm dómarar kváðu upp dóminn, en tveir skiluðu sératkvæði. Helgi segir að vissulega séu alltaf vonbrigði þegar miklum tíma hafi verið varið til einskis en hins vegar sé staðreyndin sú að lagaumhverfið sé ófullnægjandi. „Sakborningar hljóta að vera ánægðir með að vera lausir undan þeim bagga sem fylgir rannsókn og ákæru í _ svona langan tíma. Ég vil árétta að það er ekki á neinn hátt verið að taka undir frávísunarástæður héraðs- dóms. Þetta er alveg ný röksemd fyrir frávísun. Héraðsdómur sagði að brotin hefðu ekki verið refsiverð en það er ekki tekið undir það í meirihlutaatkvæði Hæstaréttar.“ Fyrirkomulag samkeppn- islaga ekki nógu skýrt í lok síðasta árs gaf ríkissaksókn- ari út ákæru á hendur þeim Kristni Björnssyni, fyrrverandi forstjóra Skeljungs, Einari Benediktssyni, for- stjóra Olíuverzlunar íslands, og Geir Magnússyni, fyrrverandi forstjóra Olíufélagsins. Voru þeir ákærðir fyrir að hafa með sér ólöglegt sam- ráð um verð og að koma í veg fýrir samkeppni. I dómi Hæstaréttar segir að fyr- irkomula samkeppnislaga hafi ekki verið nógu skýrt um meðferð máls ef grunur vaknar um að brotið hafi verið gegn lögunum. Þar af leiðandi hafi verið óskýrt hvernig með skyldi fara ef til- efni þætti til opinberrar rannsóknar jafnhliða meðferð samkeppnisyfir- valda, og hvenær beita ætti refsiviður- lögum. Segir þar ennfremur að það hafi átt við þá stöðu sakborninganna að taka þátt í viðræðum og samn- ingum við Samkeppnisstofnun og veita henni upplýsingar, en fella þar með á sig sök þegar málið yrði síðar tekið til refsimeðferðar. Oliumálinu visað fra i Hæstaretti Fyrrum forstjórar olíufélaganna og núverandi eru lausir við olíumálið. Mynd/lngó Málinu lokið af hálfu ákæruvalds Taldi Hæstiréttur ekki nægilega fram komið að í lögreglurann- sókninni, sem fram fór í kjölfar meðferðar samkeppnisyfirvalda, hefðu sakborningarnir notið þeirra réttinda sem mælt er fyrir um í 70. grein stjórnarskrárinnar og í megin- reglum laga um meðferð opinberra mála. 170. grein stjórnarskrárinnar segir meðal annars: „Öllum ber réttur til að fá úrlausn um réttindi sín og skyldur eða um ákæru á hendur sér um refsiverða háttsemi með réttlátri málsmeðferð innan hæfilegs tíma fyrir óháðum og óhlut- drægum dómstóli.“ Hæstiréttur komst því að þeirri niðurstöðu að ekki væri hægt að reisa ákæru á lögreglurannsókn- inni, og var niðurstaða héraðsdóms af þeim sökum staðfest. Helgi segir málinu endanlega lokið af hálfu ákæruvaldsins. „Niðurstaðan er sú að ekki verður byggð ákæra á þess- ari rannsókn því hún fór fram með þessum hætti. Það er ekki grundvöllur til þess að rannsaka málið upp á nýtt og því verður ekkert meira aðhafst í þessu máli.“ www.motormax.is MotorMax Af öllum nýjum vélsleöum í verslunum MotorMax í Reykjavík, Akureyri og Egilsstöóum Útborgun 99.000 kr. afborgun af láni frá 1 7.900 kr. á mánuði.* Þú getur valið á milli þriggja frábærra kaupauka sem fylgja meó í pakkanum. 1 . Flugmiðar fyrir tvo með lcelandair til Evrópu.** Z. Bensínkort með 60.000 kr. inneign frá Skeljungi. 3. Glæsilegur aukahlutapakki frá MotorMax að andvirði 80.000 kr. Komdu í MotorMax og láttu okkar eldhressu sölumenn segja þér betur frá þessu frábæra tilboði. Bílasamningur Glitnis i 60 mán. Myntkarfa GL5 'Flugvallarskattar eru ekki innifaldir. ICELANDAIR GLITNIR fjArmögnun MotorMax Egilsstöðum Toyota Austurlandi Tjarnarási 6 Sími: 470-5080 / 470-5070 Opið; 1 6-1 8 virka daga. MotorMax Akureyri Tækjasport og Dekk Njarðarnesi 1 Sími: 460-4350 Opið: 9-18 virka daga. Motor Max Reykjavík Kletthálsi 1 3 Sími: 563-4400 Opið: 9-18 virka daga. Laugard. 10-14. Sunnud. 12-16
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.