blaðið - 17.03.2007, Blaðsíða 22

blaðið - 17.03.2007, Blaðsíða 22
22 LAUGARDAGUR 17. MARS 2007 blaóið folk@bladid.net HEYRST HEFUR SÖGUSAGNIR eru nú uppi á netmiðlum um að Smáralindar- fermingarbæklingamálið hafi riðið Guðbjörgu Hildi Kolbeins að fullu og hún látið af störfum sínum sem stundakennari í Há- skóla íslands. Þetta er hins vegar ekki rétt samkvæmt heimildarmanni Heyrst hefur. Að gefnu tilefni skal þetta hér með áréttað og því komið á framfæri, enda hvim- leitt þegar kjaftasögur komast á prent... ÁSTIN ku hafa kviknað á ný á milli Kristjáns Ra og Höllu Vilhjálms samkvæmt áreiðanlegum kjafta- sögum. Til þeirra sást á veitinga- staðnum Domo og mun hafa farið vel á með þeim. Húmoristar benda reyndar á að uppátækið sé aðeins hernaðaráætlun hennar til þess að gera Jude Law afbrýðisaman en hann hefur að sögn erlendra miðla gert sér dælt við lostafullu lokka- dísina Lindsey Lohan... ARNA Schram mun hafa fengið atvinnutilboð frá DV á dögunum eftir því sem Pétur Gunnarsson upplýsti á bloggsíðu sinni. Hún afþakkaði hins vegar pent. Eftir að hafa verið í rúmlega áratug á Mogganum gerðist hún aðstoðarrit- __ M stjóri Króni- kunnar sem hefur nokkra sérstöðu á markaðnum. Sérstaðan mun þó aðallega fólgin í dræmri sölu blaðs- Halldór Halldórsson, bæjarstjóri á ísafirði Viöskiptavinir Samkaupa geröu athugasemdir við auglýsingu frá Víf- ilfelli þar sem Coke Zero kóladrykkurinn er auglýstur. „Af hverju ekki kynlíf með Zero forfeik" var slagorðið sem særði blygðunarkennd Vest- firðinga með þeim afleiðingum að auglýsingaborðinn var tekinn niður. Bolvíkingur í Stóru trúbadorkeppninni: Einar Örn gefur út nýja plötu á árinu Umbúðalaus Einar Örn Eftir Trausta Salvar Kristjánsson traustis@bladid.net Einar Örn Konráðsson er 28 ára trúbador að vestan, nánar tiltekið frá Bolungarvík. Hann tekur nú þátt í Stóru trúbadorkeppninni sem haldin er í Reykjavík. Einar hefur sterkar skoðanir, segist vera frjáls- lyndur í pólitík og er óhræddur við að koma skoðunum sínum á fram- færi enda textar hans beittir og jafn- vel klúrir á köflum. „Eitt af fyrstu lögunum hét Hring- vöðvinn, sem segir allt sem segja þarf. Að vísu hef ég nú mildast með árunum eins og von er. En það fylgir trúbadornum að vissu leyti að segja hlutina umbúðalaust, það er hans hlutverk. “ EinarÖrn hefurgefið úteinaplötu. Hann segirþó erfittað komastað hjá útvarpsstöðvunum. „Ég gaf út plötu, Lognið á undan storminum, fyrir fjórum árum en ég bætti á hana tveimur nýjum lögum fyrir ári og gaf hana út aftur. Þá splæsti ég nýju coveri á hana. Hins vegar hefur maður lítið komist að í ljósvakamiðlunum. Það er helst að Dr. Gunni hafi gefið manni tæki- færi, en það sama er ekki hægt að segja um Óla Palla á Rás 2 sem spilar ekkert nema brit-popp og brit-rokk. Hann er sjálfskipuð tónlistarlögga íslands og það er erfiðara að eiga við hann en sjálfan andskotann! Og það gildir ekki bara um mig heldur fleiri trúbadora, til dæmis Bjarna Tryggva og fleiri," segir Einar Örn gramur. „Að vísu hefég nú mildast með ámnum eins og von er. En það fylgir trúba- domum að vissu leyti að segja hlutina umbúðalaust, það erhans hlutverk." Einar segist ekki kominn af tónlistarfjölskyldu. „Nei, það var voðalega lítið um það hjá mínum nánustu. Eg fékk rey ndar bakteríuna af frænda mínum sem átti gítar. Ég byrjaði eitthvað að glamra og svo hjálpaði nú pabbi mér við að komast yfir bækur og texta. Síðan lærði maður bara sjálfur. Reyndar er ég ekki alls ókunnugur blásturshljóðfærum. Ráðinn var breskur tónlistarkennari í plássið sem, eftir að hafa skoðað á mér var- irnar, sagði að ég væri ekkert annað en kornett-leikari! Og það varð úr í nokkur ár. Reyndar gleymi ég aldrei einni setningu sem hann kenndi Su doku HERMAN mér og hef ég nýtt mér hana síðan: Engage your brain before playing. Ætli þetta útleggist ekki sem: Hugs- aðu áður en þú framkvæmir, sem flestir ættu að temja sér.“ Stóra trúbadorkeppnin ergóður vettvangur fyrir unga og upprenn- andi tónlistarmenn. „Já, ekki spurning. Ég hef svo sem ágætis reynslu af því að troða upp sem nýtist mér í keppninni. Held ég sé búinn að vera í þessu í um átta ár. Ég passa mig bara á að taka keppn- ina ekki of alvarlega, lít meira á þetta sem hvert annað gigg. Þannig stressast maður síður upp og verður mun afslappaðri sem ég held að skili sér í betri flutningi." Einar hyggst gefa út nýja plötu á árinu. Hann segist þó eiga nóg efni fyrir tvœr. „Maður er alltaf að semja. Stundum dettur maður bara niður á einhverja melódíu, eða texta og restin kemur af sjálfu sér. Síðan getur maður líka smíðað lag frá grunni, það er allur gangur á þessu. Fyrir áhugasama bendi ég bara á myspace.com/einar- orni9 en þar er hægt að hlýða á lög eftir mig. Ég verð síðan að spila á Víkingnum í Vogunum á laugardags- kvöldið upp úr miðnætti, strax eftir trúbadorkeppnina,“ sagði Einar að lokum. BL06GARINN... Breytt baksiða Moggans „... enn eitt skrefið í umbreytingu Morgunblaðsins. Baksíðan er komin í nýjan búning, hún er ekki lengur ein helsta fréttasíða blaðsins, heldur einhvers konar sambland af auðlesnu efni, fréttayfiriiti, fréttum affólki og neytendafréttum [...] ...af einhverjum dularfullum ástæðum var forsíðu blaðsins um 40 ára skeið sóað íerlendar fréttir. Verkföll í Bretlandi áttu frekar erindi á forsíðu blaðsins en verkföll á Islandi, o.s.frv. Ekki spyrja mig hvers vegna, einhverjir sögðu það vera vegna þess að íslenskt þjóðfélag væri Morgunblaðinu 1 ekki almennilega samboðið, það væri á æðra plani.“ Pétur Gunnarsson hux.blog.is Eru ekki elskendur „Fyndnast varsamt í morgun að sjá í Fréttablaðinu að mér er klínt þétt upp við hinn mæta verjanda Jakob Möllerj...] Hvað nú? hugsaði ég, er Sigríður Dögg komin í einkamál okkar Kobba? (Hún sem sér vændi á Islandi i stöðugri markaðssókn ef marka má forsíðu Kómíku og hefur þungar áhyggjur af vændiskonum á íslandi.) En Fréttablaðið fór mjúkum höndum um mig í þetta sinn og við Jakob Möller bara náin á myndinni. Það staðfestist hér með að við erum ekki elskendur og þrátt fyrir gríðarlegt sexapíl mannsins verður það aldrei." Jónina Benediktsdóttir •^^^^^^oninaberublogJs^ Umboðsmaður Guðs „Frjálshyggjumenn hafa fundið Guð í andstöðu sinni gegn ríkisafskipt- um í umhverfismálum. Hannes Hólmsteinn Gissurason bendirá, að biblían segi manninn vera herra jarðarinnar. Sennilega á Hannes ekki börn, þviað hann virðist áhyggjulaus af ástandinu eftirfimmtíu ár, þegar baráttan um auðlindir og lifsgæði nálgast ragnarök. Sem umbi Guðs á Hannes samt nokkuð langt íað ná ofsatrúarmönnum Omega, sem fag- na heimsendi. Þeir telja, að þá verði þeir halaðir upp íhimnaríki, meðan af- gangurinn af heiminum N ferst í ragnarökum. Sem væntanlega er stóri slagur mann- kyns um loft, vatn, orku.“ Jónas Kristjánsson jonas.is 7 2 8 6 7 4 2 5 7 9 1 3 8 5 7 2 4 8 9 4 3 6 9 1 3 7 2 7 4 3 1 eftir Jim Unger Su Doku þrautin snýst um aö raða tölunum frá 1 -9 lárétt og lóðrétt í reitina, þannig að hver tala komi ekki nema einu sinni fyrir í hverri línu, hvort sem er lárétt eða lóðrétt. Sömu tölu má aukin heldur aðeins nota einu sinni innan hvers niu reita fylkis. Unnt er að leysa þrautina út frá þeim tölum, sem upp eru gefnar. Áður en þú skoðar einkunnabókina mína bið ég þig um að íhuga genin sem ég hafði úr að spila.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.