blaðið - 21.03.2007, Qupperneq 2
blaöið
2
MIÐVIKUDAGUR 21. MARS 2007
VEÐRIÐ í DAG
Kóinandi
Suðvestan 15 til 23 m/s og él, hvass-
ast norðvestantil, en mun hægari
vindur og léttskýjað á austanverðu
landinu. Kólnandi veður.
A FÖRNUM VEGI
ÆTLAR ÞÚ AÐ FARA
EITTHVAÐ UM
PÁSKANA?
Katrína Inga Antonsdóttir
Ég verð heima á isafirði
Halldór Smárason
Ég ætla að vera á Rokkhátíð
alþýðunnar á (safirði
Dagný Jóhannsdóttir
Ég ætla að vera heima í
Reykjavík.
Áróra Gunnarsdóttir
Ég ætla kannski að fara til isa
fjarðar.
Hrönn Ingvarsdóttir
Vinna.
ÁMORGUN
Hiýnandi
Vaxandi sunnanátt, víða 15 til
20 m/s síðdegis. Slydda og
síðar rigning, en úrkomulítið
norðaustantil. Hlýnandi veður.
VÍÐAUMHEIM |
Algarve 15
Amsterdam 8
Barcelona 12
Berlín 5
Chicago 5
Dublin 6
Frankfurt 8
Glasgow 4
Hamborg 9
Helsinki 4
Kaupmannahöfn 6
London 6
Madrid 9
Montreal -11
New York 8
Orlando 16
Osló 7
Palma 16
Paris 5
Stokkhólmur 3
Þórshöfn 0
Eftir Magnús Geir Eyjólfsson
magnus@bladid.net
„Það er ekki stefna ríkisstjórnar-
innar að lögleiða vændi. Ég held
að þetta sé pólitískur áróður sem
menn hafa uppi til að skora stig. Ég
hef ekki áhyggjur af því að hér muni
risa rauð hverfi," segir Sigurður
Kári Kristjánsson, þingmaður
Sjálfstæðisflokksins. Hann segir
að markmiðið með breytingum á
206. grein hegningarlaga sem leyfa
sölu á vændi vera að herða tökin á
melludólgum og koma í veg fyrir að
þeim sem stunda vændi sé refsað.
Sú leið sé bæði skynsamlegri og
mannúðlegri.
Sigurður Kári segist ekki deila
áhyggjum Atla Gíslasonar sem hélt
því fram í Blaðinu í gær að breyt-
ingarnar opni leiðina fyrir auknu
vændi og mansali. „Hann hefur
verið þeirrar skoðunar að það eigi
að taka upp hina svokölluðu sænsku
leið í íslenskum hegningarlögum.
Gallinn á þeirri leið er sá að vændi
í Svíþjóð hefur ekkert horfið og
aðstæður vændiskvenna hafa ekki
batnað. Þær hafa versnað vegna
þess að vændið hefur farið undir
yfirborðið. Ég hef setið marga fundi,
meðal annars á vettvangi Norður-
landaráðs, þar sem Sviar hafa talað
fyrir þessari leið sinni. Þeirra tyú-
boð hefur ekki borið árangur enda
hefur ekkert annað Evrópuland séð
ástæðu til að fara þessa leið. “
Margt gott í sænsku leiðinni
„Ég lýsi yfir áhyggjum mínum af
þessu frumvarpi eins og það er. Það
var margt gott sem kemur fram í
því og ég nefni fyrningarfrestinn
og fleira. En vændið finnst mér alls
ekki nógu gott. Það er verið að gera
það löglegt að kaupa líkama fólks,“
segir Thelma Ásdísardóttir, starfs-
kona Stígamóta, um breytingar á
vændisákvæðinu.
Thelma segist óttast að breyt-
ingin leiði til aukningar á vændi
og um leið mansali. Segir hún
að sænska leiðin, þar sem kaup á
vændi eru gerð refsiverð, sé ákjós-
anlegri leið til að sporna við slíkri
starfsemi. „Það er margt mjög gott
í sænsku leiðinni. Ekki síst að þar
er ábyrgðin sett á kaupandann. Það
væri ekkert vændi ef það væri ekk-
ert fólk sem væri tilbúið að kaupa
það. Þetta er eitthvað sem þarf að
endurskoða."
Breytingin til bóta
Ágúst Ólafur Ágústsson, þing-
maður Samfylkingarinnar, sagði
í gær að lögreglan hefði tjáð full-
trúum í vændisnefnd að þessi
tiltekna leið myndi gera lögregl-
unni erfiðara að hafa uppi á mellu-
dólgum. Stefán Eiríksson, lögreglu-
„Ég hef ekki
áhyggjur af því
að hérmuni rísa
rauð hverfi"
Sigurður Kári Krist-
jánsson, þingmaður
Sjálfstæðlsflokksins
„Breytingamar
til bóta að öllu
*r leyti“
Stefán Eiríksson,
lögreglustjóri á
höfuðborgarsvæðinu
stjóri á höfuðborgarsvæðinu, segist
ekki vita hvað Ágúst sé að fara með
þessum ummælum. Þvert á móti
segir hann breytingarnar til mikilla
bóta að öllu leyti.
„Ég held að það sé ekki skoðun lög-
reglunnar að þarna hafi slæm leið
verið farin. Bæði er verið að breyta
ákvæðum varðandi misneytingu og
þyngja refsingarí samræmi við alvar-
leika brota. Það var afar vel að þessu
unnið af hálfu Ragnheiðar Braga-
dóttur prófessors sem vann þessa
tillögu fyrir dómsmálaráðherra.“
Stefán segist ekki hafa áhyggjur
af því að hér gætu risið vændishverfi
að erlendri fyrirmynd. „Ég tel ekki
að með þessari löggjöf hafi verið
gefið grænt ljós á slíkt. Milliganga
vændis er eftir sem áður refsiverð."
!*ajfj
Skilorðsbundið fangelsi:
Sparkaði í
maga löggu
Rúmlega tvítug kona var
í Héraðsdómi Reykjavíkur í
gær dæmd í fjögurra mánaða
skilorðsbundið fangelsi fyrir að
sparka í maga lögreglumanns
við skyldustörf á Fáskrúðsfirði
og reyna að bíta í handlegg ann-
ars. Ákæra gegn karlmanni sem
lést í þessum mánuði var felld
niður. Hann var ákærður fyrir
að taka annan lögreglumanninn
hálstaki til að reyna að hindra
handtöku konunnar.
Refsing var ákveðin með tilliti
til þess að konan rauf með brot-
inu skilorð. Hún hefur hlotið
þónokkra dóma, meðal annars
fyrir þjófnaði og fíkniefnabrot.
Breytingar á Blaðinu:
Þröstur ráðinn
fréttastjóri
Þröstur
Emilsson
hefur verið
ráðinn frétta-
stjóri á Blað-
inu og hefur
hann störf á
morgun.
Þröstur
hefur víð-
tæka reynslu í fréttamennsku.
Hann starfaði síðast sem
fréttastjóri á DV og þar áður
hjá Vísi.is. Þröstur hefur einnig
starfað sem fréttastjóri á Frétta-
blaðinu og sem fréttamaður
hjá Sjónvarpinu. Hann mun
starfa við hlið Gunnhildar Örnu
Gunnarsdóttur sem hefur verið
fréttastjóri á Blaðinu síðan síð-
astliðið sumar.
Chrysler Grand
Voyager Disel.
2,8L CRD ey&sla 8,5 L ó 100/km, 7 manna,
leður, Ivær rafknúnar hli&arhur&ir, bakkskynjari,
áltelgur, 6 diska CD í mælabor&i, km mælir. ofl.
Tveggja óra óbyrg&. Þjónusta&ur af Ræsi.
Til sýnis ó staðnum.
Verð 4.490 þús.
www.sparibill.is
Skúlagötu 17
Sími: 577 3344
Ingibjörg Pálmadóttir svarar yfirlýsingu Jóns Steinars:
Hann kallaði Jón Ásgeir raft
Ingibjörg Pálmadóttir sendi í
gær frá sér tilkynningu þar sem
hún segir Jón Steinar Gunnlaugs-
son hæstaréttardómara hafa komið
þeim skilaboðum til sín í gengum
Lilju, systir Ingibjargar, að Jón Ás-
geir væri raftur sem hún skyldi losa
sig við sem fyrst. Segir þar einnig
að víst hafi Jón Steinar, sem starf-
aði fyrir Ingibjörgu árið 2002,
haldið því fram að hann hafi
tekið að sér mál Jóns Geralds
Sullenberger vegna þrýstings.
Ingibjörg telur að þrýst-
ingurinn hafi komið
frá Styrmi Gunnars-
syni, ritstjóra Morg-
unblaðsins, og Kjart-
ani Gunnarssyni,
fyrrverandi fram-
kvæmdastjóraSjálfstæðisflokksins.
Jón Steinar hafði áður sent frá sér
tilkynningu þar sem hann hafnaði
ummælum sem Ingibjörg Pálma-
dóttir lét hafa eftir sér við aðalmeð-
ferð Baugsmálsins á mánudag. Hún
sagðist fyrir dómi hafa orðið ósátt er
hún frétti að Jón Steinar hefði verið
Jóni Gerald innan handar á fyrstu
stigum Baugsmálsins. Sagðist
hún hafa spurt Jón Steinar af
hverju hann hefði ekki vísað
f Jóni Gerald á annan lögmann,
en hann hafi þá svarað því
til að það hafi verið
vegna þrýstings frá
mörgum mönnum.
' , WÆŒMHÍH 1 tilkynningu Jóns
Steinars segist hann
einfaldlega hafa
Ingibjörg Pálmadóttir Segir Jón
Steinar hafa komiö skilaboöum til
sín í gegnum Liiju um aö hún skyldi
losa sig viö Jón Ásgeir.
tekið að -sé mál Jóns Geralds þar
sem hann hafi verið einstaklingur
búsettur erlendis sem þarfnaðist lög-
manns til að fara með bótamál gegn
mesta viðskiptaveldi íslands.