blaðið - 21.03.2007, Blaðsíða 19
blaðið
MIÐVIKUDAGUR 21. MARS 2007 31
íþróttir
Skeytin j
Margir
af stóru nöfn-
unum í boltan-
um undanfarin tíu ár
eru smátt og smátt að
hverfa af sjónarsviðinu
og hyggjast njóta ávaxta erfiðisins
í sólstól og sandölum með kókos í
hönd. Roberto Carlos fer líklega
heim til Brasilíu effir leiktiðina og
nú bætast við þeir Filippo Inzaghi
hjá Milan og Alvaro Recoba
hjá Inter. Báðir íhuga að setja
punktinn á komandi mánuðum.
][ ohn Terry og
Frank Lampard
I geta farið standi
eirra vilji til þess.
Þessiyfirlýsing
Jose Mourinho,
stjóraChelsea,þykir
undarleg í ljósi þess að
þar fara tveir af máttar-
stólpum liðsins fyrr og
nú en báðir heimta nú hærri laun
og betri sporslur fyrir að endurnýja
samninga sína. Hvaða líkur eru á
svipuðum ummælum Wengers til
að mynda um Henry og Toure?
H;
1 JLi
"vorki Pina
Colada, fánar né
.lúðrablástur
verða á boðstólum
fyrir leikmenn
Inter Milan fyrr
en fullvíst er að
félagið vinni ítalska
titilinn að sögn Roberto Mancini
þjálfara. Inter hefúr átján stiga
forystu á næsta lið og tveir td þrír
sigurleikir í viðbót klára dæmið.
Eltingaleikur Berlus-
conisogACMilan
við Ronaldinho
er farsi að mati for-
seta og eiganda Inter
Milan. Ronaldinho
sé ekki þess virði en
það sé Leo Messi aftur á móti.
T~\ afa Benítez segir
l~^ unglingastarf
X Vfélaganna
engan ávöxt bera
ogvillað varaliðum
félaganna verði leyft
að keppa í alvöru deildum. Það fyrir-
komulag hefur lengi tíðkast á Spáni
án þess þó að þaðan komi reglulega
stórstirni. Er það þó betri hugmynd
en að varaliðin spili innbyrðis sín
á milli án þess að hafa að nokkru
að keppa eins og nú er í Englandi.
Vika í landsleik Spánverja og íslendinga í Evrópukeppninni:
Eiður ekki
bjartsýnn
Reynsluleysi leikmanna Stíf vörn og skyndisóknir Krossleggja fingur
Persónulegar nótur
Heiðar Helguson mun líklega
ekki taka þátt í leikjum íslenska
landsliðsins í undankeppni
Evrópumótsins. Segir Eyjólfur
Sverrisson landsliðsþjálfari
persónulegar aðstæður ráða því
hjá Heiðari en fram kom á þlaða-
mannafundi vegna landsleiks
Spánverja og íslendinga í næstu
viku að þeir hefðu átt langt
spjall saman vegna þessa.
Upp a dekk
Michelin-dekkjarisinn hefur
lögsótt Alþjóða akstursíþrótta-
sambandið fyrir þá ákvörðun að
einskorða notkun dekkja í heims-
meistarakeppninni í ralli við
eina tegund frá einum og sama
framleiðanda. Er það sama
fyrirkomulag og forsvarsmenn
Formúlu 1 ákváðu fyrir stuttu.
íþróttafólk ársins
Fríða Rún Þórðardóttir og Jón
H. Magnússon voru kjörin
iþróttafólk ársins í öldungaflokki
í frjálsum íþróttum af svoköll-
uðu öldungaráði Frjálsíþrótta-
sambands íslands. Bæði eiga
langan feril að baki hér á landi
og bæði koma þau frá IR.
ithrottir@bladid.net
Eftir Albert Örn Eyþórsson
albert@bladid.net
Islenska landsliðið vantar snerpu og
reynslu og eina leiðin til að ná hag-
stæðum úrslitum gegn Spánverjum
er að Iiggja aftarlega og beita skyndi-
sóknum. Þetta er mat Eiðs Guðjohn-
sen, fyrirliða íslenska landsliðsins (
knattspyrnu sem leikur sinn fimmta
leik í F-riðli Evrópukeppninnar á
miðvikudaginn við Spán ytra.
Segir hann ennfremur f viðtali
sem íþróttablaðið Marca átti við
hann að slæmt gengi Spánverja
hafi komið honum nokkuð á óvart
en Spánn var fyrirfram talið meðal
sigurstranglegri liða eftir spræka
frammistöðu á síðasta heimsmeist-
aramóti. Liðið situr hins vegar að-
eins sæti ofar Islandi í riðlinum eftir
þrjá leiki með einn sigur og tvö töp.
Dagskipun Luis Aragonés, þjálf-
ara Spánar, bæði fyrir leik liðsins
gegn Dönum á laugardaginn og
Islendingum eftir viku er eins
einföld og hægt er að fara fram á:
Spánn
Iker Casillas (R.Madrid)
Pepe Reina (Uverpool)
Juanito Guitérrez (Betis)
Joan Capdevila (Deportivo)
Angel Lopez (Celta)
Javi Navarro (Sevilla)
Antonio Lopez (Ati.Madrid)
Carlos Marchena (Valencia)
David Villa (Valencia)
Fernando Torres (Atl.Madrid)
Carlos Puyol (Barcelona)
Sergio Ramos (R.Madrid)
David Albelda (Valencia)
Xabi Alonso (Uverpooi)
Cesc Fabregas (Arsenai)
David Silva (Valencia)
Xavi Flemandez (Barcelona)
Andres Iniesta (Barcelona)
Miguel Angel Angulo (Valencia)
Fernando Morientes (Valencia)
sigur hvað sem það kostar.
Fátt kemur á óvart hvað hópinn
varðar sem Aragonés valdi fyrir leik-
ina tvo. Eru þetta að mestu sömu
leikmenn og skipuðu liðið í síðustu
heimsmeistarakeppni nema reynsl-
££ ísland
Árni Gautur Arason (Valerenga)
Daöi Lárusson (FH)
Brynjar Björn Gunnarsson (Reading)
Arnar Þór Viðarsson (Twente)
Atli Jóhannsson (KR)
Stefán Gíslason (Lyn)
Eiður Smári Guðjohnsen (Barcelona)
Jóhannes Karl Guðjónsson (Bumley)
Ólafur Örn Bjarnason (Brann)
(var Ingimarsson (Reading)
Kristján Örn Sigurðsson (Brann)
Grétar Rafn Steinsson (Alkmaar)
Veigar Páll Gunnarsson (Stabæk)
Gunnar Heiðar Þorvaldsson (Hannover)
Hannes Sigurðsson (Bröndby)
Emil Hallfreðsson (Tottenham)
Gunnar Þór Gunnarsson (Hammarby)
Hermann Hreiðarsson (Chariton)
unni ríkari. Ætti Eyjólfur Sverr-
isson landsliðsþjálfari að fá góða
mynd af spænska liðinu á laugardag-
inn kemur þegar það mætir Dönum
í Madrid. Koma verður svo í ljós
hvort það dugar eftir viku.
Þúsund og eitt mark
998 mörk og tvær þrennur í
röð í brasilísku deildinni. Hvað
er annað hægt en taka hattinn
ofan... ítrekað. Romário, fæddur
í júní 1966, sem gerir hann 41
árs gamlan og mögulegt viðtals-
efni í bókaflokknum Aldnir hafa
orðið er hvergi að láta á sjá.
?• - SBKk
Fjáður
Birgir Leifur Hafþórsson atvinnukylfingur náði sínum besta árangri á Evrópu-
mótaröðinni um helgina þar sem hann endaði í 25. sæti. Hækkaði hann sig
um allmörg sæti á peningalistanum en aðeins 125 tekjuhæstu kylfingarnir
tryggja sér keppnisrétt á mótaröðinni á næsta ári.