blaðið - 21.03.2007, Blaðsíða 10
10
MIÐVIKUDAGUR 21. MARS 2007
blaöiö
UTAN ÚR HEIMI
DANMÖRK
Strætóbílstjórar lögðu niður störf
Strætisvagnabílstjórar í Kaupmannahöfn lögðu niður
störf i gær sem lamaði umferð verulega i höfuðborg-
inni. Miklar seinkanir urðu á lestum, auk þess sem
erfitt var að fá far með leigubílum. Mikið álag varð á
götum Kaupmannahafnar vegna mikils fjölda einkabíla.
Þrjátíu farast í átökum
Rúmlega 30 hafa látist í átökum uppreisnarmanna
hryðjuverkasamtakanna al-Qaeda og stuðnings-
manna talibana í norðvesturhluta Pakistans undan-
farna daga. Hundruð talibana flúðu til Isvæðisins
eftir innrás Bandaríkjahers í Afganistan árið 2001.
ÍSRAEL
ísraelsstjórn hunsar Norðmanninn
Fyrirhugaður fundur Raymund Johansen, aðstoðarut-
anríkisráðherra Noregs, og fulltrúa (sraelsstjórnar var
blásinn af í gær. Ástæðan er fundur Johansen og Ismail
Haniyeh, forsætisráðherra Palesínumanna, á mánudag-
inn. Norðmenn viðurkenna þjóðstjórn Palestínumanna.
Eurovision:
Má ekki
miklu muna
„Ef Eiríkur rauði mun standa á
verðlaunapalli og flytja sigurlag-
ið þá þurfum við að bregðast
við því. Þá munu líklega víkja
fyrstu tölur úr Reykjanesi en við
þurfum að spila þetta dálítið eftir
eyranu," segir Páll Magnússon,
framkvæmdastjóri RÚV ohf.
Að kvöldi 12. maí verður mik-
ið álag á útsendingarstjórum
Ríkissjónvarpsins þegar beinar
útsendingar fara fram bæði
frá úrslitakvöldi Söngvakeppni
evrópskra sjónvarpsstöðva,
Eurovision, og kosningasjón-
varpi vegna alþingiskosninga.
Útsending frá Eurovision er
áætluð til klukkan tíu um kvöld-
ið og þá strax taka við fyrstu
tölur úr Reykjaneskjördæmi.
„Vísustu menn segja mér að
þetta eigi allt að takast en það
má litlu muna samt,“ segir Páll.
Skólarúta fauk út af Suðurlandsvegi
sH Suðurlandsvegi lokað ■ Fjögur bílslys við Litlu kaffistofuna ■ Strætó út af á Vesturlandsvegi
lynd/Frikki
Rúta full af skólakrökkum fauk út
af Suðurlandsvegi vestan við Mark-
arfljót rétt fyrir hádegi í gær. Sam-
kvæmt lögreglunni á Hvolsvelli fór
betur en á horfðist og náði bílstjór-
inn að stýra rútunni út af veginum
án þess að hún ylti. Börnin voru
öll í bílbeltum og segir lögreglan
það hafa bjargað börnunum frá
meiðslum.
Suðurlandsvegi var lokað austur við
Norðlingaholt frá hádegi til klukkan
að verða tvö í gærdag, og þurftu björg-
unarsveitir að aðstoða bíla niður af
Hellisheiði. Þá höfðu fjögur bílslys
orðið í nágrenni Litlu kaffistofunnar
og þurfti samkvæmt upplýsingum frá
lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu
að flytja einn ökumann með minni-
háttar meiðsl á slysadeild.
Á Kjalarnesi var einnig mjög
vindasamt í gær og fuku nokkrir
bílar út af Vesturlandsveginum, þar
á meðal strætisvagn sem keyrir á
milli Reykjavíkur og Akraness. Þá
var Fróðárheiði lokuð um hádegis-
bilið. Þar sátu bílar víða fastir, en
samkvæmt upplýsingum frá lögregl-
unni á Ólafsvíkurðu engin slys. Ann-
ars staðar á landinu voru víða hálku-
blettir og skafrenningur, en þó opið
fyrir umferð á helstu leiðum.