blaðið - 21.03.2007, Blaðsíða 15
blaðiö
folk@bladid.net
BLOGGARINN...
Hafnar-Jakinn...
„Guðmundur jaki var öllum ógleym-
anlegur. Stór, röddin djúp og rám,
tóbaksklúturinn íhendinni, mikilúð-
legt fas með óvenju sterkri nær-
veru. Guðmundur var og er jafnvel
enn holdgervingur verkalýðsbarátt-
unnar að öllum öðrum ólöstuðum.
Ég vil benda á að nú þegar er viðeig-
andi minnisvarði um Guðmund við
athafnasvæði Eimskipafélagsins við
Sundahöfn þar sem risastór gámakr-
ani var nefndur Jakinn til heiðurs
honum. Ef menn vilja endilega reisa
af honum styttu þá ætti hún betur
heima við Reykjavíkurhöfn en þar var
hans heimavöllur um áratugaskeið
og hafnarverkamennirn-
ir voru hans lið. Sú
stytta myndi sóma
sér vel á kajanum neð-
an við Hafnarhúsið.“
Sveinn Ingi Lýðsson
HERMAN
HVAÐ Mun klámumræðan hafa
^NNST áhrif á frjósemi kvenna í ár?
|3 i”i r ..Hvað sem umræðu af þessu tagi líður mun mannfólkið
■ • fara sínu fram og haga sér eftir sínu eðli."
Frjósemi kvenna virðist fara vaxandi samkvæmt
tölum Hagstofunnar. Bamsfæðingum fjölgaði og
mældist frjósemin 2,07 í fyrra en 2,05 árið 2005.
blog.is
Breiðholts-Jakinn..
„Stytta afJakanum í Breiðholti væri
flott framtak hjá borgaryfirvöldum.
Kallinn átti stóran þátt íað Breiðholt-
ið var byggt. Maður man eftir kallin-
um þrumandi yfir verkalýðnum að
standa saman og þerjast fyrirsín-
um hag. Ég held að flestir sem
muna eftir kallinum hafi borið
ákveðna virðingu fyrir honum.
Hans persóna og sá þungi sem
var íhans orðum verður lengi
í minni hafður. Mér fyndist kall-
inum mikill sómi sýndur með
því að reisa styttu af honum,
og hvar annars staðar en í
Breiðholtinu."
Ólafur Ingi Ingimundarson
hlerinn.blog.is
Enginxt Jaki...
„Eitt hvimieiðasta form persónudýrk-
unar er sú árátta að reisa styttur
af gengnu fólki. Styttuáráttan er
sérlega áþerandi í einræðis- og
alræðisríkjum. Flest mál eru þrýnni
en að fjölga styttum. Ekki er það
samt mat félaga í Samfylkingarfé-
lagi Breiðholts. Nú á hug þelrra
allra þetta sérkennilega baráttu-
mál: Að reist verði stytta af Gvendi
Jaka. Manninum sem ítrekað sveik
umbjóðendur sína, verkamennina, á
ögurstundu, kippti fótunum und-
an baráttu farandverkafólks á sínum
tíma og lagði Jón Þorleifsson, verka-
mann og síðar rithöfund,
í einelti. Hvert verður
næsta baráttumál-
ið? Að reist verði
stytta af steraboltan-
um Jóni Páli?“
Jens Kr. Guðmundsson
jensgud.blog.is
Fyrsta giggið í hálft ár
Eftir Trausta Salvar Kristjánsson
traustis@bladid.net
Þorgrímur Haraldsson er með efni-
legri tónlistarmönnum landsins.
Hanner betur þekktur undir nafninu
Toggi en hann gafút plötuna Puppy
í fyrra við góðar undirtektir. Toggi
heldur tónleika í kvöld, þá fyrstu
í hálft ár. En hvaðan kemur þetta
Togganafn?
„Eg var fyrst kallaður Grímur í
leikskóla en líkaði það illa. Síðan var
tekið upp á því að kalla mig Togga
sem festist bara við mig og hef ég
ekki verið kallaður neitt annað
síðan.“
Hvað atti þér út í tónlistina?
„Þegar maðurinn á neðri hæðinni
í Breiðholtinu var kominn með nóg
af glamri mínu á gamlan og úr sér
genginn eins strengs gítar þá bank-
aði hann upp á hjá mér og fór með
mig í gítarbúð þar sem hann lét mig
kaupa nýjan gítar. Ég var fljótur að
ná tökum á honum og hef bara verið
að glamra síðan!“
Toggi segir tónlistina taka sinn tíma.
„Ég kláraði Fjölbraut í Breiðholti.
Síðan byrjaði ég i bókmennta- og list-
fræði við Háskóla Islands samhliða
vinnu á geðdeild Landspítalans. Þar
að auki var ég stöðugt að vinna að
Puppy-plötunni og hafði einfaldlega
eftirJim Unger Su doku
ekki tíma í þetta allt. Ég ákvað því
að geyma námið og einbeita mér að
tónlistinni. Svo gaf ég út plötuna í
fyrra eftir um þriggja ára undirbún-
ing, má segja. En maður verður að
eiga fyrir salti á grautinn þannig að
ég er enn á geðdeildinni."
„Þaö blundar alltafí mér
þessi rólegheitapervert
og því erþetta frábært
tækifæri til þess að hleypa
honum út“
Er Toggi meðfleiri járn t eldinum?
„Já, ég fékk símtal frá Einari Má
rithöfundi. Honum hafði litist vel
á Puppy-plötuna og vildi fá mig til
þess að gera lög við nokkur ijóð sem
hann hafði samið. Síðan hittumst
við og spjölluðum saman og loks
milli jóla og nýárs vorum við með
smá uppákomu á Sogni þar sem
ég spilaði lög af Puppy og hann las
upp ljóð. Ég tók einnig nokkur ný
lög með hans ljóðum og það tókst
bara frekar vel. Það er engin dag-
setning komin á þá útgáfu, enda
allt í vinnslu enn þá. En þetta er
samt það erfiðasta sem ég hef gert.
Ljóðin eru ekki í þessu hefðbundna
söngtextaformi og því þarf ég að
endurvinna þau svolítið til þess að
6 9 2
6 8 5
8 1 7 4 3
3 6 5 4 9
9 4
2 6
8 1 3 2 7
4 7 8
5 4 1
þau falli betur að lögunum sem eru
í svona ambient stíl, eða lágstemmt
popp. Persónulega hafði ég ætlað
mér að breyta til og minnka rólegu
tónana aðeins en það blundar alltaf
í mér þessi rólegheitapervert og því
er þetta frábært tækifæri til þess að
hleypa honum út. Annars erum við
Bjarki, sem vann með mér að Puppy-
plötunni, að vinna nýtt efni. Þar er
aðeins meira farið út í tölvutónlist.
En það er allt í vinnslu einnig og
engin tímasetning komin á hreint
þar heldur.“
Toggi nýtur aðstoðar drengjakórs
Breiðholts á tónleikunum.
„Já, mikið rétt. Vinur minn var
kosinn fjórði kynþokkafyllsti maður
landsins um árið og heimtaði lag
um sig í Hey Jude-stíl, með svona la
la la la la-kafla. Ég varð við óskinni
sem átti að vera grínlag, en endaði
svo á Puppy-plötunni. Mér fannst
vanta eitthvern meiri hávaða í lagið
og hóaði í nokkra félaga, helst sem
falskasta og bað þá um að redda mér.
Síðan hellti ég bara í þá bjór og út-
koman er síðan orðin söguleg! Þetta
eru hressir piltar og mæta gjarnan í
glysgöllum og öðrum eins múnder-
ingum. Þeir eru því ágætis gógópíur
líka!“ sagði Toggi í lokin.
Tónleikarnir hefjast klukkan 21 á
Domo, Þingholtsstræti 5.
Upplifðu
HEYRST HEFUR
KARLJ. STEIN-
GRÍMSS0N (Kalli
í Pelsinum) hélt
upp á sextugsaf-
mæli sitt síðastlið-
inn mánudag. Af-
mælið var haldið
á glæsilegu
heimili Karls
og eigin-
konu hans,
Esterar
Ólafsdóttur.
Þangað mætti fjölmenni og kátt
var í höllinni. Gunnlaugur Sævar
Gunnlaugsson fór á kostum í
veislustjórn og Ari Edwald leiddi
afmælissönginn af skörungsskap.
Meðal gesta í afmælinu, sem
þótti sérlega vel heppnað, voru
Vlgdís Finnbogadóttir, Dagur B.
Eggertsson, Jónína Bjartmarz og
Hannes Hólmsteinn Gissurarson.
ÞAÐ ER ALLTAF hægt að hlæja
góðlátlega að mistökum annarra.
Gott dæmi um það eru mismæli
íþróttafréttamanna. Á
sunnudagsmorguninn
klukkan níu voru
lesnar íþróttafréttir
að vanda. Þar var
fjallað um ýmis
tíðindi úr íþrótta-
heiminum og
minnst á afrek
Birgis Leifs
Hafþórssonar
á Evrópumótaröðinni. Sagði
íþróttafréttakonan að hann hefði
farið lokahringinn á 68 höggum
undir pari...
SÍMINN hefur stofnað nýtt
fyrirtæki sem mun halda
utan um rekstur og viðhald
fjarskiptakerfis Símans. Nafn
fyrirtækisins var samþykkt á
aðalfundi Símans í síðustu viku
og kemur það mörgum spánskt
fyrir sjónir, enda Frónbúar vanir
metrakerfinu. Fyrirtækið heitir
Míla. Eflaust þótti þeim Kílómetri
ekki nógu þjált...?
www.europcar.is
aBílaleigubílar
um allan heim
Þetta er nýja aðferðin... ofurnálastunga
Su Doku þrautin snýst um að raða tölunum frá 1 -9 lárétt og
lóðrétt í reitina, þannig að hver tala komi ekki nema einu sinni
fyrir í hverri línu, hvort sem er lárétt eða lóðrétt. Sömu tölu má
aukin heldur aðeins nota einu sinni innan hvers níu reita fylkis.
Unnt er að leysa þrautina út frá þeim tölum, sem upp eru gefnar.
M'M Pantaðu bílinn hjá Europcar
fb * áður en þú leggur af stað
Við erum í 170 löndum.
■*’■•**
Upplýsingar og bókanir i sima:
565 3800
europcar@europcar.is
Europcar
ÞÚ LEIGIR MEIRA EN BARA BIL.