blaðið - 21.03.2007, Blaðsíða 6
MIÐVIKUDAGUR 21. MARS 2007
blaöi6
Töluvert um slys
Tvær konur á níræðisaldri duttu í hálkunni i Reykja-
vík í gær, og voru þær báðar fluttar á slysadeildina.
Þá urðu tvö vinnuslys sem tengja má hálkunni beint
eða óbeint, en maður slasaðist við að hreinsa sand-
dreifara og annar féll af vinnupalli vegna hálku.
Fjögur úr Vestmannaeyjum dæmd
Fjögur voru í Héraðsdómi Suðurlands í gær dæmd fyrir sölu
og vörslu fíkniefna. Tveir voru dæmdir í þriggja og fjögurra
mánaða fangelsi fyrir sölu á kannabisefnum, en hin tvö til að
greiða sekt vegna vörslu kannabiss og amfetamíns. Lögreglan i
Vestmannaeyjum handtók þau eftir ábendingar bæjarbúa.
Stefnir í metár í mjólkurframleiðslu
Kúabú á landinu skiluðu 2.514.583 lítrum af sér í síðustu
viku, sem er mesta innvigtun á einni viku síðastliðin fjögur
ár að því er fram kemur í tilkynningu frá Landssambandi
kúabænda. Þar stendur einnig að ef fram fer sem horfir verði
mjólkurframleiðslan á árinu 2007 sú mesta í sögunni.
Baldur Þórhallsson stjórnmálafræðingur um þinglokin:
Vinnubrögðin
eru ekki boðleg
■ Þingstörf ætíð í uppnám fyrir þinghlé ■ Jón Bjarnason talaði lengst
Gæsluvarðhald:
Tveir menn
áfram inni
mbl.is Hæstiréttur hefur
staðfest úrskurð Héraðsdóms
Reykjavíkur um að tveir
menn, sem grunaðir eru um
að hafa átt aðild að innflutn-
ingi á tæpum 4 kílóum af
kókaíni og 36 grömmum af
amfetamíni, sæti áframhald-
andi gæsluvarðhaldi til u. maí.
Fíkniefnin fundust við leit
tollgæslu í bíl á hafnarsvæði
Samskipa í Reykjavík í haust
en bíllinn hafði þá nýlega verið
fluttur til landsins frá Þýska-
landi og hafði fíkniefnunum
verið komið fyrir í honum.
Hagfræðistofnun:
Vanmeti tekjur
af álverinu
mbl.is Samtök atvinnulífsins
segja Hagfræðistofnun Há-
skóla Islands horfa fram hjá
veigamiklum þáttum í mati
sínu á tekjuauka Hafnfirðinga
af stækkun álvers Alcan.
Segja samtökin að í skýrslu
stofnunarinnar, sem birt
var í gær, sé gert ráð fyrir að
íbúum og störfúm fjölgi jafn
mikið með stækkun og án
hennar. Þetta fái ekki staðist.
Eftir Heiöu Björk Vigfúsdóttur
heida@bladid.net
Þegar hlé var gert á þingstörfum á Al-
þingi síðastliðinn laugardag voru 94
mál ekki útrædd. Þingmenn stjórn-
arflokkanna hafa sumir hverjir
gagnrýnt þingmenn flokka stjórn-
arandstöðunnar fyrir of langar um-
ræður og hótanir um málþóf. Segja
þeir að þetta hafi átt þátt í því að
ekki komust fleiri mál í gegn og vísa
þeir þá meðal annars til frumvarps
um sölu léttvíns og bjórs í búðum
og nýtingu auðlinda í jörðu.
„Það er náttúrlega mjög sérkenni-
legt að ætíð í lok þings fyrir þinghlé
fyrir jól og á vorin fari þingstörf öll í
uppnám vegna þess að það á eftir að
afgreiða svo mörg mál,“ segir Baldur
Þórhallsson, prófessor í stjórnmála-
fræði við Háskóla íslands. „Þessi
vinnubrögð þingsins sem tíðkast og
hafa tíðkast þurfa að koma til end-
urskoðunar. Þau eru ekki boðleg
löggjafarsamkomu sem vill njóta
virðingar og trausts."
Vinnubrögð sérkennileg
Baldur segir að það uppnám sem
verði á Alþingi fyrir þinghlé komi
til af tvennu. I fyrsta lagi að það
komi of oft stór og mörg ríkisstjórn-
armál seint til þingsins vegna þess
hve langan tíma tekur að undirbúa
þau hjá framkvæmdarvaldinu. I
öðru lagi reyni stjórnarandstaðan
að hafa áhrif á mál meðal annars
með því að tefja, ræða þau ítarlega
og tefja framkvæmd þeirra í þing-
inu til þess að þrýsta á breytingar á
tilteknum frumvörpum.
„Það má segja að það sé að ákveðnu
leyti eðlilegt að stjórnarandstaðan
krefjist þess og fái að ræða málið ít-
arlega og reyni að gera sitt ítrasta til
þess bæði að koma í veg fyrir að þau
frumvörp verði samþykkt sem hún
er á móti eða þeim verði þá breytt
þannig að henni líki frumvörpin
betur. En á sama tíma verður að
segja að það sé nokkuð sérkennilegt
að vinnubrögð Alþingis séu með
þeim hætti að frumvörp sem klár-
lega er meirihluti fyrir í þinginu nái
ekki fram að ganga; frumvörp sem
ríkisstjórnin er að leggja fram.“
Hefði átt að halda áfram
fram að páskum
„Varðandi þingið núna þá skil ég
ekki af hverju lá svona óskaplega
mikið á að ljúka störfum þingsins
um síðustu helgi,“ segir Baldur. „Af
hverju gat þingið ekki haldið áfram
að starfa fram að páskum þó það
væru að koma kosningar? Það er
ekkert sáluhjálparatriði að þingið
þurfi að hætta þetta mörgum
vikum fyrir kosningar. Ég hefði nú
haldið að það væri mikilvægara að
ljúka ákveðnum málum og sérstak-
lega fyrir ríkisstjórnina.“
Töluðu í 13 daga
Þingfundir 133. löggjafarþings,
sem var frestað frá 18. mars til loka
kjörtímabils 12. maí næstkomandi,
voru samtals 96. Þessir fundir stóðu
yfir í alls 544 klukkustundir og 32
mínútur. Lengsti þingfundurinn var
í rúmlega 16 klukkustundir. Lengsta
umræðan var um frumvarp um Rík-
isútvarpið ohf. sem stóð í tæpar 70
klukkustundir.
Þingmennflokkastjórnarandstöð-
unnar voru rúmlega 18.800 mínútur
íræðustólsemjafngildirrúmlega 13
dögum. Ekki voru þingmenn stjórn-
arflokkanna jafnduglegir en þeir
voru rúmlega 4.800 mínútur sem
jafngildir rúmum þremur dögum.
Sá sem átti lengstan tíma í ræðustól
er Jón Bjarnason, þingmaður Vinstri
grænna, en hann var þar í 1.509 mín-
útur eða rúmar 25 klukkustundir.
LESBLIIMDUSETRIÐ
Hraðlestur fyrir krakka
Gefðu barninu þínu tækifæri til að skara fram úr með
því að tvöfalda - jafnvel margfalda lestrarhraða sinn.
Upplýsíngar veitir Kolbeinn Sigurjónsson, Davis ráðgjafi hjá
Lesblindusetrinu í Mosfellsbæ.
kolbeinn@lesblindusetrid.is, Sími 5666664
www.lesblindusetrid.is
1DR.GILUAN g
/l'MCKEITHl g'
vCS' i'mun Svpcf00*. JjJk'
,rrdt Itannlfd aí tí*
»/ enmyntf aetirit)'
frábært fyrir meltinguna
Eykur orku, úthald
og einbeitingu.
Lífrænt ræktuð spíruð
súperfæða
Fæstí apótekum, heilsubúðum, Hagkaup og Fjarðarkaup
Össur Skarphéðinsson:
Aldrei upplifað
annað eins slugs
„Það hefur ekkert málþóf verið I gangi
og engu málþófi hótað. Við vorum reiðu-
búin til að lengja þingið eins og þyrfti ef
ríkisstjórnin vildi það. Ríkisstjórn sem er
í vandræðum eins og þessi samkvæmt
skoðankönnunum vill losna við þingið
sem fyrst til að svipta stjórnarandstöð-
una þeim ræðustóli sem öll þjóðin
hlustar á. Ýmis mál sem ríkisstjórnin
kvartar yfir að náðu ekki fram að ganga,
eins og frumvarp um Alcan, fóru ekki
gegn einfaldlega vegna slugs og hyskni
viðkomandi ráðherra sem lögðu þessi
mál ekki fram fyrr en í síðustu viku. Á
mínum sextán ára ferli hef ég aldrei
uþplifað annað eins slugs eins og hjá
nokkrum ráðherrum í þessari ríkisstjórn.
Ég á ekki von á því að þjóðin þurfi að
þola svona mikið slugs aftur því það
verður örugglega ný ríkisstjórn."
Steingrímur J. Sigfússon:
Hótaöi aldrei
málþófi
„Veruleikinn er sá að ég held að það hafi
ekki hvarflað að neinum að áfengis-
frumvarpið yrði afgreitt. Ég veit ekki
betur en að það hafi verið andstaða
við þetta mál i öllum flokkum,'1 segir
Steingrímur J. Sigfússon, formaður
Vinstri grænna. „Ég hótaði aldrei neinu
málþófi í þessu. En það eru ýmsir sem
hafa mjög gaman af því að skálda það
upp auðvitað. Staðreyndin er sú að að-
standendur málsins gerðu enga tilraun
til þess að taka það á dagskrá. Það bar
aldrei á góma. Ríkisstjórnin ákvað sjálf
að Ijúka þinginu og þar með náttúrlega
var algjörlega Ijóst að fjöldinn allur af
svona málum sem voru mjög umdeild
og hefðu kostað mikla umræðu komst
ekki á dagskrá."
Jón Sigurðsson:
Tækifæri í
þingsköpum
„Það er elnfaldlega staðreynd að þeir
tóku mjög mikinn tíma í ýmis mál.
Þegar búið var að gera samkomulag um
þinglokin þá fóru málin að ganga miklu
hraðar," segir Jón Sigurðsson, iðnaðar-
og viðskiptaráðherra og formaður Fram-
sóknarflokksins. „Það er Ijóst að þetta
ertækifæri sem lítill minnihluti hefur í
þingsköþum og getur bókstaflega sett
öll störf þingsins í algjört uþþnám. Þau
gerðu þetta í vetur í sambandi við laga-
frumvarþ um RÚV og runnu á rassinn
með það. Svo gerðist þetta aftur núna.
Voru fjöldamörg mál felld út sem mál-
efnalega hefði verið eðlilegt að afgreiða
á tiltölulega skjótum tíma. “
Sigurður Kári Kristjánsson:
Settu allt í
hæga gírinn
„Það voru í sumum málum settar á of lang-
ar ræður og maður skildi nú ekki alveg
hver tilgangurinn var," segir Sigurður
Kári Kristjánsson, þingmaður Sjálfstæðis-
flokksins. „Menn voru nokkuð samstiga
um það að klára þingið á þessum tíma
og stjórnarandstaðan eins og venjulega
gekk á lagið og setti allt í hæga gírinn.
Auðvitað kom það niður á fjölda þeirra
mála sem hægt var að afgreiða. Svo voru
þeir náttúrlega með hótanir um að gríþa
til málþófs ef ákveðin mál myndu komast
á dagskrá. Vinstri grænir voru búnir að
boða það að þeir myndu láta mjög að sér
kveða í ræðustól ef frumvarpið okkar um
að heimila sölu á léttvíni og bjór í búðum
yrði tekið á dagskrá."
Guöjón A. Kristjánsson:
Vinnulag fyrir
neðan allar hellur
„Sjá má á málafjöldanum sem þingið
afgreiddi síðustu dagana að mikill vilji
var til að klára þau. Hins vegar vilja
menn ræða mörg málanna betur sem
koma inn á þingið," segir Guðjón A.
Kristjánsson, formaður Frjálslynda
flokksins. „Menn eru ekkert sammála
því að mál eins og auðlindamáliö rúlli
bara í gegn órædd og án þess að menn
fái að taka til máls. Þetta er alveg gjör-
samlega óþolandi vinnulag. Ef eitthvað
er að afgreiðslu þingsins þá er það að
ríkisstjórnin kemur rosalega seint með
öll sín mál. Þetta vinnulag ríkisstjórnar-
innar við að koma með mál fyrir þingið
er fyrir neðan allar hellur."