blaðið - 21.03.2007, Qupperneq 9
blaðið
MIÐVIKUDAGUR 21. MARS 2007 9
Landhelglsgæslan:
Bilaöur bátur
dreginn heim
mbl.is Varðskip dró dragnót-
arbátinn Sólborgu RE-270 til
hafnar, en kúpling skipsins
bilaði undan Sandvík á Reykja-
nesi í gær. Sólborg er 115,9
brúttórúmlesta skip sem Brim
hf. í Reykjavík gerir út. Það var
smíðað árið 2001 í Kína. Fimm
eru í áhöfn Sólborgar. Vaktstöð
siglinga fékk upplýsingar frá
útgerð Sólborgar um klukkan 2
í gær, að skipið væri vélarvana.
Skipstjóri Sólborgar ætlaði að
taka inn snurvoðina og halda til
Sandgerðis en ekki var formlega
óskað eftir hjálp. Það fór þó að
lokum svo að varðskipið dró
skipið heim.
Danmörk:
Danir trúa ekki
forstjóra DR
Mbl.is Meirihluti Dana hefur
ekki trú á því að Kenneth
Plummer, forstjóra danska ríkis-
útvarpsins, DR, muni takast að
koma fyrirtækinu úr þeim fjár-
hagsvanda sem það er í vegna
gífurlegs umframkostnaðar við
byggingu nýrra höfuðstöðva
fyrirtækisins. Samkvæmt nýrri
skoðanakönnun Gallup telja
einungis 27 prósent Dana að
Plummer muni takast að leysa
vanda fyrirtækisins en 51 pró-
sent telur ekki að honum muni
takast það. Þetta kemur fram á
fréttavef Berlingske Tidende.
Tónlistarnám:
Ánægja með
lúðrasveitir
Níu af hverjum tíu forráða-
mönnum grunnskólabarna í
Reykjavík eru ánægðir með
tónlistarnám barna sinna.
Mikil ánægja er jafnframt með
hljómsveitaræfingar skóla-
hljómsveita borgarinnar en
þessar niðurstöður komu fram
í könnun á vegum menntasviðs
Reykjavíkurborgar.
Júlíus Vífill Ingvarsson,
formaður menntaráðs, segir
þessar niðurstöður ánægjulegar.
„Skólahljómsveitirnar hafa fyrir
löngu sannað gildi sitt í tónlist-
aruppeldi yngstu borgarbúanna.
Ánægja foreldra er til marks um
að við séum á réttri leið og er
okkur hvatning til enn frekari
dáða á þessu sviði.“
Bruni á hjúkrunarheimili í Rússlandi:
Hunsaði brunaboð
63 létust og 35 slösuðust þegar mik-
ill eldur braust út á hjúkrunarheimili
í bænum Kamyshevatskaya í suður-
hluta Rússlands aðfaranótt gærdags-
ins. Svo virðist sem næturvörður
hjúkrunarheimilisins hafi hunsað
tvö brunaboð og kallað fyrst á slökkvi-
lið eftir að hafa séð eldtungur berum
augum. Talsmenn yfirvalda segja
að það hafi tekið slökkvilið nærri
klukkustund að komast á áfangastað
þar sem ekki er nein slökkvistöð í
næsta nágrenni við hjúkrunarheim-
ilið. Flestir hinna látnu létust úr reyk-
eitrun, en ekkert liggur fyrir um or-
sök eldsins þó að grunur leikur á að
hann hafi kviknað út frá rafmagni.
Brunatíðni í Rússlandi er mjög há
og margfalt hærri en í vestrænum
ríkjum miðað við höfðatölu. Upplýs-
ingar frá rússneskum yfirvöldum
sýna að 17.650 hafi látist í bruna í
landinu á síðasta ári, sem samsvarar
um fimmtíu manns á degi hverjum.
Bruninn á hjúkrunarheimilinu
var annað stórslysið í Rússlandi á
innan við sólarhring, en rúmlega
hundrað manns fórust í metangas-
sprengingu í kolanámu í Síberíu á
mánudagsmorgninum.
Bruni í Kamyshevatskaya
63 létust og á fjórða tug
slösuðust íbrunanum.
í tvígang
CeroflHn
KPACHOAAPCKHÚ
KPAH
IIEII SUDYNUR OC
KODÐAR
Þrýstijöfiiun erlýkrjorðið
Ein besta heilsudýna í heimi
PAKKATILBOÐ
Dýnuhlíf, lak og pífa
30% afsláttur
Ný sending
af sængurverasettum
140x200 cm
140x220 cm
200x200 cm
200x220 cm
IQ-CARE heilsudýnur
1 gámur á sérverbi
frá framleibanda.
Verb á 120 cm rúmum
kr. 89.900,-
Fyrstur kemur fyrstur fœr
Erum meb
IQ-CARE heilsudýnur
Visco X heilsudýnur
Beauty Sleep
Healthy Box
Verb á 120 cm rúmum
frá kr. 34.900,-
Díik.bhíuil
-GstliusiiftlÁa;
www.svefn.is
Listhúsinu Laugardal, 581 2233 • Dalsbraut 1, Akureyri, 461 1150
Opið virka daga 10:00 - 18:00 - laugardaga 11:00 - 16:00
Veljum góbar heilsudýnur
fyrir vaxandi fólk!
SVEFN & HEILSA GEGNIR MIKILVÆGU HLUTVERKI
Svefn&heilsa)
w ★★★★★
Svefn&heilsa
^ ★★★★★ ^
AKUREYR
Ftatt ÞORSTF.INSSON KIROI’RAkTOR
REYKJAVIK