blaðið - 08.05.2007, Qupperneq 2
18 • KOSNINGAR 2007
ÞRIÐJUDAGUR 8. MAÍ 2007 bladið
b jeppa i miklu urvali
JapanAJ.S.A._
Vagnhöföa 7
uALLABILAlv 110 Reykjavík
Stál og stansar ehf. Sími: 517 5000
þriðjudaga
Auglýsingasíminn er
510 3744
KJÖRSTAÐIR í REYKJAVÍK
við alþingiskosningar
12. maí 2007
Reykjavíkurborg
í Reykjavíkurkjördæmí suður:
Hagaskóli
Hlíðaskóli
Breiðagerðisskóli
Ölduselsskóli
íþróttamiðstöðin Austurbergi
Árbæjarskóli
Ingunnarskóli
{ Reykjavíkurkjördæmi norður:
Ráóhús
Kjarvalsstaóir
Laugardalshöll
íþróttamiðstöðin í Grafarvogi
Borgaskóli
Ingunnarskóli
Kléþergsskóli
Kjörfundur hefst laugardaginn 12. maí kl. 9.00 árdegis
og lýkur kl. 22.00.
Sérstök athygli kjósenda er vakln á að kjósandi, sem ekkl hefur
meðferðis persónuskilríki, getur átt von á því að fá ekkl að greiða
atkvæði.
Yfirkjörstjórn í Reykjavíkurkjördæmi suður mun á kjördegi hafa
aðsetur í Hagaskóla og þar verða atkvæði talin. Símanúmer
yfirkjörstjórnarinnar verður á kjördegi
411 4920.
Yfirkjörstjórn í Reykjavíkurkjördæmi norður mun á kjördegi hafa
aðsetur I Ráðhúsi Reykjavíkur og þar verða atkvæði talin.
Símanúmer yfirkjörstjómarinnar verður á kjördegi 411 4910.
Borgarstjórinn í Reykjavík
Yfirkjörstjórnin í Reykjavíkurkjördæmi suður
Yflrkjörstjómln í Reykjavíkurkjördæml norður
Velferð og samgöngur í brennidepli í Reykjavíkurkjördæmi norður:
Sundabrautin forganc
Samgöngumál brenna mjög á
íbúum Reykjavíkurkjördæmanna
og sýn fulltrúa stjórnmálaflokk-
anna er áþekk hvað það varðar.
Sundabraut er nefnd sem eitt helsta
forgangsmálið í samgöngubótum
borgarinnar og miðað við áherslur
flokkanna er Sundabrautin handan
við hornið. Brýnt er talið að ráðast
sem allra fyrst í þessa framkvæmd
en fleira er nefnt. Mislæg gatnamót
og aðgerðir til að leysa umferðar-
hnúta á fjölförnustu leiðum. Tals-
menn flokkanna leggja áherslu á að-
gerðir til að minnka loftmengun af
völdum svifryks og bílamengunar,
meðal annars með því að setja um-
ferð í stokka og göng.
Afstaðan til flugvallarins í Vatns-
mýri er ekki eins skýr. Staðsetningin
er umdeild og flokkarnir sammála
um að frekari rannsókna sé þörf
áður en kveðið verður upp úr með
framtíðarstaðsetningu. Frjálslyndir
eru þó með skýra stefnu, segja af-
dráttarlaust að flugvöllurinn eigi að
vera áfram í Vatnsmýrinni.
Atvinnumál brenna á íbúum
Reykjavíkur ekki síður en öðrum
landsmönnum en atvinnuástand
hefur þó verið gott á kjörtímabilinu.
Samfylkingin nefnir að Reykjavík
eigi að vera í fremstu röð höfuðborga
á sviði fjármálaþjónustu, hátækni
og þekkingarframleiðslu. Næsti ára-
tugur eigi að verða áratugur há-
tækni, markmiðið sé að skapa
5.000 ný störf á því sviði. s v
V '))
Reykjavíkurkjördæmi norður:
Framsóknarmenn nefna framþróun
þekkingarsamfélagsins.nýsköpunar-
og sprotafyrirtæki en benda um leið
á að þróun atvinnulífsins verði að
styðjast við metnaðarfullt fræðslu-
kerfi, rannsóknir og vísindi. Frjáls-
lyndir nefna að samkeppnisiðnaður
hafi orðið fyrir skakkaföllum vegna
hágengisstefnu og því sé brýnt að ná
stöðugleika í gengismálum og draga
úr þenslu og viðskiptahalla. Islands-
hreyfingin nefnir nýsköpun í öllum
greinum, fullvinnslu afurða, líftækni-
og þekkingariðnað, menningu og
menntun sem sóknarfæri. VG nefnir
að frumkvæði einstaklinga og sköp-
unarkraftur fái best
notið sín J y
‘ v ' 'L
Þrír ráðherrar
horfnir á braut
f
•/
Kjósendur sem búa við norð-
anverða Hringbraut, gömlu
Hringbraut, Miklubraut eða Vest-
urlandsveg verða á kjörskrá í Reykja-
víkurkjördæmi norður. Kjalarnes
(póstnúmer 116) tilheyrir Reykjavík-
urkjördæmi norður.
Tæplega 43.800 kjósendur eru í
kjördæminu og eru þar níu kjördæ-
missæti og tvö jöfnunarþingsæti.
í alþingiskosningunum 2003
hlaut Sjálfstæðisflokkurinn 4 þing-
menn kjörna, Samfylkingin hlaut
sömuleiðis 4, Framsóknarflokkur 2
og Vinstri hreyfingin 1.
Fjórir af 11 þingmönnum sem
kjörnir voru 2003 eru hættir. Davíð
Oddsson, Sjálfstæðisflokki, tók við
stöðu seðlabankastjóra haustið 2005
og settist Ásta Möller á þing í hans
stað. Bryndís Hlöðversdóttir, Sam-
fylkingunni, lét af þingmennsku
í lok sumars 2005 og tók Ingibjörg
Sólrún Gísladóttir þá sæti hennar.
Halldór Ásgrímsson, Framsóknar-
flokki, sagði af sér þingmennsku og
ráðherradómi í september í fyrra
og settist Guðjón Ólafur Jónsson
þá á þing. Árni Magnússon, flokks-
bróðir þeirra, hvarf til starfa hjá
Glitni í mars í fyrra og tók Sæunn
Stefánsdóttir þá sæti á Alþingi.
Guðrún Ögmundsdóttir, Samfylk-
ingunni, hættir þingmennsku að
loknum kosningunum 12. maí en
hún á að baki tvö kjörtímabil.
Jón Sigurðsson, iðnaðar- og
viðskiptaráðherra og formaður
Framsóknarflokksins, á ekki sæti
á þingi en leiðir nú lista Framsókn-
arflokks í kjördæminu. Þá kemur
Guðfinna S. Bjarnadóttir, fyrrver-
andi rektor Háskólans í Reykjavík,
ný inn í 2. sætið á lista Sjálfstæð-
isflokksins. Magnús Þór Hafsteins-
son, Frjálslynda flokknum, hefur
vy
flutt sig úr Suðurkjördæmi og
leiðir nú lista flokksins í Reykja-
víkurkjördæmi norður. Margrét
Sverrisdóttir, varaformaður
Islandshreyfingarinnar, leiðir
lista flokksins í kjördæminu en
Margrét sagði skilið við Frjáls-
lynda flokkinn fyrir skömmu.
Með henni á lista eru Ólafur Hanni-
balsson blaðamaður og Sigurlín
Margrét Sigurðardóttir, áður vara-
þingmaður Frjálslynda flokksins,
en nú félagi í Islandshreyfingunni.
Össur Skarphéðinsson íeiðir lista
Samfylkingarinnar í kjördæminu
og Katrín Jakobsdóttir, varafor-
maður VG, leiðir lista flokksins í
kjördæminu. Þá sitja mæðginin
Guðrún Ásmundsdóttir og Ragnar
Kjartansson á lista Islandshreyf-
ingarinnar í kjördæminu.