blaðið - 08.05.2007, Blaðsíða 3

blaðið - 08.05.2007, Blaðsíða 3
blaðiö ÞRIÐJUDAGUR 8. MAÍ 2007 KOSNINGAR 2007 • 19 Tryggjum stöðugleikann í aðdraganda kosninga keppast frambjóðendur við að ná hylli kjós- enda og reyna að telja þeim trú um eigið ágæti. I hita leiksins hættir einnig mörgum til að fara í loforða- kapphlaup og lofa öllu því sem þeir telja að kjósendur vilji sjá. En hvað kosta þessi kosningaloforð okkur kjósendur? Eins og í öllum rekstri þá þarf að auka tekjur til að geta komið til móts við aukin útgjöld. 1 okkar ríkisrekstri þýðir það aukin lántaka og/eða auknar álögur á íbúana, en samt er enginn með skattahækkanir í loforðapakkanum. Til að reyna að átta sig á því hverjum skal trúa og hvern skal kjósa, er mikilvægt að líta á staðreyndir. Við sjálfstæðismenn erum ekki að lofa meiru en við getum staðið við. Fyrir síðustu kosningar fórum við fram með eitt aðalmarkmið, það að lækka skatta. Stjórnarandstaðan taldi þetta blekkingar, en staðreyndir tala sínu máli. Tekjuskattar hafa lækkað, eins skattar á fyrirtæki, virð- isaukaskattur á matvæli lækkaði í 7 prósent og eignarskattur var felldur niður, en það kemur sérstaklega eldri íbúum til góða. Síðastliðin 16 ár hefur Sjálfstæð- isflokkurinn verið í ríkisstjórn og hefur á þeim tíma stuðlað að mörgum framfaramálum og aukið hagsæld íbúanna. Stöðugleiki hefur verið í efnahagsmálum og skuldir ríkissjóðs hafa lækkað það mikið, að í fyrsta skipti í sögunni eru vaxta- tekjur ríkissjóðs núna meiri en vaxtagjöld. Þessi viðsnúningur hefur skapað aukið svigrúm, sem hefur skilað sér ríkulega til þjóðarinnar. Sú rödd sem gjarnan heyrist þegar önnur rök duga ekki er að Sjálfstæðis- flokkurinn sé búinn að vera svo lengi við völd og núna sé kominn tími til að leyfa öðrum að taka við. Það þætti undarleg stjórnun á vel reknu fyrirtæki, ef það tæki þá ákvörðun að segja upp góðum og afkastamiklum stjórnendum og starfsmönnum, bara svona til að leyfa öðrum líka að prófa. Sjálf- stæðisflokkurinn hefur sýnt það og Við sjálfstæð- ismenn lofum ekki meiru en við getum staðið við Umrœðan Sigríður Rósa Magnúsdóttir sannað að honum er vel treystandi til að fara með umboð kjósenda, hjá þeim ríkir stöðugleiki og hagsæíd. Til að tryggja að svo verði áfram, þurfum við að setja X við D þann 12. maí. Höfundur situr í lO.sæti Sjálfstæðisflokksins í SV-kjördæmi BlaöiO/Frikki ismál ef almenn skilyrði eru fyrir hendi. VG vill styrkja rannsóknir og nám á háskólastigi og efla samkeppnis- sjóði, svo sem Tækniþróunarsjóð og Nýsköpunarsjóð. Þó fulltrúar flokkanna séu sammála um nauðsyn breytinga á styrkjakerfi landbúnaðarins eru leiðirnar að því markmiði mismunandi. Ein hugmynd er að framleiðslustyrkjum verði breytt í búsetutengda nýsköpunarstyrki og grænar greiðslur, enda ljóst að búa þarf íslenskan landbúnað undir alþjóðasamninga um verslun með landbúnaðarafurðir. Mismunandi áherslur eru á til- flutning verkefna frá ríki til sveitar- félaga. Flokkarnir eru þó sammála um að efla beri nærþjónustu við aldr- aða og fatlaða en þá þurfi að tryggja málaflokkunum nægilegt fjármagn. VG telur að 5 milljarða króna til- færslu þurfi frá ríki til sveitarfélaga til að sveitarfélögin geti sinnt lög- boðinniþjónustu.Framsóknarflokk- urinn tekur undir að endurskoða þurfi tekjuskiptinguna en nefnir ekki tölur. Framsókn nefnir raunar að skoða megi hvort heilsugæsla og framhaldsskólar væru betur komin hjá sveitarfélögum. Meðal annarra áherslumála sem fram komu í svörum talsmanna flokkanna má nefna verndun gam- alla húsa við Laugaveg, frekari upp- byggingu hjúkrunarrýma fyrir aldr- aða og niðurfellingu komugjalda í heilsugæslunni. Ennfremur er nefnt að eyða þurfi biðlistum sem orðnir séu eitt helsta einkenni núverandi ríkisstjórnar. Samhljómur er í málflutningi talsmanna stjórnarflokkanna ann- ars vegar og talsmanna stjórnar- andstöðu hins vegar. Ekki kemur á óvart að þeir fyrrnefndu mæra eigin verk og enn minna kemur á óvart að hinir síðarnefndu telja eitt brýnasta málið að koma núverandi ríkisstjórn frá völdum og skapa nýja framtíðarsýn. MOSFELL KERTO LÍMTRÉ KERTO LÍMTRÉ býður upp á ýmsa möguleika. KERTO L(MTRÉ erfrá Finnlandi og hefur veriðá markaði á (slandi frá árinu 1981. KERTO LÍMTRÉ er mikið notað sem burðarbitar,einnig (milligólf og þaksperrur þar sem venjulegar sperrur duga ekki. KERTO LtMTRÉ getur sparað verulega fjármuni í burðarvirki þar sem þaksperrur fara yfir 5 metra í lengd, þá er notað KERTO LfMTRÉ í stað hefðbundinna þaksperra og losnað við burðarbita og súlur. KERTO LÍMTRÉ.eitt það besta itré.til nýbygginga og viðhalds. TM MOSFELL EHF • MIÐHRAUNI 14 • SÍMI 566 6606 • FAX 566 6619 • MOSFELL@MOSFELL.IS

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.