blaðið - 08.05.2007, Page 4
20- KOSNINGAR 2007
ÞRIÐJUDAGUR 8. MAÍ 2007 bl
REYKJAVÍKURKJÖRDÆMI NORÐUR - TÍU SPURNINGAR TIL FRAMBJÓÐENDA
Jón Sigurösson
Framsóknarflokki
1. Hver eru 3 brýnustu
málefnin á landsvísu?
Það sem er brýnast er
að hér ríki efnahags-
legur stöðugleiki og
áfram verði byggt á
öflugri, fjölbreyttri og kröft-
ugri atvinnuuppbyggingu og
nýsköpun sem nái til landsins alls.
Það svigrúm sem nú hefur náðst
sökum mikils hagvaxtar og kaup-
máttaraukningar á undanförnum
12 árum viljum við að sé nýtt til að
bæta velferðarkerfið enn frekar og
draga úr útgjöldum einstaklinga
og fjölskyldna þeirra. Þá viljum
við stórsókn í menntamálum enda
mun aukin menntun leggja grunn-
inn að lífskjörum framtíðarinnar.
2. Hver eru 3 brýnustu málefnin í
þínu kjördæmi?
Velferðar- og fjölskyldumál eru efst
á baugi. Nú stendur yfir eitthvert
mesta átak í þessum efnum sem
sagan greinir, á grundvelli sam-
komulags við Samtök aldraðra
um hagsmunamál þeirra og við
lífeyrissjóðina um málefni öryrkja.
Næst má nefna umhverfismál sem
á þessum slóðum tengjast mjög
umferðar- og samgöngumálum.
Því næst má nefna atvinnumál
og atvinnuöryggi fyrir alla, meðal
annars fyrir ungt fólk og verkafólk.
Atvinnumálin tengjast vitaskuld,
fræðslu- og menntamálum. Loks
má nefna almenn efnahagsmál
og langvarandi jafnvægi og
stöðugleika.
3. Á að flytja aukin verkefni frá
ríki til sveitarfélaga?
Já, Framsóknarflokkurinn vill sterk-
ari sveitarstjórnir sem geti veitt
öflugri nærþjónustu. Við viljum því
að tekjuskipting milli ríkis og sveit-
arfélaga verði endurskoðuð og að
hluti fjármagnstekjuskatts renni til
sveitarfélaga. Þau verkefni sem við
viljum kanna hvort ekki sé heppi-
legt að flytjist yfir til sveitarfélag-
anna eru málefni aldraðra, fatlaðra,
heilsugæslu og framhaldsskóla.
4. Hver eru brýnustu umhverfis-
málin í þínu kjördæmi?
Það að draga úr mengun. Svifryk,
mengun frá flutningatækjum, bif-
reiðum, flugvélum og skipum. Enn-
fremur má nefna hávaðamengun.
5-Hver eru brýnustu samgöngu-
málin í þínu kjördæmi?
Fyrst ber að nefna umferðaröryggi
og aðgerðir á því sviði. Mjög miklu
skiptir að ráðist verði sem allra
fyrst í gerð Sundabrautar og Suður-
landsvegar. Inni í borginni þarf að
hraða gerð mislægra gatnamóta.
6. Telur þú rétt að gera breyt-
ingar á eftirlaunafrumvarpinu?
Framsóknarflokkurinn vill tryggja
að allir landsmenn búi við sambæri-
leg lífeyrisréttindi og vill afnema
sérréttindi alþingismanna, líkt og
ályktað var um á síðasta flokks-
þingi flokksins.
7. Er svigrúm fyrir frekari stór-
iðju- eða virkjanaframkvæmdir á
næsta kjörtímabili?
Slíkar framkvæmdir eru háðar
frjálsum samningum aðila en við
teljum að rúm sé fyrir þær í hagkerf-
inu. Ljóst er þó að framkvæmdir
af þessum toga krefjast mikils og
vandaðs undirbúnings. Æskilegt er
að slíkri uppbyggingu verði þannig
háttað að hún ógni ekki stöðug-
leika I efnahagslífinu.
8. Ertu fylgjandi því að breyta nú-
verandi styrkjakerfi til landbún-
aðar á íslandi?
Framtíðarfyrirkomulag þessara
mála ræðst nokkuð af niðurstöðum
Doha-viðskiptalotunnar innan
Heimsviðskiptastofnunarinnar
sem við íslendingar tökum þátt í. Á
þessari stundu er óljóst hvað út úr
viðræðunum kemur. Aukinheldur
hafa íslendingar gert víðtæka frí-
verslunarsamninga, bæði tvíhliða
og innan vébanda EFTA og nýlega
náðust samningar um tollalækkanir,
m.a. á landbúnaðarafurðum, við
Evrópusambandið. Við munum
áfram verja innlenda matvælafram-
leiðslu en viljum jafnframt að gerð
verði ítarleg athugun á kostnaði
íslenskra búvara frá haga til maga
og að allra leiða verði leitað til
að lækka sem flesta kostnaðar-
Jiði, J_lnnið. verði að því að lækka
kostnað bænda vegna eftirlits opin-
berra aðila með starfsemi þeirra
og jafnframt einfalda regluverk
í sama tilgangi.
9. Hvaða hugmyndir hefur
þú til atvinnuuppbygg-
ingar í þínu kjördæmi?
Leggja ber áherslu á
framþróun þekkingarsamfé-
lagsins, á aðstöðu og blóma
nýsköpunar- og sprotafyrirtækja
á mörgum sviðum. Margskonar
þjónustustarfsemi dafnar í borginni
og aðstaða slíkra fyrirtækja þarf
að þróast áfram. Öll þessi þróun í
atvinnulífinu verður að styðjast við
metnaðarfullt fræðslukerfi, rann-
sóknir og vísindi.
10. Á ísland að hefja undirbúning
að inngöngu í ESB og upptöku
evrunnar?
Afstaða (slendinga til Evrópu-
sambandsins hefur lengi verið til
umræðu. Framsóknarmenn vilja
taka virkan þátt í málefnalegum
umræðum um allar hliðar Evrópu-
mála. Við teljum ekki tímabært að
taka núverandi afstöðu (slands
til endurmats fyrr en við höfum
tryggt hér langvarandi jafnvægi og
varanlegan stöðugleika í efnahags-,
atvinnu- og gjaldeyrismálum. Við
eigum ekki að lúta nauðhyggju
heldur taka ákvarðanir út frá okkar
eigin þjóðarmetnaði og eigin
styrkleikum.
Magnús Þór Hafsteinsson
Frjálslynda flokknum
1. Hver eru 3 brýnustu
málefnin á landsvísu?
Laga velferðarhallann
þar sem breytingar á
skattkerfinu eiga að
vega þyngst. Bæta hag
heimilanna og hjálpa
þeim að greiða niður
skuldir. Hækka strax skatt-
leysismörk þeirra sem hafa tekjur
undir 1,8 milljónum á mánuði í
150.000. Mörk hinna fari strax í 112.
000. Afnema tekjutengingar maka
við bótaþega, hækka frítekjumark
aldraðra og öryrkja í eina milljón,
skattleggja lífeyristekjur um 10%.
Gera þjóðarátak í samgöngu- og
öldrunarmálum. Breyta fiskveiði-
stjórnunarkerfinu. Lækka vexti og
afnema verðtryggingu. Ná ábyrgri
stjórn á málefnum innflytjenda
og stjórna betur flæði þeirra til
landsins.
2. Hver eru 3 brýnustu málefnin í
þínu kjördæmi?
Bendi á það sem ég svaraði fyrir
ofan. Líka á endurbætur í sam-
göngumálum - leysa umferðar-
hnúta í borginni og endurbæta stór-
lega öryggi vega inn og úr borginni
með tvöföldun Vesturlandsvegar
og vegar yfir Hellisheiði. Hefjast
handa við gerð Sundabrautar.
Koma betra lagi á heilbrigðismálin,
setja málefni aldraðra í forgang og
byggja upp með tilliti til fyrirsjáan-
legrar fjölgunar eldri borgara.
3. Á að flytja aukin verkefni frá
ríki til sveitarfélaga? Nei, alls
ekki nema viðunandi tekjustofnar
fylgi. Það sem mætti skoða
að flytja til sveitarfélaga væri
öldrunarmálin.
4. Hver eru brýnustu umhverfis-
málin í þínu kjördæmi? Draga úr
svifryksmengun í borginni.
5. Hver eru brýnustu samgöngu-
málin í þínu kjördæmi? Leysa
umferðarhnúta til að mynda með
fleiri mislægum gatnamótum, bæta
öryggi á vegum inn og úr borginni
(tvöföldun Vesturlandsvegar og
vegar á Hellisheiði), hefjast handa
við Sundabraut. Flugvöllinn áfram í
Vatnsmýri. Aðlögum hann betur að
byggðinni.
6. Hver ætti skattprósentan
(tekjuskattur) að vera í lok
næsta kjörtímabils?
Hróflum ekki við skattprósentum.
Við eigum að einbeita okkur að
hækkun skattleysismarka.
7. Er svigrúm fyrir frekari stór-
iðju- eða virkjanaframkvæmdir
á næsta kjörtímabili? Hugsanlega,
en við verðum að vanda okkur
mjög í allir ákvarðanatöku. Ég vil
þá sjá uppbygginu á svæðum þar
sem hagvöxtur hefur staðnað eða
verið neikvæður. Horfi til Norðaust-
urlands í því sambandi.
8. Ertu fylgjandi því að breyta
núverandi styrkjakerfi til land-
búnaðar á íslandi? Já, við í Frjáls-
lynda flokknum erum með vandaða
landbúnaðarstefnu þar sem við
viljum breyta þessu.
9. Hvaða hugmyndir hefur þú
til atvinnuuppbyggingar f þínu
kjördæmi?
Við verðum að hlúa að öflugu
atvinnulífi á höfuðborgarsvæðinu.
Samkeppnisiðnaður hefur orðið
fyrir skakkaföllum vegna hágeng-
isstefnunnar. Það er brýnt að ná
stöðugleika í gengismálum og
draga úr þenslu og viðskiptahalla.
Reykjavík er miðstöð verslunar og
þjónustu. Atvinnulífinu í Reykjavík
gengur alltaf vel þegar stöðugleiki
ríkir í efnahagslífinu.
10. Á ísland að hefja undirbúning
að inngöngu í ESB og upptöku
evrunnar? Við eigum að hafa hug-
ann opinn og fylgjast grannt með
öllum möguleikum til framtíðar.
Eins og staðan er nú, þá er svar
mitt við þessum spurningum nei.
Margrétar Sverrisdóttur
íslandshreyfingunni
1. Hver eru 3 brýnustu
málefnin á landsvísu?
1. Að skipta um
ríkisstjórn og skapa
nýja framtíðarsýn
í efnahagsmálum
með áherslu á verndun
náttúrunnar.
2. Verulega bættar sam-
göngur og fjarskiptakerfi
3. Afnema tekjutengingar og
skerðingar í velferðarkerfinu til
að auka þátttöku aldraðra og
öryrkja í samfélaginu og gera
þeim kleift að lifa mannsæm-
andi lífi.
2. Hver eru 3 brýnustu mál-
efnin í þínu kjördæmi?
1. Verndun gamalla húsa við
Laugaveg.
2. Lagning Sundabrautar undir Ell-
iðavog í samráði og sátt við borgar-
búa og þess verði gætt að hún fari
undir Eiðisvík og Leiruvog því þar
eru dýrmætar, friðlýstar fjörur.
3. Mislæg gatnamót Kringlumýrar-
brautar og Miklubrautar.
3. Á að flytja aukin verkefni frá
ríki til sveitarfélaga?
Já, það er forgangsmál að flytja og
efla nærþjónustu við aldraða og
fatlaða en til að það verði sóma-
samlega gert þarf að tryggja að
málaflokknum fylgi nægt fjármagn.
4. Hver eru brýnustu umhverfis-
málin í þínu kjördæmi?
Að minnka loftmengun af völdum
svifryks og bílamengunar með
ýmsum fyrirbyggjandi aðgerðum, s.s.
að setja umferð í stokka og göng.
Grænar áherslur á heimilum, svo
sem flokkun sorps og endurvinnsla.
5. Hver eru brýnustu samgöngu-
málin í þínu kjördæmi?
Að Ijúka gerð Sundabrautar og
mislægum gatnamótum við
Miklubraut og Kringlumýrarbraut
og koma sem flestum samgöngu-
æðum í stokka og göng til að minni
mengun verði í íbúðahverfum.
6. Hver ætti skattprósentan
(tekjuskattur) að vera í lok
næsta kjörtímabils?
(slandshreyfingin vill lækka skatta
á einstaklinga og fyrirtæki. í lok
kjörtímabils verði búið að hækka
skattleysismörk í 142.600 kr. sem
er sú upphæð sem þau ættu að
vera í hefðu stjórnvöld látið skatt-
leysismörkin fylgja verðlagsþróun.
Æskilegt væri að tækist að lækka
tekjuskatt einstaklinga niður fyrir
30% á kjörtímabilinu, en það tekst
ekki nema við náum fyrst niður
þenslunni.
7. Er svigrúm fyrir frekari stór-
iðju- eða virkjanaframkvæmdir á
næsta kjörtímabili?
Nei, það er ekki svigrúm fyrir frek-
ari stóriðjuframkvæmdir. Þensla af
völdum stóriðjustefnunnar hefur
valdið miklum usla í viðskiptaum-
hverfi fyrirtækja og almennings
með verðbólgu, vaxtaokri og geng-
issveiflum. Svo er engin leiö að
meta arðsemi stóriðjunnar meðan
orkuverði er haldið leyndu og arð-
semi því líklegast óviðunandi.
8. Ertu fylgjandi þvf að breyta
núverandi styrkjakerfi til land-
búnaðar á íslandi? Já, létta af
haftastefnu og auka samkeppni.
íslandshreyfingin telur nauðsynlegt
að breyta fyrirkomulagi framleiðslu-
styrkja yfir [ búsetutengda nýsköp-
unarstyrki og grænar greiðslur.
Auðvelda þarf nýliðun í greininni
og gera bændum kleift að fullvinna
afurðir á búum sínum til að auka
verðmætasköpun og fjölbreytni á
markaði.
9. Hvaða hugmyndir hefur þú
til atvinnuuppbyggingar í þínu
kjördæmi?
Það er mikilvægt að hlúa vel að ný-
sköpun í öllum greinum, hvort sem
er í fullvinnslu afurða, líftækni eða
þekkingariðnaði.
Þá ber að nefna menningu af
því að tónlist, kvikmyndagerð
og hönnun eru vaxandi í atvinnu-
sköpun. Menntun skapar einnig
mikla vaxtarmöguleika.
10. Á ísland að hefja undirbúning
að inngöngu f ESB og upptöku
evrunnar?
Næsta kjörtímabili á að verja í að
kanna kosti og galla við inngöngu
í ESB. Innganga kemur ekki til
mála nema þjóðinni sé tryggt
sjálfræði yfir auðlindum sínum.
Hvort hægt er að semja um slíkt
er ekki Ijóst nema látið sé reyna
á samningsmarkmiðin. Að því
loknu verður þjóðin að taka
afstöðu til inngöngu með
þjóðaratkvæðagreiðslu.
Gengissveiflur og okurvaxta-
stefna hafa verið íslenskum
útflutningsfyrirtækjum fjötur um
fót. Því kann að vera rétt að kanna
möguleika á inngöngu í myntbanda-
lagið eða í það minnsta kanna
möguleika á því að tengja gengi
krónunnar við evru.
Guðlaugur Þ. Þórðarson
Sjálfstæðisflokki
1. Hver eru 3 brýnustu
málefnin á landsvísu?
Við viljum beita okkur
enn frekar í málefum eldri
borgara, tryggja að áfram
verði hlúð að menntun og
nýsköpun hér á landi og
gæta þess að skilyrði atvinnu-
lífsins hér á landi séu í fremstu röð.
2. Hver eru 3 brýnustu málefnin í
þínu kjördæmi? Tilkoma Sunda-
brautar mun hafa mikið að segja
og sömuleiðis nýtt þjóðarsjúkrahús.
Ennfremur má nefna áframhald-
andi uppbyggingu í menntamálum.
3. Á að flytja aukin verkefni frá
ríki til sveitarfélaga? Já, málefni
eldri borgara og málefni fatlaðra.
4. Hver eru brýnustu umhverfis-
málin í þínu kjördæmi? Áfram-
haldandi uppbygging á sviði
endurnýjanlegrar orku sem er
grundvöllurinn að útrás íslenskra
orkufyrirtækja. Ennfremur er brýnt
að hlúa áfram að náttúruvernd og
auka hlutdeild umhverfisvænna
orkugjafa í samgöngum.
5. Hver eru brýnustu sam-
göngumálin í þínu kjördæmi?
Lagning Sundabrautar, tvöföldun
Suðurlands- og Vesturlandsvegar
og mislæg gatnamót, sérstak-
lega á mótum Miklubrautar og
Kringlumýrarbrautar.
6. Hver ætti skattprósentan (tekju-
skattur) að vera í lok næsta kjör-
tímabils? Við viljum lækka skatta á
einstaklinga enn frekar en höfum
ekki sett markið á ákveðna pró-
sentu eða krónutölu í þeim efnum.
7. Er svigrúm fyrir frekari stór-
iðju- eða virkjanaframkvæmdir á
næsta kjörtímabili? (Ef já, hversu
margar og hvaða verkefni ættu að
vera í forgangi) Það er mikilvægt
að hafa í huga að slíkar ákvarð-
anir eru ekki á hendi ríkisvaldsins,
heldur fyrirtækja og sveitarfélaga.
Ríkið hefur hins vegar það hlutverk
að setja almennan ramma og reglur
sem slíkar framkvæmdir verða
að uppfylla og gangi það eftir eru
stóriðju- og virkjanaframkvæmdir
lyftistöng fyrir atvinnulífið.
8. Ertu fylgjandi því að breyta nú-
verandi styrkjakerfi til landbún-
aðar á íslandi? Almenn markaðs-
lögmál ættu að gilda í landbúnaði
og ég tel að við eigum að skapa
þau skilyrði að landbúnaðurinn geti
tekist á við nýja tíma, þ.e. minni
tollvernd og lægri framleiðslustyrki.
9. Hvaða hugmyndir hefur þú til
atvinnuuppbyggingar í þínu kjör-
dæmi? Hér á höfuðborgarsvæðinu
hefur verið mjög gott atvinnu-
ástand undanfarin ár og við viljum
halda áfram á sömu braut með því
að skapa skilyrði til áframhaldandi
uppgangs í atvinnulífinu og með
áherslu á menntun og nýsköpun.
10. Á ísland að hefja undirbúning
að inngöngu í ESB og upptöku
evrunnar? Nei, við teljum það
ekki þjóna hagsmunum íslensku
þjóðarinnar.
Katrín Jakobsdóttir
Vinstri hreyfingin
grænt framboð
1. Hver eru 3 brýn- ,
ustu málefnin á /M
landsvísu? f Æ Íf'
Þrjú brýnustu málin
í þessari kosninga- » - rl
baráttu eru í fyrsta | W. . gá
lagi að endurheimta Jr
öflugt norrænt velferðar-
kerfi og tryggja félagslegt réttlæti, í
öðru lagi markviss umhverfisvernd,
forgangsröðun í þágu náttúrunnar
og að tryggja að við skilum landinu
í hendur ókominna kynslóða í
betra ástandi en við tókum við því.
í þriðja lagi er það barátta fyrir rétt-
indum kvenna almennt — gegn kyn-
bundnu ofbeldi og kynbundnum
launamun en óútskýrður launa-
munur kynjanna er hér enn 16%
og hefur lítið sem ekkert breyst í
tíð núverandi stjórnar. Til þess að
nýr hugsunarháttur í þessum anda
verði ríkjandi eftir kosningar þarf
að skipta út ríkisstjórninni.
2. Hver eru 3 brýnustu málefnin í
þínu kjördæmi?
Ég tel að velferðarmálin séu mjög
brýn hér á höfuðborgarsvæðinu
eins og um land allt. Hér vantar
hjúkrunarrými fyrir aldraða og hér
eins og annars staðar skiptir
máli að efla réttindi þeirra
sem minnst hafa á milli
handanna, t.d. með því að
fella niður komugjöld hjá
heilsugæslunni og hækka
skattleysismörk þeirra sem
minnstar hafa tekjurnar. Þá
skiptir máli að snúa við þeirri
óheillaþróun sem orðið hefur í tann-
heilsu ungmenna Þetta á auðvitað
við um land allt en maður finnur að
velferðarmálin brenna á kjósendum
hér. Svo má nefna samgöngumál,
öflugri almenningssamgöngur,
greiðari leiðir fyrir gangandi og hjól-
andi og svo að klára Sundabraut. í
þriðja lagi má nefna menntamálin
sem eru sömuleiðis mál allra lands-
manna — tryggja þarf fjölbreytni
og jöfnuð á öllum skólastigum.
3. A að flytja aukin verkefni frá
ríki til sveitarfélaga?
Já, það kemur ýmislegt til greina í
þeim efnum en fyrst verður að losa
sveitarfélög úr ríkjandi fjársvelti
og tryggja þeim aukna tekjustofna.
Það höfum við lagt til á Alþingi og
teljum að um 5 milljarða tilfærslu
þurfi til að sveitarfélögin geti sinnt
lögboðinni þjónustu svo vel sé.
4. Hver eru brýnustu umhverfis-
málin í þínu kjördæmi?
Umhverfismál eru í eðli sínu ekki
kjördæmabundin. Tökum sem
dæmi loftslagsmálin en vindurinn
spyr jú ekki um kjördæmamörk! Hér
eins og annars staðar gildir það að
hugmyndafræði sjálfbærrar þróunar
á að vera undirstaða allrar stefnu-
mótunar, ekki síst í atvinnumálum.
Það skiptir máli að móta heildstæða
náttúruverndaráætlun áður en frek-
ari nýting er ákveðin. Þess vegna
viljum við hverfa frá áformum um
frekari stóriðju og veita um leið efna-
hags- og atvinnulífi svigrúm til að
jafna sig eftir þenslu undanfarinna
ára og stuðla að fjölbreyttri atvinnu-
uppbyggingu í sátt við umhverfi
og náttúru. Þá verðum við að axla
ábyrgð í loftslagsmálum, standa
við alþjóðlegar skuldbindingar og
draga veruleaa úr losun gróðurhúsa-
lofttegunda.T því samhengi getum
við á höfuðborgarsvæðinu lagt
okkar af mörkum, t.d. þegar kemur
að samgöngum.
5. Hver eru brýnustu sam-
göngumálin í þínu kjördæmi?
Hér þarf að vinna að því að Ijúka
Sundabraut í sátt við íbúa og gera
hjólreiðar að góðum valkosti, t.d.
með því koma hjólabrautum inn
í vegalög og tryggja slíkar brautir
meðfram öllum stofnbrautum. Þá