blaðið - 08.05.2007, Síða 5
blaðið ÞRIÐJUDAGUR 8. MAÍ 2007
má efla almenningssamgöngur á
svæðinu, t.d. með því að endur-
skoða skattlagningu ríkisins á
almenningssamgöngur hér á svæð-
inu. 1 almennri vegagerð um land
allt þarf að gera átak, einbreiðar
brýr á hringveginum eiga að
heyra sögunni til og tengja þarf þá
landshluta sem orðið hafa útundan
undanfarin ár við vegakerfið með
nútímavegum. Við viljum ennfremur
létta þunga af þjóðvegum og auka
umferðaröryggi með því að leita
hagkvæmra leiða til að koma aftur
á strandsiglingum.
6. Hver ætti skattprósentan
(tekjuskattur) að vera í lok
næsta kjörtímabils?
Vinstrihreyfingin - grænt framboð
hefur ekki breytingar á hlutfalli
tekjuskatts á stefnuskrá sinni á
næsta kjörtímabili.
7. Er svigrúm fyrir frekari stór-
iðju- eða virkjanaframkvæmdir á
næsta kjörtímabili?
Nei, núverandi stóriðjufram-
kvæmdir hafa reynt um of á þanþol
efnahagskerfsins og m.a. leitt
til gríðarlegrar hækkunar vaxta
sem hefur reynst skuldsettum
fyrirtækjum og heimilum landsins
þungur baggi.
8. Ertu fylgjandi því að breyta nú-
verandi styrkjakerfi til landbún-
aðar á íslandi?
Vinstrihreyfingin - grænt framboð
álítur rétt að hefja strax á næsta
kjörtímabili vinnu við að undirbúa
íslenskan landbúnað fyrir væntan-
lega alþjóðasamninga um verslun
með landbúnaðarafurðir. Mark-
miðið verði að greinin fái hæfilega
langan aðlögunartíma til að mæta
samkeppni og sækja fram á er-
lendum mörkuðum. Breyta þarf
hluta núverandi framleiðslustyrkja
í búsetutengdan stuðning annars
vegar og græna styrki hins vegar.
í því sambandi verði gætt jafnt að
ólíkum búgreinum og þeim tryggð
sambærileg starfsskilyrði eftir því
sem kostur er. í þessari endur-
skoðun felast mikil sóknarfæri fyrir
íslenskan landbúnað
9-Hvaða hugmyndir hefur þú
til atvinnuuppbyggingar í þínu
kjördæmi?
Hlutverk stjórnmálanna er fyrst
og fremst að skapa skilyrði til
að frumkvæði einstaklinga og
sköpunarkraftur fái að njóta
sín. Ég tel mikilvægt að skapa
hagkvæm rekstrarskilyrði fyrir
lítil og meðalstór fyrirtæki. í því
samhengi þurfum við að huga sér-
staklega að sprotafyrirtækjum og
stefna að auknum útflutningi sem
byggist á hátækni og þekkingar-
iðnaði. Til að við getum byggt upp
hátækni- og þekkingargreinar
þarf að styrkja rannsóknir og nám
á háskólastigi um land allt og efla
samkeppnissjóði, t.d. Tækniþró-
unarsjóð og Nýsköpunarsjóð
atvinnulífsins.
10. Á ísland að hefja undirbúning
að inngöngu í ESB og upptöku
evrunnar? Innganga í Evrópusam-
bandið ásamt tilheyrandi framsali
á fullveldi og sjálfstæði þjóðarinnar
þjónar ekki hagsmunum íslands.
Össur Skarphéðinsson
Samfylkingunni
1. Hver eru 3 brýnustu mál
efnin á landsvísu?
(fyrsta lagi að bæta
velferðarþjónustuna með
áherslu á málefni aldraðra
og barna. í öðru lagi að end-
urheimta jafnvægi I efnahgs-
málum samfélagsins og í þriðja lagi
að gera átak til fjárfestingar í inn-
viðum samfélagsins þ.e. menntun,
fjarskiptum og samgöngum.
2. Hver eru 3 brýnustu málefnin í
þínu kjördæmi?
Að eyða biðlistum sem eru orðnir
helsta einkenni ríkisstjórnarinnar,
með áherslu á biðlista aldraðra eftir
hjúkrunarrýmum og biðlista barna
með geðraskanir og þroskafrávik
eftir greiningu. Bæta húsnæði
og aðbúnað framhaldsskólanna í
borginni sem er verri en víðast hvar
á landinu og tryggja greiðar sam-
göngur til og frá borginni og ekki
síður innan höfuðborgarsvæðisins.
3. Á að flytja aukin verkefni frá
ríki til sveitarfélaga?
Já. Samfylkingin vill byrja á að
flytja málefni aldraðra og fatlaðra
til sveitarfélaganna enda fellur
það mjög vel að nærþjónustuhlut-
verki sveitarfélaganna. Þessum
verkefnum þurfa hins vegar að
fylgja tekjustofnar s.s. hlutdeild í
fjármagnstekjuskattinum sem er
vaxandi tekjustofn. í dag er staðan
sú að þeir sem hafa mestar tekjur
sínar af fjármagni greiða lítið sem
ekkert til sveitarfélaganna.
4. Hver eru brýnustu umhverfis-
málin í þínu kjördæmi?
Brýnast er að draga úr mengun í
borginni sem fylgir vaxandi bílaum-
ferð vegna koltvíoxíðs og svifryks.
Einnig þarf að koma í veg fyrir
að verðmæt náttúrusvæði spillist
vegna orkuvinnslu og Samfylkingin
hefur lagt til friðun Brennisteins-
fjalla á Reykjanesi og Grændals á
Hengilssvæðinu.
ö.Hver eru brýnustu samgöngu-
málin í þínu kjördæmi?
Lagning Sundabrautar - með
jarðgöngum undir Kleppsvík - sem
fyrst alla leið upp á Kjalarnes og
tvöföldun Suðurlandsvegar. Einnig
þarf að gera vandaða áætlun um
að efla almenningssamgöngur með
aðkomu ríkisins en í dag hefur ríkið
tekjur af almenningssamgöngum
m.a. I formi virðisaukaskatts á
vagnakaupum.
ö.Hver ætti skattprósentan
(tekjuskattur)að vera í lok næsta
kjörtímabils?
Óbreytt, en skattleysismörkin
þurfa að hækka þar sem slík breyt-
ing kemur sér betur fyrir hina tekju-
lægstu en lægri skattprósenta.
7. Er svigrúm fyrir rekari stór-
iðju- eða virkjanaframkvæmdir á
næsta kjörtlmabili?
Nei, nú er rétt að íslendingar staldri
við, og taki sér ráðrúm til að meta
hvert við viljum stefna í þessum
málum. Við þurfum að gera ramma-
áætlun um náttúruvernd til að meta
og taka frá þau svæði sem ómet-
anleg eru fyrir framtíðina, og að
því loknu tökum við ákvarðanir um
hvert stefna ber. Framhaldið verður
einnig að ráðast af alþjóðlegum
skuldbindingum um losun gróð-
urhúsalofttegunda og stöðunni í
hagkerfinu.
8. Ertu fylgjandi því að breyta nú-
verandj styrkjakerfi til landbún-
aðar á íslandi?
Samfylkingin vill fara meira yfir í
beinar, grænar greiðslur og draga
úr framleiðslutengdum styrkjum.
9-Hvaða hugmyndir hefur þú
til atvinnuuppbyggingar í þínu
kjördæmi?
Reykjavík á að vera í fremstu röð
höfuðborga á sviði fjármálaþjónustu,
hátækni og þekkingarframleiðslu.
Ég vil í fyrsta lagi tryggja reykvíska
rótfestu útrásarfyrirtækjanna með
því að hafa skattaumhverfi íslenskra
fyrirtækja ávallt samkeppnishæft.
[ öðru lagi hefur Samfylkingin lagt
fram ítarlegar tillögur um að næsti
áratugur verði áratugur hátækni, þar
sem ríkið beiti almennum og sér-
tækum aðgerðum til að efla sprota-
fyrirtæki, og við höfum sett það
markmið að til verði 5000 ný störf á
hátækni, þekkingarframleiðslu og
öðrum skapandi greinum. í því felst
byggðastefna, sem heldur unga fólk-
inu okkar í landinu með því að
tryggja fjölbreytt atvinnulíf
við allra hæfi, sem borgar
góð laun.
10. Á ísland að hefja
undirbúning að inn-
göngu í ESB og upptöku
evrunnar?
Já, Samfylkingin vill Evrópu-
verð á matvælum og Evrópuvexti á
fjármagn fyrir fyrirtæki og húsnæð-
iskaupendur. Við eigum því að búa
okkur undir aðild að Evrópusamband-
inu. Nú liggur fyrir að við munum
ekki tapa neinum aflaheimildum við
inngöngu, hugsanlega auka þær.
Þar með er helsta þröskuldi aðildar
úr vegi rutt. Við eigum jafnframt að
vinna að því að skapa þau skilyrði
í efnahagsmálum að ísland uppfylli
skilyrðin fyrir að taka upp evruna
- sem við gerum ekki núna vegna
óstöðugleikans, verðbólgu og ofur-
vaxta - til að þjóðin geti átt völ á því
að taka upp evruna, ef hún vill. For-
senda aðildar að ESB og myntbanda-
laginu er auðvitað þjóðaratkvæða-
greiðsla að okkar mati.
Benedikt S. Lafl eur
Uar leiðir út úr úlfakreppu
islenskra stjórntnála
icienskra stjórnma
íeiðtr út úr últakreppu
Ný sýn í pólitík eftir sjósundkappann og hugsjónamanninn
Benedikt S. Lafleur boðartímamót í íslenskum stjórnmálum !
2007 er ár samvinnu og hugsjóna. (bók sinni bendir Benedikt á sjö nýjar leiðir til að styrkja og sameina (slenskt sam-
félag. Fjallað er m.a. um þýðingu náttúrunnar, helstu mein þjóðarinnar og hvernig megi lækna þau, hvernig hægt sé að
draga úr spillingu í stjórnmálum og leyfa lýðræðinu að blómstra og hlutverk Islands í heiminum. Hér er á ferðinni bók
sem enginn meðvitaður (slendingur ætti að láta framhjá sér fara! Sérstaklega ekki fyrir kosningar!
Bókin er á sérstöku tilboðsverði, á aðeins 1.990 kr. og fæst í öllum helstu
bókaverslunum landsins, sem og í Listasetri Lafleur, Hólmaslóð 4, 101
Rvk. S: 659-3313, iafleur@simnet.is
xJA,
PAP qtPATf
Holl og góð trefjarík brauð
í dagsins önn
Til kornvöru teljast hafrar, rúgur, hveiti, bygg,
hrísgrjón og maís, ásamt afurðum úr þessum vörum,
svo sem brauð, grautar, pasta og morgunkorn.
Mest er af vítamínum, steinefnum og trefjaefnum
í hýði og kími. Þess vegna er mikilvægt að neyta
kornvöru sem inniheldur alla hluta kornsins. Stundum
er heilt og ómalað korn notað sem hráefni í brauð,
en oftar er þó notað malað heilkorn, sem inniheldur
ennþá öll næringarefni kornsins.
Dalvegi 4 • Sími 564 4700 Hamraborg 14 • Sími 554 4200
Opið:Mánud.-föstud. 06:00-18:00 Opið:Mánud-laugard.08:00-18:00
Laug. 06:00 • 17:00 Sunn. 07:00-17:00 Laug. 08:00-16:00 Sunn. 09:00-16:00
Þú færð allt holla og góða
brauðið hjá okkur!
■ grófa