blaðið - 08.05.2007, Qupperneq 10
26- KOSNINGAR 2007
ÞRIÐJUDAGUR 8. MAÍ 2007 blaöið
REYKJAVÍKURKJÖRDÆMISUÐUR - TÍU SPURNINGAR TIL FRAMBJÓÐENDA
Jónína Bjartmarz,
Framsóknarflokki
1. Hver eru 3 brýnustu
málefnin á landsvísu?
Það sem er brýnast er
að hér ríki efnahags-
legur stöðugleiki og
áfram verði byggt á
öflugri, fjölbreyttri og kröft-
ugri atvinnuuppbyggingu og
nýsköpun sem nái til landsins alls.
Það svigrúm sem nú hefur náðst
sökum mikils hagvaxtar og kaup-
máttaraukningar á undanförnum
12 árum viljum við að sé nýtt til að
bæta velferðarkerfið enn frekar og
draga úr útgjöldum einstaklinga
og fjölskyldna þeirra. Þá viljum við
stórsókn í menntamálum enda mun
aukin menntun leggja grunninn að
lífskjörum framtíðarinnar.
2. Hver eru 3 brýnustu málefnin
f þínu kjördæmi? Bætt þjónusta
og umönnun aldraðra með fjölgun
hjúkrunarheimilisplássa ásamt því
að flutningur málefna eldri borgara
eigi sér stað frá ríki til sveitarfé-
laga. Við leggjum mikla áherslu á
samgöngumál og að hlutur höfuð-
borgarsvæðisins af vegafé verði
bættur. Brýnt að leggja meira upp
úr almenningssamgöngum. Ríkið
sparar stórar fjárhæðir í samgöngu-
mannvirkjum með því að koma
með sveitarfélögum í það að gera
almenningssamgöngur að raun-
hæfum valkosti.
3. Á að flytja aukin verkefni frá
ríki til sveitarfélaga? Já, Fram-
sóknarflokkurinn vill sterkari
sveitarstjórnir sem geti veitt öflugri
nærþjónustu. Við viljum því að
tekjuskipting milli ríkis og sveitar-
félaga verði endurskoðuð og að
hluti fjármagnstekjuskatts renni til
sveitarfélaga.
4. Hver eru brýnustu umhverfis-
málin í þínu kjördæmi? Draga
úr hávaða- og loftmengun frá
umferð með öllum tiltækum ráðum.
Stærst hlýtur þar að vega að halda
aftur af aukningu umferðar með
almenningssamgöngum eins og
fram kemur hér að ofan. Lífsgæði
borgaranna felast einnig í aðgangi
að opnum svæðum til útvistar. Þar
stendur um þessar mundir næst
að friða strandlengju Skerjafjarðar,
alla leið út á Álftanes. Megum ekki
sofa á verðinum þegar vatnsvernd
neyslvatns ofan byggöarinnar er
annarsvegar. Þar er um afar dýr-
mæta auðlind að ræða sem okkur
ber skylda til að gæta vel.
5. Hver eru brýnustu samgöngu-
málin í þínu kjördæmi? Stærsta
verkefni okkar næstu árin verður
að vera gerð Sundabrautar í botn-
göngum í einum áfanga og gerð
mislægra gatnamóta á Miklubraut
og Kringlumýrarbraut. Ríkisstjórnin
hefur þegar lagt fyrir fé til þeirra
framkvæmda og þær munu verða
að veruleika á næstu árum.
6. Hver ætti skattprósentan
(tekjuskattur) að vera í lok næsta
kjörtímabils? Eðlilegt er að skatt-
prósentan verði lækkuð enn frekar
gefist til þess svigrúm. Á sviði
skattamála teljum við þó brýnna að
horfa fyrst til þess að hækka skatt-
leysismörk, afnema stimpilgjöld,
draga úr tekjutengingum barnabóta.
7. Er svigrúm fyrir frekari
stóriðju- eða virkjanafram-
kvæmdir á næsta kjörtíma-
bili? Slíkar framkvæmdir eru
háðar frjálsum samningum að-
ila en við teljum að rúm sé fyrir
þær í hagkerfinu. Ljóst er þó að
framkvæmdir af þessum toga krefj-
ast mikils og vandaðs undirbúnings.
Æskilegt er að slíkri uppbyggingu
verði þannig háttað að hún ógni
ekki stöðugleika í efnahagslífinu.
8. Ertu fylgjandi því að breyta
núverandi styrkjakerfi til landbún-
aðar á íslandi? Framtíðarfyrirkomu-
lag þessara mála ræðst nokkuð
af niðurstöðum Doha-viðskiptalot-
unnar innan Heimsviðskiptastofnun-
arinnar sem við íslendingar tökum
þátt í. Á þessari stundu er óljóst
hvað út úr viðræðunum kemur.
9. Hvaða hugmyndir hefur þú
til atvinnuuppbyggingar í þínu
kjördæmi? Framsóknarflokkurinn
leggur höfuðáherslu á fullt atvinn-
ustig og fjölbreytt atvinnu- og
athafnalíf. Hlúa vel að þeirri atvinnu
sem nú er, s.s. hvers kyns þjónustu-
starfsemi og umönnun. Lykilatriði er
að stjórnvöld skapi þau skilyrði sem
einstaklingar og fyrirtæki í borginni
nýti til atvinnusköpunar, eins og
gerst hefur á þessu kjörtímabili.
10. Á ísland að hefja undirbúning
að inngöngu í ESB og upptöku
evrunnar? Við teljum ekki tíma-
bært að taka núverandi afstöðu
íslands til endurmats fyrr en við
höfum tryggt hér langvarandi jafn-
vægi og varanlegan stöðugleika
í efnahags-, atvinnu- og gjaldeyr-
ismálum. Við eigum ekki að lúta
nauðhyggju heldur taka ákvarðanir
út frá okkar eigin þjóðarmetnaði og
eigin styrkleikum.
Jón Magnússon,
Frjálslyndum
1. Hver eru 3 brýnustu
málefnin á landsvísu?
Lagfæra velferðarhall-
ann með því að hækka
skattleysismörk og heim
ila bótaþegum að vinna
fyrir milljón króna árstekjum
án skerðingar. Tryggja stöðug-
leika í efnahagslífinu og næga
atvinnu. Lækkun vöruverðs og
lána með virkri samkeppni, eftirliti
og afnámi innflutningshafta.
2. Hver eru 3 brýnustu málefnin
í þínu kjördæmi? Auk þess sem
nefnt er í nr. 1 þá eru það greiðar
samgöngur, m.a. Ijúka gerð
Sundabrautar og Suðurlands-
vegar. Öryggi borgaranna, koma
í veg fyrir ofbeldi og afbrot með
aukinni löggæslu og hertum refs-
ingum. Koma í veg fyrir hættulega
og skaðlega mengun með betri
hreinsun gatna og virku eftirliti
og hreinsun útvistarsvæða og við
göngustíga.
3. Á að flytja aukin verkefni
frá ríki til sveitarfélaga? Nei,
sum verkefni sem nú heyra undir
sveitarfélög ættu betur heima hjá
Stál og stansar ehf.
Vagnhöfða 7
110 Reykjavík
Sími: 517 5000
ríkinu til að tryggja jafna stöðu
borgaranna. Þegar hafa verið
flutt það mörg verkefni frá ríki til
sveitarfélaga að fæst þeirra að
undanskildum þeim allra stærstu
ráða við öll þau verkefni sem þau
hafa þegar á sinni könnu.
4. Hver eru brýnustu umhverf-
ismálin í þínu kjördæmi? Koma
í veg fyrir svifryksmengun og
hreinsun opinna svæða. Hrein
borg, fögur torg með aðstoð borg-
aranna en þá þarf borgin að koma
upp ílátum þar sem fólk getur
losað sig við úrgang og sjá um
losun þeirra með eðlilegu millibili.
5-Hver eru brýnustu sam-
göngumálin í þínu kjördæmi?
Greið umferð. Það þarf að gera
breiðari og hindrunarlausa
leið; Vesturlandsvegur, Mikla-
braut, Hringbraut og sömuleiðis
suður-norðurásinn með því að
Hafnarfjarðarvegur og Reykjanes-
braut verði breikkuð og hindrunar-
laus. Einnig hraða gerð Sunda-
brautar. Flugvöllinn um kyrrt í
Vatnsmýrinni.
6. Hyer ætti skattprósentan
(tekjuskattur) að vera í lok
næsta kjörtímabils? Ég vil að
skattleysismörk verði hækkuð í
150.000.- en skattprósentan verði
sú sama.
7. Er svigrúm fyrir frekari stór-
iðju- eða virkjanaframkvæmdir
á næsta kjörtímabili? Já. Fjöldi
fer eftir stöðu ýmissa annarra
verkefna og þenslu í þjóðfélaginu.
Eins og er þá er svigrúm ein-
göngu fyrir stóriðju t.d. á Húsvík.
Fljótlega gæti síðan skapast
svigrúm fyrir fleiri stóriðjuver. Tel
eðlilegt að virkja í neðri hluta
Þjórsár, það eru hagkvæmar og
arðsamar virkjanir sem valda
litlum náttúruspjöllum.
8. Ertu fylgjandi því að breyta
núverandi styrkjakerfi til land-
búnaðar á íslandi? Já.
9. Hvaða hugmyndir
hefur þú til atvinnuuppbygg-
ingar í þínu kjördæmi?
Eins og er þá er full atvinna
og rúmlega það í kjördæm-
inu. Það þarf hins vegar
að huga að framtíðinni og
þá kemur til skoðunar að
byggja upp samkeppnisiðnað
sem hefur orðið fyrir verulegum
áföllum vegna hágengisstefn-
unnar. Reykjavík suður býr að
möguleikum til að vera miðstöð
hátækni- og þekkingariðnaðar í
landinu.
10. Á ísland að hefja undirbún-
ing að inngöngu í ESB og upp-
töku evrunnar? Island á ætíð
að skoða alla möguleika, kosti
og galla í fjölþjóðlegu samstarfi.
Aðild að ESB og upptaka evru eru
meðal þeirra kosta sem ber að
skoða.
Ómar Ragnarsson,
íslandshreyfingu
1. Hver eru 3 brýnustu mál
efnin á iandsvísu? Ríkis-
stjórn með nýja framtíð-
arsýn í efnahagsmálum
með áherslu á verndun
náttúrunnar. Bættar sam-
göngur og fjarskiptakerfi.
Afnema tekjutengingar og
skerðingar í velferðarkerfinu til að
auka þátttöku aldraðra og öryrkja í
samfélaginu og gera þeim kleift að
lifa mannsæmandi lífi.
2. Hver eru 3 brýnustu mál-
efnin í þínu kjördæmi? Mislæg
gatnamót Kringlumýrarbrautar og
Miklubrautar og Öskjuhlíðargöng.
Málefni barna, aldraðra og öryrkja.
Hærri laun fyrir umönnunar- upp-
eldis- og kennslustörf. Framtíðar-
flugvöllur að afloknum rannsóknum
eftir nokkur ár.
Samgöngulega tel ég heppilegast
að nýta núverandi flugvallarsvæði
fyrir samgöngumiðstöð og breyttan
flugvöll.
3. A að flytja aukin verkefni frá
ríki til sveitarfélaga? Já, það er
forgangsmál að flytja og efla nær-
þjónustu við aldraða og fatlaða en
til að það verði sómasamlega gert
þarf að tryggja að málaflokknum
fylgi nægt fjármagn.
4. Hver eru brýnustu umhverfis-
málin í þínu kjördæmi? Breyta
bifreiðagjaldakerfinu og taka upp
gjöld sem byggjast á að þeir borgi
sem menga (útblástursgjald) og
taka rými (lengdargjald).
Að minnka loftmengun af völdum
svifryks og bílamengunar með
ýmsum fyrirbyggjandi aðgerðum,
s.s. að setja umferð í stokka og
göng.
Grænar áherslur á heimilum, svo
sem flokkun sorps og endurvinnsla.
5. Hver eru brýnustu samgöngu-
málin í þínu kjördæmi? Að Ijúka
gerð mislægra gatnamóta við
Miklubraut og Kringlumýrarbraut
og koma sem flestum samgöngu-
æðum í stokka og göng til að minni
mengun verði í íbúðahverfum. Sjá
svar við spurningu nr. 2
6. Hver ætti skattprósentan
(tekjuskattur) að vera í lok næsta
kjörtímabils? íslandshreyfingin
vill lækka skatta á einstaklinga og
fyrirtæki.
Fyrirtækjum verði búið besta
viðskiptaumhverfi í okkar heims-
hluta með lækkun tekjuskatts sem
skapar tekjuauka ríkissjóðs svo
að í lok kjörtímabils verði búið að
hækka skattleysismörk í 142.600 kr.
sem er sú upphæð sem þau ættu
að vera í hefðu stjórnvöld látið skatt-
leysismörkin fylgja verðlagsþróun.
Æskilegt væri að tækist að lækka
tekjuskatt einstaklinga niður fyrir
30% á kjörtímabilinu, en það tekst
ekki nema við náum fyrst niður
þenslunni.
7. Er svigrúm fyrir frekari stór-
iðju- eða virkjanaframkvæmdir á
næsta kjörtímabili? Nei. Nauðsyn-
legt er að taka fimm ára hlé á stór-
iðjuframkvæmdum og nota það til
endurmats á auðlindum þjóðarinnar
og nota frekar orkuna til mengunar-
lausra fyrirtækja í þekkingariðnaði
sem gefa fleiri og betri störf en
stóriðjan með minni orkunotkun.
8. Ertu fylgjandi því að breyta
núverandi styrkjakerfi til land-
búnaðar á íslandi? Já, slaka á
haftastefnu og auka samkeppni.
Nauðsynlegt er að breyta fyrir-
komulagi framleiðslustyrkja yfir í
búsetutengda nýsköpunarstyrki
og grænar greiðslur. Auðvelda þarf
nýliðun í greininni, styðja vistvænan
landbúnað og gera bændum kleift
að fullvinna afurðir á búum sínum
til að auka verðmætasköpun og
fjölbreytni á markaði. Landbún-
aðarstefna í sátt við bóndann og
náttúruna.
9. Hvaða hugmyndir hefur þú til
atvinnuuppbyggingar í þínu kjör-
dæmi? Að hlúa vel að nýsköpun í
öllum greinum, hvort sem er í full-
vinnslu afurða, líftækni eða þekking-
ariðnaði, í menningu af því að tón-
list, kvikmyndagerð og hönnun eru
vaxandi í atvinnusköpun. Menntun
er grundvöllur þeirrar atvinnuupp-
byggingar sem gefur mest af sér.
10. A ísland að hefja undirbúning
að inngöngu í ESB og upptöku
evrunnar? Á næsta kjörtímabili
er nauðsynlegt að kanna kosti
og galla við inngöngu í ESB.
Innganga kemur ekki til mála
nema þjóðinni séu tryggð
yfirráð yfir auðlindum sínum.
Hvort hægt er að semja um
slíkt er ekki Ijóst nema látið sé
reyna á samningsmarkmiðin.
Ingibiörg Sólrún
Gíslaaóttir,
Samfylkingu
1. Hver eru 3 brýn-
ustu málefnin á
landsvísu? Að end-
urreisa velferðarþjón-
ustuna, ná jafnvægi
í efnahagsmálin og fjár-
festa í innviðum samfélagsins, þ.e.
menntun og samgöngum.
2. Hver eru 3 brýnustu málefnin í
þínu kjördæmi? Að eyða biðlistum
aldraðra eftir hjúkrunarrýmum og
barna með geðraskanir og þroska-
frávik eftir greiningu, bæta húsnæði
og aðbúnað framhaldsskólanna í
borginni sem er verri en víðast hvar
á landinu og tryggja greiðar sam-
göngur um borgina.
3. Á að flytja aukin verkefni frá
ríki til sveitarfélaga? Já, það á að
byrja á því að flytja málefni aldraðra
og fatlaðra vegna þess að það
fellur vel að nærþjónustuhlutverki
sveitarfélaganna. En þessum verk-
efnum þurfa að fylgja tekjustofnar
s.s. hlutdeild í fjármagnstekjuskatt-
inum sem er vaxandi tekjustofn. (
dag greiða þeir sem hafa nær allar
tekjur sínar af fjármagni lítið sem
ekkert til sveitarfélaganna.
4. Hver eru brýnustu umhverfis-
málin í þínu kjördæmi? Brýnasta
verkefnið er að draga úr þeirri
mengun andrúmsloftsins í borginni
sem fylgir vaxandi bílaumferð bæði
vegna koltvíoxíðs og svifryks. Þá
þarf að tryggja friðun Brennisteins-
fjalla á Reykjanesi og Grændals á
Hengilssvæðinu eins og Samfylk-
ingin hefur lagt til, til að koma í veg
fyrir að orkufyrirtækin fari inn á
þessi verðmætu náttúrusvæði með
jarðvarmavirkjanir.
ö.Hver eru brýnustu samgöngu-
málin í þfnu kjördæmi? Lagning
Sundabrautar sem fyrst alla leið
upp á Kjalarnes og tvöföldun Suð-
urlandsvegar. Þá þarf að vinna raun-
hæfa áætlun um eflingu almennings-
samgangna með aðkomu ríkisins
en eins og málum er háttað í dag
hefur ríkið tekjur af almennings-
samgöngum m.a. í formi virðisauka-
skatts á vagnakaupum.
6. Hver ætti skattprósentan
(tekjuskattur) að vera í lok næsta
kjörtímabils? Sú sama og hún er
núna en skattleysismörkin ættu að
hækka vegna þess að það kemur
hinum tekjulægstu mun betur en
lægri skattprósenta.
7. Er svigrúm fyrir frekari stór-
iðju- eða virkjanaframkvæmdir á
næsta kjörtímabili? Nei, ég tel að
nú eigum við að staldra við og gefa
okkur ráðrúm til að meta hvert við
viljum stefna í þessum málum.
8. Ertu fylgjandi því að breyta
núverandi styrkjakerfi til landbún-
aðar á íslandi? Já, ég vil draga úr
framleiðslutengdum styrkjum og
fara meira yfir í beinar greiðslur.
9. Hvaða hugmyndir hefur þú til
atvinnuuppbyggingar í þínu kjör-
dæmi? Samfylkingin hefur mótað
metnaðarfullartillögur um stuðning
við hátækni- og sprotafyrirtæki
sem vöktu mikla athygli á Sprota-
þingi. Þær þurfa að verða að veru-
leika. ( Reykjavík eru tækifærin við
hvert fótmál og hið nýja atvinnulíf á
hér gríðarleg sóknarfæri ef jafnvægi
kemst á í efnahagsmálum og verð-
bólga og vextir komast á sama stig
og í öðrum siðuðum samfélögum.
10. Á ísland að hefja undirbúning
að inngöngu í ESB og upptöku
evrunnar? Já, tvímælalaust. Það
skiptir gríðarlega miklu máli fyrir
okkur að uppfylla sem fyrst öll
skilyrðin hvenær svo sem þjóðin vill
stíga skrefið til fulls.
Geir H. Haarde,
Sjálfstæðisflokki
1. Hver eru 3 brýn-
ustu málefnin á
landsvísu? Frekari
kjarabætur og
breytingar á högum
eldri borgara, að
viðhalda samkeppn-
ishæfni atvinnulífs-
ins og traustum efnahag
áframhaldandi uppbygging mennta-
kerfisins hér á landi.
2. Hver eru 3 brýnustu málefnin
í þínu kjördæmi? Brýnustu verk-
efnin í Reykjavík eru lagning Sunda-
brautar, nýtt þjóðarsjúkrahús og
uppbygging í þágu eldri borgara
á höfuðborgarsvæðinu.
3. Á að flytja aukin verk-
efni frá ríki til sveitarfélaga?
Já, meðal þeirra verkefna sem
Sjálfstæðisflokkurinn telur að eigi
að færa yfir til sveitarfélaganna eru
þau málefni eldri borgara sem hafa
verið á könnu ríkisins sem og mál-
efni fatlaðra.
4. Hver eru brýnustu umhverf-
ismálin í þínu kjördæmi? Við
viljum hækka enn frekar hlutfall
endurnýjanlegra orkugjafa af heild-
arorkunotkun (slendinga, en það
er yfir 70% í dag og með því besta
sem þekkist í heiminum. Ennfremur
viljum við auka hvata til þess að
nota vistvæn ökutæki og draga úr
loftmengun í borginni.
5. Hver eru brýnustu samgöngu-
málin í þínu kjördæmi? Brýnustu
samgönguverkefnin í Reykjavík
og