blaðið - 08.05.2007, Page 11
eru lagning Sundabrautar og
mislæg gatnamót Miklubrautar og
Kringlumýrarbrautar.
6. Hver ætti skattprósentan að
vera í lok næsta kjörtfmabils?
Sjálfstæðisflokkurinn vill lækka
skatta á einstaklinga enn frekar en
ekki liggur fyrir hver prósentan eigi
að vera að fjórum árum liðnum.
7. Er svigrúm fyrir frekari stór-
iðju- eða virkjanaframkvæmdir
á næsta kjörtímabili? Ákvarðanir
um frekari stóriðjuáform eru ekki
á hendi ríkisvaldsins, heldur ein-
stakra fyrirtækja og sveitarfélaga
en slíkar framkvæmdir verða að
uppfylla þær reglur og umhverf-
iskröfur sem gerðar eru af hálfu
stjórnvalda. Að þessum skilyrðum
upþfylltum og svo framarlega sem
aðstæður í hagkerfinu leyfa slíkar
framkvæmdir er atvinnuuþþbygg-
ing í tengslum við stóriðju eðlileg
og verðmæt viðbót við íslenskt
atvinnulíf.
8. Ertu fylgjandi því að breyta nú-
verandi styrkjakerfi til landbún-
aðar á íslandi? Landbúnaðurinn
stendur ávallt frammi fyrir kröfu um
aukna hagræðingu og samkeppni,
sem hann verður að mæta. Sjálf-
stæðisflokkurinn vill skapa þau skil-
yrði, að landbúnaðurinn geti mætt
minnkandi tollvernd og lægri fram-
leiðslustyrkjum til samræmis við
alþjóðasamninga. Þá vill flokkurinn
stefna að því að almenn markaðs-
lögmál gildi í landbúnaði en gæta
þess að þreytingar á kerfinu verði
gerðar í samráði við bændur og að
ekki verði farið út í kollsteypur.
9. Hvaða hugmyndir hefur þú
til atvinnuuppbyggingar í þínu
kjördæmi? Atvinnuástand á höfuð-
borgarsvæðinu eins og víðast hvar
á landinu hefur verið mjög gott og
til að mynda hafa mörg ný störf
orðið til í fjármálageiranum að und-
anförnu, sem er jákvæð þróun. Við
viljum halda áfram að styðja vel við
menntastofnanir og nýsköpun sam-
hliða því að búa atvinnulífinu áfram
hagstæð skilyrði. Þannig tryggjum
við fjölbreytt atvinnutækifæri.
Kolbrún Halldórsdóttir,
Vinstri grænum
1. Hver eru 3 brýnustu málefnin á
landsvísu? Breytt at-
vinnustefna. Horfið
verði af braut
blindrar stóriðju-
stefnu og tekin
upp atvinnustefna
í sátt við umhverfi
og náttúru, með það
að markmiði að endurreisa efna-
hagslegan stöðugleika.
Þá leggjum við áherslu á að leið-
rétta það misrétti sem aldraðir og
öryrkjar hafa þurft að búa við. Við
köllum það að koma á félagslegu
réttlæti. Undir það heyrir líka að
leiðrétta stöðu kvenna í samfélag-
inu, takast á við kynbundið ofbeldi,
gera kaup á vændi refsiverð og
afnema launamun kynjanna.
Loks nefni ég skóla morgundags-
ins. Menntakerfið okkar þarf að
vera fyrir alla og forðast ber alla
mismunun sem þar viðgengst.
2. Hver eru 3 brýnustu málefnin
í þfnu kjördæmi? Þau sömu og á
landsvísu.
3. Á að flytja aukin verkefni frá
ríki til sveitarfélaga? Fyrsta
boðorðið í þeirri viðleitni að efla
nærþjónustuna er að tryggja jafna
stöðu sveitarfélaganna í landinu.
Þegar á heildina er litið eru sveit-
arfélögin gríðarlega skuldug og
eru gerð upp með milljarða halla
árlega. Slíkt er óásættanlegt og
verður ekki leiðrétt nema með stór-
felldum breytingum á tekjuskipting-
unni. Við teljum að það þurfi u.þ.b.
5 milljarða tilfærslu og höfum lagt
fram tillögur á Alþingi þar um.
4. Hver eru brýnustu umhverfis-
málin í þínu kjördæmi? Hug-
myndafræði sjálfbærrar þróunar á
að vera undirstaða allrar stefnumót-
unar og verkefnin í borgarsamfé-
laginu eru ærin. Nauðsynlegt er að
ráðast í það verkefni að draga úr
mengun og losun gróðurhúsaloft-
tegunda frá samgöngum. Á næstu
fimm árum ætti að vera hægt að
draga úr losun frá samgöngum
um sem nemur 20%. Þá þarf að
huga sérstaklega að skipulags-
málum og samþætta þar sem
kostur er íbúabyggð, þjónustu- og
atvinnusvæði svo borgarhverfin
verði sjálfstæðar einingar þar
sem manneskjulegt umhverfi er í
fyrirrúmi. Þessi verkefni verða þó
ekki unnin án þess að til komi bylt-
ing í almenningssamgöngum á
höfuðborgarsvæðinu. Aflétta þarf
skattlagningu af almenningssam-
göngum og tryggja tíðar ferðir milli
borgarhluta. Tengja þarf borgar-
hluta með hljólreiðabrautum og
auka öryggi gangandi og hjólandi
í umferðinni með sérstökum hjóla-
reinum meðfram öllum akbrautum.
5-Hver eru brýnustu samgöngu-
málin í þínu kjördæmi? Sjá svar
við spurningu 4.
6.Hver ætti skattprósentan að
vera í lok næsta kjörtímabils?
Vinstrihreyfingin - grænt framboð
hefur ekki breytingar á hlutfalli
tekjuskatts á stefnuskrá sinni á
næsta kjörtímabili.
7. Er svigrúm fyrir frekari stór-
iðju- eða virkjanaframkvæmdir
á næsta kjörtímabili? Nei, nú-
verandi stóriðjuframkvæmdir hafa
reynt um of á þanþol efnahags-
kerfsins. Nú er nauðsynlegt að
róa hagkerfið og byggja upp þær
atvinnugreinar sem eru rótgrónar
í landinu auk þeirra nýju greina
sem nýta hugvit og þekkingu
án þess að ganga ótæpilega á
náttúruauðlindirnar.
8. Ertu fylgjandi því að breyta nú-
verandj styrkjakerfi til landbún-
aðar á íslandi? Það þarf að hefja
vinnu við að undirbúa íslenskan
landbúnað fyrir væntanlega al-
þjóðasamninga um verslun með
landbúnaðarafurðir, en markmiðið
á að vera að byggja greinina upp
á forsendum sjálfbærrar þróunar
og auka verðmætasköpun innan
hennar. Skapa þarf skilyrði fyrir ís-
lenska framleiðendur til að sækja
fram á erlendum mörkuðum. Við
lítum svo á að breyta þurfi hluta
núverandi framleiðslustyrkja í bú-
setutengdan stuðning.
9. Hvaða hugmyndir hefur þú til
atvinnuuppbyggingar í þínu kjör-
dæmi? Ég trúi á frumkvæði einstak-
linga og að sköpunarkraftur þeirra
eigi að fá að njóta sín. Þess vegna
viljum við vinstri-græn skapa hag-
stæðari rekstrarskilyrði fyrir lítil og
meðalstórfyrirtæki, byggja uþþ há-
tækni- og þekkingargreinar með
því að styrkja rannsóknir og nám
á háskólastigi um land allt og efla
samkeppnissjóði. Þá viljum við
efla sveitarfélögin til mikilla muna
með jafnari tekjuskiptingu, bæta
samgöngur, koma á strandsigl-
ingum og tryggja nútímafjarskipti i
dreifðum byggðum. Huga þarf að
tengingum okkar við umheiminn
með lagningu nýs sæstrengs til
landsins og skapa vænleg rekstrar-
skilyrði fyrir þau fyrirtæki sem eiga
allt sitt undir samskiptum gegnum
Netið. Þannig leggjum við grunn
að nýjum tímum í atvinnu- og
byggðaþróun.
10. A (sland að hefja undirbúning
að inngöngu í ESB og upptöku
evrunnar? í grunninn viljum við
vinstri-græn opin og mikil sam-
skipti við aðrar þjóðir, en við viljum
ekki hefta okkur með því að binda
slík samskipti í viðjar ESB. Við
teljum inngöngu í ESB ásamt
tilheyrandi framsali á fullveldi og
sjálfstæði þjóðarinnar ekki þjóna
hagsmunum íslands. Sjálfstæði
okkar er betur borgið utan ESB en
innan þess.
Guðni Ágústsson
landbúnaðarráðherra
1. sæti Suðurkjördæmi
Valgerður Sverrisdóttir Jónína Bjartmarz
utanríkisráðherra umhverfisráðherra
1. sæti Norðausturkjördæmi 1. sæti Reykjavíkur-
kjördæmi suður
Jón Sigurðsson Magnús Stefánsson Siv Friðleifsdóttir
iðnaðar- og viðskiptaráðherra félagsmálaráðherra heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra
1. sæti Reykjavíkur- 1. sæti Norðvesturkjördæmi 1. sæti Suðvesturkjördæmi
kjördæmi norður
Jafnrétti í verki
Konur og karlar starfa hlið við hlið í forystu Framsóknar sem ráðherrar og oddvitar
framboðslista.
Framboðslista flokksins í kosningunum 12. maí skipa jafnmargir karlar og konur.
Fæðingarorlof beggja foreldra er forsenda jafnréttis á vinnumarkaði. Við komum því á
og á næsta kjörtímabili munum við lengja það í 12 mánuði.
Við höfum jafnframt komið á vottun jafnra launa hér á landi sem tryggir að unnið sé með
markvissum hætti að launajafnrétti kynjanna.
Við munum enn fremur koma á nýrri jafnréttislöggjöf sem ræðst gegn kynbundnum
launamun með afnámi skyldu starfsmanns til launaleyndar og jafnar stöðu karla og
kvenna í ráðum og nefndum.
Við sýnum jaf nrétti í verki!
jr
Arangur áfram - ekkert stopp
framsokn.is
Framsókn