blaðið - 08.05.2007, Síða 12
28- KOSNINGAR 2007
ÞRIÐJUDAGUR 8. MAÍ 2007 blaöiö
Innfly tj endamálin
eru kosningamál
Frjálslyndi flokkurinn vill beita
heimildum í EES-samningnum til
að stýra för launafólks frá EES-lönd-
unum til fslands. Þar getur íslenska
ríkið gripið einhliða til viðeigandi
öryggisráðstafana ef upp koma al-
varlegir, efnahagslegir, þjóðfélags-
legir eða umhverfislegir erfiðleikar
í sérstökum atvinnugreinum eða á
sérstökum svæðum. Erfiðleikarnir
verða annað hvort að vera orðnir
að veruleika eða yfirvofandi, og ráð-
stafanir eiga að takmarkast við það
sem er bráðnauðsynlegt til að ráða
bót á ástandinu. Við gerð EES-samn-
ingsins áskildu stjórnvöld sér einnig
rétt til að grípa til sérstakra örygg-
isráðstafana, t.d. atvinnuleyfis, ef
alvarleg röskun yrði á jafnvægi
vinnumarkaðar vegna meiriháttar
flutninga starfsfólks sem beinast að
sérstökum svæðum, störfum eða at-
vinnugreinum eða vegna alvarlegrar
röskunar á jafnvægi fasteignamark-
aðar. Þetta var gert með sérstakri
bókun íslenskra stjórnvalda við
ákvæði samningsins, sem ekki var
mótmælt á sínum tíma.
Opin landamæri
Neikvæð viðbrögð gegn því að
grípa til ákvæða EES-samnings-
ins koma frá talsmönnum allra
flokka nema Frjálslyndra sem
og Samtökum atvinnulífsins sem
hafa augljósra hagsmuna að gæta
í því að hafa sem mest framboð
af vinnuafli í landinu á hverjum
tíma. Við erum nú 300.000
manna þjóð með opin landamæri
gagnvart um 470 milljóna manna
þjóðfélögum þar sem nú eiga sér
stað miklir flutningar á fólki frá
fátækum fyrrum kommúnista-
ríkjum í austri til velmegunar-
ríkja í vestri. Við ráðum ekki við
innstreymið svo vel megi vera,
sökum fámennis þjóðarinnar.
Lítil þjóð þarf að vera á verði
Alrangt er að vonlaust sé að
virkja 112. og 113. greinina í EES-
samningnum. Við höfum kynnt
okkur þessi mál. ísland er sjálf-
stætt og fullvalda ríki. Það er
okkar að leita réttar okkar með
því að virkja ákvæði þeirra milli-
ríkjasaminga sem við höfum gert.
Lítil þjóð þarf alltaf að vera á verði
Lítil þjóð þarf
alltafað vera
á verði
Umrœðan
Magnús Þór Hafsteinsson
og hún þarf alltaf að vera reiðu-
búin að þurfa að leggja eitthvað
á sig til að verja sjálfstæði sitt og
fullveldi. Það gerðum við í þorska-
stríðunum þegar við náðum nýt-
ingaréttinum á fiskimiðum okkar
úr höndum útlendinga. Hið sama
eigum við að gera nú til að endur-
heimta réttinn til að ráða því sjálf
í hvaða mæli við viljum fá erlenda
ríkisborgarahingaðtiliandstilvar-
anlegrar búsetu. Þjóðin verður að
taka afstöðu til þess hver stefnan
á að verða. Þróunin í fjölgun inn-
flytjenda frá EES-ríkjunum er
svo hröð núna að fari sem horfi,
þá verður orðið of seint að gera
nokkuð þegar næst verður vænt-
anlega gengið til alþingiskosninga
eftir fjögur ár. Þá mun þjóðfélags-
gerðin hér á íslandi hafa breyst
varanlega þar sem mjög stór hluti
íbúa landsins verður fólk af er-
lendu bergi brotið.
Öllum til góðs
Frjálslyndi flokkurinn er eini
flokkurinn sem ætlar að beita sér
fyrir því að taka upp stýringu á inn-
streymi vinnuafls. Hinir ætla að
standa ráðþrota og aðgerðalausir
gagnvart mestu breytingum í þjóð-
félagsgerð sem íslenska þjóðin
hefur nokkru sinni staðið frammi
fyrir. Kjósendur eiga að hafa þetta
í huga þann 12. maí. Fái Frjáls-
lyndi flokkurinn nægilegt umboð
og komist hann í ríkisstjórn, þá
mun hann beita sér fyrir því að
það verði strax hafin vinna við að
undirbúa að öryggisákvæðin í EES-
samningnum verði virkjuð hið
fyrsta. Öllum til góðs.
Höfundur er varaformaður Frjálslynda flokks-
ins og í 1. sæti á lista hans í Reykjavík norður
Samgöngumál, velferð og skólamál í brennidepli í SV-kjördæmi:
Nýja framhaldsskóla
í Kópavog og Mosfellsbæ
Áframhaldandi uppbygging stofn-
brauta vegna sívaxandi umferðar
er brýn í Suðvesturkjördæmi. Gera
þarf úrbætur á Reykjanesbraut í
gegnum Hafnarfjörð, Garðabæ
og Kópavog með mislægum gatna-
mótum. f hinum enda kjördæmis-
ins er bent á að brýnt sé að klára ný
vegamót við Vesturlandsveg og Þing-
vallaveg, enda talsverð slysahætta
þar í dag. Almenningssamgöngur
eru líka nefndar sem brýnt mál í
kjördæminu, greiða þurfi fyrir hjól-
reiðaumferð og huga að hvers kyns
samgöngum fyrir gangandi, hlaup-
andi eða ríðandi umferð.
Velferðarmálin eru ofarlega á
blaði í kjördæminu. Þar má nefna
bætta þjónustu og umönnun aldr-
aðra með aukinni heimahjúkrun
og fjölgun hjúkrunarrýma. Tals-
maður Islandshreyfingarinnar segir
framkomu gagnvart öldruðum til
skammar. Þetta sé fólkið sem skóp
forsendur og innviði samfélags-
ins en nú blasi við því biðlistar og
skattpíning.
Framsóknarmenn leggja áherslu
á fullt atvinnustig og fjölbreytt at-
vinnu- og athafnalíf. Halda þurfi
sköttum lágum á fyrirtækin í
landinu. íslandshreyfingin bendir
meðal annars á rekstur sérhæfðra
menntastofnana, líftækni og þekk-
ingariðnað og sömuleiðis upplifunar-
iðnaðinn sem sagður er stærsti vaxt-
arbroddur atvinnulífs í heiminum.
Jakob Frímann Magnússon, oddviti
íslandshreyfingarinnar, bendir á
Latabæ sem augljóst dæmi um mögu-
leika á því sviði. Sjálfstæðisflokk-
urinn telur ekki þörf á neinum sér-
tækum aðgerðum ríkisvaldsins til
atvinnuuppbyggingar í kjördæminu
en leggur áherslu á að hið opinbera
standi vörð um starfsumhverfi fyr-
irtækja og tryggi þeim bestu að- ^
stæður á hverjum tima. Það
sé öruggasta atvinnustefnan.
Meðal umhverfismála nefnir
Framsóknarflokkurinn friðun
strandlengjunnar frá Álftanesi um
Garðabæ og Kópavog út í Skerja-
fjörð og allt vestur í Gróttu. Græn
vitundarvakning á heimilum með
flokkun sorps og endurvinnslu að
leiðarljósi er á lista íslandshreyf-
ingarinnar og allir nefna nauðsyn
þess að draga úr mengun af völdum
bifreiða. Meðal brýnna umhverfis-
mála nefnir VG stöðvun áforma um
frekari stóriðju og undir það tekur
fulltrúi Islandshreyfingarinnar.
Bygging nýrra framhaldsskóla í
Kópavogi og Mosfellsbæ er nefnd
bæði af fulltrúa Frjálslyndra og Sjálf-
stæðisflokks. Vegna fjölgunar íbúa í
sveitarfélögunum er talið óumflýj-
anlegt að byggja framhaldsskólana
á allra næstu árum.
Suðvesturkjördæmi:
Tímabil hrókeringa
Suðvesturkjördæmi eða Kraginn
nær yfir Hafnarfjarðarkaupstað,
Garðabæ, Kópavogsbæ, Bessastaða-
hrepp, Seltjarnarneskaupstað, Mos-
fellsbæ og Kjósarhrepp. Tæplega
54.600 kjósendur eru í Suðvestur-
kjördæmi og eru þar tíu kjördæmiss-
æti og tvö jöfnunarþingsæti. Eitt
kjördæmissæti fluttist frá Norðvest-
urkjördæmi til Suðvesturkjördæmis
vegna búsetuþróunar.
I alþingiskosningunum 2003
hlaut Sjálfstæðisflokkurinn 5 þing-
menn kjörna, Samfylkingin 4, Fram-
sóknarflokkur 1 og Frjálslyndi flokk-
urinn 1. Miklar breytingar verða á
þingmannaliði kjördæmisins, þing-
menn hafa ýmist flutt sig um set eða
eru hættir.
Guðmundur Árni Stefánsson lét
af þingmennsku haustið 2005 og tók
við sendiherrastöðu í Svíþjóð. Ásgeir
Friðgeirsson, sem var fyrsti varaþing-
maður Samfylkingarinnar, afsalaði
sér þingsætinu og tók Valdimar
L. Friðriksson því sæti á þingi.
Rúmu ári síðar sagði Valdimar —
Leó skilið við Samfylkinguna og
gekk til liðs við Frjálslynda flokkinn.
Gunnar Örlygsson, sem kjörinn var
á þing fyrir Frjálslynda flokkinn í
Suðvesturkjördæmi, gekk til liðs við
Sjálfstæðisflokkinn vorið 2005. Þá
lét Gunnar I. Birgisson, Sjálfstæðis-
flokki, af þingmennsku haustið 2005
og er nú bæjarstjóri i Kópavogi. Sig-
urrós Þorgrímsdóttir tók sæti Gunn-
ars. Þær Rannveig Guðmundsdóttir,
Samfylkingu, og Sigríður Anna Þórð-
ardóttir, Sjálfstæðisflokki, hætta
þingmennsku í vor. Rannveig hefur
setið á þingi í tæpa tvo áratugi og
gegndi um hríð embætti félagsmála-
ráðherra. Sigríður Anna á að baki 16
ára þingmennskuferil og sat um tíma
í umhverfisráðuneytinu.
Fjármálaráðherrann, Árni Mat-
hiesen, Sjálfstæðisflokki, hefur
flutt sig yfir í Suðurkjördæmi og
flokssystir hans, Sigurrós Þorgríms-
dóttir,tekur ekki aftur sæti á
þingi en hún skipar 22. sætið á lista
Sjálfstæðisflokksins.
Meðal nýrra frambjóðenda má
nefna Samúel Örn Erlingsson, Fram-
sóknarflokki, Gunnar Svavarsson,
Samfylkingunni, og Guðfríði Lilju
Grétarsdóttur fyrir Vinstri hreyf-
inguna - grænt framboð. Þá leiðir
Jakob Frímann Magnússon lista
Islandshreyfingarinnar en hann
skipaði 7. sætið á lista Samfylkingar-
innar í Reykjavíkurkjördæmi suður
við síðustu alþingiskosningar. Þeir
feðgar Steingrímur Hermannsson
og Guðmundur, sonur hans, eru
báðir á framboðslistum í Suðvestur-
kjördæmi, Steingrímur skipar heið-
urssætið á lista Framsóknarflokks-
ins en Guðmundur er í 5. sæti á lista
Samfylkingarinnar.