blaðið - 08.05.2007, Qupperneq 14
4'
30 • KOSNINGAR 2007
ÞRIÐJUDAGUR 8. MAI 2007
&
laðiö
SUÐVESTURKJÖRDÆMI - TÍU SPURNINGAR TIL FRAMBJOÐENDA
Siv Friðleifsdóttir
Framsóknarflokki
1. Hver eru 3 brýnustu
málefnin á landsvísu?
Það sem er brýnast er
að hér ríki efnahags-
legur stöðugleiki og
áfram verði byggt á öfl-
ugri, fjölbreyttri og kröft-
ugri atvinnuuppbyggingu og
nýsköpun sem nái til landsins alls.
Það svigrúm sem nú hefur náðst
sökum mikils hagvaxtar og kaup-
máttaraukningar á undanförnum
12 árum viljum við að sé nýtt til að
bæta velferðarkerfið enn frekar og
draga úr útgjöldum einstaklinga
og fjölskyldna þeirra. Þá viljum við
stórsókn í menntamálum enda mun
aukin menntun leggja grunninn að
lífskjörum framtíðarinnar.
2. Hver eru 3 brýnustu málefnin
í þínu kjördæmi? Bætt þjónusta
og umönnun aldraðra með aukinni
heimahjúkrun og fjölgun hjúkrun-
arrýma, jafnframt að flutningur
málefna eldri borgara eigi sér stað
frá ríki til sveitarfélaga. Þá þarf að
hlúa að ungu barnafjölskyldunum
svo sem með lengingu fæðingar-
orlofs í 12 mánuði. Við leggjum
mikla áherslu á samgöngumál og
að hlutur höfuðborgarsvæðisins af
vegafé verði bættur.
3. A að flytja aukin verkefni frá
ríki til sveitarfélaga? Já, Fram-
sóknarflokkurinn vill sterkari
sveitarstjórnir sem geti veitt öflugri
nærþjónustu. Við viljum því að tekju-
skipting milli ríkis og sveitarfélaga
verði endurskoðuð og að hluti fjár-
magnstekjuskatts renni til sveitar-
félaga. Þau verkefni sem við viljum
kanna hvort ekki sé heppilegt að
flytjist yfir til sveitarfélaganna eru
málefni aldraðra, fatlaðra, heilsu-
gæslu og framhaldsskóla.
4. Hver eru brýnustu umhverfis-
málin í þínu kjördæmi? Draga úr
hávaða- og loftmengun frá umferð
með öllum tiltækum ráðum. Almenn-
ingssamgöngur sem raunveru-
legur valkostur í samstarfi ríkis og
sveitarfélaga er besta leiðin til þess
að halda aftur af aukningu umferð-
ar. Hönnun og úrfærsla vegamann-
virkja skiptir líka miklu. Lífsgæði
borgaranna felast einnig í aðgangi
að opnum svæðum til útvistar. Þar
stendur um þessar mundir næst
að friða strandlengju Álftaness um
Garðabæ og Kópavog út í Skerja-
fiörð vestur í Gróttu.
Aformum um vernd hraunminja
frá Búrfelli alla leið til sjávar á að
hrinda í framkvæmd, m.a. til að
auka möguleika fólks á útivist og
bættum lífsgæðum.
ö.Hver eru brýnustu samgöngu-
málin í þínu kjördæmi? Halda þarf
uppbyggingu stofnbrauta áfram
vegna aukinna umferðar. Gera
þarf úrbætur á Reykjanesbrautinni
í gegnum Hafnarfjörð, Garðabæ
og Kópavog með breikkun og
mislægum gatnamótum. Klára
þarf ný vegamót við Vesturlands-
veg/Þingvallaveg því þar er talsverð
slysahætta í dag. Bæta þarf m.a.
Álftanesveg og Kjósarskarðsveg.
Einnig er stórverkefni framundan
á Hafnarfjarðarveginum í gegnum
Garðabæ því þar er mikil uppbygg-
ing áætluð og vegurinn annar ekki
komandi umferð í óbreyttri mynd.
6. Hver ætti skattprósentan
(tekjuskattur) að vera í lok næsta
kjörtímabils? Eðlilegt er að skatt-
prósentan verði lækkuð enn frekar
gefist til þess svigrúm. Á sviði
skattamála teljum við þó brýnna að
horfa fyrst til þess að hækka skatt-
leysismörk, afnema stimpilgjöld,
draga úr tekjutengingum barna-
bóta og bæta kjör ýmissa hópa
í samfélaginu, t.d. með hækkun
frítekjumarks á atvinnutekjur lífeyris-
þega og að frítekjumark verði sett á
greiðslur úr lífeyrissjóðum.
7. Er svigrúm fyrir frekari stór-
iðju- eða virkjanaframkvæmdir
á næsta kjörtímabili? Slíkar
framkvæmdir eru háðar frjálsum
samningum aðila en við teljum að
rúm sé fyrir þær í hagkerfinu. Ljóst
er þó að framkvæmdir af þessum
toga krefjast mikils og vandaðs
undirbúnings. Æskilegt er að slíkri
uppbyggingu verði þannig háttað
að hún ógni ekki stöðugleika í
efnahagslífinu.
8. Ertu fylgjandi því að breyta
núverandi styrkjakerfi til land-
búnaðar á íslandi? Framtíðar-
fyrirkomulag þessara mála
ræðst nokkuð af niðurstöðum
Doha-viðskiptalotunnar innan
Heimsviðskiptastofnunarinnar
sem við íslendingar tökum þátt í.
Á þessari stundu er óljóst hvað út
úr viðræðunum kemur.
9. Hvaða hugmyndir hefur þú
til atvinnuuppbyggingar í þínu
kjördæmi? Framtíðarfyrirkomulag
þessara mála ræðst nokkuð af nið-
urstöðum Doha-viðskiptalotunnar
innan Heimsviðskiptastofnunar-
innar sem við íslendingar tökum
þátt í. Á þessari stundu er óljóst
hvað út úr viðræðunum kemur.
Aukinheldur hafa íslendingar gert
víðtæka fríverslunarsamninga,
bæði tvíhliða og innan vébanda
EFTA og nýlega náðust samningar
um tollalækkanir, m.a. á landbúnað-
arafurðum, við Evrópusambandið.
Við munum áfram verja innlenda
matvælaframleiðslu en viljum
jafnframt að gerð verði ítarleg at-
hugun á kostnaði íslenskra búvara
frá haga til maga og að allra leiða
verði leitað til að lækka sem flesta
kostnaðarliði. Unnið verði að því að
lækka kostnað bænda vegna eftir-
lits opinberra aðila með starfsemi
þeirra og jafnframt einfalda reglu-
verk í sama tilgangi.
10. Á ísland að hefja undirbúning
að inngöngu í ESB og upptöku
evrunnar? Afstaða (slendinga til
Evrópusambandsins hefur lengi
verið til umræðu. Framsóknarmenn
vilja taka virkan þátt í málefna-
legum umræðum um allar hliðar Evr-
ópumála. Við teljum ekki tímabært
að taka núverandi afstöðu íslands
til endurmats fyrr en við höfum
tryggt hér langvarandi jafnvægi og
varanlegan stöðugleika í efnahags-,
atvinnu- og gjaldeyrismálum. Við
eigum ekki að lúta nauðhyggju
heldur taka ákvarðanir út frá okkar
eigin þjóðarmetnaði og eigin
styrkleikum.
Kolbrún Stefánsdóttir
Frjálslyndum
1. Hver eru 3 brýnustu
málefnin á landsvísu?
Auka stöðugleika í efna-
hags- og atvinnumálum.
Velferðarmál: Skattleysis-
mörk hækki í 150 þúsund
upp að 1.8 milljóna kr. árs-
tekjum en 112.000,- yfir þeim tekju-
mörkum. Fjármagnstekjuskattur á
lífeyrisgreiðslur og afnám tekjuteng-
ingar bóta við tekjur maka. Frítekju-
mark að 1. milljón kr.
Byggðamál: Þ.e. samgöngu- sjávar-
útvegsmál og ferðaþjónusta.
2. Hver eru 3 brýnustu málefnin
í þínu kjördæmi? Samgöngumál:
Hafnarfjarðarvegur, Arnarnesvegur,
Vesturlandsvegur og Sundabraut.
Menntamál: Fjölgun fjölbrautaskóla
bæði í Mosfellsbæ og Kópavogi.
Velferðarmál: Fjölgun hjúkrunar-
rýma og aukning á heimahjúkrun
og heimaþjónustu.
Þjónustuna til fólksins sem þarf
hana en ekki öfugt.
3. Á að flytja aukin verkefni
frá ríki til sveitarfélaga? Já,
nærþjónustu í heilbrigðismálum og
menntun, t.d. fjölbrautaskólana.
4. Hver eru brýnustu umhverfis-
málin í þínu kjördæmi? Mengun
frá umferðinni. Hreinsun gatna
og opinna svæða . Auka umhirða
grænu svæðanna.
5. Hver eru brýnustu sam-
göngumálin í þínu kjördæmi?
Tvöföldun Hafnarfjarðarvegarins
gegnum Garðabæinn. Bæta Arn-
arnesveginn, tvöfalda Vesturlands-
veg að Hvalfjarðargöngum. Bæta
Nýbýlaveg m.t.t. nýrrar byggðar við
Lund og í Kársnesi og flýting Sunda
brautar. Samvinna við Reykjavík
til að liðka fyrir umferð þangað er
nauðsynleg.
6. Hver ætti skattprósentan
(tekjuskattur) að vera í lok
næsta kjörtímabils? Ómögulegt
að segja til um það, en eins lág
kostur er.
7. Er svigrúm fyrir frekari stór-
iðju- eða virkjanaframkvæmdir
á næsta kjörtímabili? JTel að
næsta kjörtímabil verði notað til
undirbúningsvinnu fyrir frekari fram-
kvæmdirt.d. á Húsavík. Atvinnumál
verða að vera í góðu lagi um allt
land. Ég vil hafa nátturuvernd í
forgrunni við allar framkvæmdir. Ég
er umhverfissinni eins og allir íslend-
ingar sem ég þekki.
8. Ertu fylgjandi því að breyta
núverandi styrkjakerfi til land-
búnaðar á íslandi? Já, til hags-
bóta fyrir bændur, m.a. til að auka
valmöguleika þeirra og til eflingar
byggðar um allt land.
9. Hvaða hugmyndir hefur þú
til atvinnuuppbyggingar í þínu
kjördæmi? Næg atvinna er í
kjördæminu eins og er en ég vil að
nýsköpunarfyrirtækjum og frum-
kvöðlum verði veitt brautargengi.
Markaðurinn sér sjálfur um að laða
að framleiðslu-og þjónustufyrirtæki.
10. Á ísland að hefja undir-
búning að inngöngu í ESB og
upptöku evrunnar? Skoða þarf
alla möguleika en ég tel hvorugt
tímabært eins og staðan er í dag
Jakob Frímann
Magnússon
íslandshreyfingunni
1. Hver eru 3 brýnustu
málefnin á landsvísu?
Mest aðkallandi
úrlausnarefni samfé-
lagsins tengjast öll
innbyrðis og eru hin
sömu og íslandshreyf-
ingin teflir fram sem meg-
ináherslum sínum í órofa þrílitu
hringtákni: Umhverfismál sem vísa
beint á auðlinda- og efnahagsmál
sem eru grunnur öflugrar velferðar-
stefnu. Markmið okkar er skýrt: Að
skila börnum okkar betra landi en
okkur var treyst fyrir.
2. Hver eru 3 brýnustu málefnin í
þínu kjördæmi?
Velferðarmálin, umhverfis- og
samgöngumálin auk efnahags- og
atvinnumála.
Að bæta úr aðhlynningu og velferð
hinn öldruðu, þeirra sömu og skópu
forsendur og innviði samfélagsins
okkar. Framkoma okkar gagnvart
þessu fólki er okkur til skammar,
.m.t. biðlistar, skattpíning og
laun umönnunarstétta sem
erfiðlega gengur að manna.
Þá þarf tafarlaust að bæta
kjör og aðbúnað þeirra sem
búa við skerta orku eða
aðra vanheilsu og treysta
jafnframt stoðir uppeldis- og
skólakerfisins.
Með árvekni og útsjónarsemi á að
laða ný fyrirtæki á öllum sviðum, inn-
lend sem erlend, að Suðvesturkjör-
dæmi og auka þar með skatttekjur
sveitarfélaga þessa stærsta kjör-
dæmis landsins. Skatttekjurnar á að
nýta til eflingar og betrumbóta þess
hluta samfélagsins sem sveitarfé-
lögin bera ábyrgð á. Marel, Latibær,
Vistor o.fl. o.fl. eru dæmi um blóm-
lega og nútímalega atvinnustarfsemi
sem stuðla ber að í kjördæminu.
3. Á að flytja aukin verkefni frá
ríki til sveitarfélaga?
Það er líklegt að þeim málum sé
best sinnt á sveitarstjórnarstigi er
varða einstaklinginn beint, þ.m.t.
hjúkrun, menntun og aðhlynning al-
mennt. Þetta hefur verið viðurkennt
á fslandi en ekki nægilega vel um
hina fjárhagslegu hnúta búið. Úr því
þarf tafarlaust að bæta.
4. Hver eru brýnustu umhverfis-
málin í þínu kjördæmi?
Aö stemma stigu við mengandi stór-
iðju á þéttbýlissvæðum jafnframt
því að efla græna vitundarvakningu
á heimilum með flokkun sorps og
endurvinnslu að leiðarljósi.
5. Hver eru brýnustu sarrigöngu-
málin í þínu kjördæmi?
Að einhenda sér í úrbætur á leið-
inni milli Hafnarfjarðar og Reykja-
víkur, þó fyrr hefði verið.
6. Hver ætti skattprósentan
(tekjuskattur) að vera í lok næsta
kjörtímabils?
íslandshreyfingin vill markvisst
lækka skatta á einstaklinga og
fyrirtæki en byrja á því að setja
skattleysismörk við kr. 142.600
kr. sem bæta mundi kjör hinna
efnaminnstu til muna. Þessi tala er
sú upphæð sem gilda mundi í dag,
hefðu stjórnvöld leyft skattleysis-
mörkum að fylgja verðlagsþróun
undanfarin 12 ár.
íslandshreyfingin vill koma skattpró-
sentu á einstaklinga niður fyrir 30%
á kjörtímabilinu og stíga fyrstu skref
til að gera það mögulegt með tafar-
lausu stóriðjuhléi og því að draga
úr almennri þenslu í landinu sem er
forsenda bæði tekjuskattslækkunar
og afnáms verðtryggingar sem við
viljum burt hið fyrsta.
7. Er svigrúm fyrir frekari stór-
iðju- eða virkjanaframkvæmdir á
næsta kjörtímabili?
Það er afar mikilvægt að ná sátt
með þjóðinni um frekari skuldbind-
ingar á framsali náttúru (slands og
auðlindir, nú rétt eftir stærstu og
umdeildustu framkvæmd fslands-
sögunnar við Kárahnjúka. Sáttavilji
núverandi ríkisstjórnar í þessum
efnum er ekki sýnilegur. Þvi er það
algert forgangsmál að fella þessa
stóriðjustjórn, því eins og fyrr segir
eru umhverfismál, auðlindamál
og efnahagsmál fletir á sama hjóli.
Þensla hagkerfisins sem tengist
bæði stóriðjunni og eignabröltinu
í kringum auðlindir okkar stendur
sömuleiðis í vegi fyrir nauðsyn-
legum þjóðþrifamálum á borð við
afnám verðtryggingar og lækkun
skatta.
8. Ertu fylgjandi því að breyta
núverandi styrkjakerfi til land-
búnaðar á íslandi?
íslandshreyfingin telur núver-
andi fyrirkomulag íslensks
landbúnaðar hvorki bændum né
neytendum samboðið. Efla ber það
frumkvæði sem nýverið hefir orðið
vart í mjólkurframleiðslu, þar sem
bændur hafa tekið sig saman um
að hafna mjólkurkvótakerfinu sem
hefur hneppt þá í skuldafjötra en
framleiða sína mjólk utan kvóta og
þess forn-sovéska beingreiðslufyr-
irkomulags sem tíðkast hefur um
árabil. Áfram nýfrjálsir íslenskir
bændur!
9. Hvaða hugmyndir hefur þú
til atvinnuuppbyggingar í þínu
kjördæmi?
Um leið og við gerum kröfu um
gjaldfrjálsa menntun og heilbrigðis-
þjónustu öllum til handa bendum
við á þau augljósu tækifæri sem fel-
ast í rekstri sérhæfðra menntastofn-
ana og veitt geta atvinnu okkar ört
vaxandi menntastéttum. Líftækni-
og þekkingariðnaður fela sömu-
leiðis í sér ótal tækifæri og ekki síst
upplifunariðnaðurinn sem reyndar
er sagður stærsti vaxtarbroddur
atvinnulífs í heiminum í dag. Hluti af
honum er menningargeirinn sem í
dag mælist 5% af landsframleiðslu
íslendinga.
Ætli Latibær sé ekki augljósasta
dæmið um möguleikana á þessu
sviði. Að þessu frátöldu eru fram-
kvæmdir og úrbætur á samgöngu-
mannvirkjum í kjördæminu gott dæmi
um það sem ekki þolir frekari bið .
10. Á ísland að hefja undirbúning
að inngöngu í ESB og upptöku
evrunnar?
[ Ijósi þess að íslensk fyrirtæki
á borð við Straum Burðarás eru
þegar byrjuð að gera upp í evrum
og greiða starfsfólki sínu í evrum
komumst við ekki hjá því að setja
þessi mál á dagskrá og láta reyna á
möguleika okkar til að ná ásætt-
anlegum samningum. Innganga
kemur hins vegar ekki til mála
nema þjóðinni sé tryggt sjálfræði
yfir auðlindum sínum. Að lokinni
ítarlegri úttekt á samningsstöðu
okkar og möguleikum verður ís-
lenska þjóðin að taka afstöðu með
þjóðaratkvæðagreiðslu.
kveður á um víðtæka þátttöku
íbúa og hagsmunaðaðila
til að ná sátt um þessi
mikilvægu mál.
5. Hver eru brýnustu
samgöngumálin
f þínu kjördæmi?
Hafnarfjarðarvegur,
Arnarnesvegur,
Vesturlandsvegur og
Suðurlandsvegur.
6. Hver ætti skattprósentan
(tekjuskattur) að vera í lok næsta
kjörtímabils? Skattbyrði á að
lækka á tekjuminnstu hópana,
þ.m.t. aldraða og barnafjölskyldur.
7. Er svigrúm fyrir frekari stór-
iðju- eða virkjanaframkvæmdir
á næsta kjörtímabili? Við viljum
kæla hagkerfið, vinna ramma-
áætlun um náttúruvernd, ná stöðug-
leika í efnahagslífinu fyrir heimilin í
landinu.
8. Ertu fylgjandi því að breyta
núverandi styrkjakerfi til landbún-
aðar á íslandi? Já, Samfylkingin
vill ná nýrri þjóðarsátt um land-
búnað á íslandi, neytendum, fram-
leiðendum og bændum til hagsbóta.
9. Hvaða hugmyndir hefur þú
til atvinnuuppbyggingar í þínu
kjördæmi? Samfylkingin hefur lagt
fram metnaðarfullar tillögur sem
miða m.a. að því að fjölga störfum
í hátækniiðnaði. Þessar tillögur
fengu 1., 2. og 3. verðlaun á Sprota-
þingi iðnaðarins nú í vor. Samfylk-
ingin og atvinnulífið tala sama mál
þessu tengt.
10. Á ísland að hefja undirbúning
að inngöngu í ESB og upptöku
evrunnar? Já, við viljum skilgreina
samningsmarkmið og leita eftir nið-
urstöðu í þjóðaratkvæðagreiðslu.
Slík vinna tekur nokkur ár og er
mikilvægt að ná stöðuleika í efna-
hagslífinu áður en þjóðin gerir upp
hug sinn. Við viljum að (slendingar
standi jafnfætis nágrannaþjóðum
okkar í Evrópu varðandi matvæla-
verð, vexti og verðbólgu.
Þorgerður Katrín
Gunnarsdóttir
Gunnar Svavarsson
Samfylkingunni
1. Hver eru 3 brýnustu málefnin á
landsvísu? Velferðarmál, efnahags-
mál og menntamál
2. Hver eru 3 brýnustu málefnin í
þínu kjördæmi? Velferðarmál, sam-
göngumál og efnahagsmál
3. Á að flytja aukin verkefni frá
ríki til sveitarfélaga? (Ef já, hvaða
verkefni? Ef nei, hvers vegna ekki?)
Já, öldrunarmál og tryggja að fjár-
munirfylgi verkefnaflutningnum.
4. Hver eru brýnustu umhverfis-
málin í þínu kjördæmi? Að vinna
rammaáætlun um náttúruvernd og
innleiða Árósarsamninginn sem
Sjálfstæðisflokknum
1. Hver eru 3 brýnustu málefnin á
landsvísu? Við þurfum að tryggja
öflugt atvinnulíf, halda áfram
sókninni í menntamálum og bæta
aðbúnað og kjör eldri borgara.
2. Hver eru 3 brýnustu málefnin
í þínu kjördæmi? Það þarf að
halda áfram að bæta samgöngur í
kjördæminu sem og áframhaldandi
uppbyggingu í málefnum eldri borg-
ara. Þá er Ijóst að vegna fjölgunar
íbúa verður að opna tvo nýja fram-
haldsskóla á næstu árum, annan í
Mosfellsbæ og hinn í Kópavogi.
3. Á að flytja aukin verkefni frá
ríki til sveitarfélaga? Já, til dæmis
þau málefni eldri borgara sem hafa
verið á könnu ríkisins sem og mál-
efni fatlaðra.
4. Hver eru brýnustu
umhverfismálin í þínu
kjördæmi?
Það er mikilvægt
verkefni að draga úr
mengun af völdum
bifreiða. Ég tel að
besta leiðin að því mark-
miði sé að búa til hvata
er ýta undir notkun vistvænna
ökutækja.
5-Hver eru brýnustu samgöngu-
málin í þínu kjördæmi? Það þarf
að Ijúka við tvöföldun Vesturlands-
vegar og Reykjanesbrautar sem
og Hafnarfjarðarvegar þannig að
tryggð verði greið leið til suðurs.
Þegar hefur verið tekin ákvörðun
um mikilvægar framkvæmdir svo
sem mislæg gatnamót sem flýta
verður eins og kostur er.
6. Hver ætti skattprósentan
(tekjuskattur) að vera í lok næsta
kjörtímabils? Það ber að stefna
að enn frekari lækkun tekjuskatts
einstaklinga. Sjálfstæðisflokkurinn
hefur ekki nefnt neina tiltekna tölu í
því sambandi, það verður að ráðast
af aðstæðum. Það mikilvæga er
að tryggt verði að tekjuskattspró-
sentan verði lækkuð á tímabilinu.
7. Er svigrúm fyrir frekari stór-
iðju- eða virkjanaframkvæmdir á
næsta kjörtímabili? Það ber alls
ekki að útiloka frekari uppbyggingu
atvinnulífsins með þeim hætti, slík