blaðið - 08.05.2007, Page 15
blaðió ÞRIÐJUDAGUR 8. MAÍ 2007
KOSNINGAR 2007- 31
áform verða þó að standast um-
hverfiskröfur og mega ekki raska
aðstæðum í hagkerfinu.
8. Ertu fylgjandi því að breyta
núverandi styrkjakerfi til landbún-
aðar á íslandi? Það þarf að búa
landbúnaði þau skilyrði að hægt
sé að draga úr tollum og lækka
framleiðslustyrki. Markaðslögmál
eiga að gilda í landbúnaði rétt eins
og í öðrum atvinnugreinum en það
má ekki grípa til aðgerða sem leiða
til kollsteypu eða hruns í geiranum.
Við verðum að vinna að þessu mark-
miði í góðri sátt og samvinnu við
bændur.
9. Hvaða hugmyndir hefur þú til
atvinnuuppbyggingar í þínu kjör-
dæmi? Það er ekki þörf á neinum
sértækum aðgerðum ríkisvaldsins
til atvinnuuppbyggingar í Suðvest-
urkjördæmi. Hins vegar verður hið
opinbera að standa vörð um starfs-
umhverfi fyrirtækja og tryggja að
aðstæður þeirra séu eins og best
verður á kosið. Það er öruggasta
atvinnustefnan.
10. Á ísland að hefja undirbúning
að inngöngu í ESB og upptöku
evrunnar? Nei, það er ekkert sem
knýr á um ESB-aðild (slands eins
og staðan er í dag. Hagsmunir
okkar á öllum sviðum í samskiptum
við sambandið eru vel tryggðir
með EES-samningnum og aðild að
Schengen-svæðinu. Við verðum
hins vegar að halda vöku okkar og
tryggja að hagsmunir íslands séu
ávallt tryggðir með viðunandi hætti.
Ögmundur Jónasson
Vinstri grænum
1. Hver eru 3 brýnustu málefnin á
landsvísu?
í kosningabaráttunni höfum við
minnt kjósendur á að við stöndum
frammi fyrir því að velja félagslegt
réttlæti í anda norrænnar velferðar
eða samfélag sem mismunar þegn-
unum. (skoðanakönnunum hefur
ítrekað komið fram að þjóðin vill
hið fyrra en hefur engu að síður
ítrekað kosið yfir sig boðbera
þess síðara. í komandi kosningum
er tækifæri til að leiðrétta þetta
misræmi. í öðru lagi blasir
sú raunverulega hætta við
- haldi ríkisstjórnin velli
- að stóriðjufárið haldi
áfram af fullum krafti
með tilheyrandi spjöllum
á náttúru og efnahagslífi
og þá einnig að orkufyrirtæki
landsins verði seld. Það yrði hrika-
legt slys sem VG myndi berjast
gegn af miklum krafti. ( þriðja lagi
beitum við okkur af alefli í baráttu
fyrir réttindum kvenna almennt,
gegn kynbundnum launamun og
kynbundnu ofbeldi. Þessu tengt
er að bæta kjör og vinnuskilyrði
innan velferðarþjónustunnar sem
að uppistöðu til er borin uppi af
kvennastéttum.
2. Hver eru 3 brýnustu málefnin f
þínu kjördæmi?
Erfitt er að aðgreina málefni
einstakra kjördæma frá hagsmuna-
málum allra landsmanna. í Suð-
vesturkjördæmi brenna málefni
aldraðra á fólki enda biðlistar þar
mjög langir eftir hjúkrunarrýmum.
Úr þessu þarf að bæta með því
að efla heimahjúkrun - það eitt
myndi strax stytta biðlistana
verulega. Síðan þarf einnig að
fjölga hjúkrunarrýmum. Ekki er
þó síður nauðsynlegt að efla þær
velferðarstofnanir sem fyrir eru, því
vinnuálagið er þegar farið að valda
stórfelldum flótta úr umönnunar-
og hjúkrunarstéttunum.
(öðru lagi eru samgöngumálin
mjög oft nefnd þegar fólk er spurt
álits á mest knýjandi útrlausnar-
efnum í kjördæminu. Um það liggja
fjölförnustu samgönguæðar lands-
ins og þarf að tryggja að þær séu
eins greiðfæarar og kostur er. Hér
þarf að hugsa langt fram í tímann
og hljótum við þá að komast að
þeirri niðurstöðu að brýnt sé að
stórefla almenningssamgöngur.
Það getur ríkið gert með því að
fella niður skatta og tolla á almenn-
ingsfarartæki, líkt og gert er
gagnvart landsbyggðinni.
Álkosningin í Hafnarfirði
markaði tímamót því þá
var stigið skref í þá átt að
beina atvinnuþróuninni inn
á aðrar brautir en hér hafa
verið farnar undanfarin ár. Mikil-
vægt er að í stað aukins áliðnaðar
nái annað atvinnulíf að blómstra.
Framlag Hafnfirðinga til heimila og
atvinnulífs í kjördæminu og á lands-
vísu var mikilvægt því með þessari
niðurstöðu var dregið úr þenslu og
þar með háum vöxtum. Stjórnvöld
eiga íbúum kjördæmisins þá skuld
að gjalda að gera allt sem unnt er
til að greiða fyrir vexti fjölbreytts
atvmnulífs í kjördæminu.
3. Á að flytja aukin verkefni frá
ríki til sveitarfélaga?
Það fer algerlega eftir því hvaða
fjármagn fylgir þjónustunni. Áður
en nokkrir flutningar fara fram
verður að losa sveitarfélög úr
ríkjandi fjársvelti og tryggja þeim
auknatekjustofna. Það höfum
við lagt til á Alþingi og teljum að
um 5 milljarða tilfærslu þurfi til að
sveitarfélögin geti sinnt lögboðinni
þjónustu svo vel sé. Á síðasta kjör-
tímabili flutti VG ítrekað tillögur um
að bæta stöðu sveitarfélaganna.
4. Hver eru brýnustu umhverfis-
málin íþínu kjördæmi?
(þessu kjördæmi sem öðrum þarf
að vinna að því að stöðva áform um
frekari stóriðju og veita efnahags-
og atvinnulífi svigrúm til að jafna sig
eftir þenslu undanfarinna ára. Við
viljum leggja okkar af mörkum til
að stuðla að fjölbreyttri atvinnuupp-
byggingu í sátt við umhverfi og nátt-
úru. Þá leggjum við áherslu á að
við öxlum ábyrgð í loftslagsmálum
með því að draga verulega úr losun
gróðurhúsalofttegunda. Við teljum
mikilvægt að allar skipulagsákvarð-
anir sem raska viðkvæmri náttúru
fari í umhverfismat og að þegar
ágreiningur er uppi verði efnt til
víðtækrar samræðu við íbúa.
5. Hver eru brýnustu samgöngu-
málin í þínu kjördæmi?
Tryggja þarf greiðar samgöngur
á leiðum í gegnum þéttbýliskjarn-
ana en þær eru hinar fjölförnustu
í landinu. Þá er mjög brýnt að efla
almenningssamgöngur. (þriðja
lagi þarf að greiða fyrir hjólreiða-
umferð. (fjórða lagi er rétt að
huga að hvers kyns samgöngum
sem tengjast útivist, hvort heldur
erfyrir gangandi, hlaupandi eða
ríðandi umferð. Kjördæmið státar
af miklum hesthúsabyggðum
og er mikilvægt að skipuleggja
umferð og samgöngur með tilliti til
hestamanna.
6. Hver ætti skattprósentan
(tekjuskattur) að vera í lok
næsta kjörtfmabils?
Vinstrihreyfingin - grænt framboð
hefur ekki áform um að breyta
skattstiginu frá því sem verið hefur.
Einvörðungu yrði um að ræða
tilfærslur.
7. Er svigrúm fyrir frekari stór-
iðju- eða virkjanaframkvæmdir
á næsta kjörtímabili?
Nei, núverandi stóriðjufram-
kvæmdir hafa reynt um of á þanþol
efnahagskerfsins, valdið mikilli
þenslu og m.a. leitt til gríðarlegrar
hækkunar vaxta sem hefur reynst
skuldsettum fyrirtækjum og heim-
ilum landsins þungur baggi.
8. Ertu fylgjandi því að breyta nú-
verandi styrkjakerfi til landbún-
aðar á íslandi?
Vinstrihreyfingin - grænt framboð
leggur áherslu á að íslenskur land-
búnaður vaxi og dafni enda færir
hann þjóðinni heilnæmari matvöru
en víðast hvar er hægt að fá. Okkur
ber að sýna framsýni og taka mið
af alþjóðlegri þróun hvað snertir
verslun og viðskipti með landbún-
aðarvörur. Á næsta kjörtímabili
er nauðsynlegt að hefja vinnu við
að undirbúa íslenskan landbúnað
fyrir væntanlega alþjóðasamninga
um verslun með landbúnaðaraf-
urðir. Markmiðið verði að greinin
fái hæfilega langan aðlögunartíma
til að mæta samkeppni og sækja
fram á erlendum mörkuðum, t.d.
með því að breyta hluta núverandi
framleiðslustyrkja í búsetutengdan
stuðning. ( því sambandi verði
gætt jafnt að ólíkum búgreinum og
þeim tryggð sambærileg starfsskil-
yrði eftir því sem kostur er.
9. Hvaða hugmyndir hefur þú
til atvinnuuppbyggingar í þínu
kjördæmi?
Fjölbreytt og góð menntun skiptir
sköpum fyrir framtíðina og ber að
hlúa að iðnmenntun ekki síður en
menntun á öðrum sviðum. Við
viljum byggja upp hátækni- og
þekkingargreinar með því að
styrkja rannsóknir og nám á
háskólastigi um land allt og efla
samkeppnissjóði. Frumkvæði ein-
staklinga og sköpunarkraftur þarf
að njóta sín en slíkt er illgerlegt í
því þenslu- og hávaxtaumhverfi
sem við erum í nú. VG vill skapa
hagstæðari rekstrarskilyrði fyrir lítil
og meðalstór fyrirtæki og skiptir
þá ekki síst máli að ná fjármagns-
kostnaði niður. Við viljum efla
sveitarfélögin með auknum tekjum
þannig að þau geti hlúð betur að
velferðarstofnunum og atvinnulífi.
10. Á ísland að hefja undirbúning
að inngöngu í ESB og upptöku
evrunnar?
Innganga í Evrópusambandið
ásamt tilheyrandi framsali á fullveldi
og sjálfstæði þjóðarinnar þjónar
ekki hagsmunum (slands að mati
VG.
Áfram árangur
Þegar Framsóknarflokkurinn
settist í ríkisstjórn árið 1995 var
markvisst farið í að efla hér at-
vinnuuppbyggingu og nýsköpun,
enda lofaði flokkurinn 12 þúsund
nýjum störfum á kjörtímabilinu
sem í hönd fór. Það loforð var efnt
og gott betur. í því kristallast sú
áhersla framsóknarmanna að und-
irstaða velferðar og samhjálpar
er öflugt atvinnulíf og kröftug
nýsköpun.
Traustur efnahagur
Árangurinn hefur ekki látið á sér
standa. Á þessum tíma hefur staða
ríkissjóðs tekið stakkaskiptum,
skuldir ríkisins eru óverulegar
og efnahagur traustari en áður í
sögu lýðveldisins. Horfur eru á að
kaupmáttur hafi aukist um u.þ.b.
75 prósent frá 1994-2007. Að auki
hefur orðið veruleg raunaukning
fjármagns til velferðarmála.
ÉUndirstaða
velferðar og
samhjálpar er
L öflugt atvinnulíf
Umrœðan
Sæunn Stefánsdóttir
• Framlög ríkisins til heilbrigðis-
mála hafa aukist frá árinu 1998
um 49 prósent.
• Framlög ríkisins til almanna-
trygginga og velferðarmála hafa
aukist um 45 prósent á sama
tíma.
• Framlög ríkisins til fræðslumála
hafa aukist frá 1998 um 59 pró-
sent og til háskólastigsins um 80
prósent að raungildi.
Styrk stjórn efnahagsmála hefur
því ekki aðeins leitt af sér lengsta
samfellda vaxtarskeið kaupmáttar
og hagvaxtar í íslandssögunni,
heldur hefur á sama tíma verið
byggt upp enn öflugra velferðar-
kerl'i. Með áframhaldandi uppbygg-
ingu öflugs atvinnulífs og árangri
áfram er unnt að gera enn betur
í þeirri samhjálp sem við viljum
geta boðið fólki um land allt.
Lengra fæðingarorlof
Það svigrúm sem við það skapast
viljum við framsóknarmenn m.a.
nýta til að hækka skattleysismörk
í 100 þúsund krónur, fella niður
stimpilgjöld, breyta fjölbýlum á
dvalar- og hjúkrunarheimilum í
einbýli, hækka frítekjumark á at-
vinnutekjur lífeyrisþega og setja frí-
tekjumark á lífeyrissjóðsgreiðslur,
auka fjármagn og mannafla lög-
reglu, setja nýja jafnréttislöggjöf,
lengja fæðingarorlof í 12 mánuði
og koma á gjaldfrjálsum leikskóla í
samvinnu við sveitarfélögin, koma
á ókeypis tannvernd til 18 ára ald-
urs og auka niðurgreiðslur á tann-
viðgerðum og breyta þriðjungi
námsiána í styrk ef námi lýkur á
tilskildum tíma.
Við viljum árangur áfram - ekk-
ert stopp.
Höfundur er þingmaður Framsóknarflokks