blaðið - 26.06.2007, Page 18
30
ÞRIÐJUDAGUR 26. JÚNÍ 2007
blaöíö
ÍÞRÓTTIR
ihrottir@bladid.net
1|; Á árunum 1999 til 2003 voru greiddir rúmir þrír milljarðar
króna fyrir fimm leikmenn. Á þeim fjórum árum sem
síðan eru liðin hefur aðeins einn leikmaðurfariðfyrir meira
en þrjá milljarða; Andriy Shevchenko hjá Chelsea.
jr
■0
SKEYTIN INN
Einn er sá
bakvörður
sem eftirsótt-
ari er en aðrir í
heiminum í dag en
það er hinn litríki
og stórfurðulegi
Daniel Alves hjá Sevilla. Alves
hefur nú í fyrsta skipti lýst áhuga á
að spila með Real Madrid en slíkar
yfirlýsingar eru jafnan lognið á und-
an storminum. Alves opnar engar
slíkar dyr nema Real hafi þegar haft
samband og lofað gulli og grænum...
Franska stórlið-
ið Marseille
hefur áhuga á
að fá Jon Dahl To-
masson til liðs við
sig en samningur
Tomasson við Stuttg-
art er að renna út. Franska liðið er
talið liklegt til að heilla peyjann sem
enn sem komið er hefur aðeins eitt
tilboð upp á vasann frá Grikklandi.
A
Italska dagblaðið
II Sole 24 Ore
greinir frá því
að knattspyrnu-
lið í efstu deild í
landinu séu afar
skuldsett.Reiknast
blaðinu til að heildarskuldirnar
nemi tæpum 33 milljörðum króna
og eru meistarar Inter Milan verst
settir með helming af þeirri skuld.
Udinese og AC Milan eru einu félög-
in réttum megin við bóhaldsstrikið.
Eiður Smári
Guðjohnsen
ítrekaði þá
ósk sína að vera
áfram í herbúðum
Barca í dagblöðum
Börsunga eftir að
ljóst varð að Thierry Henry bættist
í vaskan hóp leikmanna Uðsins.
Sagðist hann ekkert annað vita en að
hann yrði áfram en miklar vangavelt-
ur eru uppi um að hann verði seldur.
Ljóst er að hann þykir ekki hafa
staðið undir væntingum í vetur og
hjá Barcelona eru engin tvö tækifæri.
Stjómarmeð-
limirArsenal
eruekkiá
eitt sáttir um þá
hugmynd Arsene
Wenger þjálfara að
fá Nicholas Anelka
aftur til liðsins til að fýlla 1' skarð
Thierry Henry. Aukast enn líkurnar
á að Wenger fylgi í fótspor Henry
og láti sig hverfa frá liðinu fýrr en
síðar. Henry er sem fýrr segir á leið
til Eiðs Smára og félaga í Barcelona
og ætlar að enda ferilinn þar.
Fyrstu stórkaup sumarsins Markaðurinn líflaus að öðru leyti
Eftir Albert Örn Eyþórsson
albert@bladid.net
Loksins kom að því! Stórstjarnan
Thierry Henry er farinn frá Arsenal
til Barcelona eftir átta stórkostleg ár
fyrir rúma tvo milljarða og ætlar að
enda ferilinn suður með sjó. Ekki
aðeins er hitastigið hærra heldur er
stutt á ströndina og vasapeningarnir
ekki skornir við nögl; Henry fær 17
milljónir króna á viku eftir skatta.
Steindauður markaður
Kaup Barca á Frakkanum eru í
raun fyrstu stórkaup sumarsins á
leikmannamarkaðnum í Evrópu en
sá hefur verið með daufasta móti
hingað til þegar aðeins er rúm vika
þangað til leikmannaskiptaglugg-
inn opnast á ný eftir langt hlé.
Ef frá eru talin snilldarkaup Alex
Ferguson hjá Manchester United á
Hargreaves og ungstirnunum And-
erson og Nani sem hvor um sig voru
jafndýrir Henry mætti halda að um-
boðsmenn leikmanna í álfunni færu
líka í frí að leiktíðinni lokinni. Engin
óvænt tíðindi hafa litið dagsins ljós
og jafnvel þeir tveir milljarðar króna
sem Spánverjarnir greiða fyrir
Henry eru hálfgert stöðumælaklink
samanborið við upphæðir sem fyrir
nokkrum árum þóttu eðlilegar upp-
► Hjá Mónakó:
21 mark í 113 leikjum
► Hjá Juventus:
3 mörk í 16 leikjum
► Hjá Arsenal:
226 mörk í 370 leikjum
► Með Frakklandi:
35 mörk í 82 leikjum
hæðir fyrir stjörnur leiksins.
Á árunum 1999 til 2003 voru
greiddir rúmir þrír millj-
arðar króna fyrir fimm
leikmenn. Á þeim
fjórum árum
sem síðan eru
liðin hefur að-
eins einn leik-
maður farið
fyrir meira
en þrjá millj-
arða;Andriy
Shevchenko
hjá Chelsea.
Erlendis
velta spek-
ingar fyrir
sér hvað valdi og
tína tvennt til; ann-
ars vegar hafa fjöl-
mörg félög komist í einkaeigu auð-
kýfinga á þessum tíma. Auðkýfinga
sem gera kröfur um arð og hagnað.
Ríkir og fátækir
Það hangir saman við hitt að bilið
almennt milli ríku félaganna og
millistéttarfélaganna fer vaxandi.
Það skýrir að stórum hluta hreyfing-
arleysi á markaðnum því færri og
færri félög hafa efni á að kaupa
fallnar stjörnur af stórliðunum
og meðan þau geta ekki losað
sig við smærri spámenn er fyr-
irséð að þau kaupa heldur enga
nýja leikmenn á meðan.
Ein lausnin er að fara leið
þá er forsvarsmenn
Barca og Real
M a d r i d
eru að fara;
að halda
brunaút-
sölu á fimm
til sjö leik-
mönnum
sínum að
lokinni
leiktíð.
Thierry Henry
Kom til Arsenal
haustið 1999
en nú á leið til
Barcelona
HENRYí HNOTSKURN
Gleði í GR
Kylfingar úr Golfklúbbi
Reykjavíkur voru sigursælir
á þriðja móti Kaupþingsmóta-
raðarinnar sem fram fór á
Hólmsvelli á Suðurnesjum.
Ragnhildur Sigurðardóttir
vann nauman sigur á Nínu
Björk Geirsdóttur eftir að
hafa spilað síðustu holurnar
illa. Karlamegin bar Haraldur
Heimisson sigurorð af Davíð
Má Vilhjálmssyni.
Frábært mót
Alþjóðlega ungmennamótið
sem fram fór í Reykjavík um
helgina tókst vonum framar
og geta aðstandendur verið
stoltir af sínum verkum.
Aldrei hefur stærra mót með
fleiri keppendum verið haldið
hérlendis.
Heimasigur
Fyrrum heimamaðurinn Sig-
urpáll Geir Sveinsson sigraði
á Arctic Open-mótinu á Ak-
ureyri um helgina. Sigurpáll
hefur áður unnið þetta fræg-
asta mót íslands en 220 manns
voru skráðir til leiks og hafa
aldrei verið fleiri.
Út með Hreiðar
Landsliðsmarkvörðurinn
Hreiðar Guðmundsson hefur
gert samning við sænska
handknattleiksliðið Savehof.
Er þetta vatn á myllu Hreiðars
enda sænska deildin afar sterk.
Málaferli og lúxuslíf tóku sirtn toll
Jones gjaldþrota
Margfaldur Ólympíumethafi í
frjálsum íþróttum, Marion Jones,
er gjaldþrota en aðeins örfá ár eru
síðan hún var tekjuhæsta íþrótta-
kona heimsins.
Gögn um gjaldþrot Jones birt-
ust í Los Angeles Times. Ástæða
þessa eru langvinn málaferli við
fyrrverandi þjálfara og lúxuslíferni.
Þykir það tíðindum sæta enda var
hún um tíma milljarðamæringur
vegna afreka sinna í hlaupagreinum.
Vann hún meðal annars fimm verð-
laun, þar af þrenn gullverðlaun, á
Ólympíuleiknunum í Sidney um
aldamótin.