blaðið - 26.06.2007, Síða 22
ShHIKÖK.' ‘“THÍKD
iCedric thc Enteruiner lucy Uu
‘tóNNÍtfdiJfl
JKÓLABÍÓ
PREMONITION
FANTASTIC FOUR 2
H0STEL2
THEINVISIBLE
28WEEKS LATER
LIVES OF OTHERS
M. 5.30 og 8
PREMONITION
FANTASTIC FOUR 2
THE LASTMIMZY
áaafltífilll /ÁLFABAKKA
SHREK3 kl. 4-6-8-10:10 SHREK3VIP M. 8 -10:10
SHREK 3 W- ÍSL TAL M.4-6
OCEAN'S 13 M. 5:30-8-10:30 7
OCEAN'S 13 VIP M. 5:30
PIRATES CARRIBEAN 3 M. 6-8-10 10
ZODIAC kl. 6 - 9 16
R0BINS0N... M/-fSLTAL kl.4 L
SáVMfik. / KRINGLUNNI
SHREK3 kl. 8:15-10:20
SHREK 3 .' ÍSLTAL kl. 4:15-6:15
CODENAME CLEANER kl. 4-6-8-10:10 10
0CEANS13 kl. 8-10:30 7
PIRATES 3 kl.5 10
ÍHmÆ*. / AKUREYRI
SHREK3 BauTA' W.6-8
SHREK 3M/-ÍSLTAL M.6-8
áiMBÍálb! / KEFLAVÍK
SHREK THETHIRD kl.8
FANTASTIC F0UR kl.8 t
C0DE NAME... kl. 10
H0STEL2 M. 10 16
f PREMONITION W. 5.45,8 og 10.15
FANTASTIC FOUR 2 M. 6,8.20 og 10.30 L
THEH0AX M. 530,8 og 1030
28 WEEKS LATER W. 5.50,8 og 10.10 16
SmHRH^BÍÚ
SHREK 3 enskt tal M. 3,5,7,9:10 og 11:10 L
SHREK 3 LLJXUS M. 3.5,7,9:100011:10 L
| SHREK 3 íslenskt tal W.C ,5,7,9:10 og 11:10 L
FANTASTIC FOUR 2 kL 3.40,5.50,8 og 10.10 L
H0STEL2 W.8og10.10 18
| THE LASTMIMZY W.3 L
SPIDERMAN 3 ld.5 10
SHREK 3 enskt tal M. 4,6,8og10 L
SHREK 3 felenskt tal W.4,6og8 L
FANTASTIC FOUR 2 VU ,6,8og10 L
H0STEL2 W.10 18
ÞRIÐJUDAGUR 26. JUNI 2007
blaóiö
ORÐLAUSLÍFIÐ
ordlaus@bladid.net
Ég held að með því fáum
við fullt affólki í bíó sem
hefur annars engan áhuga á
því að fara í bíó
Madonna í fasteignabransanum
Á villur
vítt um
heiminn
Söngkonan Madonna festi nýlega kaup á sjöttu íbúð
sinni í Lundúnum en fyrir á hún glæsivillur víðs vegar
um heiminn. Stjarnan hefur eytt tveimur milljörðum
í fasteignir í borginni á undanförnum árum en tvær af
byggingunum sex tilheyra Kabbalah-söfnuði Madonnu.
Nýja eignin hefur tíu svefnherbergi og ætti því að
vera nóg pláss fyrir fjölskylduna sem mun ekki þurfa
að flytja langt þar sem umrædd íbúð er við hliðina
á núverandi heimili fjölskyldunnar. Ibúðina keypti
Madonna af hönnuðinum Paul Davies og borgaði hún
tæpar 400 milljónir króna fyrir og hafði þar betur en
ljósmyndarinn Mario Testino og leikkonan Jennifer
Saunders sem einnig gerðu tilboð í íbúðina.
Fasteignaumsvif Madonnu hafa verið umtalsverð á
undanförnum árum en hún á einnig eignir í sveitum
Bretlands, Frakklandi og í Bandaríkjunum og nú
er spurning hvort hún snúi sér alfarið að fasteigna-
viðskiptum þar sem hún hefur verið nokkuð róleg í
tíðinni ef miða má við afköst hennar undanfarin ár í
tónlistarbransanum.
Sveitasetur Madonna og Guy Höllin í L.A. Hjónin eiga
Ritchie eiga sveitasetur í Wilts- staerðarinnar eign í Los
hire-skíri í Bretlandi en setrið Angeles.
Alþjóðleg kvikmyndahátíð
Fjölbreytt og
viðamikil dagskrá
Taka því létt
Leikkonan Angelina Jolie
viðurkenndi nýlega í viðtali
við tímaritið Marie Claire að
þau Brad Pitt hefðu aldrei
sagt „ég elska þig“ hvort við
annað, að minnsta kosti ekki
á alvarlegu nótunum. „Ég er
viss um að við höfum sagt það
einhvern tímann en við höfum
ábyggilega ekki gert það nema
kýla hvort annað í öxlina fyrst
og gantast eitthvað með það.“
Parið ætlar einnig að taka sér
góðan tíma áður en þau ákveða
að ganga í hjónaband og hefur
Brad Pitt lýst því yfir að hann
muni ekki ganga aftur inn
kirkjugólfið fyrr en samkyn-
hneigð pör geta gert slíkt hið
sama í Bandaríkjunum.
Fæst í heilsubúðum og helstu
matvörumörkuðum landsins
Dreifing: Yggdrasill, S 544 4270, Suðurhrauni 12b, Garðabæ
Alþjóðleg kvikmyndahátíð í
Reykjavík fer fram í fjórða sinn í
lok septembermánaðar en á siðasta
ári sóttu um 15.000 íslendingar sýn-
ingar hátíðarinnar. Því er óhætt að
segja að hátíðin skipi stóran sess í
lífi margra með haustinu. Alþjóð-
leg kvikmyndahátíð hefur vakið
mikla athygli á erlendri grund en
dagblaðið Boston Pheonix sagði dag-
skrána eina þá „bestu á jörðinni" og
vefsíðan Stylus Magazine kallaði há-
tíðina „best geymda leyndarmálið á
hátíðarúntinum".
Að sögn Atla Bollasonar, eins af
skipuleggjendum Alþjóðlegrar kvik-
myndahátíðar, verður hátíðin í ár
með svipuðu sniði og í fyrra.
„Við erum búin að vera að byggja
upp markhóp fyrir alvöru kvik-
myndahátíðir sem hefur tekist mjög
vel og erum bara að halda áfram að
byggja á þeim grunni. Hugmyndin
með hátíðinni er að vera með mjög
fjölbreytta og viðamikla dagskrá
þannig að allir geti fundið eitthvað
við sitt hæfi, en á sama tíma erum
við að reyna að kynna eitthvað sem
er nýtt og ferskt og kannski öðruvísi,
eitthvað annað en týpískar formúlu-
myndir frá Hollywood. Það er verið
að sýna allar hliðar á kvikmynda-
gerð og ég held að með því fáum við
fullt af fólki í bíó sem hefur annars
engan áhuga á því að fara í bíó.“ Atli
vildi þó ekki staðfesta neina titla
enn sem komið er en sagði kvik-
myndaunnendur eiga von á góðu í
haust líkt og áður.
Kidman fyrir
Nintendo
Leikkonan Nicole Kidman
sem fagnaði fertugsafmæli
sínu í síðustu viku hefur gert
samning við tölvufyrirtækið
Nintendo. Stjarnan mun verða
andlit fyrirtækisins út á við í
markaðsherferð en fyrirtækið
er að kynna nýtt forrit sem
ætlað er eldra fólki og kallast
More Brain Training. Með
þessu vonast fyrirtækið til þess
að vekja athygli eldri kynslóð-
arinnar en hingað til hafa
vörur Nintendo einkum verið
ætlaðar ungum karlmönnum.
Kvikmynd
um Hefner
Playboy-kóngurinn Hugh
Hefner verður áttræður á árinu
og hefur nú fallist á að gerð
verði kvikmynd um líf hans, en
leikstjórinn Brett Ratner hefur
sótt hart að Hefner vegna þessa
undanfarin ár. Ekki fylgir þó
sögunni hver kemur til með að
fara með hlutverk Hefners en
sjálfur vil hann að Hugh Jack-
man taki hlutverkið að sér.
hilda@bladid.net