blaðið - 28.08.2007, Page 10
10
ÞRIÐJUDAGUR 28. ÁGÚST 2007
blaöiö
blaði
Útgáfufélag:
Ritstjóri:
Fréttastjórar:
Ritstjórnarfulltrúi;
Árvakur hf.
Ólafur Þ. Stephensen
Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir
Þröstur Emilsson
Elin Albertsdóttir
Af hverju ekki
skólabúningar?
Blaðið sagði frá því um helgina að 85% foreldra í Sæmundarskóla, nýjum
grunnskóla í Grafarholti, hefðu kosið að kaupa skólabúning á börnin sín. For-
eldrafélag og foreldraráð skólans bjóða upp á skólafatnaðinn í samráði við
skólastjórnendur.
f Blaðinu sagði Óttar Guðlaugsson, formaður foreldraráðsins í Sæmund-
arskóla, frá þvi að áhugi foreldra hefði komið á óvart; líklegt hefði verið talið
að um áramót yrði helmingur barnanna kominn í skólabúninga. Birni Inga
Hrafnssyni, formanni borgarráðs í Reykjavík, sem lengi hefur talað fyrir skóla-
búningum, kom áhuginn hins vegar ekki á óvart. Hann benti á að þar sem skóla-
fatnaður hefði verið notaður hefði verið mikil ánægja með hann.
Undanfarin ár hefur skólafatnaður verið notaður bæði í Áslandsskóla í Hafn-
arfirði og Ártúnsskóla í Reykjavík. Reynslan virðist í stuttu máli sú að skóla-
fötin efla liðsheild og samheldni í skólanum, draga úr einelti og áreiti og frelsa
foreldra að einhverju leyti undan þeirri kvöð að eltast í sífellu við tizkustrauma.
Því miður er sá eltingaleikur kominn jafnmikið út í öfgar hjá sumum börnum
og unglingum og hjá fullorðna fólkinu.
Óttar Guðlaugsson segir frá því í Blaðinu að faðir, sem átti þrjú börn í skól-
anum, hafi borgað samtals 27 þúsund krónur fyrir skólabúning á þau öll en hafi
þá verið nýbúinn að borga 22 þúsund krónur fyrir einar tízkugallabuxur!
Skólabúningar hafa hins vegar aldrei orðið ríkjandi á íslandi og spyrja má
hvers vegna. Kannski finnst einhverjum að með því að taka þá almennt upp
væri verið að steypa krakka í sama mót og gera alla eins. Það er rétt, svo langt
sem það nær. Fatnaðurinn er gerður eins, en það er þá gert í þágu þess að á
því sviði, sem skiptir máli í skólanum, fái hver og einn að njóta sín á eigin
forsendum.
Enginn er þá dæmdur eftir því hvort foreldrar hans hafa efni á 22 þúsund
króna gallabuxum, heldur eftir því hvernig hann stendur sig í námi eða félags-
starfi. Hæfileg samkeppni er holl og nauðsynleg í skólanum - en það á að vera
samkeppni milli heilabúa, ekki tízkufata. Skólinn er vettvangur til að læra, en
ekki tízkusýning.
Það er gott að frumkvæðið í þessum málum komi frá foreldrum og skólastjórn-
endum í einstökum skólum í stað þess að sveitarfélögin þröngvi einhverju upp á
fólk, sem það kannski vill ekki. Björn Ingi Hrafnsson telur hins vegar að Reykja-
víkurborg eigi að styðja við bakið á þeim, sem vilja taka upp skólabúninga.
Það getur borgin - og önnur sveitarfélög - gert t.d. með aðstoð við hönnun
og útboð slíkra búninga. Þannig ætti að vera hægt að slá tvær flugur í einu
höggi; ná niður verðinu á fatnaðinum, sem er auðvitað búbót fyrir foreldra, og
græða jafnframt á þeim breytingum á skólabragnum, sem reynslan sýnir að
fylgir skólabúningunum.
Nú þegar þessi jákvæða reynsla liggur fyrir hljóta foreldrar barna i fleiri
skólum að spyrja: Áf hverju ekki að prófa? óiafur Þ. Stephensen
SÆKTU LEIÐARANN A WWW.MBLIS/PODCAST
Gott til
endurvinnslu
Auglýsingastjóri: Steinn Kári Ragnarsson Ritstjórn & auglýsingan Hádegismóum 2,110 Reykjavík
Aðalsími: 510 3700 Símbréf á fréttadeild: 510 3701 Símbréf á auglýsingadeild: 510 3711
Netföng: bladid@bladid.net, frettir@bladid.net, auglysingar@bladid.net
Prentun: Prentsmiðja Morgunblaðsins
BORGARBYGGÐ
Skipulagsauglýsing
Tiilaga að deiliskipulagi á Leirulæk, Borgarbyggð.
I samræmi við 25. gr. skipulags- og byggingarlaga nr.
73/1997 m.s.br. er hér með lýst eftir athugasemdum við
ofangreint deiliskipulag.
Skipulagið fellst í því byggingu tveggja íbúöarhúsa,
fjósbyggingu og vélageymslu.
Deiliskipulagið verður til sýnis í ráðhúsi Borgarbyggðar
frá 27.08.2007 til 24.09.2007. Frestur til athugasemda
vegna deiliskipulags rennur út 08.10.2007.
Athugasemdir við skipulagið skulu vera skriflegar og
berasttil skrifstofu Borgarbyggðar Borgarbraut 14, 310
Borgarnesi.
Hver sá sem ekki gerir athugasemdir við tillöguna fyrir
tiltekin frest til athugasemda, telst samþykkur
tillögunni.
Forstöðumaður framkvæmdasviðs
Borgarbyggðar.
Auðveldum vinnu neytandans
Opinberar hagtölur í flestum
vestrænum ríkjum sýna þá þróun
að vinnutími fólks hafi styst veru-
lega á undanförnum áratugum. í
fljótu bragði mætti ætla að á móti
komi aukinn frítími. Að hagvöxtur
hafi ekki aðeins tryggt okkur meiri
efnisleg gæði, heldur einnig meiri
tíma til að njóta gæðanna. Tölur
um þetta efni geta þó verið blekkj-
andi, og ef nánar er rýnt ofan í það
hvernig fólk, upp til hópa, ver tíma
sínum er veruleikinn oft annar.
Meiri tími í neysluumsýslu
Með aukinni velsæld hefur einka-
neysla aukist til muna. En samfara
því fer sífellt stærri hluti tíma fólks
í ýmiss konar umsýslu er tengist
neyslu. 1 mörgum tilfellum er það
því alls ekki þannig að frítími fólks
hafi aukist, því ýmiss konar vinna
innan veggja heimilanna hefur auk-
ist til muna. Vinna við að skoða,
velja, kaupa, setja saman, vinna
með, viðhalda og fleygja margs
kyns neysluvarningi og varanlegum
neysluvörum. Neysluumsýsla tekur
stóran hluta af tíma hins dæmi-
gerða íslendings og vafalaust hefur
þessi þáttur aukist hraðar en vinnu-
tími utan heimilis hefur styst.
Valkostum til neyslu, bæði að
því er varðar vörur og þjónustu,
hefur fjölgað ótrúlega hratt síðustu
áratugi. Auðvitað er þetta fyrst
og fremst jákvæð þróun, en hún
skapar um leið ný vandamál sökum
þess að tími fólks er ávallt takmark-
aður. Þegar kemur að einstökum
þáttum er sífellt minni og minni
tími aflögu til að kynna sér valkosti
og taka upplýstar ákvarðanir um
neyslu. Þróunin virðist því ganga í
þá átt að neytendur verða óvirkari
en áður og í skjóli óvirkra neytenda
þrífst fákeppnin best.
Rafrænar lausnir
Stjórnvöld geta haft jákvæð áhrif
á velsæld með ráðstöfunum er auð-
velda fólki að vera virkir neytendur.
Einn liður í því er til dæmis bætt
aðgengi að upplýsingum um verð
og gæði. Nútíma upplýsingatækni
býður upp á fjölmarga möguleika
sem enn eru vannýttir. Viðskipta-
Jón Þór Sturluson
ráðherra hefur nú þegar beint því til
Neytendastofu að hefja heildstæða
stefnumörkun á því sviði. Ekki
aðeins að því er varðar matvöru-
markað, sem að nokkru leyti að
ósekju er gerður að blóraböggli í dag-
legri umræðu, heldur á sem flestum
sviðum neytendaviðskipta.
Neytendavöktun er annar þáttur
sem hefur rutt sér til rúms erlendis
og má stórefla hér á landi. Þar er átt
við þjónustu við neytendur í þeirri
viðleitni að leita hagkvæmustu
kosta í ýmsum útgjaldaflokkum
og reglubundna eftirfylgni með
því hvað séu hagkvæmustu kjör, út
frá sérþörfum hvers og eins. Slik
þjónusta getur til að mynda snúist
um að vakta hvort tiltekið heim-
ili sé með hagkvæmustu húsnæð-
islánin, ódýrustu tryggingarnar,
lægsta orkuverðið og svo framvegis.
Með nútíma upplýsingatækni má
auðveldlega gera slíka þjónustu
einstaklingsmiðaða og tiltölulega
ódýra. Sérstaklega áhugavert væri
ef stjórnvöld og einkaaðilar tækju
saman höndum við að koma slíkri
þjónustustarfsemi á kortið.
Slæm ímynd neytendamála
Eðlilegt er að velta því fyrir sér
hvort neytendamál hafi verið á
réttri braut. Er tilviljun að ímynd
neytandans tengist Kristjáni „Heiti-
ég” Ólafssyni og félaga hans Silla í
Spaugstofunni? Auðvitað er grín
að hlutverki neytandans gerandi,
en óneitanlega virðist umræða um
neytendamál allt of oft festast I nei-
kvæðum klisjum. Það heitir að kalla
eftir aukinni neytendavitund. Með
öðrum orðum, tilhneigingin er ann-
ars vegar í þá átt að vilja vernda neyt-
andann, og hins vegar að skamma
hann fyrir að vera ekki nógu virkur.
Hins vegar er horft framhjá því að
hlutverk neytandans er orðið mun
viðameira með auknum neysluút-
gjöldum og flóknara með auknu
vöruúrvali. Ný stefna ætti að miðast
við að gera neytandanum auðveldar
fyrir að taka upplýstar ákvarðanir.
Á fræðimáli heitir það að lækka leit-
arkostnað og í raunveruleikanum
ætti fólk að verða vart við slíka
stefnu með því að geta auðveldar
tekið betri ákvarðanir um neyslu
sína og varið tíma sínum betur.
Höfundur er hagfræöingur og
aðstoöarmaður viðskiptaráðherra
KLIPPT OG SK0RIÐ
Visir.is greindi frá því í gær
að Reynir Traustason
tæki við starfi ritstjóra DV
á næstu dögum við hlið Sigur-
jóns M. Egilssonar. Björn Ingi
Hrafnsson gerir þetta að umtals-
efni á heimasíðu
sinni og segir:
„Núer sagtfrá
því að Reynir
Traustason, rit-
stjóri Mannlífs,
verði nýr ritstjóri
DV. Sömu eigendur eiga þessa
fjölmiðla og er greinilega ætl-
unin að láta Reyni hrista aðeins
upp í DV-hlutanum og rétta við
meðallestur blaðsins sem hefur
verið ótrúlega lítill. Mannlíf
hefur verið mjög umtalað undir
ritstjórn Reynis og hann að sama
skapi umdeildur sem ritstjóri...
Þetta er tilraun sem gæti heppn-
ast, en hvað verður um Sigurjón
M. Egilsson. Hætti hann ekki í
fússi sem ritstjóri Blaðsins til
að farayfir á DV?“ Margir fleiri
velta því nú fyrir sér hvort Sigur-
jón eigi eftir að yfirgefa DV í fússi
vegna þessa...
Nú er rétt mánuður þar til
þinghald hefst á nýjan
leik. I dag er forsætisnefnd
Alþingis saman komin í Stykkis-
hólmi til að undirbúa störf þings-
ins í haust. Það er forseti Alþingis
sem kallar nefndina saman en
venjulega er þessi fundur haldinn
utan Reykjavíkur. Það er þó ekk-
ert skrýtið þótt fundurinn sé hald-
inn á þessum stað núna. Forseti
Alþingis, Sturla
Böðvarsson, var
sveitarstjóri og
síðar bæjarstjóri
í Stykkishólmi
1974-1991 eða
áður en hann
gerðist samgönguráðherra og er
því öllum hnútur kunnugur á
staðnum. Með honum á fund-
inum eru varaforsetar Alþingis,
skrifstofustjóri, varaskrifstofu-
stjóri, umboðsmaður Alþingis og
ríkisendurskoðandi.
elin@bladid.ls