blaðið - 28.08.2007, Blaðsíða 26
34
ÞRIÐJUDAGUR 28. ÁGÚST 2007
blaóið
I mm i,- wm h Hj
0$ *,-V ;■ w 1 m mmf'
ordlaus@bladid.net
LÍFIÐ
Ég á svo hrikalega skemmtilega foreldra, sem
eru líka frábærir kokkar, að mér finnst eig-
inlega skemmtilegra að vera með stelpurnar
heima hjá mömmu og pabba en heima hjá mér.
Helgin hennar Höllu Vilhjálms
I kjól og á háum
hælum alla helgina
„Á föstudagskvöldið hélt ég stelpu-
partí með mömmu og pabba,“ segir
Halla Vilhjálmsdóttir leikkona.
,Ég á svo hrikalega skemmtilega
foreldra, sem eru líka frábærir
kokkar, að mér finnst eiginlega
skemmtilegra að vera með stelp-
urnar heima hjá mömmu og pabba
en heima hjá mér. Þau elduðu ofan
í allan hópinn. Pabbi bauð upp á
svína-spare ribs og lambafillet,
þannig að það var dekrað við okkur
og þessu er maður vanur. Ég er
ofdekruð út í eitt. Þetta var allavega
mjög skemmtilegt og við vorum þó
nokkrar hérna í rosalegu stuði. Svo
var kíkt eitthvað aðeins út en það
var ekkert merkilegt.
Á laugardaginn tróð ég upp
ásamt pabba mínum og bróður,
sem eru gítarleikarar, á hárgreiðslu-
stofunni Effect en stofan fagnaði 20
ára afmæli sínu. Þetta er nefnilega
stofan sem við fjölskyldan höfum
alltaf farið á þannig að við mættum
þarna, Barbershop-tríóið.
Þaðan fór ég í útskriftar- og
innflutningspartí í Njarðvík, en
það byrjaði um eftirmiðdaginn og
stóð langt fram eftir nóttu þar sem
endað var í Sing Star sem var frekar
skrautlegt. Þannig að ég þurfti
eiginlega að taka sunnudaginn í að
jafna mig.
Það sem er erfiðast við svona
útstáelsi er að þurfa að vera í kjól
allan tímann. Þetta eru kannski
tíu tíma partí og þá eru háir hælar
og kjóll ekki besti klæðnaðurinn. í
lok kvölds er líka kjóllinn kominn
upp á höku og lykkjufall komið í
sokkabuxurnar og maður er löngu
hættur að bæta á varalitinn og
svoleiðis,“ segir Halla og hlær. „En
þetta var ágætt. Ég var líka að
vinna við textagerð alla helgina.
Það er smá verkefni sem ég er
stundum í og þá er um að gera að
hafa mikið fyrir stafni því að þá
heyrir maður alls konar orð og
orðasamsetningar þegar maður er í
kringum fólk, sem hægt er að nota.
En það má segja að þetta hafi verið
kreatíf og skemmtileg stelpuhelgi.“
Leðurfésið
í íslenskum
hryllingi
Júlíus Kemp stýrir
Gunnari Hansen
í hvalveiðitrylli
Ný íslensk hryllingsmynd er í
burðarliðnum en það er leikstjór-
inn Júlíus Kemp sem mun leikstýra
myndinni sem kemur til með að
skarta Gunnari Hansen í einu hlut-
verkanna, en hann er hvað fræg-
astur fyrir leik sinn í myndinni
The Texas Chainsaw Massacre frá
1974 þar sem hann var i hlutverki
morðingjans Leatherface. Mynd
Júlíusar hefur fengið nafnið Reykja-
vik Whale Watching Massacre og er
talið að myndin verði eitthvað í lík-
ingu við kvikmyndirnar The Blair
Witch Project og The Evil Dead.
Myndin verður framleidd af Kisi
Production ásamt Solar Film í Finn-
landi en ekki hefur fengist staðfest
hvenær tökur hefjast né hvaða leik-
arar munu fara með hlutverk á móti
Gunnari Hansen í hrollvekjunni.
Tengdapabbinn
tjáir sig
Um fátt er eins mikið rætt í
slúðurblöðunum og áfengis- og
vímuefnaneyslu söngkonunnar
Amy Winehouse og eiginmanns-
ins Blake Fielder. Nú hefur
tengdapabbi Amy, Civil, lýst yfir
miklum áhyggjum af skötuhjú-
unum og í nýlegu viðtali við News
of the World segist hann óttast að
fyrir þeim fari eins og parinu Sid
Vicious og Nancy Spungen, sem
dóu af völdum heróíns árið 1978.
„Við vitum að Blake og Amy eru
bæði haldin sjálfspíningarhvöt.
Amy á lengri sögu um slíkt, en
þetta er allt saman nýtt fyrir
okkur og Blake gerði þetta aldrei
heima. Við höfum spurt hann
um skurði á handleggjum hans
en hann veigrar sér við að svara.
Þau þurfa faglega aðstoð.“
Eitthvað fyrir alla á nútímadanshátíðinni Reykjavík Dance Festival
Dansheimur fyrir fólkiö
Dansað verður í heima-
húsi, glugga verslunar-
innar Nakta apans og frá
Austurvelli á Reykjavík
Dance Festival sem hefst
á fimmtudag. Mark-
miðið er að gera sem
flestum kleift að njóta
danslistarinnar.
Eftir Hilda H. Cortez
hilda@biadid.net
Reykjavík Dance Festival
stendur yfir dagana 30. ágúst til 2.
september næstkomandi en þetta
er í fimmta skipti sem hátíðin er
haldin. I ár verður lögð sérstök
áhersla á danslistina í óhefð-
bundnu umhverfi en hluti verk-
anna verður sýndur á kaffihúsum,
í verslunargluggum og jafnvel á
heimilum danshöfunda.
„Þetta er nútímadanshátíð sem
hefur verið haldin í nokkur ár, en
hún verður með stærra sniði nú
en áður hefur verið,“ segir Hildur
Sverrisdóttir, framkvæmdastjóri
hátíðarinnar. „Ástæðan fyrir því er
kannski ekki síst sú að við viljum
færa þetta listform nær almenningi,
þar sem svo virðist vera sem fólk
veigri sér almennt við því að sækja
danssýningar eða kynna sér dans-
listina yfirhöfuð. Með Reykjavík
Dance Festival viljum við gera fólki
kleift að njóta danslistarinnar sem
við viljum að verði jafn aðgengileg
og til dæmis tónlistin, en dansinn
er líklega sú listgrein sem hefur
fengið hvað minnsta athygli á
Islandi, sem er mikil synd þar sem
hér er mjög mikið af færum döns-
urum og danshöfundum.“
Dansað í stofunni og eldhúsinu
Fjöldi dansverka verður í boði á
hátíðinni en öll verða verkin sýnd
tvisvar sinnum. Að sögn Hildar
ætti fólk því að hafa nægan tíma til
HÁTÍÐIN
► Hátíðin Reykjavík Dance
Festival varfyrst haldin árið
2002.
Hátíðin fer fram í Reykjavík
og verður fjöldi verka eftir
íslenska og erlenda dans-
höfunda í boði.
Á www.midi.is er hægt að
kaupa danspassa á hátíðina
sem gildir á allar sýningar
á 2.700 krónur en einnig
er hægt að kaupa miða á
staka viðburði.
þess að njóta sem flestra verka. „Á
hátíðinni verða sýnd 15 verk. Sýn-
ingar fara fram með hefðbundnum
hætti að kvöldi til í Verinu við
Loftkastalann, en þar er búið að
búa til einhvers konar dansheim
sem er mjög flottur,“ segir Hildur
og bendir á að á föstudag og laug-
ardag verði sýningarformið með
óhefðbundnara sniði, en þá verði til
dæmis í boði dansganga frá Austur-
velli þar sem fararstjóri mun leiða
hópinn á óvenjulega dansstaði.
„Verkin verða einnig sýnd í
gluggum nokkurra verslana, á kaffi-
húsum og í heimahúsi en Ólöf Ing-
ólfs danshöfundur mun til dæmis
sýna eitt verkanna heima hjá sér
þar sem verður dansað í stofunni,
svefnherberginu og í eldhúsinu.
Svo verður meðal annars dansað í
búðargluggum Nakta apans og því
verki ætti fólk á förnum vegi ekki
að fara varhluta af.“
Á hátíðinni sem hefur vakið þó
nokkra athygli erlendis er einna
helst um að ræða verk eftir íslenska
danshöfunda. „Við viljum vekja
athygli á því hversu góða danshöf-
unda er að finna á íslandi, en auð-
vitað er alltaf gaman að fá erlenda
listamenn til þess að taka þátt líka
og munu nokkrir sýna verk sín á
hátíðinni. Svo er markmiðið að
gera hátíðina stærri með hverju ár-
inu og helst að gera hana jafn stóra,
aðgengilega og sjálfsagða og Air-
waves-hátíðin er orðin. Dansarar
og danshöfundar íslands hafa alla
burði til þess að standa undir því.“
Lindsay misstígur sig í meðferðinni
Lohan sængar
hjá sjúklingum
Eitthvað virðist Lindsay Lohan
hafa misreiknað sig þegar hún gaf
út yfirlýsingar þess efnis að djamm-
líferni og ólæti yrðu látin lönd og
leið hér eftir.
Eins og kunnugt er dvelur
Lindsay nú í meðferð á Cirque
Lodge-meðferðarheimilinu, en
óþekktarormurinn virðist lítið
gera annað en að baka vandræði í
meðferðinni. Nú síðast fór hún yfir
strikið þegar hún gerði sér dælt
við einn sjúkling stofnunarinnar
og neyddist starfsfólk stofnunar-
innar til að stoppa leikkonuna af í
miðjum klíðum. Starfsmennina rak
í rogastans þegar öskur og óhljóð
heyrðust frá einu salerninu, en
þegar á vettvang var komið reynd-
ist það vera óþekka stórstjarnan í
faðmi myndarlegs karlmanns sem
einnig dvelur á stofnuninni.
„Starfsmönnum var gert viðvart
um að einkennileg hljóð bærust frá
klósettinu og það heyrðist greini-
lega í tveimur manneskjum. Þegar
þau opnuðu dyrnar var Lindsay
í vafasömum stellingum með mann-
inum, sem er myndarlegur og há-
vaxinn karlmaður með dökkt hár
- alveg eins og Lindsay vill hafa þá.
Þegar komið var að þeim brá þeim
mikið og hár Lindsay var út um allt
eftir lætin,“ sagði heimildarmaður
tímaritsins News of the World.
Auk þess að stunda kynlíf með
öðrum sjúklingum meðferðar-
heimilisins lætur Lindsay að sögn
starfsmanna öllum illum látum og
talar um fátt annað en að komast
aftur út á lífið.
„Bandarískar
stelpur eru
líka druslur"
Hljómsveitin Smashing Pumpk-
ins endaði Reading-hátíðina á
sunnudag. Sveitin spilaði ný lög í
bland við eldri á borð við Tonight,
Tonight, 1979 og Today.
Um miðbik tónleikanna var
myndavélunum á sviðinu beint
að stúlku sem í hita leiksins hafði
farið úr að ofan. Billy Corgan,
forsprakki Smashing Pumpkins,
lét þá hafa eftir sér að það væri
eitthvað við stelpur sem væru til
í að fara úr að ofan svona fljótt.
„Bandarískar stelpur eru líka
druslur,“ bætti hann við. „Sjáið
hvað er frábært að vera öðruvísi,
maður getur sagt alls kyns hluti.“