blaðið - 28.08.2007, Blaðsíða 27
blaöið
ORÐLAUSTÍSKA
tiska@bladid.net
ÞRIÐJUDAGUR 28. AGUST 2007
Húðin á henni er í hræði-
legu ásigkomulagi og
hárið á henni líflaust og
ótilhaft.
Kate orðin
alltof horuð
Fyrirsætan Kate Moss er farin
að valda vinum sínum áhyggjum
vegna holdafarsins og þykir nú
grennri en nokkru sinni fyrr.
Fólk sem umgengst stjörnuna
segir hana algerlega hætta að
borða, en Moss mun hafa farið á
strangan afeitrunarkúr með væg-
ast sagt alvarlegum afleiðingum.
Núna er fyrirsætan, sem alltaf
hefur verið hin grennsta, ekk-
ert nema skinn og bein og áður
heilbrigt útlitið er algerlega farið
fyrirbí.
„Margir nánustu vinir hennar
tala um að hún sé orðin alltof
mjó. Húðin á henni er í hræði-
legu ásigkomulagi og hárið á
henni líflaust og ótilhaft,“ sagði
vinur fyrirsætunnar á dögunum.
Eins og frægt er orðið hefur Moss
ekki átt sjö dagana sæla undan-
farið vegna erfiðleika í sambandi
hennar og rokkarans Pete Do-
herty. Leiðindin eru greinilega
farin að taka sinn toll af heilsu
fyrirsætunnar og nú er hún farin
að láta verulega á sjá.
Hvíti liturinn áberandi í haust
Hollywood-stjörnur í hvítu
Það eru gömul sannindi og ný að Holly wood-stjörn-
urnar leggja línurnar þegar kemur að heitustu tísku-
straumunum hverju sinni. Ef marka má fatavalið hjá
nokkrum stjarnanna síðustu vikurnar er Ijóst að hvíti
liturinn er áberandi um þessar mundir og mun ugg-
laust ráða ríkjum á hausti komanda.
Stórglæsileg Michelle Ekki vantar Heillandi í hvítu dressi Reese Withers-
glæsileikann hjá Michelle Pfeiffer. Hún poon var flott í hvítu dressi á blaðamanna-
sást á hárgreiðslukynningu fyrir skömmu. fundi í Beverly Hills á dögunum.
í hvítu með opið bak Leikkonan Jenni-
fer Esposito mætti í sínu fínasta til veislu
á vegum ABC á Beverly Hilton-hótelinu.
Flott á frumsýningu Hin þokkafulla
Jessica Biel mætti í hvítu á frumsýningu I
Now Pronounce You Chuck and Larry.
Sæt og stelpuleg Leikkonan Jennifer
Love Hewitt á Comic-con-blaðamanna-
viðburði í San Diego í lok júlí.
Klassísk í hvítu Kate Bosworth beraði
öxlina í flottum hvítum kjól á frumsýningu
The 11 th Hour fyrir fáeinum dögum.
Ráðstefnur - Fundir - Árshátíðir
- Jólahlaðborð
HotelSelfoss
Nánari upplýsingar og pantanir í síma 480 2500 og info@hotelselfoss.is