blaðið - 28.08.2007, Side 27

blaðið - 28.08.2007, Side 27
blaöið ORÐLAUSTÍSKA tiska@bladid.net ÞRIÐJUDAGUR 28. AGUST 2007 Húðin á henni er í hræði- legu ásigkomulagi og hárið á henni líflaust og ótilhaft. Kate orðin alltof horuð Fyrirsætan Kate Moss er farin að valda vinum sínum áhyggjum vegna holdafarsins og þykir nú grennri en nokkru sinni fyrr. Fólk sem umgengst stjörnuna segir hana algerlega hætta að borða, en Moss mun hafa farið á strangan afeitrunarkúr með væg- ast sagt alvarlegum afleiðingum. Núna er fyrirsætan, sem alltaf hefur verið hin grennsta, ekk- ert nema skinn og bein og áður heilbrigt útlitið er algerlega farið fyrirbí. „Margir nánustu vinir hennar tala um að hún sé orðin alltof mjó. Húðin á henni er í hræði- legu ásigkomulagi og hárið á henni líflaust og ótilhaft,“ sagði vinur fyrirsætunnar á dögunum. Eins og frægt er orðið hefur Moss ekki átt sjö dagana sæla undan- farið vegna erfiðleika í sambandi hennar og rokkarans Pete Do- herty. Leiðindin eru greinilega farin að taka sinn toll af heilsu fyrirsætunnar og nú er hún farin að láta verulega á sjá. Hvíti liturinn áberandi í haust Hollywood-stjörnur í hvítu Það eru gömul sannindi og ný að Holly wood-stjörn- urnar leggja línurnar þegar kemur að heitustu tísku- straumunum hverju sinni. Ef marka má fatavalið hjá nokkrum stjarnanna síðustu vikurnar er Ijóst að hvíti liturinn er áberandi um þessar mundir og mun ugg- laust ráða ríkjum á hausti komanda. Stórglæsileg Michelle Ekki vantar Heillandi í hvítu dressi Reese Withers- glæsileikann hjá Michelle Pfeiffer. Hún poon var flott í hvítu dressi á blaðamanna- sást á hárgreiðslukynningu fyrir skömmu. fundi í Beverly Hills á dögunum. í hvítu með opið bak Leikkonan Jenni- fer Esposito mætti í sínu fínasta til veislu á vegum ABC á Beverly Hilton-hótelinu. Flott á frumsýningu Hin þokkafulla Jessica Biel mætti í hvítu á frumsýningu I Now Pronounce You Chuck and Larry. Sæt og stelpuleg Leikkonan Jennifer Love Hewitt á Comic-con-blaðamanna- viðburði í San Diego í lok júlí. Klassísk í hvítu Kate Bosworth beraði öxlina í flottum hvítum kjól á frumsýningu The 11 th Hour fyrir fáeinum dögum. Ráðstefnur - Fundir - Árshátíðir - Jólahlaðborð HotelSelfoss Nánari upplýsingar og pantanir í síma 480 2500 og info@hotelselfoss.is

x

blaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.