blaðið - 28.08.2007, Síða 14
14
ÞRIÐJUDAGUR 28. ÁGÚST 2007
blaöiö
MENNING
menning@bladid.net
Steinaspil, eða lítófónn, var
með fyrstu hljóðfærum
mannsins.
Dúó Stemma flytur alíslenska tónlist
Nútíminn og ævagömul þjóðlög
Dúó Stemma leikur ís-
lensk lög frá myrkustu
miðöldum til nútímans
og leikur meðal annars á
steinaspil frá Húsafelli.
Eftir Hildi Eddu Einarsdóttur
hilduredda@bladid.net
Hjónin Herdís Anna Jónsdóttir
og Steef van Oosterhout spila á mar-
imbu, víólu, slagverk og steinaspil
Páls á Húsafelli. Saman mynda þau
Dúó Stemmu sem spilar á sumar-
tónleikum í Listasafni Sigurjóns
Ólafssonar í kvöld. „Við ætlum að
spila íslensk lög, bæði ný og gömul,“
segir Herdís Anna. „Sum þeirra eru
ævagömul þjóðlög og það nýjasta
skrifaði Áskell Másson fyrir okkur
núna 12. ágúst síðastliðinn þannig
a að fjölbreytileikinn ræður ríkjum.
Við höfum verið að prófa okkur
áfram í íslenskum þjóðlögum og
spilum þau í okkar eigin búningi
ef svo má segja. Svo hafa þó nokkur
tónskáld verið að skrifa fyrir okkur
lög frá því að við hófum samstarf
árið 1996“
Frumstætt hljóðfæri
Steinaspil, eða litófónn, var með
fyrstu hljóðfærum mannsins. „Páll
á Húsafelli vinur okkar gaf okkur
lítið steinaspil fyrir nokkrum árum
og við höfum mikið verið að spila á
það, sérstaklega á tónleikum fyrir
leikskólabörn. Steinana fann Páll í
heimabyggð sinni og það var mikil
þolinmæðisvinna að finna hinn
eina sanna tón í hverjum steini,
enda hljóma ekki allir steinar," segir
hún.
Spila fyrir börn
Þau Herdís og Steef spila bæði
með Sinfóníuhljómsveit íslands
en þess á milli spila þau sem Dúó
Stemma, bæði hér á landi og er-
lendis. „Steef er frá Hollandi og við
höfum spilað töluvert þar og líka
í Þýskalandi. Við útbjuggum fyrir
nokkrum árum sérstaka efnisskrá
fyrir börn, Töfraveröld tóna og
hljóða, og spiluðum í fjölmörgum
leikskólum hér í Reykjavík og
víðsvegar um landið og nú í vetur
ætlum við að taka upp þráðinn að
nýju og spila fyrir börnin, enda
er það afskaplega skemmtilegt
og gefandi. Það er einhver galdur
í þessari dagskrá, eða kannski
er það íslenska náttúran í
Húsafellssteinunum, en þau hlusta
afskaplega vel og eru mjög þakklát
á eftir,“ segir Herdís. „Reyndar
hefur steinaspilið ekki bara þessi
áhrif á börn heldur líka fullorðna
og þjóðernið skiptir ekki máli, ætli
það sé ekki bara þessi hreini tónn
sem smýgur í hartað og gleður.“
Tónleikarnir í Listasafni Sigur-
jóns í kvöld hefjast klukkan 20.30
og á efnisskrá eru meðal annars
Melódía og Berceuse fyrir víólu og
marimbu eftir Áskel Másson auk
fleiri íslenskra laga og þjóðlaga.
Ný kynslóð
þráðlausra heyrnartækja
Epoq eru fyrstu heyrnartækin sem tala saman!
Tvö Epoq skiptast á stöðugt á upplýsingum og vinna því eins og
ein heild, svipað og heilinn starfar með báðum eyrum okkar.
Með feikilegri bandbreidd ogskjótum vinnsluhraði þá fangar
Epoq fíngerð hátíðnihljóð sem erfitt er að heyra og gerir þannig
talhljóð mun skýrara og gefur tónlist meiri fyllingu.
Ekki missa af því besta!
Pantaðu tíma í síma
568 6880
Epoq eru falleg og nett heyrnartæki
Fyrirferðarlítil hönnun á Epoq gerir þau verulega aðlaðandi.
Epoq eru fáanleg í öllum stærðum og gerðum. Þú getur fengið
Epoq sem sitja þægilega inni í eyrunum eða bak við eyra tæki
sem eru nánast ósýnileg.
Heyrnartœkni_______________________
Glæsibæ | Álfheimum 74 | 1 0 4 Reykjavík
| sími: 568 6880 | www.heyrnartaekni.is
Ný orðabók
Spænsk-
íslensk
orðabók er
komin út
hjá Máli og
menningu,
en hún er
unnin í
samvinnu
Háskólans
í Reykjavík
og Eddu útgáfu hf. Ritstjórn
bókarinnar skipuðu Guðrún
H. Tulinius, Margrét Jónsdóttir,
Ragnheiður Kristinsdóttir,
Sigrún Á. Eiríksdóttir og Teo
Manrique.
Spænsk-íslensk
ORÐAB0K
PICCIONARIO
Fyrirlestur í
Snorrastofu
Guðrún Sveinbjarnardóttir
fornleifafræðingur verður
með fyrirlestur í Bókhlöðusal
Snorrastofu í kvöld klukkan
20.30. Hún mun fjalla um upp-
gröftinn á hinu forna kirkju-
stæði Reykholts, en erindið er
liður í röð Fyrirlestra í héraði.
Fornleifauppgreftri í Reykholti
lauk nú í sumar en hann hefur
vakið mikla athygli. í Ijós hefur
komið fjöldi merkilegra minja,
ekki síst í þeim kirkjugrunni
sem lokið var við að grafa upp í
júní síðastliðnum.
Sýningarlok í
Skotinu
Sýningu Erlu Stefánsdóttur,
Áfangastaður, í Skotinu hjá
Ljósmyndasafni Reykjavíkur
fer senn að ljúka en myndirnar
á sýningunni eru teknar á ferða-
lagi um austurhluta Rúmeníu
í maí 2007. Myndirnar eru
ekki hefðbundnar ferðalags-
myndir heldur sýna þær sjálft
ferðaferlið. Sýningin var opnuð
þann 19. júlí en lýkur á morgun,
29. ágúst.
Sópran og
saxófónn
Sólrún Bragadóttir sópran
og Sigurður Flosason saxófón-
leikari verða með tónleika í
Nýheimum á Höfn í Hornafirði
í kvöld klukkan 20. Dagskráin
samanstendur af þekktum
íslenskum sönglögum og
íslenskum þjóðlögum í útsetn-
ingu fyrir sópransöngkonu og
saxófón.