blaðið - 28.08.2007, Qupperneq 15
blaöiö
ÞRIÐJUDAGUR 28. ÁGÚST 2007
19
Vekja athygli ungs
fólks á ljóðlistinni
MtvU, dóttursjónvarpsstöð
MTV-sjónvarpsstöðvarinnar, sem
einungis er send út í háskólum og
stúdentagörðum í Bandaríkjunum,
hefur valið áttrætt ljóðskáld, John
Ashbery, sem sitt fyrsta „heiðurs-
skáld". Ljóð eftir hann munu birtast
reglulega á stöðinni, bæði í texta
og mynd, og er ætlunin að reyna
að vekja upp ljóðaáhuga hjá ungu
menntafólki í landinu.
Ashbery hefur hlotið fjölmörg
verðlaun fyrir skrif sín, meðal ann-
ars Pulitzer-verðlaunin sem hann
hlaut árið 1976 fyrir ljóðasafn sitt
„Self-Portrait in a Convex Mirror“,
auk þess sem hann var heiðursskáld
New York-fylkis á árunum 2001 til
2003.
Ljóð hans sem birtast á skjánum
á MtvU hafa verið valin af hópi fólks
á þrítugsaldri, sem kynnti sér ljóða-
safn hans og valdi þau sem best
þóttu henta fyrir sjónvarpsstöðina.
Sjálfur segir John Ashbery að
sér sé það mikill heiður að fá að
vera heiðursskáld sjónvarpsstöðvar-
innar og að hann sé ánægður með
ljóðavalið.
Tilgangurinn með þessu uppá-
tæki MtvU er að reyna að vekja ungt
fólk til umhugsunar um ljóðlistina
og gera ljóð á einhvern hátt „svöl“ í
augum þess. Ljóð Ashberys verða
flutt á skjánum um eins árs skeið,
en þá verður nýtt skáld valið sem
heiðursskáld stöðvarinnar.
Margir hafa lýst furðu sinni á
þessu fyrsta skáldavali stöðvar-
innar, sem hefur ungan markhóp
og spilar nýjustu popptónlistina.
Asbery hlustar sjálfur aldrei á stöð-
ina. Þá er hann afar íhaldssamur
í sínu starfi og kýs að skrifa sinn
skáldskap á ritvélar í stað þess að
nota tölvur. Engu að síður segjast að-
standendur stöðvarinnar vera bjart-
sýnir á að ljóðin eigi eftir að mælast
vel fyrir hjá unga fólkinu.
Lík í óskilum
Fyrsta frumsýning leikársins hjá
Leikfélagi Reykjavíkur verður á litla
sviði Borgarleikhússins næstkom-
andi laugardag, þann 1. september,
en þá verður fluttur farsinn Lík í
óskilum eftir Anthony Neilson. Um
er að ræða gamanleik um óborgan-
legt lögguteymi sem fær það hlut-
verk að boða eldri hjónum váleg tíð-
indi á aðfangadagskvöld. Áður en
erindið hefur verið útskýrt að fullu
kemur upp misskilningur sem erfitt
reynist að leiðrétta. Fljótlega eykst
misskilningurinn, fleiri persónur
slást í hópinn, flækjan verður sífellt
flóknari og hjartveiki eiginmanns-
ins gerir verkefni lögreglunnar nán-
ast ómögulegt.
Leikstjóri sýningarinnar er Stein-
unn Knútsdóttir og leikarar eru
Þórhallur Sigurðsson, Aðalbjörg
Árnadóttir, Eggert Þorleifsson,
Helga Braga Jónsdóttir, Halldóra
Geirharðsdóttir, Jörundur Ragnars-
son og Þór Tulinius.
Bein útsending
frá Jazzhátíð
Rás 1 ætlar að taka þátt í Jazzhá-
tíð Reykjavíkur og hljóðrita ferna
tónleika á hátíðinni. Þrennir tón-
leikar verða í beinni útsendingu, en
það verða tónleikar Uri Caine-tríós-
ins annað kvöld klukkan 20, Eivör
Pálsdóttir og Stórsveit Reykjavíkur
á fimmtudagskvöldið klukkan 20
og Bláir skuggar/bláir söngvar, dag-
skrá með nýju efni eftir Sigurð Flosa-
son á föstudagskvöldið klukkan 20.
Einnig verða hljóðritaðir tónleik-
arnir Múlinn á Múlanum, söng-
dansar Jóns Múla Árnasonar í flutn-
ingi Eyþórs Gunnarssonar og félaga,
en þeir tónleikar verða sendir út á
Rás 1 næstkomandi sunnudag, 2.
september, klukkan 16.
Lana Kolbrún Eddudóttir, umsjón-
armaðurdjassþáttarinsFimmfjórðu,
verður kynnir á tónleikunum.
Söngsveitin Fílharmónía
Æfingjar hefjast í næstu viku
Meðlimir Söngsveitarinnar Fíl-
harmóníu hefja æfingar aftur eftir
sumarfrí þann 3. september næst-
komandi, en framundan er spenn-
andi starfsár að sögn Einars Karls
Friðrikssonar, formanns sveitar-
innar. „Fyrsta verkefnið okkar eru
tónleikar sem verða strax í október,
en þeir verða haldnir í Seltjarnar-
neskirkju og þar flytjum við svokall-
aða klezmertónlist, hátíðartónlist
gyðinga, ásamt systkinunum Ragn-
heiði og Hauki Gröndal,“ segir hann.
„Þetta er mjög skemmtileg tónlistar-
hefð og minnir svolítið á sígauna-
tónlist, en það eru fyrst og fremst
austurevrópskir gyðingar sem hafa
haldið henni á lofti."
1 kjölfarið á tónleikunum í Sel-
tjarnarneskirkju í október hefst kór-
inn handa við æfingar fyrir sína ár-
legu aðventutónleika, en um næstu
páska tekur stórt verkefni við. „Þá
ætlum við að flytja Þýska sálumessu
eftir Brahms ásamt Sinfóníuhljóm-
sveit ísland og það krefst mikilla
æfinga. Þetta er massíft stykki þótt
það sé ekki óaðgengilegt áheyrnar,
enda syngur kórinn sjálfur flestalla
kaflana,“ segir Einar.
1 Söngsveitinni Fílharmóníu
eru að jafnaði um 60 til 70 manns
sem koma víðsvegar að. „1 kórnum
er alls konar fólk úr öllum stigum
samfélagsins og þótt sumir hafi
söngreynslu hafa það ekki allir. En
við erum sjálfstætt félag og ekki
með neina ákveðna bakhjarla eða
tónleikastaði. Þó æfum við alltaf á
sama stað, í Melaskóla, og höfum í
raun gert það frá því að kórinn var
stofnaður fyrir næstum 50 árum.
Við erum afar þakklát skólanum og
borginni fyrir það, enda er þar mjög
góð æfingaaðstaða.“
í framhaldi af tónleikunum með
Sinfóníuhljómsveitinni í vor segir
Einar Karl framhaldið óráðið. „Við
erum þó að vonast til þess að geta
farið í tónleikaferð út fyrir landstein-
ana, enda eru nokkur ár síðan við
fórum í slíka ferð, en það er alltaf
gaman að fara á nýja staði og syngja
fyrir nýtt fólk. En það kemur í ljós
síðar hvort úr því verður,“ sagði
hann að lokum.
FYRIR UNGLlNGft
Kolbeinn Sigþórsson
Námskeidiö var mjög skemmtilegt,
öðruvísi en eg hélt að það yrði.
Það sem ég fékk aðallega út úr þessu
námskeiði var aukið sjálfstraust og
ég hef núna trú á sjalfum mér, ég er
orðin lífsglaðari og karm að meta miklu
méirá það sem eg hef.
Þetta mun nýtast mér
um alla framtíö.
Kíktu á naestakynslod.is og sjáðu hvað aðrir þátttakendur höfðu að segja um þjálfunina
Vilt þú...
...vera einbeittari í námi?
...geta staðið þig vel í vinnu?
...vera jákvæðari?
...eiga auðveidara með að
eignast vini?
...vera sáttari við sjálfan þig
Kynningarfundur verður haldin
miðvikudaginn 29. ágúst kl. 20.00
Ármúla 11, 3.hæð
Æskilegt að foreldrar mæti á
kynningarfundinn með unglingum
sem fara á námskeið 14 -17 ára
DALE CARNI