blaðið - 28.08.2007, Side 19
blaóiö
ÞRIÐJUDAGUR 28. ÁGÚST 2007
27
Spennandi ferð frá Taílandi til Kambódíu fyrir ævintýramenn
Hjólað um afskekktar sveitir
Óríental - Austurlenska ævintýra-
félagið ehf. býður upp á 14 daga hjóla-
og ævintýraferð þar sem hjólað
verður frá Bangkok um afskekktar
sveitir Kambódíu áleiðis til Phnom
Penh í haust. Ferðin er skipulög í
samvinnu við Spiceroads, sem sér-
hæfir sig í hjólaferðum i Suðaustur-
Asíu. Fararstjóri er Viktor Sveins-
son. Óríental er eina ferðaskrifstofan
á íslandi sem sérhæfir sig í Suðaustur-
Asíu. Ferðaskrifstofan var stofnuð fyrir
tveimur árum og hefur leyfi til rekst-
urs ferðaskrifstofu frá Ferðamálaráði.
Viktor starfar sem framkvæmdastjóri
og leiðsögumaður hjá fyrirtækinu en
hann býr í Bangkok í Taílandi.
Höfuðmarkmið ferðarinnar er
að skoða hinar glæsilegu rústir
Angkor en á leiðinni þangað verður
hjólað um afskekktar sveitir Kamb-
ódíu. Fyrstu þremur dögunum er
varið í skoðunarferðir um Bangkok
og nágrenni og undirbúning fyrir
ferðina. Leiðsögumenn eru kynntir
fyrir hópnum ásamt því að hjól eru
valin fyrir hvern og einn. Á fjórða
degi hefst hjólaferðin fyrir alvöru
og þá eru hjólaðir 40 km að landa-
mærum Taílands og Kambódíu í fal-
legu og friðsælu landslagi, leið sem
sárafáir erlendir ferðamenn hafa
farið. Leiðin liggur um lítil þorp
og akra, þar sem lífið slær hægan
takt undir heitri sólinni. Frá landa-
mærunum er hjólað til Pailin-bæjar
í Kambódíu en þar eru margir af
fyrrum liðsmönnum Rauðu Khmer-
anna búsettir. Frá Pailin er hjólað
til Battambang, sem er næststærsta
borg Kambódíu, og liggur leiðin um
afskekktar sveitir þar sem m.a. er
ræktað korn, hnetur, mangó og að
sjálfsögðu hrísgrjón.
Eftir að hafa siglt frá Battambang
til Siem Reap verða rústir Angkor-
svæðisins skoðaðar á hjólum í tvo
daga, en á svæðinu eru yfir 1000
musteri. Byrjað er í rústum Ang-
kor Thom-borgarinnar þar sem
rústir Bayon-byggingarinnar, Fíla-
veröndin og Verönd holdsveika
konungsins eru skoðuð. Farið er frá
Angkor Thom um norðurhlið borg-
arinnar og hjólað hringveginn fram-
hjá Preak Khan-musterinu og Ta
Prohm áður en komið er til Angkor
Wat, fyrrum höfuðmusteris Ang-
kor og eins af stærstu musterum í
heimi.
Frá Angkor er siglt eða ekið áleiðis
til Phnom Penh þar sem tveimur
síðustu dögunum er varið. Phnom
Penh var þekkt sem perla Asíu á
þriðja áratug tuttugustu aldar en
ógnarstjórn Rauðu Khmerana hafði
mikil áhrif á borgina, sem og landið
allt. 1 Phnom Penh gefst kostur á að
skoða Tuol Svay Prey-gagnfræða-
skólann sem var breytt í fangabúðir
þegar Rauðu Khmerarnir tóku borg-
ina á sitt vald.
Hlaut sam-
gönguverðlaun
Icelandair Group hlaut samgöngu-
verðlaun samgönguráðherra sem
veitt voru í fyrsta sinn 21. ágúst
sl. Verðlaunin fær fyrirtækið og
fyrirrennarar þess á sviði flug-
mála fyrir brautryðjendastarf og
áratuga uppbyggingu á flugsam-
göngum um ísland og milli landa.
Samgönguverðlaun verða veitt ár-
lega einstaklingi, félagi eða fyrir-
tæki sem þykir hafa skarað fram
úr eða lagt fram verðmætan skerf
til samgöngumála þjóðarinnar.
Við leit að verðlaunahafa eru
könnuð öll svið samgöngumála.
Jón Karl Ólafsson, forstjóri Ice-
landair Group, tók við verðlaun-
unum. Fyrir hönd fyrrverandi
og núverandi starfsfólks þakkaði
hann fyrir þessa viðurkenningu
sem hann sagði að væri kær-
komin.
Verðlaunagripurinn er eftir Pétur
Bjarnason myndlistarmann og er
nafn verksins Stög.
Undurfagra
Ljubljana
Einn er sá staður sem hefur
komið íslenskum ferðalöngum
mjög á óvart en það er borgin
Ljubíjana í Slóveníu. Hún þykir
einstaklega fögur auk þess sem
verðlag þar er mjög hagstætt.
Heimsferðir bjóða upp á ferð
þangað 9. nóvember í beinu
flugi. Um 300 þúsund manns
búa í borginni. Á vef Heimsferða
segir: Það er einstakt að rölta
með ánni og fylgjast með iðandi
mannlífinu, en fjöldi stúdenta og
ungs fólks setur sérstakan svip
á borgina. Miðbærinn er fullur
af kaffi- og veitingahúsum og
skemmtistöðum. Mikið menn-
ingar- og listalíf er í borginni;
leikhús, tónleikahús og fjöldi
listamanna með vinnustofur og
gallerí. Margar verslanir eru í
borginni, bæði risastór verslunar-
miðstöð, sérverslanir af öllu tagi
og skemmtilegur miðbæjarmark-
aður. Verðlag í Ljubljana er mjög
hagstætt og góður aðbúnaður
fyrir ferðamenn.
NÁMSKEIÐ I
á a«<ubeybl isaeib®i
Kynningarfundur:
Miðvikudaginn 29. ógust kl. 20:00-21:15,
Ármúla 11, 3. hæð (við hliðina á Broadway).
Allir velkomnir.
■ X
www.dalecarnegie.is
L
Sæunn Sylvía Magnúsdóttir, skrifstofustjóri.
Á námskeiðinu lærði ég samskiptatækni sem
nýtist mér á hverjum einasta degi. Ég lærði að
setja mér markmið, að setja eldmóð i verkefni
mín og koma hlutunum hraðar i verk. Ég er
skipulagðari, hugrakkari og sjálfstraustið er mun
meira. Ég er öruggari og hnitmiðaðri i tjáningu.
Efiir námskeiðið er ég óhrædd við að takast á við
nýjar áskoranir og ég er meðvitaðri um hvernig ég
get hafi jákvæð áhrif á fólkið í kringum mig. Siðast
en ekki sist lærði ég að byggja á styrkleikum mínum
sem gerir mig sterkari í leik og starfi.
Dale Carnegie®
Þjálfun
Sími 555 7080