blaðið - 28.08.2007, Page 30
38
ÞRIÐJUDAGUR 28. ÁGÚST 2007
blaöið
FÓLK
Ég hef heyrt
verri hugmyndir!
folk@bladid.net
Mun Upplyfting spila á skólaböllum?
Magnús Stefánsson, fyrrverandi félagsmála-
ráðherra, mun setjast á skólabekk í vetur er
hann hefur MBA-nám við Háskóla Islands.
Magnús gerði það gott á árum áður með
hljómsveitinni Upplyftingu.
HEYRST HEFUR
Ómar Ragnarsson er allt annað
en ánægður með vegafram-
kvæmdir verktaka á Vest-
fjörðum þessa dagana eins og
fram kemur á bloggi hans. Var
kappinn á leið til Bolungarvíkur
og ætlaði að fara yfir Þorska-
fjarðarheiðina sem er venjulega
ögn styttri leið en að þræða alla
firðina. Að þessu sinni var hún
þó lengri sökum framkvæmda,
Ómari til ama, enda ekkert
skilti sem útskýrði málið. Ómar
kemur þó upp um sig,
því í athugasemda-
kerfinu hneykslast
bæjarstjórafrúin í
Bolungarvík, Helga
Vala Helgadóttir,
á því að Ómar
hafi ekki litið
inn í kaffi til
þeirra Gríms
Atlasonar...
Ámi Johnsen sló aldeilis í gegn
á Grænlandi á dögunum þegar
hann fagnaði ío ára afmæli
Vestnorræna ráðsins. Árni var
hrókur alls fagnaðar og ekki
síst fyrir þær sakir að hann
hafði gítarinn góða með í för og
var allt annað en feiminn við
að taka lagið. Árni vílaði ekki
fyrir sér að syngja bæði á fær-
eysku og grænlensku, gestum
til mikillar ánægju og
undrunar. Þess má
geta að gefnu tilefni,
að Árni er þekktur
stúkumaður
og hefur
aldrei
bragðað
áfengi...
strákarnir Í 2B Company hafa í
nógu að snúast þessa dagana, en
fyrirtækið hyggst framleiða bjór
í Vestmannaeyjum. Ku fjármagn
þegar vera tryggt og því ekkert
að vanbúnaði að reisa verk-
smiðju, sem verður staðsett niðri
við höfnina í Vestmannaeyjum.
Er það með ráðum gert, því stíla
á inn á ferðamenn sem boðið
verður að smakka íslenskt vatn
og bjór í verksmiðjunni. Ekki
hefur nafn bjórsins verið gert
opinbert, en þó mun það tengjast
Vestmannaeyjum á
Éinhvern hátt. Hafa
;árungar velt upp
ýmsum nöfnum
eins og Lundi,
Pysja, Eyjar og
síðast en ekki síst,
Johnsen...
Leikarinn Jönmdur Ragnarsson lætur að sér kveða
Nýr á hvíta tialdinu
Jörundur Guðmundsson
er um það bil að slá í gegn
á hvíta tjaldinu, á sviði
og í sjónvarpinu. Samt er
hann nýútskrifaður leikari.
Eftir Trausta Salvar Kristjánsson
traustis@bladid.net
Jörundur Ragnarsson er ungur
og tiltölulega óþekktur leikari. Það
mun þó fljótt breytast, því hann
leikur í tveimur nýjum íslenskum
kvikmyndum, nýrri gamanþátt-
aseríu og nokkrum leikritum á
næstunni.
„Já, það er óhætt að segja að það
sé dálítið mikið að gera hjá mér
núna. Fyrir utan að leika þá keypti
ég mér íbúð nýlega sem ég hef verið
að gera upp í hjáverkum," segir Jör-
undur, sem smitaðist frekar seint af
leiklistarbakteríunni.
„Ég byrjaði að læra stjórnmála-
fræði í Háskóla íslands en það var
nú einhvern veginn bara til þess að
læra eitthvað. Eg lék síðan lítið stat-
istahlutverk með Stúdentaleikhús-
inu og það varð til þess að ég sótti
um í Leiklistarháskólanum, þaðan
sem ég útskrifaðist svo í fyrravor.
Síðan var ég svo heppinn að fá strax
nóg að gera. Það má segja að ég hafi
hent mér út í djúpu laugina. Eg lék
nördinn Scat í Ástrópíu, sem nýlega
er byrjað að sýna, en hann breytist
í galdramanninn Kjartan í þar til
gerðum hlutverkaleikjum," segir
Jörundur, sem sjálfur hefur litla
reynslu af slíkum leikjum.
„Maður tengir alltaf eitthvað við
persónuna sem maður leikur, en
reyndar var ég aldrei í svona hlut-
verkaleikjum þegar ég var yngri. Ég
byrjaði að spila þá til að undirbúa
mig fyrir hlutverkið sem var ágætt,
en ég festist ekkert í því. En annars
má alveg halda því fram að ég sé
atvinnumaður í hlutverkaleikjum,
þar sem ég er jú leikari!“
Hálfþroskaheftur strákur
„Þar leik ég hann Samma, sem er
hálfþroskaheftur strákur á meðferð-
arheimili úti á landi. Sagan gerist
árið 1970 og er byggð á Breiðavík-
urheimilinu sem mikið hefur verið
fjallað um að undanförnu. Sagan
gerist nokkrum árum seinna þar
sem fyrirkomulaginu hefur verið
breytt og frjálslegri aðferðir við lýði,
eins og kynjablöndun. Börnin eru
Jörundur Ragnarsson verður á
allra vörum á næstunni
meira sjálfala og forstöðumennirnir
eru kannski fullmikið í takt við tíð-
arandann, sem kenndur er við hippa-
tímabilið. Og þó að þetta sé mun
mannúðlegri aðferð en það sem á
undan gekk, þá er hún kannski ekki
endilega sú rétta. En það var ótrú-
lega gaman að takast á við þetta, en
um leið ofboðslega krefjandi því
þetta er mjög afgerandi karakter.
Einnig var ekki auðvelt að hoppa
nánast beint úr leiklistarskólanum
í að gera tvær kvikmyndir. Leik-
listarnámið er fjögur ár og þar af
fara aðeins um fimm vikur í nám-
skeið um kvikmyndaleik. Því var
þetta mjög góður skóli og virkilega
gaman að sjá hvernig ferlið er í
þessu. Til dæmis var ég frekar hissa
og ánægður að sjá hversu vel tókst
til með Astrópíu, miðað við hvað
það voru litlir peningar til.“
Lætur einnig til sín taka á sviðinu
„Ég mun leika í Killer Joe, sem
verður endur-frumsýnt þann 6.
september næstkomandi. Ég tek
við hlutverki Chris af Þorvaldi
Davíð Kristjánssyni, sem þurfti
frá að hverfa til Juilliard. Þá tek
MAÐURINN
Jörundur er 28 ára gamall
Hann bjó lengi á Vestfjörð-
um þegar hann var yngri
Hans uppáhaldsgamanþætt-
ir eru Simpsons, Family Guy,
The Office og League of
Gentlemen
ég einnig þátt í farsanum Lík í
óskilum ásamt Ladda, Eggert Þor-
leifssyni og Helga Brögu svo ég
nefni bara nokkra. Þá leik ég þann
ljóta í leikritinu Sá ljóti, sem sett
verður upp í Þjóðleikhúsinu í vetur.
Það verður lítið um grímur og
förðun, en ég mun gera mitt besta
til að ná fram innri fegurð persón-
unnar!“ sagði Jörundur sem einnig
leikur í Næturvaktinni, nýrri ís-
lenskri gamanþáttaseríu sem sýnd
verður á Stöð 2.
„Þetta er ekki þessi týpíski sket-
cha-þáttur sem íslendingar eiga að
venjast. Þetta er meiri svona tragi-
kómík og ég hugsa að það sé svo-
lítið nýtt fyrir íslenskan markað,"
sagði Jörundur að lokum.
BLOGGARINN...
Hví ekki?
„Afhverju er fjölkvæni ekki leyft? Við
höfum nú leyft hommum og lesbíum að
giftast en það hefði þótt óhugsandi fyrir
tuttugu árum. Við segjum að samkyn-
hneigðir eigi rétt til að velja hverjum þeir
giftist svo afhverju má ég ekki giftast
tveimur mönnum ef það er það sem ég
og þeir vilja?"
Haila Rut
hallarut.blog.is
Hallar á karla?
„Jóhanna Sigurðardóttir félagsmálaráð-
herra skipaði nýtt jafnréttisráð á dögunum.
[...]! nýju jafnréttisráði sitja hins vegar sex
konur og þrír karlar. Hvar eru femínist-
arnir núna? [,..]Það eina sem skiptir máli
íþví samþandi, eins og íöðrum slíkum
málum, er að hæfir einstaklingar séu
valdir algerlega óháð kyni eða öðru slíku.
Hins vegar má rétt ímynda sér hvort allt
hefði ekki orðið vitlaust og rúmlega það
efskipaðir hefði verið íjafnréttisráð sex
kartar og þrjár konur. Svo ekki sé talað
umef það hefði verið gert af ráðherra
Sjálfstæðisflokksins. “
Hjörtur J. Guðmundsson
sveiflan.blog.is/blog
Orðheppinn Óli
„Ólafur Helgi Kristjánsson, þjálfari Breiða-
bliks, fór hreinlega á kostum í viðtali á Sýn
ikvöld. Ólafur þóttist ekkert vilja tjá sig
um dómgæsluna, sagðist ekkert vit hafa
á dómgæslu en varpaði síðan risabombu
iátt að dómaranum. „Ég hef ekkert vit
á dómgæslu og hef þvi ekkert um
þetta að segja. Egill Már tekur þessa
ákvörðun, en ég set spumingarmerki
við það hvort ég eigi að fara í flugvél
á næstunni." Þetta sagði Ólafurá Sýn
en þess má geta að dómarinn er flugum-
ferðarstjórí."
Henry Birgir Gunnarsson
blogg.visir.is/henry
LAUGARDAGAR
ORÐLAUSTÍSKA
Auglýsingasíminn er
510 3744 blaðið=
Su doku
2 3 8 9
6 7 9 4 1
9 2
4 8 6 7
1 8
3 5 6
5 6 8 4 3 9
9 3 5 6
7 8 1
Su Doku þrautin snýst um að raða tölunum frá 1-9 lárétt og
lóðrétt í reitina, þannig að hver tala komi ekki nema einu sinni
fyrir í hverri línu, hvort sem er lárétt eða lóðrétt. Sömu tölu má
aukin heldur aðeins nota einu sinni innan hvers níu reita fylkis.
Unnt er að leysa þrautina út frá þeim tölum, sem upp eru gefnar.
Ég vil að þú fáir þér hálftíma göngutúr, 10
mínútum fyrir matartíma á hverjum degi.