blaðið - 06.09.2007, Síða 2
2
FRÉTTIR
FIMMTUDAGUR 6. SEPTEMBER 2007
blaöió
Þjálfarar ávítaðir og sektaðir
Guðjón Þórðarson, þjálfari f A, og
Magnús Gylfason, þjálfari Víkings
R., voru í gær ávítaðir og sektaðir af
aga- og úrskurðarnefnd KSÍ vegna
ummæla sinna í garð dómara á opin-
berum vettvangi, þ.e. í fjölmiðlum,
eftir leiki 14. umferðar Landsbanka-
deildar karla á dögunum.
Knattspyrnudeildir í A og Víkings
eru hvor um sig sektuð um 10 þúsund
krónur vegna ummælanna.
Þá ákvað nefndin einnig að veita
Leifi Garðarssyni, þjálfara Fylkis,
og Ólafi H. Kristjánssyni, þjálfara
Breiðabliks, áminningar vegna um-
mæla þeirra eftir sömu umferð. mbi.is
Vilja félag um
aflaheimildir
Eignarhaldsfélaginu Hvetjanda
hf. hefur verið falið að kanna
möguleika á gerð viðskiptaáætl-
unar um stofnun almennings-
hlutafélags sem myndi kaupa afla-
heimildir til Vestfjarða. Reynist
viðskiptaáætlunin jákvæð verður
næsta skref að halda stofnfund og
leita eftir hlutafé frá almenningi,
fyrirtækjum og Byggðastofnun.
Hugmynd um stofnun almenn-
ingshlutafélags um kaup á afla-
heimildum kom fyrst upp eftir
að ákveðið var að hætta vinnslu í
fiskvinnslunni Kambi á Flateyri.
Frá því að hugmyndin kom upp
hefur atvinnumálanefnd ísafjarð-
arbæjar verið falið að vinna að
málinu í samstarfi við Hvetjanda
og athuga hvort stofnun slíks
hlutafélags geti fallið að starf-
semi eignarhaldsfélagsins. mbi.is
Starfsfólk vant-
ar í leikskólana
Á höfuðborgarsvæðinu bíða
360 börn á leikskólaaldri eftir
því að geta hafið skólagönguna
vegna skorts á starfsfólki en 175
starfsmenn vantaði nú um mán-
aðamótin. Búið var að lofa 360
börnum plássi á leikskóla en ekki
er vitað hvenær hægt verður að
standa við þau loforð.
Ingunn Gísladóttir, starfsmanna-
stjóri leikskólasviðs hjá Reykja-
víkurborg, sagði í samtali við
RÚV að einnig þyrfti á næstu
dögum að skerða þjónustu í
þremur til fjórum íeikskólum og
að þar verði börn send fyrr heim.
mbl.is
Bílasalan í ágústmánuði
43% fleiri bílar seldust
Alls seldist 2141 nýr bíll hér á landi
í ágúst samanborið við 1.498 bíla í
sama mánuði á síðasta ári. Er þetta
43 prósenta aukning en fyrstu átta
mánuði ársins nemur samdráttur í
bilasölu 11,9 prósentum miðað við
árið 2006.
Að sögn Bílgreinasambandsins
er Toyota söluhæsta bílategundin
á árinu en alls hafa selst 2.685 bílar
af þeirri tegund það sem af er árinu
samkvæmt tölum frá Umferðar-
stofu. Athygli vekur að söluaukning
á Land Rover og Range Rover í ágúst
er 600 prósent milli ára.
mbl.is
I vtyuciurinn 'ke-r
7
Viltu læra aðferðir sem að
raunverulega breyta lífi þínu?
Námskeið í [hOÍMP tækni
NLP Námskeið
verður haldið 21.>23. og
28.-30.september 2007
X'opyright cKan.com |
Mail: rosa@ckari.com; Sími:894-2992
íslendingar reyna að kaupa vinsælar skólatöskur í danskri vefverslun
8000 kr. skellt ofan á verðið
Eftir að fjöldi fyrirspurna barst
frá íslandi til danskrar vefverslunar
sem selur vinsælar skólatöskur á
499 danskar krónur eða um 6000 ís-
lenskar krónur, en töskurnar kosta
nær 11 þúsund krónur í verslunum
hér á landi, var tilkynnt á síðu vef-
verslunarinnarjeva.dk að kostnaður
vegna afgreiðslu og sendingar á tösk-
unum til.fslands væri 700 danskar
krónur eða rúmlega 8000 íslenskar
krónur.
„Það komu margar fyrirspurnir
um þessar töskur og við þurftum
að taka afstöðu. Fyrirtækið er lítið
og við höfum ekki tök á að fylla út
tollafgreiðsluskjöl fyrir eina tösku
í einu. Við leituðum tilboða hjá
tveimur til þremur fyrirtækjum
vegna slíkrar þjónustu og fengum
þau svör að þetta myndi kosta
600 til 700 danskar krónur," segir
Preben Jensen, eigandi fyrirtækis-
ins, sem viðurkennir að þar með
sé verðið orðið meira en tvöfalt
hærra en gefið er upp á vefsíðunni.
Til viðbótar kemur 24,5 prósenta
virðisaukaskattur.
Þuríður Hjartardóttir, fram-
kvæmdastjóri Neytendasamtak-
anna, bendir á í blaðagrein að nú
sé búið að tryggja að Penninn, sem
flytur inn Jeva-töskurnar, verði
ekki af viðskiptum. Preben Jensen
fullyrðir að ekki sé verið að vernda
dreifingaraðilann á fslandi. „Hann
kaupir mörg hundruð töskur í einu
og sér sjálfur um pappírsvinnuna."
Preben heldur því einnig fram að
sendingar- og afgreiðslukostnaður
til Noregs sé jafnhár og til íslands.
Ekki er þó getið um það á vefsíðu
fyrirtækisins.
ingibjorg@bladid.net
Meta sakhæfi kyn-
ferðisbrotamanns
■ Geðlæknir telur nauðgara ekki stjórna gjörðum sínum eftir
höfuðhögg ■ Ósakhæfir losna úr öryggisgæslu þegar þeim batnar
Eftir Hlyn Orra Stefánsson
hlynur@bladid.net
Héraðsdómur Reykjavíkur úr-
skurðaði í gær að kvaddir skyldu
matsmenn til að meta sakhæfi Jóns
Péturssonar, sem tvívegis hefur
verið dæmdur í fimm ára fangelsi
fyrir frelsissviptingu, kynferðisbrot
og likamsárásir. Seinni dómnum
hefur verið áfrýjað til Hæstaréttar
og fór Jón fram á að kvaddir yrðu
matsmenn til að meta sakhæfi hans,
en geðlæknir hans á Litla-Hrauni
telur að sökum skaða á framheila,
sem sagt er að Jón hafi orðið fyrir
er hann datt af hestakerru í fríi á
Egyptalandi árið 1999, stjórni hann
ekki gjörðum sínum.
Réttarhald Lögmað-
ur Jóns Péturssonar á
leið í dómsal er mats-
beiðni um ósakhæfi
Jóns var tekin fyrir.
Miklir hagsmunir í húfi
Sveinn Andri Sveinsson, lög-
maður Jóns, segir töluverða hags-
muni í húfi fyrir brotamann að
fram fari mat geðlæknis. „Fyrst og
fremst það að dómurinn meti hann
ósakhæfan, sem er sýknuástæða. í
öðru lagi getur læknisfræðilegt mat
leitt í ljós að refsing sé ekki líkleg til
að skila árangri og í þriðja lagi getur
það leitt í ljós að hinn dæmdi eigi
sér einhverjar málsbætur."
Sveinn Andri segir að þótt menn
séu dæmdir ósakhæflr sé alls ekki
víst að þeir verði úrskurðaðir í örygg-
isgæslu; það séu óháð mál sem dóm-
urinn þurfi að fella úrskurð um.
Losna þegar þeim batnar
Ef menn eru úrskurðaðir ósak-
hæfir og í öryggisgæslu geta menn
VEÐRIÐ í DAG
losnað úr gæslunni ef sýnt þykir
að þeim hafi batnað. „Það má bera
upp beiðni við dómstól um að á
grundvelli nýrra læknisvottorða og
hugsanlega álits dómkvaddra mats-
manna losni menn úr öryggisgæslu,"
segir Sveinn Andri.
Sveinn Andri bendir máli sínu til
stuðnings á dóm sem féll í Hæsta-
rétti í febrúar árið 2006 er maður var
dæmdur ósakhæfur sökum hugvillu-
röskunar, en hann kýldi prófessor tví-
vegis í andlit og hótaði honum vegna
erfðafræðirannsóknar sem prófess-
orinn framkvæmdi og ofbeldismað-
urinn var ósáttur við. Sá losnaði úr
öryggisgæslu sama ár. Sveinn Andri
bendir á að öryggisgæslan taki ekki
mið af alvarleika brots, heldur því
hvort einstaklingur sé talinn hættu-
legur umhverfi sínu.
Á MORGUN
Hæg suðvestanátt
Snýst í hæga suðvestanátt, fyrst vestan-
lands með skúrum og léttir þá til um iandið
norðaustanvert seint í dag. Hiti 8 til 15 stig.
Kaldi og skúrir
Suðvestan kaldi og skúrir, en bjart austan-
lands. Hiti 10 til 18 stig, hlýjast austantil.
VÍÐA UM HEIM
Algarve 27 Halifax 16 New York 21
Amsterdam 14 Hamborg 16 Nuuk 7
Ankara 33 Helsinki 16 Orlando 25
Barcelona 24 Kaupmannahöfn 16 Osló 18
Berlín 17 London 23 Palma 25
Chicago 27 Madrid 31 Parls 18
Dublin 19 Mílanó 23 Prag 19
Frankfurt 18 Montreal 12 Stokkhólmur 16
Glasgow 17 Múnchen 20 Þórshöfn 13
DÓMARNIR
W, í apríl sl. staðfesti Hæstirétt-
^ ur 5 ára dóm yfir Jóni, en í
júní sl. var hann dæmdur í 5
ára fangelsi í héraði. Þeim
dómi hefur verið áfrýjað til
Hæstaréttar.
► Bréf frá geðlækninum á
Litla-Hrauni lá fyrir er Jón
var dæmdur í Hæstarétti,
en réttinum þótti ekki tilefni
til að fjalla um það.
^ Á grundvelli rannsóknar
^ annars geðlæknis mat
Hæstiréttur Jón sakhæfan,
en Sveinn Andri segir að
fyrra málið verði líklega
tekið upp verði Jón metinn
ósakhæfur nú.
STUTT
• Ölvunarakstur Lögreglan í
Borgarnesi tók þrjá ökumenn
vegna ölvunaraksturs í umdæmi
sínu aðfaranótt miðvikudags,
sem er óvenjumikill fjöldi.
• Fjárrekstrar Ökumenn mega
búast við töfum á vegum víða
um land um næstu helgi vegna
fjár- og stóðrekstra, en víða
verður réttað um helgina.
• Vatnagangur Vatnsflaumur
í Héðinsfjarðargöngum hefur
tafið vinnu við borun og spreng-
ingar þar undanfarið en um 130
lítrar af vatni á sekúndu renna
úr berginu í botni ganganna.
Vinna liggur þó ekki niðri því
verktakinn sinnir öðrum verk-
efnum í göngunum á meðan.
Leiðrétt
Ritstjóm Blaðsins vill leiðrétta hvaðeina,
sem kann að vera missagt í blaðinu.
Leiðréttingar birtast að jafnaði á síðu 2.