blaðið - 06.09.2007, Page 25
blaðió
FIMMTUDAGUR 6. SEPTEMBER 2007
25
LÍFSSTÍLLHEILSA
heilsa@bladid.net
Við þurfum að breyta hugarfari okkar,
hætta að vorkenna okkur og lifa þess í
stað lífinu til fulls, í þakklæti og heilbrigði.
Ný rope yoga-stöð opnuð í Hafnarfirði
Styrkir sál og líkama
ELÍN SIGURÐARDÓTTIR
► Hún hefur kennt rope yoga í
um áratug bæði hér á landi
og í Bandaríkjunum.
► Hún er íþróttafræðingur að
mennt.
Hún lærði rope yoga hjá
upphafsmanni æfingakerfis-
ins, Guðna Gunnarssyni.
W. Hún keppti í sundi fyrir
íslands hönd á Ólympíuleik-
unum 1996 og 2000.
er svo gott fyrir íþróttamenn því
að það eru svo margir sem gleyma
kviðnum sem er kjarni líkamans og
það er nauðsynlegt að styrkja hann
til að nýta styrkinn í öðrum vefjum
líkamans," segir Elín og bendir á að
þegar kviðurinn sé sterkur vinni
allur líkaminn miklu betur.
„Ég var sjálf mikil íþróttakona og
keppti í sundi í 18 ár. Þá gerði ég
mér grein fyrir því að þó að ég væri
að æfa og gera venjulegar uppsetur
eins og íþróttafólk gerir þá hafði það
ekkert að segja miðað við þetta. Ég
hef ekki kynnst neinu öðru æfinga-
kerfi sem nær jafndjúpt í kviðinn og
þetta. Fólk er að upplifa vöðva sem
það vissi ekki að væru til í líkama
þess. Við leggjum mesta áherslu
á kviðinn og aftanáliggjandi lær-
vöðva sem eru óvirkustu vöðvarnir
í líkamanum og skapa ójafnvægi í
honum,“ segir hún.
Setja sér markmið
Elín tekur undir að rope yoga
geti styrkt íþróttamenn andlega
fyrir átök og keppni. „Ég er sjálf
Rope yoga hentar vel
íþróttamönnum enda
styrkir æfingakerfið þá
jafnt andlega sem lík-
amlega. Fólk sem á við
veikindi eða erfiðleika að
stríða sækir einnig styrk
í það.
Eftir Einar Örn Jónsson
einar.jonsson@bladid.net
Rope yoga nýtur vaxandi vin-
sælda hér á landi og til marks um
það var opnuð ný rope yoga-stöð í
Bæjarhrauni 2 í Hafnarfirði í byrjun
vikunnar. Eigandi stöðvarinnar
er Elín Sigurðardóttir sem einnig
kennir rope yoga í Sporthúsinu í
Kópavogi. Til marks um áhugann
er biðlisti í rope yoga-tíma kl. 6 á
morgnana í nýju stöðinni. Þegar
Elin er spurð hvað valdi þessum vin-
sældum svarar hún því til að þetta
sé svo öflugt æfingakerfi sem taki
bæði á andlegu og líkamlegu hlið-
inni. „Við erum ekki bara að vinna
með líkamann og umbreyta honum
heldur líka að taka ábyrgð á eigin
lífi. Við þurfum að breyta hugarfari
okkar, hætta að vorkenna okkur og
lifa þess í stað lífinu til fulls, í þakk-
læti og heilbrigði," segir Elín.
Karlmenn sækja í sig veðrið
Konur á öllum aldri eru í meiri-
hluta þeirra sem stunda rope yoga
en karlmenn eru þó að sækja í sig
veðrið enda segir Elín að æfinga-
kerfið henti þeim ekki síður en
konum. Annars sækir alls konar
fólk tímana. „Ég er til dæmis að fá
til mín íþróttafólk og fólk sem á við
sjúkdóma eða veikindi að stríða svo
sem stirðleika, gigt og krabbamein,“
segir Elín og bendir á að rope yoga
geti auðveldað fólki að ganga í
gegnum veikindi eða erfiðleika.
„Ein kona sem er búin að vera lengi
hjá mér greindist til dæmis með
krabbamein og það þurfti að taka af
henni annað brjóstið. Hún sagði að
þetta hefði virkilega hjálpað henni
að takast á við það því að hún hefði
verið svo vel undirbúin,“ segir Elín.
Kviðurinn gleymist
fþróttamenn njóta góðs af rope
yoga enda er mikilvægt fyrir þá að
vera i góðu formi andlega og líkam-
lega til að ná árangri. „Rope yoga
Áhættusamt að vera frægur
Rokkstjörnur lifa hratt og deyja ungar
Það er ekki tekið út með sældinni
að vera rík og fræg rokkstjarna og
ófáar sem lifa hratt og deyja ungar.
Það eru í sjálfu sér gömul sann-
indi en nú hafa breskir fræðimenn
sýnt fram á það með vísindalegum
hætti.
Rokkstjörnur eru líklegri til að
deyja ungar en annað fólk sam-
kvæmt nýlegri rannsókn fræði-
manna við háskóla einn í bítla-
bænum Liverpool. Rannsóknin náði
til meira en íooo tónlistarmanna,
aðallega breskra og bandariskra, á
tímabilinu 1956-2005. Niðurstaðan
var sú að tónlistarmönnunum væri
tvisvar til þrisvar sinnum hættara
við að hljóta ótímabæran dauðdaga
en venjulegu fólki.
Á tímabilinu létust 100 tónlistar-
menn af þeim 1064 sem fræðimenn-
irnir könnuðu. Auk Elvis Presleys
Styrktarganga
á sunnudag
Hópurinn „Göngum saman“
stendur fyrir göngu til styrktar
rannsóknum á brjóstakrabba-
meini sunnudaginn 9. september.
Mæting er við Nesstofu á Seltjarn-
arnesi kl. 10:30 og þaðan verður
genginn lítill eða stór hringur
um nesið. Boðið er upp á heita
súpu og brauð eftir göngu. Óskað
er eftir 2000 króna framlagi frá
fullorðnum en frítt er fyrir börn.
Þeir sem vilja taka þátt eru
beðnir um að láta vita á net-
fangið gongumsaman@gongum-
saman.is.
Nánari upplýsingar má náigast á
vefsíðunni gongumsaman.is.
Reyklaus vefur
Á gagnvirku heimasiðunni reyk-
laus.is getur fólk fengið ókeypis
einstaklingsmiðaða aðstoð við
að hætta að reykja. Hver og einn
getur nýtt sér síðuna eftir hentug-
leika. Þeir sem skrá sig sem not-
endur fá send stuðningsskilaboð
sem miðast við þarfir þeirra, fá
aðgang að dagbók og gestabók og
siðast en ekki síst er spjallsvæði
á síðunni þar sem fólk getur deilt
reynslu sinni og baráttu með
öðrum sem eru í sömu stöðu.
Á síðunni er enn fremur hægt að
taka ýmis próf sem geta aukið
skilning fólks á reykingavenjum
sínum. Jafnframt er bent á leiðir
til að losa sig undan venjunum og
hætta tóbaksnaotkun.
Heilsuhátíð
Heilsu-
hátiðin
Fusion
Fitness Festi-
val verður
haldin í
fimmta sinn
í World Class í Laugum dagana
14.-16. september. Skráning er í af-
greiðslu World Class í Laugum og
á netfanginu unnur@fusion.is.
Unnur Pálmarsdóttir stendur
að hátíðinni í samvinnu við
World Class og fær hún til sin
sex erlenda gestakennara. Meðal
annars verður boðið upp á World
Class og Fusion Masterclass-tima
í þolfimi til styrktar Blátt áfram
þar sein plötusnúður verður eng-
inn annar en Páll Óskar Hjálm-
týsson. Nánari upplýsingar má
nálgast á vefsiðunni fusion.is.
voru í þeim hópi menn á borð við
Jim Morrison, söngvara The Do-
ors, gítarleikarann Jimi Hendrix,
Marc Bolan, leiðtoga T-Rex og Kurt
Cobain úr Nirvana.
Meira en fjórðungur dauðsfall-
anna tengdist misnotkun áfengis
og/eða eiturlyfja samkvæmt niður-
stöðum könnunarinnar.
Tónlistarmenn eru enn fremur í
mestri hættu fyrstu fimm ár eftir að
frægðin knýr dyra í lífi þeirra sam-
kvæmt rannsókninni. Sem dæmi
má nefna að Hendrix, Bon Scott,
söngvari AC/DC, og Sid Vicious úr
Sex Pistols létust allir innan fimni
ára eftir að þeir slógu í gegn.
Auk misnotkunar á áfengi og eitur-
lyfjum er talið að streita og álag sem
fylgir jafnt frægðinni og vinsælda-
tapi komi niður á heilsu stjarnanna.
BlaðiB/G.Rúnar
búin að keppa á stórum mótum og
þetta hjálpar gífurlega. Við biðjum
fólk um að skuldbinda sig og setja
sér markmið og sjá þau fyrir sér
þannig að það nái þeim. Það þarf að
einblína á það sem það vill í lífinu í
staðinn fyrir að einblina á það sem
það vill ekki. Flestir eru hræddir og
vita hvað þeir vilja ekki og einblína
á það og þá uppskera þeir eins og
þeir sá,“ segir Elín.
Þó að aðaláherslan sé lögð á rope
yoga í nýju stöðinni er þar einnig
að finna æfingasal með lóðum og
hlaupabrettum, sturtuaðstöðu og
infrarauða hitaklefa sem eru eins
konar sánaklefar án gufunnar. Þeir
eru góðir gegn streitu, gigt, vöðva-
bólgu og öðrum sjúkdómum.
Nánari upplýsingar um stöðina
má nálgast á heimasiðu Elínar, elin,
is.
Opnaði nýja stöð Elín Sigurðardóttir, rope
yoga-kennari, opnaði nýja rope yoga-stöð
í Hafnarfirði í byrjun vikunnar enda nýtur
þetta æfingakerfi vaxandi vinsælda.
Hrein nautn með
réttri hiíf...
Germany
100-120cm, þrjár stærðir
Krómlitað eða hvítt, án botns
Frá kr. 25.900 ----
■ 1.1» ........
sturta.is
Reykjavikurvegur 64
220 Hafnarfjörður.
Sfmi: 565-5566
www.sturta.is
. x.