blaðið - 06.09.2007, Side 39
blaóió
FIMMTUDAGUR 6. SEPTEMBER 2007
39
Þematengdar spumingakeppnir á Glaumbar
Popptónlistar-pubquiz
Hlynur Ben er trúbador á Glaum-
bar og á hverju fimmtudagskvöldi
stendur hann fyrir svokallaðri
popp-pubquiz-keppni þar sem hann
spilar nokkur lög og stef frá ýmsum
tímabilum tónlistarsögunnar og
spyr í kjölfarið spurninga um lögin.
,Fólk mætir einfaldlega á staðinn,
fær blað og penna og svarar spurn-
ingunum. Það kostar ekkert að taka
þátt og sigurvegararnir fá góða vinn-
inga að launum,“ segir hann.
Hugmyndin að þessari keppni
kviknaði eftir að staðurinn hafði
verið gerður upp og var opnaður
aftur. „Okkur vertinum á Glaumbar
datt í hug að gera eitthvað sem væri
aðeins öðruvísi heldur en á öðrum
stöðum og úr varð þessi hugmynd,
að blanda saman trúbadorastemn-
ingu og pubquiz-keppni. Þetta hefur
verið í gangi á hverjum fimmtudegi
síðan við byrjuðum með þetta fyrir
um einum og hálfum mánuði,“ segir
Hlynur.
Mismunandi sigurvegarar
Eitt það skemmtilegasta við
þennan leik er að sögn Hlyns sú
staðreynd að aldrei er hægt að spá
fyrir um hver vinnur hverju sinni.
.Stundum koma miklir popp-spek-
ingar sem maður veit að eru mikið
inni í þessum málum og þeir vinna
kannski eitt kvöldið en svo viku
eftir það vinnur kannski fólk sem
hlustar helst á það sem er vinsælast
hverju sinni,“ segir hann.
Fer mikill tími í að undirbúa
hverja keppnifyrirsig?
„Það fer kannski ekki mikill tími í
að sitja yfir þessu en þó hlusta ég á
útvarpið alla vikuna og heyri annað
slagið lög sem mér dettur í hug að
væri gaman að nota. Svo tek ég eftir-
Elvis Presley Ártíð-
ar hans var minnst á
dögunum.
miðdaginn á fimmtudögum til þess
að æfa mig og fínpússa þetta.“
Stundum er hægt að hafa þessa
keppni þematengda. „Stundum
er eitthvað að gerast sem gefur til-
efni til þess að hafa sérstakt þema
í þessari keppni. Þannig var það til
dæmis um daginn þegar minnst var
ártíðar Elvis Presley. Mér fannst svo-
lítið spes að halda upp á svoleiðis en
engu að síður notaði ég tækifærið og
tileinkaði eitt kvöldið Elvissegir
Hlynur að lokum.
Popp-pubquiz-keppnirnar eru
haldnar öll fimmtudagskvöld
klukkan 21.
BLOGGARINN...
Húmor eða
húmorsleysi
Gott og vel ég hefalveg húmor fyrír
þessari auglýsingu eins og ég hefhúmor
fyrír Life of Brían en ég skil samt sem
áðurþá sem ekki hafa það og mér finnst
ekkert sjálfsagt að auglýsingar sem birtast
manni án allra viðvarana ísjónvarpinu hafi
einhvern ótakmarkaðan rétt til að ofbjóða
fólki. Auk þess sem aug/ýsingar eiga að
hafa ákveðin siðferðisleg takmörk - þó ég
sé ekki viss um að um auglýsingar þurfi
að setja skýrari lög nema þegar þær snúa
að börnum.
Bryndís isfold Hlöðversdóttir
http://bryndisisfold.blog.is
Bók fargað
Mér finnst aðeins undarlegt að nærvera
heimildanna snertirþá ekki nema sem
viðbrögð við þvi sem Björgólfur segir og
gerir. Það er ekki hægt að komast að
annarri niðurstöðu en þeirrí að íraun stýri
Björgólfur íslenskum og já raunarlíka
þeim erlendu blaðamönnum sem nálgast
hann og hans fólk. Meinið er aðeins að
báðir virðast engu að síður óhressir með
það.
Kristján B. Jónasson
http://kristjanb.blog.is
Elvis og Díana
Nú eru bióm alls staðar um London, ekki
bara við Kensington og Buckingham haltir,
heldur við dyr veitingahúsa og heilsurækt-
arstöðva, sem hún sótti. Samt erallt eins
og það var áður, líka kóngafjölskyldan.
Díana var bara frægðarfólk, lesefni í Séð
og heyrt. Dellan um hana er eins og
dellan um Graceland, sveitasetur Elvis
Presley. Elvis og Diana eru verndarenglar
rugludalla.
Jónas Krístjánsson
www.jonas.is
Kanadískir aæðapottar
RYMINGARSALA
Munum á næstu vikum opna stærstu pottaverslun
í Evrópu í nýju 8Q0m2 húsnæði í Faxafeni 9
SpafflKongen
Lækjargötu 34 • Hafnarfjörður • S. 554 7755
www.spakongen.is heitirpottar.is