Orðlaus - 01.03.2004, Page 16

Orðlaus - 01.03.2004, Page 16
MÆLUM MEÐ: Vibrafem Þetta krem er fyrir allar þær stelpur sem eiga í erfiðleikum með að fá það eða vilja krydda upp á kynlífið. Það besta við þetta krem er að það svínvirkar ... ójá! Það sem gerist er að þegar þú nuddar því á snípinn þá fer blóðið af stað og þú verður mun næmari. Við mælum alveg hiklaust með þessu kremi sem fæst í Erotica, Hverfisgötu 82 og kostar aðeins 987 krónur. Millionairematch.com „Þetta er besti og stærsti staður i heimi til að hitta fallega einhleypinga á framabraut" segir á síðu þeirra www.millionairematch.com. Þarna inni eru skráðir nokkur hundruð þúsund meðlimir og af þeim eru tugir þúsunda mi 11 jónamæ r i ngar. Stjórnarformenn, atvinnumenn í íþróttum, NFL klappstýrur, læknar, lögfræðingar, fjárfestar, fyrirsætur, leikstjórar o.s.fr. Við mælum að sjálfsögðu með þessu fyrir alla örvæntingafullu einhleypingana á Islandi... þú veist aldrei hvað getur gerst. Minnistöflum Fyrir þá sem muna aldrei neitt. Minnistöflur eru líka stór sniðugar fyrir þá sem eru að fara i próf því að þær, jú, auka minnið ... unagi! Við höfum prófað þessar töflur en með óvissum árangri því það er erfitt að meta hversu gott minnið manns er. Minnistöflur fást í flestum apótekum og heita Memory Plus. Handunnum snyrtivörum Lush framleiðir og selur ferskar, handunnar snyrtivörur og leggja áherslu á að hafa einungis náttúruleg efni í sínum vörum. Lush vörur eru alltaf nýjar, ferskar og náttúrulegar. I versluninni eru seldar húðvörur, freyðiböð, baðoliur, hárvörur, nuddolíur, sápur og gjafapakkar. Við mælum eindregið með frískandi greip lime glimmerbaði fyrir djammið og afeitrandi þynnkubombu daginn eftir. Fyrir róleg kvöld heima þá mælum við með slakandi baðbombum með rósailmi og góðu nuddi á eftir. Lush er í Kringlunni. Ordlaus.is Þetta er án efa ein flottasta íslenska heimasíðan í dag. Á henni má finna öll tölublöð Orðlaus á Pdf formi, spjall, gestabók, stjörnuspá, greinar og rúsínan í pylsuendanum eru gagnvirku sjálfsprófin. Við mælum að sjálfsögðu með því að fólk kynni sér þetta meistarastykki og skrái sig á póstlistann. Jaeja... nei Iffið mitt hefur ekki tekið með bleikan varalit og ætlaði að vera feitur í grunnskóla. Fólkið var I pirraðra jafn miklum stakkaskiptum og ég hélt... prúð og settleg svo af bæri. Hildur var kantinum en það róaði okkur ekkert og Þetta byrjaði sem sagt alit á því að ég búin að hlaða í mig góðum ráðum (ekki við vorum ekki til friðs i rútunni. Á hitti Bjössa, strák sem var með mér í að ástarlffið hennar sé blómstrandi) og hestaleigustaðnum fannst okkur grunnskóla, þegar ég var á Sólon að var ég þvf ákveðin f þvf að vera hard- ógeðslega fyndið að þykjast vera vanir glápa á Sæta barþjóninn með Hildi. to-get og láta hann bjóða mér á deit. knapar og þó að ég haldi að gaurinn Bjössi var orðin svona Ifka svaka sætur Ég var full sjálftrausts og Hollywood hafi ekki fallið fyrir því fengum við og eftir að hafa setið á spjalli með okkur rómantfkin var handan við hornið. einhverja svaka graðfola. Við vorum bauð hann mér vinnu. Ég fór sem sagt Þegar við vorum hálfnuð með matinn ekki komin nema svona 10 metra þegar ég fór að halla ískyggilega mikið og Ég fór sem sagt að vinna á Sólon og hélt að þar væri ég búin að leysa öll mfn vandamál... Myndi hætta f sjoppunni, verða eftirsóttasta pfan í bænum og missa ðll mín aukakfló. að vinna á Sólon og hélt að þar með væri ég búin að leysa öll mín vandamál... Myndi hætta f sjoppunni, verða eftirsóttasta pían í bænum og missa öll mín aukakíló. Tja, ég missti allaveganna eitthvað þar sem ég mætti galvösk í vinnuna og byrjaði á því að missa glös en var síðan hækkuð í tign og fór að missa mat og missti loks vinnuna. Þetta var samt alveg ffnt ég kynntist nýju fólki og Maggi elska tók við mér aftur þegar allt var endanlega farið í fokk. En allaveganna þá gerðist alveg fullt á mínum stutta ferli á Sólon. Ég fór í prufu og klúðraði nánast öllu en yfirmennirnir voru voða indælir og sögðu að þetta væri mjög eðlilegt svona fyrsta daginn. Eftir nokkra daga var ég reyndar ekkert farin að ná tökum á vinnunni en gekk þó stórvel í daðrinu og kynntist Sæta betur og betur. Þegar ég var búin að vinna þarna f víku var komið að staffadjammi og sá ég mér þar leik á borði að hözzla Sæta í eitt skipti fyrir öll!! Planið var að fara á hestbak á hádegi einhvers staðar út í sveit, út að borða og sfðan á djammið... Ég fékk alveg hroll við tilhugsuninni um hversu full ég myndi verða þar sem ég er mesti hænuhaus á landinu. Ég var alveg á því að mæta ekki þegar Sæti kom og spurði mig. Ég sló til en hefði kannski betur sleppt því. Bjössi, Sæti og ég ákváðum að hittast í hádegismat klukkan 11 áður en lagt skyldi af stað og byrjuðum strax f bjórnum. Ég var búin að punta mig voru strákarnir farnir að horfa a11 skringilega á mig og loks spurði Bjössi hvað væri að mér, ég væri með svo aulalegt bros og flissaði út af öllu og auk þess hafði hann aldrei séð mig þegja svona lengi. Þetta sló mig algerlega út af laginu þar sem ég hélt að þeir væru alveg að falla fyrir mfnum dularfulla dömulega sjarma. Ég bað þá að afsaka mig, ég þyrfti að púðra á mér nefið, og reis þokkafullt upp úr stólnum. Ég hringdi í Hildi á klósettinu sem sagði mér að reyna að brosa meira og segja eitthvað fyndið og halla mér að Sæta þegar ég myndi hlæja. Strákarnir voru búnir aö panta meiri bjór þegar ég kom til baka og eftir að hafa svolgrað aðeins í mig fór ég að reita af mér brandarana og strákarnir öskruðu úr hlátri um leíð og ég opnaði munninn, ég var farin að liggja liggur við á sæta þetta var að ganga svo vel. Þegar syrpunni lauk voru strákarnir enn í hláturskasti en þetta varð heldur vandræðalegt þegar Sæti ropaði þvf loksins út úr sér að ég væri með massa mikinn varalit á tönnunum. Ég rauk inn á bað og þreif af mér varalitinn og var f svona 15 vælandi úr hlátri mínútum í sfmanum við Hildi yfir því hvað ég væri mikill lúði. Þótt stoltið væri nú aðeins sært fór ég fram og allt fór að falla í góðan farveg. Þegar klukkan fór að skrfða f tólf og afgangurinn af staffinu var farið að týnast inn vorum við komin á eyrnasneplana og farin að öskra út um allan staðinn hvað Bjössi hefði verið hrundi svona skemmtilega af baki á nánast engri ferð, Sæta fannst þetta svo fyndið þar sem hann kom ríðandi á smá ferð að hann missti stjórn á hestinum og datt Ifka af baki. Við ákváðum því að beila á hestaferðinni og fara í hlöðuna að undirbúa skemmtiatriði. Þar sem ég taldi mig vera stórslasaða ákváðum við að það væri ráð að hann myndi bera mig. Þegar við komum inn var svona líka spenna í loftinu og þetta hefði án efa verið eitt rómantískasta móment sem ég hef átt ef við hefðum ekki verið slefandi rangeygð af drykkju með hestahjálma. Við fórum síðan f svona Ifka svakalegan sleik og vorum að kela og staupa þangað til liðið kom tilbaka. Þegar þau komu létum við eins og ekkert værí á þeim klukkutíma sem við þurftum að bíða eftir rútunni. Mér fannst Bjössi frekar skrýtinn það sem eftir var en var ekkert að pæla of mikið í því. Þegar ég var síðan að bíða eftir klósettinu þá tekur sæti utan um mig aftan frá og fer að kyssa á mér hálsinn, ég var auövitað mjög sátt og við förum að kela þarna f myrkrinu. Allt ( einu opnuðust dyrnar á klósettinu og eins og f dramatískustu bíómynd ever fór Ijósíð að streyma fram. Ég leit viö í "slow motion" og sá að manneskjan sem stóð þarna útböðuð f Ijósi var Sæti!!!! Ég öskraði upp, leit og sá að gaurinn sem var að sleikja á mér eyrun var Bjössi! Vala

x

Orðlaus

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Orðlaus
https://timarit.is/publication/942

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.