Orðlaus - 01.03.2004, Blaðsíða 52
Ef þú stendur fyrir framan aðal innganginn á
aðalbrautarstöðinni þá er Vesterbro á hægri hönd.
Aðalgatan heitir Vesterbrogade en samhliða henni
liggur hin fræga Istedgade.
Lengi vel þótti Vesterbro ekkert rosalega hot hverfi.
Þar bjuggu dópdílerar, drykkjusvelgir og dræsur, en í
dag hefur þetta breyst mikið þó að enn séu dílerar og
sjúskaðar dræsur á stangli á kvöldin og um helgar.
Stóru breytingarnar á Vesterbro urðu fyrir sirka sjö
árum síðan þegar borgaryfirvöld tóku sig til og gerðu
mikið af félagslegum íbúðum upp. Á meðan málarar
og smiðir rifu út skítug gólfteppi var vandræðaliðinu
komið fyrir annarsstaðar og þegar íbúðirnar voru
orðnar fínar þá hækkuðu þær um leið svo mikið í verði
að vandræðapésarnir höfðu ekki efni á því að flytja
aftur inn. Hinvegar voru prísarnir viðráðanlegir fyrir
ungt og efnilegt fólk sem setti lélegan orðstír hverfisins
ekki fyrir sig.
Þetta varð til þess að á Istedgade hafa nú sprottið upp
ósköpin öll af flottum búllum og börum sem henta
þörfum framabrautarfólksins. Reyndar er enn hægt að
kaupa víbradora og handjárn og drekka bjór sem er
serveraður af jussu sem er ber að ofan, en meira að
segja dónabúðirnar hafa farið í gegnum meik óver og
eru komnar með æsandi Fame yfirbragð til að lokka
unga fólkið inn.
Ef þig langar til að taka rúntinn um Vesterbro (sem ég
hvet þig eindregið til að gera) þá er skynsamlegt að
ganga bakdyrameginn út um lestarstöðina og halda
upp eftir Istedgade. Second hand og design búðir eiga
eftir að blasa við þér og það sama má segja um
dónaskapinn. Sérstaklega skemmtilegt er að kíkja inn
í arababúðirnar og nú er um að gera að láta Halim Al
heilkennið ekki trufla sig heldur fá frekar lagið um
Arabadrenginn á heilann þegar maður kíkir inn í þessar
mögnuðu kitch búðir. Þar er hægt að fá ótrúlega
skrítna og skemmtilega hluti á spottprís. Til dæmis
vekjaraklukkur sem gaula múslímskar möntrur til að
vekja þig og stórar veggmyndir sem eru um leið lampi
og "lifandi" foss.
Þegar þú hefur gengið upp Istedgade að Enghavevej
er gott að beygja til hægri út að Vesterbrogade, ganga
til baka niður hana og stoppa á Vesterbro torgi til að
fá sér kaffi eða eitthvað í gogginn. Þramma svo áfram
að Colbjornsensgade 3 þar sem þú færð vel smurt
reiðhjól á leigu og heldur áfram þangað sem örlögin
og Orðlaus leiða þig.
Mart smart á Vesterbro:
Bang og Jensen
Istedgade 130
Hér eru allir inn og lekkerir og margir þunnir þar sem
brönsinn er hægt að fá til klukkan fjögur eftir hádegi.
Ef þú vaknar snemma þá er morgunverðarhlaðborð
uppi til kl 10:30 og ef þér finnast kokteilar góðir þá
eru þeir sérgrein á Bang og Jensen.
Um helgar eru grúví snúðar sem sérhæfa sig í grúví
tónlist og allir grúva saman í góðu grúvi eins og grúví
fólki sæmir.
Ideal Bar og Vega
Enghavevej 40
Ideal bar er ótrúlega flottur staður með orginal 50's
innréttingum og hvítum leðursófum. Tónlistin flott en
þó hægt að tala saman og mannskapurinn upp til hópa
vel til hafður. Strákar með hliðartöskur í LP stærð,
kassagleraugu og í köflóttum skyrtum. Stelpur í
leðurstígvélum og zpez kápum.
Vega er svo stóri klúbburinn um helgar og þar er oftast
vel pakkað dansgólf og rífandi stemmning. Ef maður
fær svo suð í eyrun, eða langar á trúnó, þá stekkur
maður á Ideal bar og fær útrás fyrir það.
Amigos
Schonbergsgade 4
Amigos var einu sinni bara hommabar en er núna
homma og heteró bar. Þar er búsið billigt og allir
ægilega hressir. Einu sinni var karaoke þarna en það
var tekið niður fyrir nokkrum mánuðum vegna þess að
grannarnir kvörtuðu undan hávaða. Samt er enn hægt
að syngja þar sem barþjónarnir láta stundum karaoke
diska í spilarann og grísa svo bara á að einhver kunni
textann. Þarna getur stemningin verið svolítið twisted
en sumir eru jú líka fyrir svoleiðis sjáðu til.
P.S Á Enghavevej, fyrir aftan Matteusarkirkjuna, er
önderkover kaffihús þar sem hægt er að fá bestu
hamborgara Sjálands og þú mátt setja áleggið á þá
sjálf...
"i.
Norrebro
Ef þú leigir þér hjólið, hjólar meðfram ánni í hægri átt
frá Vesterbro og framhjá tveimur skiptingum á
síkjunum, þá kemur þú að Dronning Louises bro sem
liggur beint inn á Norrebrogade (sem er jú aðalgatan
á Norrebro). Rétt eftir að þú kemur af brúnni skaltu
beygja inn þriðju götu til hægri, Fælledvej, og eftir
eina og hálfa mínútu endarðu á litlu torgi sem heitir
Sankt Hans Torv. Það lætur ekki mikið yfir sér í fyrstu
en á þessu torgi, og litla svæðinu í kringum það, er
voðalega gaman að hangsa bæði dag og nótt. Við
torgið sjálft eru frábær kaffihús. Til dæmis er hægt að
fá mjög góðan mat á Sebastopol og Pussy Galore og
ef þig langar til að vera í æðislegum undirfötum á
meðan þú færð þér æðislega samloku og latte þá er
um að gera að kíkja í Missekat á Elmergade 17 sem
selur prjónaðar naríur og mart fleira smart. Reyndar
eru fleiri fínar búðir á Elmergade. Til dæmis
fornbókabúð og gerlaust bakarí og margt fleira. Um
að gera að flækjast bara aðeins um.
Á Norrebrogade er líka hellingur af flottum búðum og
það sama má segja um Ryesgade en þar er slatti af
antik búðum sem selja notuð húsgögn, lampa og fleira
á góðu verði. Ef þú hefur ekki orku í að hjóla þá er
líka hægt að komast þarna með því að taka strætó 5A
frá Rádhuspladsen eða S lestina til Norreport og skipta
þar yfir í strætó 5A.
Mart Smart á Norrebro:
Opium
Fælledvej 7
Hér getur þú fengið þér góðan kvöldmat sem er blanda
af frönsku og indókína eldhúsi. Stemmningin er
dásamleg og til að toppa góða máltíð getur þú farið
pakksödd ofan í kjallara, sest á mjúkan, risastóran
púða í reykelsismettuðu herbergi og fengið þér te og
vatnspípu á meðan plötusnúðurinn spilar austurlensk
bít mixuð með þeim vestrænu. Um helgar er hægt að
fá sér brunch af stóru hlaðborði. Prísinn er 109 krónur
(c.a. 1.200 kr) og þú færð eins mikið af kaffi og djús
og þú getur torgað.
Funke
Blegdamsvej 2
Þetta er oggolítil hola en ótrúlega vinsæl eins og
stundum vill verða með oggolitlar holur. Stemman er
svona það næsta sem maður kemst Sirkús, Kaffibarnum
og Prikinu nema hvað að á Funke er líka poggulítið
dansgólf sem hægt er að skekja rumpinn á og stundum
eru stand öpp grínistar á staðnum.
Rust
Guldbergsgade 8
...er klúbbur á þremur hæðum með tveimur
dansgólfum. Tónlistin er misjöfn eftir snúðum en alltaf
góð og mjög dansvæn. I kjallaranum, sem gengur undir
nafninu Bassment, er oftar en ekki sveitt hip-hop en
uppi house tónlist eða eitthvað annað rafrænt til að
hrista sig við. Strákarnir í Köben eru á heimsmælikvarða
þegar kemur að sex appíli og þokka og á Rust eru þeir
í sérflokki þannig að þú átt pottþétt séns á hitta
einhvern sem er til að sjá prjónanaríurnar og koma í
sleik. Þeir eru nefninlega frekar lauslátir og ligeglad
þessar dúllur: "Yes, we came here because danish men
are supposed to be so horny... it said so in an lcelandic
magazinel".
Stengade 30
Stengade 18
Fyrir þá sem hafa gaman af rokki, pönki, indí og svona
meira alternative stemmingu er um að gera að skreppa
á Stengade 30 sem er goðsagnakennd öndergránd
búlla í Köben. Um helgar kostar oftast ekkert inn fyrir
ellefu, en eftir það fimmtíu kall. Jóna með dredlokka
og Jónas með hring í nefi og neðrivör mun taka á móti
þér með loðið bros í lygnum augum og saman getið
þið dansað við Cure og annað 80's fram á morgun.
Café Louise
Norrebrogade 5
Eftir að flestir staðir loka, sem er klukkan fimm eða
sex, er hægt að skakklappast í prjóna naríunum með
nýja danska vininn yfir á Café Lousie, sem er hinu
megin við brúnna og þar lokar ekki fyrr en kl 10 eða
11 fyrir hádegi.
Det Rene Glas
Norrebrogade 64
Ef þig langar að ganga enn lengra í djammi dauðans
þá er lika hægt að toppa sig með því að fara á Det
Rene Glas, panta brauð og linsoðið egg og kyngja því
niöur með enn meiri Tuborg. Skál!