Orðlaus - 01.03.2004, Blaðsíða 28
FROSTI: Blessaður maður!
KGB: Blessaður.
KGB: Þú varst úti, hvernig gekk það?
FROSTI: Vel bara. Bara nóg af partýum og stuði og
svona. Við fórum í fyrsta skipti til Þýskalands, smá
tilbreyting. Vorum líka að spila með stærri hljómsveit,
The Distillers, söngkonan er kærasta Josh Homme úr
Queens of the Stone Age. Þeirra band er alveg geðveikt
heitt í Þýskalandi.
KGB: Hittiru kallinn?
FROSTI: Jájá, ég hitti kallinn. Hann kom með okkur
eina kvöldstund og við vorum á trúnó með honum í
partýi, hann var að gráta bassaleikarann sinn sem hann
var að reka. Hann var alltaf svo óþekkur og erfiður í
samstarfi.
KGB: Ég er svona klúðurgaurinn, sem er alltaf seinn
og svona og á engan pening.
FROSTI: Það eru allir þannig í minni hljómsveit!
KGB: En sko, þegar ég var að spila með Botnleðju
vorum fengnir til að spila á Redding, svaka breik og
svona. Við vorum búnir að æfa og fórum uppá svið,
ég byrja að spila og það bara kemur ekki neitt. Það
var plötufyrirtækislið að horfa og svona ...
FROSTI: ó men!
KGB:... og það var alveg rosalegt! Svo kom gaur sem
sá þetta hlaupandi uppá svið með syntha fyrir mig og
ég kunni auðvitað ekkert á hann. Bara svona týpískt,
ég kunni ekki á hljóðfærið og útaf því að ég er (ekki)
píanóleikari lamdi ég bara orgelið. Það kom mjög illa
út.
FROSTI: Var þetta ástæða fyrir endalokum þínum í
Botnleðju?
KGB: Nei, nei, en sko alveg partur af því. Ég og Halli
vorum ekkert bestu vinir þarna undir lokin. Hann var
alveg búinn að fá nóg af mér, en það er allt orðið gott
í dag.
FROSTI: Ég man eftir einum tónleikum sem við spiluðum
á í Bretlandi í einhverjum strandbæ. Það kom enginn
á tónleikana nema prómóderinn sem skammaðist sín
alveg hrikalega því hann hafði ekki hengt upp nein
plaköt og laumaðist bara út. Við spiluðum bara einhver
þrjú lög og meira að segja bara illa. Þá kom gaurinn
á barnum og sagði bara „hey, þið eigið alltaf að spila
vel sama hvort það sé enginn á tónleikunum!" og fór
að skamma okkur fyrir það. Það var alveg hrikalegt
kvöld!
KGB: Við tókum svona svipað í Fallmouth. Það var
algjör viðbjóður. Við komum og hugsuðum bara hvern
fjandann við værum að gera þarna, þetta var svona
lítið þorp. Það voru tveir gestir hjá okkur og greinilega
fastakúnnar og svo barþjónninn. Við spiluðum samt,
rosa hávaði og læti en eftir fyrsta lagiö kallar annar
gestanna „get back on your snowboards and get the
fuck out!" og við bara ok, en kláruðum settið bara til
að fara I taugarnar á honum.
telpur
leturu komiö eitthvað á Vegamót nýlega?
FROSTI: Hahaha, já ég er búinn að fara einu sinni á
Vegamót efir greinina í DV og mér var allavega ekki
hent út. Þetta var geðveikt leiðinlegt samt því ég sagði
þetta ekkert svona. Ég sagði að fallegu stelpurnar væru
meðal annars á Vegamótum en svo var annars staðar
í viðtalinu þar sem ég sagði hvað það væri mikil synd
hvað fallegar ungar stelpur á Islandi væru farnar að
nota hörð fíkniefni mikið og væru jafnvel að láta
svívirða sig inná klósettum skemmtistaðanna.
KGB: Já, það er allt annað mál.
FROSTI: Þetta er líka alveg satt, 18 ára stelpur sjúgandi
hörð fíkniefni og sjúgandi jafnvel eitthvað annað í
staðin. Þetta kom semsagt út einsog ég væri að segja
að allir kúnnarnir á Vegamótum væru sjúgandi tittlinga
fyrir kókafn ...
KGB:... sem að þú varst ekki að segja!
FROSTI: Vonum að þetta hafi leyst allan ágreining um
þetta mál.
KGB: Svo er líka svo fínn matur þarna!
FROSTI: Já, maturinn er nebblilega mjög góður.
KGB: Já stundum er gerður svona úlfaldi úr mýflugu.
Ég og Raggi I Botnleðju vorum til dæmis einu sinni að
pæla í að sviðsetja slagsmál inná Kaffibarnum og láta
taka myndir af því og selja Séð og Heyrt það vegna
þess að þeir myndu aksjúallí kaupa það.
FROSTI: Algjörlega.
KGB: Og það er bara útí hött. Hverjum er ekki skítsama
þó ég og Raggi berjum hvorn annan.
FROSTI: Nákvæmlega. Sértaklega núna samt, með
tilkomu nýju ritstjórnarinnar á Dagblaðinu myndu þeir
kaupa þessa frétt líka. Um daginn vorum við til dæmis
að spila á Akureyri og Þröstur bassaleikari er frá
Akureyri og honum finnst rosa gott að hvíla sig
stundum þar og hlaða batteríin hjá fjölskyldunni og
svona og hann ákvað að vera þarna yfir helgina. Þá
kom í Dagblaðinu að greinilegt hefði verið að það var
mikið fjör hjá okkur á Akureyri því að Þröstur
bassaleikari missti af fluginu á fylleríi.
KGB: Hahaha, þetta er svo rosalega týpískt.
FROSTI: Þetta var auðvitað bara búið til.
KGB: Já, einhvern veginn verða þeir að selja blöðin
sín.
FROSTI: Stelpur eru óútreiknanlegar, það er hægt að
segja þaö, án þess aö móðga neinn.
KGB: Já.
FROSTI: Þaö vantar eiginlega eina svona alvöru
stelpurokkhljómsveit á íslandi.
KGB: Já, ég skil ekki afhverju það eru ekki fleiri stelpur
sem stofna hljómsveitir.
FROSTI: Það þarf einhverja tlskubólu til aö hrinda
þessu af stað.
KGB: Já, fyrrverandi kærastan mln var reyndar I
stelpurokkhljómsveit, Kolrössu.
FROSTI: Mér fannst samt svo leiðinlegt þegar Kolrassa
skipti um trommara þarna, því sú sem var trommari
fyrst, hún var langsætust. Fallegasti trommari
Islandssögunnar!
KGB: Já bíddu, hún er líklegast fallegasti trommari
fslandssögunnar, við bara tilkynnum það hérmeð.
FROSTI: Þær voru samt aldrei nógu mikið rokkband.
Ég vildi sjá svona stelpuband sem var alveg svona
pönk/rokk. Við hvetjum því allar íslenskar stelpur til
að fara í skúrinn og raka á sig hanakamb.
KGB: Já, eindregið!
FROSTI: Ertu ekki úr Breiðholtinu?
KGB: Jújú, ég er úr 109.
FROSTI: Við erum þá svona andstæður,
KGB: Já, þú ert úr Garðabæ. Ég hef aldrei komið í lítið
hús í Garðabæ.
FROSTI: Já er það ekki? Þau eru nú örugglega til samt,
en ég bý í risa húsi.
KGB: Ég slóst samt aldrei þarna í Breiðholtinu, þorði
því ekki. Mér finnst svo rosalega vont að meiða mig.
FROSTI: Haha, I wonder why. En þegar ég var lítill
heyrði ég bara að verstu villingarnir í heiminum væru
úr Breiðholtinu.
KGB: Já vá, ég man það til dæmis þegar ég var 10 ára
gamall og pabbi bað mig um að skila vídjóspólu útí
Fell og ég þorði ekkert að fara þangað, en sagði samt
já ok. Ég er semsagt að labba þarna framhjá
Fellaskólanum og þar er gaur sem er eldri og alveg
alræmdur, að spila fótbolta. Hann skaut framhjá
markinu og markið sneri að mér svo boltinn fór til mín.
Ég labba með boltann til hans en hann bara kýlir mig
þvl hann skaut framhjá. Ég sagði auðvitað ekkert.
Svona var lífið í Breiðholtinu sko.
FROSTI: Djöfull var þetta hart maður.
FROSTI: Þegar ég var unglingur voru alltaf
dauðarokkstónleikar í Fellahelli. Ég var örugglega
yngsti dauðarokksaðdáandi á Islandi. Leit út einsog
feit stelpa með síða hárið.
KGB: Já Rykkrokk var til dæmis alveg magnað. Mikil
synd að það hafi lagst af. Ég bið hér með um að
Rykkrokk verði sett af stað aftur!
KGB: Hvernig lltur þú á kventískuna Frosti? Hvaö fangar
athygli þína?
FROSTI: Það getur reyndar verið margt sko, en ungar
konur, semsagt ekki stelpur, finnst mér alltaf bestar
ef þær eru frekar vel til hafðar. Ekki ( einhverju svona
rokksubbudressi. Þá finn ég nebblilega alveg svona
ostapíkufýlu. Svo ffla ég líka svona rokkaragellur þegar
þær eru kannski aðeins yngri. Spurning hvort það meiki
mikiö sens. Ég vil hafa stelpur (frekar rokkaðri
kantinum, svona soldið Spútnikktýpur en þegar ég er
að leita mér að svona konu þá veröur hún að vera
snyrtileg.
KGB: Já er það, þú ert semsagt meö þanna svona
dobbelstandart (gangi?
FROSTI: Já vá, ég var bara að átta mig á þvl núna
maður.