Orðlaus - 01.03.2004, Blaðsíða 54
4
t
Hrútur (21. mars - 20. apríl)
Þú ert mjög heitt og valdamikið merki. Þú ert mjög
ákveðin/n og veist hvað þú vilt og færð líka oftast það
sem þú sækist eftir. Þú átt það stundum til að vera það
ákveðin að þú ýtir fólki til hliðar til að fá þitt fram. Þú
ert mjög hættusöm/samur og ævintýragjörn/gjarn og
þú þarft að finna einhvern/hverja sem getur fylgt eftir
allri þessari orku sem þýr innra með þér. Þér finnst þú
þurfa að gera allt á mjög miklum hraða þessa dagana
hvort sem það er i vinnu eða einkalífinu. Núna er tíminn
til að slaka á og nota alla þessa orku sem í þér býr í
vinnuna eða skólann.
Naut (21. apríl - 21. maí)
Þú ert mikið jarðarmerki og vilt hafa alla hlutina á
sínum stað því þú átt erfitt með að takast á við
breytingar, Þú ert mjög hugmyndasöm/samur sem gerir
það að verkum að þú hefur mjög mikla sköpunargáfu
og ert gædd þeim kosti að geta þeðið þolinmóð/móður
eftir að hlutirnir gerist. Þú æsir þig ekki yfir minnstu
hlutum því að þú veist að ef þeir eiga að gerast þá
gerast þeir, sama hvort það taki viku eða ár. Þú ert
mjög trygg/ur í ástarmálum og vinamálum sem gerir
það að verkum að hitt kynið er mjög veikt fyrir þér.
Það er eitthvað gott að gerast í lífi þínu en þú virðist
ekki alveg taka eftir því, reyndu að skoða hlutina í
kringum þig og sjáðu hvað þú hefur.
Tvíburi (22. maí - 21. júni)
Vá hvað það er mikil orka í þér núna þér finnst eins
og þú sért að springa. Þú þarft að komast út að djamma,
versla eða eitthvað til að losna við alla þessa orku. Þú
ert mikið fyrir slúður og þú átt það til að kjafta
endalaust um eitthvað án þess að ná andanum á milli.
Slakaðu á og leyfðu öðrum að komast að, það er ráðið
fyrir þig. Þú vilt vita nákvæmlega hvar þú hefur hitt
kynið þegar það kemur að ástarmálum, þú ert oftast
með nokkra/rar í takinu hverju sinni en þegar það
kemur að hinum eina sanna þá ertu 100% trú. Tvíburar
eru oft þeir sem fólk tekur eftir en þennan mánuðinn
beinist athyglin frekar að öðrum. Fjölskyldan þin veitir
þér þó mikla athygli sem þú ættir að nýta þér.
Krabbi (22. júní - 23. júlí)
Þú átt það til að fela þig ínn í skelinni þinni og vera
þar. Þér finnst gott að slaka á heima með fólki eða að
skemmta þér yfír góðri bók. Þú getur verið mikið heima
hjá þér en ekki ein/n, þú ert mikið fyrir félagsskap þó
svo að það komi í litlum skömmtum. Þú þarft á mjög
opinni manneskju að halda í ástarlífinu, einhvern/ja
sem segist elska þig og þurfa á þér að halda. Þú þarft
að vita hversu mikilvæg þú ert í augum annarra,
sérstaklega makanum. Þú ert með mikið af hugmyndum
i hausnum á þér núna, skifaðu þær niður og segðu frá
þeim. Þú veist aldrei hvað gerist næst.
Ljón (24. júlí - 23. ágúst)
Ljónið er mjög sjálfstætt og þrjóskt merki. Þú getur
líka verið mjög hávær, stundum það hávær að þig
langar til að öskra. Það er gott því þá ertu orkumikil/l
og nýtir orkuna vel. Fóki finnst alveg æðislegt að hafa
þig í kringum sig og þú getur fengið athygli frá öllum.
Þú ert mikil partý manneskja eða vilt alltaf hafa eitthvað
að gera og vilt helst hafa mikið af fólki i kringum þig.
Þú ert oft svo upptekin/n að ástarlífið á það til að sitja
á hakanum án þess að þú takir eftir þv(. Þú ert eitthvað
hljóðlátari núna en það er þara lægð sem líður hjá.
Meyja (24. ágúst - 23. september)
Þér finnst gaman að geðjast öðrum, svona hálfpartinn
þjóna fólki. Það gefur þér góða tilfinningu. Þú ert
mjög smámunasöm/samur og vilt hafa allt í kringum
þig 100% annars líður þér hálf illa. Þú stendur þig
alltaf vel í vinnu og skóla og leggur mikinn metnað i
það að klára hlutina. Þú átt mjög auðvelt með að ná
athygli hjá hinu kyninu í samræðum, og þá um efni
sem geta verið um allt milli himins og jarðar. Reyndu
að fara að gera nýja öðruvisi hluti en þú ert vön/vanur.
Farðu að teikna, mála, dansa eða eitthvað sem tengist
einhverri list, því meyjan er mikill listamaður í sér og
ferst það mjög vel úr hendi.
jGL
Vog (24. september - 23. október)
Þú ert í miklum sambandshugleiðingum þessa dagana
og ert mikið fyrir ást og umhyggju, vilt gefa mikið frá
þér. Þú vilt hafa jafnvægi á hlutunum, þannig ef einhver
gefur þér ást og umhyggju þá vilt þú gefa jafn mikið
til baka. Þú er mjög mikill vinur vina þinna og vilt gefa
mikið frá þér, stundum meira en þú getur. Þú átt mjög
auðvelt með að finna allt það góða I fólki. ( ástarlífinu
viltu fara út að borða, eyða góðum tíma saman og fá
athygli. Þú átt að reyna að hugsa minna um að finna
ástina því þú átt það til að laða fólk að þér án þess að
þú gerir þér grein fyrir því og það mun gerast I
ástarlifinu líka.
Sporðdreki (24. október - 22. nóvember)
Þú ert mjög upptrekt/ur þessa dagana og vikurnar,
finndu þína eigin leið til að slaka á. Þú ert mjög trú
þínu fólki og einnig mjög opin fyrir flest öllum hlutum
sem eru lagðir fyrir þig. Ef einhver stingur þig I bakið
þá ertu ekki týpan til að gleyma eða fyrirgefa. Reyndu
að læra að sumt er ekki gert viljandi á þinn hlut. í
ástarlífinu átt þú það til að falla fyrir þeim sem eru
ekki að sýna þér mikinn áhuga, þú vilt hafa fyrir
hlutunum en ekki að fá þá þeint upp I hendurnar. Þú
ert mjög vinsæl/sæll í einkalífi og vinnu en ekki
vinsælasta manneskjan þó svo að þú viljir það. Þú getur
talað marga til og rökstutt þín mál á góðan hátt, en
þú verður líka að vita að aðrir verða að komast að og
leggja til málanna.
Bogamaður (23. nóvember - 21. desember)
Þú ert eitthvað leitandi núna en veist ekki alveg að
hverju. Það er best að halda áfram því þú munt eflaust
á endanum finna það. Þú verður að fá svör við flest
öllu og vilt alltaf fá góð og gild svör tilbaka. Þú mátt
alveg slaka á I að þrýsta á fólk að vera með öll svör á
reiðum höndum. Þú þarft á manneskju að halda sem
getur sýnt þér hluti og lætur þig losa um beislin I
ástarlífinu. Það er eitthvað að pirra þig þessa dagana,
en ekki láta það slá þig of mikið út af laginu. Fólk
metur þig og það er auðvelt að falla I skuggann á þér.
Steingeit (22. desember - 20. janúar)
Þú ert mjög ábyrg manneskja og traust. Þú stendur þig
vel I vinnunni og skilar þínu oftast alveg 100%. Þú vilt
vinna mikið og fara hratt upp metorðastigann sem er
gott, en reyndu að gleyma ekki að skemmta þér á
meðan. Þú þarft á einhverjum að halda sem er mjög
traustur/traust og er alltaf til taks og er að gera það
gott I lífinu. Það er mikil metnaðargirni I gangi hjá
þér. Reyndu að rækta þig og þína innri manneskju.
Vatnsberi (21. janúar - 19. febrúar)
Vatnsberinn er mjög sterkt merki þar sem þú ert
ábyrgðasöm/samur, nýjungagjörn/gjarn og opin fyrir
skemmtilegum hlutum. Fólki finnst aldrei leiðinlegt að
hanga með þér og þú ert feimin en leynir mikið á þér.
Þú ert með sköpunargáfu en veist ekki alveg hvað þú
átt að gera við hana. í ástarlífinu þarftu að hafa
einhvern sem kann að meta smámunasemina I þér og
finnst hún skemmtileg. Þú þarft að losa aðeins um
beislið núna og þér mun liða mun betur. Ekki vera
hrædd við að fólk horfi á þig, það er ekki að hneykslast,
það er að dást að þér.
Fiskar (20. febrúar - 20. mars)
Þú ert mikil draumóra manneskja og átt það til að
detta I þinn eigin heim I langan tíma, reyndar stundum
of langan tima. Þú átt það til að láta traðka á þér en
samt tekur þú varla eftir því. Þú ert mjög blíð/ur I eðli
þínu. Þú ert mikil ástarmanneskja og dreymir oft um
hluti sem gerast bara á hvíta tjaldinu, þú þarft á miklum
rómans að halda. Þú átt það til að reyna stundum of
mikið að vera listamaður þó svo að það búi ekki mikið
listamannseðli I þér. Það er samt ekki alslæmt þar sem
þú lætur þig dreyma og það gerir það að verkum að
þú átt auðveldara með að setja markið hátt og þá
kemstu lengra.