Orðlaus - 01.03.2004, Page 54

Orðlaus - 01.03.2004, Page 54
4 t Hrútur (21. mars - 20. apríl) Þú ert mjög heitt og valdamikið merki. Þú ert mjög ákveðin/n og veist hvað þú vilt og færð líka oftast það sem þú sækist eftir. Þú átt það stundum til að vera það ákveðin að þú ýtir fólki til hliðar til að fá þitt fram. Þú ert mjög hættusöm/samur og ævintýragjörn/gjarn og þú þarft að finna einhvern/hverja sem getur fylgt eftir allri þessari orku sem þýr innra með þér. Þér finnst þú þurfa að gera allt á mjög miklum hraða þessa dagana hvort sem það er i vinnu eða einkalífinu. Núna er tíminn til að slaka á og nota alla þessa orku sem í þér býr í vinnuna eða skólann. Naut (21. apríl - 21. maí) Þú ert mikið jarðarmerki og vilt hafa alla hlutina á sínum stað því þú átt erfitt með að takast á við breytingar, Þú ert mjög hugmyndasöm/samur sem gerir það að verkum að þú hefur mjög mikla sköpunargáfu og ert gædd þeim kosti að geta þeðið þolinmóð/móður eftir að hlutirnir gerist. Þú æsir þig ekki yfir minnstu hlutum því að þú veist að ef þeir eiga að gerast þá gerast þeir, sama hvort það taki viku eða ár. Þú ert mjög trygg/ur í ástarmálum og vinamálum sem gerir það að verkum að hitt kynið er mjög veikt fyrir þér. Það er eitthvað gott að gerast í lífi þínu en þú virðist ekki alveg taka eftir því, reyndu að skoða hlutina í kringum þig og sjáðu hvað þú hefur. Tvíburi (22. maí - 21. júni) Vá hvað það er mikil orka í þér núna þér finnst eins og þú sért að springa. Þú þarft að komast út að djamma, versla eða eitthvað til að losna við alla þessa orku. Þú ert mikið fyrir slúður og þú átt það til að kjafta endalaust um eitthvað án þess að ná andanum á milli. Slakaðu á og leyfðu öðrum að komast að, það er ráðið fyrir þig. Þú vilt vita nákvæmlega hvar þú hefur hitt kynið þegar það kemur að ástarmálum, þú ert oftast með nokkra/rar í takinu hverju sinni en þegar það kemur að hinum eina sanna þá ertu 100% trú. Tvíburar eru oft þeir sem fólk tekur eftir en þennan mánuðinn beinist athyglin frekar að öðrum. Fjölskyldan þin veitir þér þó mikla athygli sem þú ættir að nýta þér. Krabbi (22. júní - 23. júlí) Þú átt það til að fela þig ínn í skelinni þinni og vera þar. Þér finnst gott að slaka á heima með fólki eða að skemmta þér yfír góðri bók. Þú getur verið mikið heima hjá þér en ekki ein/n, þú ert mikið fyrir félagsskap þó svo að það komi í litlum skömmtum. Þú þarft á mjög opinni manneskju að halda í ástarlífinu, einhvern/ja sem segist elska þig og þurfa á þér að halda. Þú þarft að vita hversu mikilvæg þú ert í augum annarra, sérstaklega makanum. Þú ert með mikið af hugmyndum i hausnum á þér núna, skifaðu þær niður og segðu frá þeim. Þú veist aldrei hvað gerist næst. Ljón (24. júlí - 23. ágúst) Ljónið er mjög sjálfstætt og þrjóskt merki. Þú getur líka verið mjög hávær, stundum það hávær að þig langar til að öskra. Það er gott því þá ertu orkumikil/l og nýtir orkuna vel. Fóki finnst alveg æðislegt að hafa þig í kringum sig og þú getur fengið athygli frá öllum. Þú ert mikil partý manneskja eða vilt alltaf hafa eitthvað að gera og vilt helst hafa mikið af fólki i kringum þig. Þú ert oft svo upptekin/n að ástarlífið á það til að sitja á hakanum án þess að þú takir eftir þv(. Þú ert eitthvað hljóðlátari núna en það er þara lægð sem líður hjá. Meyja (24. ágúst - 23. september) Þér finnst gaman að geðjast öðrum, svona hálfpartinn þjóna fólki. Það gefur þér góða tilfinningu. Þú ert mjög smámunasöm/samur og vilt hafa allt í kringum þig 100% annars líður þér hálf illa. Þú stendur þig alltaf vel í vinnu og skóla og leggur mikinn metnað i það að klára hlutina. Þú átt mjög auðvelt með að ná athygli hjá hinu kyninu í samræðum, og þá um efni sem geta verið um allt milli himins og jarðar. Reyndu að fara að gera nýja öðruvisi hluti en þú ert vön/vanur. Farðu að teikna, mála, dansa eða eitthvað sem tengist einhverri list, því meyjan er mikill listamaður í sér og ferst það mjög vel úr hendi. jGL Vog (24. september - 23. október) Þú ert í miklum sambandshugleiðingum þessa dagana og ert mikið fyrir ást og umhyggju, vilt gefa mikið frá þér. Þú vilt hafa jafnvægi á hlutunum, þannig ef einhver gefur þér ást og umhyggju þá vilt þú gefa jafn mikið til baka. Þú er mjög mikill vinur vina þinna og vilt gefa mikið frá þér, stundum meira en þú getur. Þú átt mjög auðvelt með að finna allt það góða I fólki. ( ástarlífinu viltu fara út að borða, eyða góðum tíma saman og fá athygli. Þú átt að reyna að hugsa minna um að finna ástina því þú átt það til að laða fólk að þér án þess að þú gerir þér grein fyrir því og það mun gerast I ástarlifinu líka. Sporðdreki (24. október - 22. nóvember) Þú ert mjög upptrekt/ur þessa dagana og vikurnar, finndu þína eigin leið til að slaka á. Þú ert mjög trú þínu fólki og einnig mjög opin fyrir flest öllum hlutum sem eru lagðir fyrir þig. Ef einhver stingur þig I bakið þá ertu ekki týpan til að gleyma eða fyrirgefa. Reyndu að læra að sumt er ekki gert viljandi á þinn hlut. í ástarlífinu átt þú það til að falla fyrir þeim sem eru ekki að sýna þér mikinn áhuga, þú vilt hafa fyrir hlutunum en ekki að fá þá þeint upp I hendurnar. Þú ert mjög vinsæl/sæll í einkalífi og vinnu en ekki vinsælasta manneskjan þó svo að þú viljir það. Þú getur talað marga til og rökstutt þín mál á góðan hátt, en þú verður líka að vita að aðrir verða að komast að og leggja til málanna. Bogamaður (23. nóvember - 21. desember) Þú ert eitthvað leitandi núna en veist ekki alveg að hverju. Það er best að halda áfram því þú munt eflaust á endanum finna það. Þú verður að fá svör við flest öllu og vilt alltaf fá góð og gild svör tilbaka. Þú mátt alveg slaka á I að þrýsta á fólk að vera með öll svör á reiðum höndum. Þú þarft á manneskju að halda sem getur sýnt þér hluti og lætur þig losa um beislin I ástarlífinu. Það er eitthvað að pirra þig þessa dagana, en ekki láta það slá þig of mikið út af laginu. Fólk metur þig og það er auðvelt að falla I skuggann á þér. Steingeit (22. desember - 20. janúar) Þú ert mjög ábyrg manneskja og traust. Þú stendur þig vel I vinnunni og skilar þínu oftast alveg 100%. Þú vilt vinna mikið og fara hratt upp metorðastigann sem er gott, en reyndu að gleyma ekki að skemmta þér á meðan. Þú þarft á einhverjum að halda sem er mjög traustur/traust og er alltaf til taks og er að gera það gott I lífinu. Það er mikil metnaðargirni I gangi hjá þér. Reyndu að rækta þig og þína innri manneskju. Vatnsberi (21. janúar - 19. febrúar) Vatnsberinn er mjög sterkt merki þar sem þú ert ábyrgðasöm/samur, nýjungagjörn/gjarn og opin fyrir skemmtilegum hlutum. Fólki finnst aldrei leiðinlegt að hanga með þér og þú ert feimin en leynir mikið á þér. Þú ert með sköpunargáfu en veist ekki alveg hvað þú átt að gera við hana. í ástarlífinu þarftu að hafa einhvern sem kann að meta smámunasemina I þér og finnst hún skemmtileg. Þú þarft að losa aðeins um beislið núna og þér mun liða mun betur. Ekki vera hrædd við að fólk horfi á þig, það er ekki að hneykslast, það er að dást að þér. Fiskar (20. febrúar - 20. mars) Þú ert mikil draumóra manneskja og átt það til að detta I þinn eigin heim I langan tíma, reyndar stundum of langan tima. Þú átt það til að láta traðka á þér en samt tekur þú varla eftir því. Þú ert mjög blíð/ur I eðli þínu. Þú ert mikil ástarmanneskja og dreymir oft um hluti sem gerast bara á hvíta tjaldinu, þú þarft á miklum rómans að halda. Þú átt það til að reyna stundum of mikið að vera listamaður þó svo að það búi ekki mikið listamannseðli I þér. Það er samt ekki alslæmt þar sem þú lætur þig dreyma og það gerir það að verkum að þú átt auðveldara með að setja markið hátt og þá kemstu lengra.

x

Orðlaus

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Orðlaus
https://timarit.is/publication/942

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.