Orðlaus - 01.03.2004, Qupperneq 32
4-
Á síðustu öld voru njósnarar gífurlega mikilvægir,
sérstaklega fyrir Sovétríkin og Bandaríkin á
meðan á seinni heimsstyrjöld og kalda stríðinu
stóð. KGB vann gegn SIS og CIA og öfugt og
njósnarar unnu á báðum vígstöðum við að stela
upplýsingum og komast að leyndarmálum hjá
óvininum. Enginn getur vitað hversu margir
njósnarar unnu á þessum tíma og hversu miklar
skemmdir þeir unnu fyrr en leyniþjónusturnar
leysa frá skjóðunni, sem verður líklega aldrei, en
gaman er að skoða nokkra af afkastamestu
njósnurum tuttugustu aldarinnar sem upp komst
um.
Aldrich Ames
Ames er einn af kaldrifjuðustu svikurum í sögu
Bandaríkjanna og einn hæstlaunaðasti njósnari
heimsins. Hann vann sem njósnari fyrir KGB í mörg ár,
á sama tíma og hann starfaði hjá CIA. Árið 1983 fékk
hann stöðuhækkun og var gerður yfirmaður
gagnnjósnaradeildarinnar í málum Sovétríkjanna en
þá gat hann komist í nær alla pappíra um Sovétríkin
og nöfn allra bandarískra njósnara sem störfuðu þar
á vegum CIA. Hann gaf Rússunum öll nöfnin og
uppljóstraði öðrum mikilvægum aðgerðum. Bandarísku
njósnararnir voru handteknir tafarlaust og sumir
drepnir.
Það sem ýtti honum út í þessa svikastarfsemi var að
hann kynntist konu frá Mexíkó, Rosario, sem var með
dýran lífsstíl og þurfti hann því að auka árstekjurnar
sínar til þess að halda henni ánægðri. Með því að selja
KGB nöfn rússneskra CIA njósnara græddi hann
heilmikið, eða um tvær og hálfa milljón dollara.
Ames var handtekinn árið 1994 og hlaut lífstíðarfangelsi
án reynslulausnar.
Cambridge njósnararnir
Philby, Guy Burgess, Donald Maclean og Anthony Blunt
voru einir af afkastamestu njósnurum sem sögur fara
af. Þeir kynntust í skóla í Cambridge á fjórða
áratugnum og unnu sem nýliðar fyrir KGB á þeim tíma.
Næstu 30 árin unnu þeir fyrir Sovétríkin á ýmsan hátt
en á sama tíma gengdu þeir virðulegum stöðum innan
bresku ríkisstjórnarinnar, meðal annars sem njósnarar.
( seinni heimsstyrjöldinni vann Madean hjá breska
utanríkisráðuneytinu, Burgess starfaði sem
persónulegur ráðgjafi áberandi stjórnmálamanna, Blunt
var embættismaður í leyniþjónustunni MI5 og Philby
starfaði hjá SIS og rétt áður en seinni heimsstyrjöldinni
lauk var hann skipaður yfirmaður deildarinnar sem sá
um mál Sovétríkjanna hjá SIS. Philby var þá bæði
maðurinn sem stjórnaði aðgerðum gegn Sovétmönnum
og var njósnari fyrir þá. Cambridge njósnararnir sviku
samstarfsmenn sína, fjölskyldur sínar og landið en þeir
gerðu það í þeirri trú að Sovétríkin, á þeim tíma, væru
eina rikið nógu sterkt til að standa á móti útbreiðslu
fasismans með tilkomu Hitlers og Mussolinis og
samþykktu því að starfa fyrir KGB. Yfirmenn KGB sáu
strax að hægt væri að græða á vel menntuðum ungum
mönnum frá virtum háskóla eins og Cambridge, þar
sem miklar líkur væru á því að þeir myndu starfa í
háttsettum stöðum í Bretlandi í framtíðinni þar sem
auðvelt væri fyrir þá að komast að ýmsum
leyndarmálum, sem síðar varð einmitt raunin.
Það komst að lokum upp um þá alla, en enginn þeirra
náðist.
Klaus Fuchs
Fuchs var þýskur eðlisfræðingur sem flúði til Bretlands
á nasistatímanum. Hann var gerður meðlimur í
Manhattan-verkefninu milli Breta og Bandaríkjamanna
sem þróaði atómsprengjuna, en hann sveik þá og lak
öllum upplýsingunum í Rússana árið 1945.
Af samstarfsmönnum sínum var Fuchs álitinn fyrirtaks
vísindamaður og mjög metnaðarfullur og grunaði
engan að hann væri að uppljóstra leynilegum
upplýsingum fyrr en löngu seinna, eða árið 1949. FBI
komst í málið og sakaði Fuchs um að starfa sem njósnari
og játaði hann fljótlega. Hann var fundinn sekur um
að miðla leynilegum upplýsingum til Sovétríkjanna og
var dæmdur í fjórtán ára fangelsi árið 1950.
Mata Hari
Mata Hari var holienskur nektardansari sem ferðaðist
sem dansari um Evrópu á tímum fyrri
heimsstyrjaldarinnar. Hún var ráðin af frönsku
leyniþjónustunni til þess að ná upplýsingum frá
Þjóðverjunum á ferðalögum sínum en var síðan sökuð
um að lifa tvöföldu lífi, það er að vinna sem njósnari
fyrir Frakka annars vegar og Þjóðverja hins vegar, á
sama tíma. Árið 1917 handtóku Frakkar hana og sökuðu
hana um að hafa verið njósnari fyrir Þjóðverja og vera
þar af leiðandi valdur að dauða þúsunda hermanna og
var hún tekin af lífi árið 1917. Sögusagnir ganga um
það að meðan á aftökunni stóð hafi þurft að binda fyrir
augun á aftökusveitinni svo að þeir myndu ekki láta
undan þokka hennar.
Alger Hiss
Hiss starfaði sem embættismaður í ríkisstjórn Roosevelt.
Á sama tíma var hann sakaður um að vera aktífur
kommúnisti. Áður en hann náði að svara fyrir sig voru
ásakanirnar búnar að birtast í öllum stærstu dagblöðum
landsins, til dæmis í The New York Times, The Chicago
Tribune og Los Angeles Times. „Hiss málið" varð gífurlegt
fjölmiðlafár og náði oft á forsíður biaðanna. Því var
haldið fram að Hiss hefði um skeið gefið Sovétríkjunum
leynileg skjöl úr ríkisstjórninni á meðan hann vann þar
á fjórða áratugnum og gefið kommúnistunum
upplýsingar um New Deal áælun Roosevelt forseta.
Richard Nixon, sem þá var þingmaður, barðist hvað
sterkast fyrir því að Hiss myndi gjalda fyrir þetta og varð
fyrir vikið þjóðþekktur í Bandaríkjunum og tuttugu árum
seinna, forseti landsins.
Hiss hélt stöðugt fram sakleysi sínu en var fundinn sekur
og sat í fangelsi í 44 mánuði.
Jonathan Pollard
Pollard er bandarískur gyðingur sem starfaði í
leyniþjónustu sjóhersins í Bandaríkunum. Á meðan lak
hann þúsundum leynilegra skjala í ísraelsmenn. Árið
1985 fór yfirmönnum í Washington að gruna að ekki
væri allt með felldu þegar þeir fundu leynileg skjöl sem
tengdust vinnu Pollard á engan hátt inni á skrifstofunni
hans. Yfirmennirnir fengu FBI til að rannsaka málið og
Pollard var síðar handtekinn fyrir að selja Israelsmönnum
upplýsingar um Bandaríkjastjórn.
Pollard neitaði fyrir að njósna um Bandaríkin en sagðist
einungis hafa veitt (sraelsmönnum upplýsingar sem hann
trúði að væru nauðsynlegar til að tryggja öryggi (sraels,
meðal annars upplýsingar um sovéska hermenn í Sýrlandi
og Irak, efnavopn og kjarnorkuvopnaáætlun Pakistana.
Þrátt fyrir afsakanirnar var Pollard dæmdur f
lífstíðarfangelsi, en barátta fyrir lausn hans hefur staðið
WmSk
: . -f _ ■ ■
sBnv'j-.