Orðlaus - 01.03.2004, Qupperneq 34
Ef Woodstock var síðasta orgía híppatímans þá var
Altamont klamidían sem fylgdi í kjölfarið. Ókeypis
tónleikar Rolling Stones á Altamont-
kappaksturbrautinni enduðu með barsmíðum, morði
og þeirri staðreynd að hippatíminn væri liðinn undir
lok. Útópian hafði gufað upp, "The dream is over"
söng John Lennon stuttu eftir að Bítlarnir hættu að
starfa saman. Við þreyttum og útjöskuðum
blómabörnum blasti nýr áratugur og hann leit ekki vel
út. Víetnam var enn í gangi og aldrei hafði
sprengjuregnið verið þéttara. Nokkrum árum áður
hafði ungt fólk stormað út á göturnar, öskrað og slegist
við löggurnar. Fólk hafði fengið nóg af þessu rugli og
fór að leita aftur til friðsælli tíma. Eftir endurreisn
blússins nokrum árum áður voru hlustendur mjög opnir
fyrir allri nostalgíu og tilfinningasemi í tónlist.
Árið 1969 hófu Crosby, Stills & Nash að heila sárin.
Sveit þessi var saman sett af miklum hæfileikamönnun
úr nokkrum vinsælustu hljómsveitum þessa tíma: David
Crosby úr Byrds, Stephen Stills úr Buffalo Springfield
, Graham Nash úr Hollies og seinnameir annar meðlimur
Buffalo Springfield, Neil Young. Blanda þeirra af
angurværum kassagítarballöðum og sveimandi radd-
harmóníum hafði strax gríðarleg áhrif á
tónlistarheiminn og sló umsvifalaust í gegn. Fólk var
agndofa yfir fegurð þessarar tónlistar. Aðrir fylgdu í
kjölfarið. America, Cat stevens, Ja mes Taylor, fólk vildi
bara róa sig niður og njóta einhverrar fegurðar í lífinu
á meðan Nixon stjórnaði stríðinu. Önnur plata CSNY,
"Déjá Vu" frá 1970 fangaði tíðarandann fullkomlega.
Fagrar harmóníur og hugljúfar ballöður innan um
rífandi rafmagnsgítarkafla, element sem Neil Young
bætti við formúluna, einkenna plötuna sem er
tvímælalaust eitt merkasta verk tímabilsins.
Fortíðarþráin hélt áfram. Skyndilega voru allir kúrekar.
Fyrrnefndir CSNY birtust iðulega sem riddarar
gresjunnar á plötukápum sínum. Poco, AztecTwo-step,
The Band voru allir undir áhrifum sveitarínnar. Meira
að segja Grateful Dead gerðust gallhart bluegrass-
band um tíma. Upphaf þeirrar tónlistarstefnu sem
kölluð hefur verið alternative country (eða alt.country)
á rætur sínar að rekja til tveggja manna. Árið 1967 gaf
Bob Dylan út plötuna "John Wesley Harding". Með
henni hófst þróun hans í áttina að country-þemaðri
tónlist, sem náði hámarki með hans allra bestu plötum,
"Blood on the Tracks"('75) og "Desire"('76). Á "John
Wesley Harding" var að finna lagið "All along the
Watchtower", eitt fyrsta lagið sem bindur saman
nútíma rokk og gamaldags country. Hinn maðurinn,
og sá sem eflaust á mestan þátt i að þróa hljóm
alt.country, var Gram Parsons. Parsons, sem var fyrrum
meðlimur í The Byrds, er kanski lítt þekktur meðal
hlustenda í dag, en á þessum árum var hann algert
yfirvald í alt.country/rokk heiminum. Parsons, ásamt
hljómsveit sinni The Flying Burrito Brothers, gerðu
stálgítara og banjó að jafn mikilvægum hljóðfærum
og rafmagnsgítarar í rokki. Kókaínkúrekarnir frá Los
Angeles, The Eagles, voru lærisveinar Parsons. Þeir
tóku þennan country hljóm frá knæpum í Californiu
til íþróttaleikvanga um allan heim. Greatest hits platan
þeirra frá 1976 hefur selst í meira en 28 milljón
eintökum, sem gerirThe Eagles að söluhæstu hljómsveit
allra tíma. Velgengni þeirra opnaði dyrnar fyrir
sveitaiubbarokkurum eins og The Allman Brothers
Band og Lynyrd Skynyrd.
Eftir að Bitlarnir lögðu upp laupana var leiðin greið
fyrir The Rolling Stones að taka yfir sem stærsta
rokksveit heimsins. Á tónleikum voru þeir ávallt kynntir
sem "The greatest rock and roll band in the world".
Á þessum árum sköpuðu þeir sér þann orðstír og þá
ímynd sem gerir þá að þeim goðsögnum sem þeir eru
í dag: óumdeildir konungar saurugs stjörnu- og
sukklífernis, alfa og ómega kynlffs, eiturlyfja og rokk
og ról tónlistar. Þeir voru alltaf illir, á bandi satans
þegar aðrir sungu um blóm og frið á hippaárunum.
"Sympathy for the devil", "Their satanic majesties
request", "Paint it, black". Efnistök þeirra voru myrk
og hættuleg. Undir lok 60's voru sífelld hneykslismál
að koma upp. Eiturlyfjaböst, grunsamlegur dauðdagi
stofnanda sveitarinnar, Brian Jones, og síðast en ekki
síst þegar fíkniefnalögreglan réðst til atlögu á heimili
Keith Richards. Löggan stormaði inn í miðja orgíu, fólk
var nakið, I vímu, og Marianne Faithful, kærasta Mick
Jagger, átti að hafa verið með Mars-súkkulaðistöng á
kafi í klofinu ó sér. Pegar skattayfirvöld í Englandi fóru
að þjarma full mikið að The Stones, fóru þeir í
sjálfskipaða skatta-útlegð til S-Frakklands. Það var svo
( dimmum, rökum kjallara í glæsivillu sem áður hýsti
höfuðstöðvar Gestapó í Frakklandi að þeirra besta
plata var tekin upp. "Exlle on Main St." (’72) er
fullkomin samsuða af frumstæðu rokki, blús og, já,
country. Kjallarinn hriplak, og allar snúrur lágu um
drullupolla út í garð inn í hljóðupptökutrukk. Meðan
á upptökum stóð var sífelldur gestagangur og sukkið
var rosalegt. Á einhvern óútskýranlegan hátt varð úr
þessu frábær plata. Kolmyrkt meistaraverk. Þeir sem
vilja kynnast hvernig þeir hljómuðu lifandi á þessum
árum, ættu að skoða "Get Yer Ya Ya's Out!"('70), þar
sem þeir eru upp á sitt allra besta. Sannarlega ein af
bestu live plötum allra tíma.
Þótt Keith Richards verði alltaf númer eitt, mesti
töffarinn, fyrirmynd allra saurlífernisrokkara voru aðrir
að taka djammið enn alvarlegar á þessum árum.
Rokktónlistin var varla 15 ára gamalt tónlistarform,
fyrirbæri eins og grúppíur, ókeypis dóp og villt partý
í einkaflugvélum voru alveg ný af nálinni. Vinsælasta
og jafnframt umtalaðasta hljómsveit þessara ára, Led
Zeppelin, gerði hugtakið að ganga of langt að listformi.
Árið 1971 var Led Zeppelin orðin ein stærsta sveit
heimsins. Sú staðreynd að þeir gáfu örsjaldan viðtöl
og komu lítið fram opinberlega utan sviðsins gaf
ótrúiegustu sögum byr undir báða vængi. Jimmy Page,
Þáð slm MQ vissir erkki um Roclt i'i roli list
Lars Ulrich trommuleikari Metallica er ákafur safnari
núttmalistar. Hann hefur sérstaklega safnað verkum
eftir Jean-Michel Basquiat, Jean Dubuffet og The CoBrA
group. Nýlega seldi hann safnið sitt því að verkin
pössuðu ekki inn í jnnréttingarnar á nýja húsinu hans,
sem hann hannaði sjálfur. Verkin seldust á 13 milljónir
dollara og þar á meðal fór ein mynd eftir Basquiat á
litlar 5,5 milljónir dollara eða 385 milljónir króna.
Ef hljómsveitir vill að sýna hversu menningarsinnuð
hun er þá er ekki til betri leið fyrir hana en að láta
frægan listaméínn hanna plötúúmslögin sín. Þáð var
einmítt það Sem Bítlarnir gerðu með plöturnar „Sgt
&
«3
*
&
Peppers Lonely Hearts Club" (Peter Blake) og „The
White Album" (Richard Hammelton), Rolling Stones
með „Sticky Fingers" (Andy Warhol) og Elton John
með „Elton John's Songs Form The West Coast" (Sam
Taylor Wood).
Þann 24. febrúar 2001 söng Bono í jarðarför hjá hinum
umdeilda lístamanni Balthus (Balthasar Agosthino
Rodriguez de Rola). Hann var alræmdur fyrir
kynferðisleg málverk af unglingsstelpúrn. Hann var 92
ára þegar hann lést.
Ronnei Wood, gítarleikari Rolling Stones, hefur selt
42
&
.&
&
■4?
&
&
málverk eftir sig fyrir rúmar 3 milljónir dollara. Aðallega
eru þetta andlitsmyndir af vinum hans úr
skemmtanabransanum og myndir af afrísku dýralífi,
sérstaklega nashyrningum. „Þeir eru æðislegir'' segir
Wood þegar hann er spurður,
risaeðlur".
þeir minna mig á
r ■ A? . vö'
Árið 2002 hélt Marilyn Manson sýningu á verkum sínum
I Los Angeles, Meðal yerkanna var portrett mynd af
hausunum af Columbine morðingjunum þeim Eric Harris
og Dylan Klebold ofanfá!friðarmerki. „ l'm probably a
better painter than a singer, in some people's opinion"
&
sagði Manson við opnun sýningarinnar. Jj^
."ð-
& & & & &
^ *
& &