Orðlaus - 01.12.2004, Blaðsíða 6
-
Hverju leitar þú helst að í fari kvenna?
Mér finnst húmor og heiðarleiki skipta mjög miklu máli. Einnig falleg og
góð gildi í bland við lokkandi útlit og kynþokka. Þetta er formúlan og ég
er blessunarlega búinn að finna eina sem hefur þetta allt saman, hana Ollu
mína.
Hvað er það
við konur?
Þegar þær segja
sem fer mest í taugarnar á þér í sambandi
Þegar þær segja eitt en meina eitthvað allt annað.
. *
Ef
m
MMMBBMMMH——WBHBMI—WMM—
Ef þú fengir að vera kona í einn dag hver myndir þú vera
og af hverju?
Ég væri til í að fá að bakka aðeins í tíma og vera Yoko Ono þegar hún var
nýbúin að kynnast John Lennon. Þá hefði ég dömpað honum og leyft honum
að vinna í friði.
Er eitthvað sem þú skilur ekki í sambandi við konur?
Já hellingur, en ég er alltaf að læra.
Við hvað myndir þú helst vilja vinna?
Ég plana ekki mikið fram í tímann því ég hef þörf fyrir ný og spennandi
verkefni með reglulegu millibili. En í dag hugsa ég að það verði eitthvað á sviði
fjölmiðla- og markaðsmála.
rÁ»í/'f: >'«*;». mmems • % 'rsmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmm
Hvar myndir þú helst vilja búa og af hverju?
(sland er best í heimi og þar verða höfuðstöðvarnar. Stefnan er svo sett á
sumarhús á Ítalíu.
þú mættir breyta einhverju í heiminum, hverju myndir
þú breyta?
Það er nú hálf klisjukennt að tala um stríðshrjáða heiminn en ég geri það
nú samt. Það þyrfti að gefa öllum þessum reiðu mönnum róandi og útrýma
alnæmi í leiðinni.
Hvert er átrúnaðargoðið þitt?
Afi minn heitinn og nafni. Hann var allt sem ég vil vera.
Hver er uppáhalds íþróttagreinin þín?
Knattspyrna. Maður fær aldrei nóg af henni.
Hver er besti maturinn sem þú hefur smakkað?
Kjúklingaréttur sem við kella smökkuðum á Italíu forðum. Bringur vafðar í
hráskinku, steiktar upp úr smjöri með parmesan og salvíu. Ávanabindandi.
..... ... ii i i i i m i mii .....
Hefur þú einhvern tímann svikið mikilvægt loforð?
Ég held bara ekki! En örugglega einhver veigaminni loforð svo sem.
Hvað er klám fyrir þér?
Bara nokkuð gott mál, ef þátttakendur eru hressir og það er sæmilega
framkvæmt.
mm—jb-. »<
Hvað er á döfinni?
Próf í Tækniháskólanum, 32 manna úrslit í Idolinu, 25 ára afmæli og jólin.
Mynd: Atli
Langar þig
að kúra
um jólin?
Jólin! Árstími rómantíkurinnar! Ef það er
einhver árstími sem fær fólk til að langa
að hanga heima undir sæng með elskunni
sinni þá er það desember og jafnvel
verstu handrukkarar fyllast af rómantík,
gjafmildi og ást. En hvert á að leita eftir
draumajólakærastanum? Til eru ýmsar leiðir,
sem þó eru misgóðar, en möguleikarnir eru
allt í kringum þig.
Við mælum með deitum, það uppfyllir allar þrár fyrir
jólakúr, gefur spennusting f magann og er einmitt í
anda jólanna. Það fyrsta sem þarf að spá i er hvernig þú
ætlar að framkvæma leitina, hvert á að leita eftir deiti
og síðan hvað hægt sé að gera, hvort að kaffihúsaferð
á virkum degi eða um helgi henti vel, matarboð þar
sem þið eruð tvö, eða fleiri, eða að hittast á djamminu.
Til eru endalausir möguleikar í stöðunni og það er þitt
að velja hvað hentar best hverju sinni. Flestir snúa sér í
heilhring þegar minnst er á að fara á deit og vilja ekkert
með það hafa en ef þú lumar á góðum ráðum þegar
kvöldið virðist ætla að enda í vandræðalegheitum þá
er þetta ekkert mál og bara krydd í tilveruna.
Blint stefnumót
Fáðu kunningja til að koma þér á blint stefnumót. Það
er mjög ólíklegt að góð vinkona eða vinur þinn þekki
einhvern sem þú þekkir ekki, því annars værirðu eflaust
búin að hitta viðkomandi. Þannig að best er að biðja
einhvern kunningja að koma þvi í kring.
Matarboð: Ef þig langar að komast hjá vandræðaleika
þá getur kunninginn haldið matarboð og þið mætið
bæði án nokkurra skuldbindinga. Ef að þið passið ekki
saman þá geturðu alltaf farið án þess að það komi illa út
eða þá að það er bara gaman án þess að ástarbjöllurnar
séu að klingja.
Kaffihúsaferð: Kunninginn sem reddar þér deitinu
lætur annaðhvort ykkar fá símanúmerið hjá hinu
og svo hringist þið á og planleggið hvar og
hvenær. Virku dagarnir henta betur þar sem
þá er hægt að segjast þurfa að fara snemma
heim vegna vinnu næsta dags. Helgi getur
þó reynst þeim vel sem eru frekar feimnir
því þá ertu með afsökun fyrir þvi að skella
í þig smá þjór til að slaka á en alls ekki
verða hauslaus því þá endar þetta illa.
Þú hittir einhvern sem þú þekkir og býður honum
einfaldlega á deit. Þetta hljómar kannski vandræðalegt,
en af hverju ekki? Það versta sem gerist er að þú færð
nei en það er mjög ólíklegt. Til að koma í veg fyrir
allan misskilning þá er mjög sniðugt að gefa gæjanum
símann hjá þér og biðja hann að hringja í þig ef hann
hefur áhuga, þetta kemur í veg fyrir það að þú ofsækir
einhvern sem hefur engan áhuga.
Þeir sem koma til greina eru: vinur, kunningi, vinnu-
eða skólafélagi.
Vinur: Þú verður að skipuleggja þetta vel þar sem
vináttan gæti verið í húfi ef vinurinn hefur ekki áhuga
á þér. Leggðu grunninn að skemmtilegu kvöldi, til
dæmis með því að bjóða honum í mat til þín þar sem
þið eruð bara tvö og svo kemur í Ijós þegar líða fer á
kvöldið hvort að einhverjir rómantískir neistar fljúgi
ykkar á milli.
Vinnufélagi eða skólafélagi: Byrjaðu á því að daðra
og athugaðu hvernig hann tekur undir það. Síðan er
„casually" hægt að stinga upp á einhverju að gera
saman, hittast á kaffihúsi til að spjalla eða spila, fara
saman í sund, keilu eða borða saman eftir vinnudag.
Vandræðalegt andrúmsloftið á eflaust eftir að
umkringja ykkur næstu daga á eftir en það er einmitt
það sem er svo gaman. Þú kemst ekki hjá því að hitta
hann og kemst því fljótt að því hvort um áhuga sé að
ræða eða ekki.
Kunningi: Það er best! Það er einhver sem þú kannast
við, ekki þara einhver handahófskenndur gaur, en ef
hlutirnir ganga ekki upp þá hefur það engin áhrif.
Þú þarft ekki að hitta hann frekar en þú vilt og getur
sniðgengið alla þá staði sem hann hangir á þangað til
að það versta er liðið hjá. Hérna virkar daðursreglan
líka og síðan geturðu gefið honum upp símann hjá
þér og beðið hann að hringja ef hann ætlar að gera
eitthvað skemmtilegt. Þú reynir svo að láta símtalið
leiða út í að þið hittist á einhverjum af fyrrgreindum
stöðum og ef hann er til þá leiðir eitt af öðru.
Það er þara að prófa, fyrsta skiptið er erfiðast en
þegar þú ert búin með það þá eru þér allir vegir færir.
Komdu sjálfri þér í jólaskap með því að brjóta upp
hversdagsleikann.
EMT