Orðlaus - 01.12.2004, Blaðsíða 41
É
f Á
/
■
I
1
i^——■
1
E
Sautján
Hvltur jakki,
Mao 16.990,-
Topshop
Húfa 1.690,-
Levi's búðin
Gallabuxur Levi's 501
12.990,-
Topshop
Pólóbolur
2.990,-
Smash
Skyrta, Stússy
8.999,-
Levi’s búðin
Gallabuxur Levi's 501
12.990,-
Sautján
Gallabuxur,
Nudie jeans
15.990,-
Topshop
Grænn síðermabolur
1.690,-
Platan er agæt poppplata (a íslenskan
mælikvarða), en ég held að þær séu
ekki næstu vonarstjörnur íslands...
allavega ekki sem Nylon. Þær eiga fína
spretti en reyna oft að vera of mikið
R'n'B sem er ekki að virka, eins og
til dæmis í laginu „Ertu að hlusta?".
Platan skarar á engan hátt framúr
í lagasmíðum, ballöður og týpísk
popplög eftir formúlum. Söngurinn er
fínn en þó misgóður eftir þvi hver er
við hljóðnemann. Eftir að hafa hlustað
á plötuna get ég ekki mælt með henni
nema kannski sem gjöf fyrir stelpur
12 ára og yngri... enda er það kannski
einmitt markhópurinn þeirra.
Lög í sérstöku uppáhaldi: Ailsstaðar,
Lög unga fólksins, Einhvers staðar
einhvern tímann aftur.
Brain Police
Electric Fungus
Loksins er önnur plata Brain Police
komin út og hún er ekki af verri
endanum. Eyðimerkurrokkararnir hafa
greinilega þroskast mikið í gegnum
árin enda er útkoman frábær ... án
efa besta íslenska rokkplatan 2004.
Ég ætla ekki að eyða meiri orðum í
plötuna heldur einfaldlega hvetja fólk
til að fara út i búð og kaupa hana. Það
er gaman að geta þess að DVD diskur
fylgir gripnum og á honum má finna
mynd um gerð plötunnar ásamt meira
aukaefni.
Lög í sérstöku uppáhaldi: Mr. Dolly,
Coed Fever, Mushcream Caravan.
Steinar Bragi
Sólskinsfólkid
Gagnrýnendur keppast um að lofa
nýjustu afurð Steinars Braga sem
heldur áfram að koma á óvart með
ögrandi og nútímalegum skrifum
sínum. Eftir að hafa lesið bókina
skildi ég vel hvaða læti þetta væru.
Steinar Bragi gerir meira úr vönduðum
karakterlýsingum en spennandi
atburðarás þar sem í aðalhlutverkum
er háskólaprófessor og listakona sem
eiga það sameiginlegt að virðast ekki
eiga samleið með neinum. Sögur þeirra
og sambandsleysi við samfélagið
fléttast saman og úr verður stór
skemmtileg og ögrandi skáldsaga sem
þú hreinlega getur ekki lagt frá þér
fyrr en hún er búin.
Hermann Stefáns
Níu Þiófalvklar
Hermann Stefánsson sendir hér frá
sér frumlegt smásagnasafn. Bókin
er fyndin og oft á tíðum kaldhæðin
þegar hann bryddar á málum sem
hafa verið í umræðu í þjóðfélaginu
en blandar þeim við ást, samskipti
kynjanna og vana hversdagslífsins. í
sögunum fléttast saman skáldskapur
og raunveruleiki, ýmis skáld á borð við
Davíð Oddsson, Ólaf Jóhann, Nietzche
og Kafka koma við sögu og oft á tíðum
leið mér eins og ég væri stödd við hlið
sögumannsins að upplifa allt sem hann
væri að lýsa. í heildina stórskemmtileg
og auðveld lesning sem fær þig til að
spá i umhverfinu i kringum þig.